Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 " !}}'$(ifftn {>>!;•«?■ ffc-.* ')« VívhVI * o-** • > f *P ** Norræna húsið: Forstöðu- maður Falun- minjasafnsins talar um Dal- ina í Svíþjóð KRIK HOFRÉN, minjavörður og forstöðumaður Kalun minjasafnsins í Dölunum í Svíþjóó, heldur fyrir- lestur í Norræna húsinu þriðjudag- inn 10. nóv. kl. 20.30 með litskyggn- um og talar um söfn í Dölunum og dalamyndir (dalmálningar). Dalirnir er það hérað í Svíþjóð, þar sem fornar hefðir og siðir hafa varðveist lengst og er áhuga- vert hvað þjóðhætti varðar. Þar er að finna hinar víðfrægu „dalmáln