Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 jHtöáur á tnorgun GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Messa kl. 13.30. Organleikari Jón G. Þórarins- son. Almenn samkoma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Tekið við framlögum til kristniboðsins í messulok. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjud. 10 nóv. kl. 10.30. Fyrirbænaguðs- þjónusta. Beðið fyrir sjúkum. Kirkjuskóli barnanna er kl. 2 á laugardögum í gömlu kirkjunni. 1000 ára afmælis kristniboðs í landinu minnst í kirkjum Reykjavíkurprófastsdæmi DOMKIRKJAN: Kl. 11 hátíð- armessa vegna 1000 ára afmælis kristniboðs á Islandi. Sr. Sigurð- ur Fálsson, vígslubiskup predik- ar. Sr. Ólafur Skúlason, dóm- prófastur og sr. Þórir Stephen- sen þjóna fyrir altari. Kl. 13.30 messa. Sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðarheim- ili Árbæjarsóknar kl. 10.30. Guðsþjónusta í safnaðarheimil- inu kl. 13.30. Altarisganga. Kirkjukaffi Kvenfélags Árbæj- arsóknar eftir messu. Tekið á móti gjöfum til kristniboðsins. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa kl. 13.30 að Norðurbrún 1. Sr.Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl. 11 árdegis. Guðsþjónusta kl. 13.30. Baldvin Steindórsson, varaform. Kristni- boðssambandsins predikar. Sr. Lárus Halldórsson. BÍJSTAÐAKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Gísli Gunnarsson guðfræðinemi. Guðsþjónusta kl. 13.30. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Ólafur Skúla- son, dómprófastur. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðarheim- ilinu við Bjarnhólastíg kl.ll. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns- son. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10. Prestur sr. Þorsteinn Björnsson. FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Laugard.: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnud.: Barnasamkoma í Fella- skóla kl. 11 f.h. Guðsþjónusta í kapellunni að Keilufelli 1 kl. 13.30. Sr. Ingólfur Guðmunds- son, lektor messar. Sr. Hreinn Hjartarson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Sr. Arngrímur Jóns- son. Messa kl. 13.30. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPÍTALINN: Guðsþjón- usta kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Barna- samkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Sóknarnefndin. LANGHOLTSKIRKJA: Óska- stund barnanna kl. 11. Söngur, sögur, myndir. Guðsþjónusta kl. 13.30. Athugið breyttan messu- tíma. Ræðuefni: „Hvað hefur heimurinn að gera með þennan Krist." Prestur sr. Sig. Haukur Guðjónsson. Organleikari Jón Stefánsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESPRESTAKALL: Laugard. 7. nóv.: Guðsþjónusta að Hátúni lOb, níundu hæð kl. 11. Sunnud. 8. nóv.: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Messa kl. 13.30. Jónas Þórisson, kristniboði pre- dikar. Tekið á móti gjöfum til kristniboðsins. Þriðjud. 10. nóv.: Guðspjall dagsins: Jóh. 4.: Konungsmaðurinn. Bænaguðsþjónusta kl. 18. Æsku- lýðsfundur kl. 20.30. Miðvikud. 11. nóv.: Almenn samkoma í kirkjunni kl. 20.30. Sóknarprest- ur. NESKIRKJA: Laugard. 7. nóv.: Samverustund aldraðra kl. 3—5. Laugarneserlur syngja. Sunnud. 8. nóv.: Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 13.30. Sr. Frank M. Halldórsson. SELJASÓKN: Barnaguðsþjón- usta í Ólduselsskóla kl. 10.30. Barnaguðsþjónusta að Selja- braut 54 kl. 10.30. Guðsþjónusta í Ölduselsskóla kl. 13.30. Sókn- arprestur. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Messa kl. 2. Organleikari Sigurð- ur ísólfsson. Prestur sr. Kristján Róbertsson. DÓMKIRKJA KRISTS Konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. og lág- messa kl. 2 síðd. Alla rúmhelga daga er lágmessa kl. 6 síðd. nema á laugardögum þá kl. 2 síðd. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árd. KFUM & KFUK, Amtmannsstíg 2b: Opið hús kl. 20.30. — Mikill söngur. Hugleiðing, Gunnar Jó- hannes Gunnarsson. Kaffistofan verður opin. KIRKJA ÓHÁÐA safnaðarins: Guðsþjónusta kl.14. Sr. Árelíus Níelsson messar. Safnaðarprest- ur. FÍLADELFfUKIRKJAN: Sunnu- dagaskólinn kl. 10.30 árd. Safn- aðarguðsþjónusta kl. 14. ræðu- maður Einar J. Gíslason. Al- menn guðsþjónusta kl. 20. Ræðu- maður Sam Daníel Glad. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 10. árd. Hjálpræð- issamkoma kl. 20.30. KIRKJA JESÚ Krists hinna síðari daga heilögu. Mormónar, Skóla- vörðustíg 46: Sakramentissam- koma kl. 14 síðd. og sunnudaga- skóli kl. 15. NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háa- leitisbr. 58: Messa kl. 11 otg kl. 17. BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11 árd. Sr. Bragi Friðriksson. GARÐASÓKN: Barnasamkoma í skólasalnum kl. 11 árd. Sr. Bragi Kriðriksson. KAPELLA ST.JÓSEFSSYSTRA í Garðabæ: Hámessa kl. 2 síðd. VÍÐISSTAÐASÓKN: Barnaguðs- þjónusta kl. 11 árd. Almenn guð- þjónusta kl. 14. Sr. Sigurður H. Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 2 síðd. Sóknarprestur. KAPELLAN ST. Jósefsspítala Messa kl. 10 árd. KARMELKLAUSTUR: Lágmessa kl. 8.30 árd. Rúmhelga daga er messa kl. 8 árd. INNRI NJARÐVÍKURKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11 árd. Sókn- arprestur. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Tónleikar Gunnars Kvaran og Gísla Magnússonar kl. 20.30. Sóknarprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11 árd. Skólabíllinn leggur af stað kl. 10.30. Guðs- þjónusta kl. 14. Sóknarprestur. ÚTSKÁLAKLtKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 13.30. Sóknarprstur. ÞORLÁKSHÖFN: Messa í skól- anum kl. 2 síðd. Sr. Tómas Sveinson. HEILSUHÆLI NLFÍ, Hveragerði: Messa kl. 10.45. Sr. Tómas Guð- mundsson. AKRANESKIRKJA: Barnasam- koma kl. 10.30. Messa kl. 14. Tek- ið á móti framlögum til kristniboðsins. Sr. Björn Jóns- son. Árleg merkjasala Flugbjörgunar- sveitarinnar um helgina. „Okkar styrkur - ykkar öryggi“ VETRARSTARF Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavfk hófst fyrir skömmu og að vanda með æfingu í Gígjökli Eyjafjallajökuls. Æfinguna sóttu um 30 félagar sveitarinnar og voru æfð hin ýmsu atriði í björgunartækni, segir m.a. í frétt frá sveitinni. — Tuttugasta og áttunda október sl. var svo haldin sameiginleg æfing allra sveitarfélaga í meðferð svokallaðra VHF-talstöðva, sem sveitin og reyndar allar aðrar björgunarsveitir eru að taka í notkun um þessar mundir. Fyrir næstu áramót á allsherjarbreytingu á öllum talstöðvum hér á landi að vera lokið og því samfara er auðvitað gífurlegur kostnaður fyrir björgunarsveitir landsins. í þessu sambandi má geta þess, að nú um helgina fer fram hin ár- lega merkjasala sveitarinnar, sem er hennar eina fjáröflunarleið. Fé- lagar sveitarinnar munu verða á ferli og bjóða fólki merki sveitar- innar til kaups. Þá verður kvenna- deild Flugbjörgunarsveitarinnar með sinn árlega kökubazar á sunnudag klukkan 15.00 í safnað- arheimili Langholtssóknar. Kvennadeildin er 15 ára um þessar mundir og hefur hún verið góður bakhjarl fyrir karlmennina í gegn- uhi árin, en hún hefur stutt sveit- arstarfið með fjárstuðningi og tækjagjöfum. Landsmenn! Við vonumst eftir ykkar stuðningi um þessa helgi, svo við verðum hæfari til að mæta þeim áföllum, er dunið geta ‘yfir í formi náttúruhamfara eða slysa. Okkar styrkur er ykkar öryggi, segir að síðustu í frétt frá Flugbjörgunar- sveitinni í Reykjavík. Nokkrir félagar Flugbjörgunarsveitarinnar á ferð á Kili vetrardag fyrir nokkrum árum. Ingibjörg Pétursdóttir: „Ekkert of mörg kaffihús í miðbænum.1* I baksýn sést Lækjargata 2. Veitingastofan er á horninu á annarri hæð. (Ljósm. ÓI.K.M). Nýjungar að Lækjargötu 2: Veitingastofa og sölugallerí í DAG, laugardag kl. 14, verður Listmunahúsið Lækjargötu 2 opnað sem sölugallerí og verður það starf- rækt sem slíkt í framtíðinni. Við sama tækifæri verður opnuð í hús- næði Listmunahússins veitingastofan Mensa. Eigandi Listmunahússins er Knútur Bruun, en Ingibjörg Péturs- dóttir mun reka veitingastofuna. Þar verða, að sögn Ingibjargar, á boðstólum te og kaffi ásamt kökum og svonefndum „bökum" sem munu innihalda grænmeti, lauk, egg og fleira í þeim dúr. Einn réttur verð- ur á borð borinn í hádeginu, en veitingastofan verður opin daglega frá kl. 11.30 til kl. 23.30, nema hvað lokað verður sunnudaga. Innrétting, húsgögn og matar- áhöld eru öll í gömlum stíl á veit- ingastofunni Mensu. Ingibjörg sagði, að hún teldi að vel væri pláss fyrir eitt kaffihús til viðbótar í miðborginni, enda væru þau mjög fá sem opin væru á kvöldin og hvert hefði sína sérstöðu. í Listmunahúsinu er nú á veggj- um sölusýning á verkum eftir Jón Engilberts, Óskar Magnússon vef- ara, Gunnar Örn Gunnarsson, Alf- reð Flóka og Þorbjörgu Höskulds- dóttur. Myndir á veggjum í Li.stmunahúsinu. (Ijósm. Ó1.K.M.).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.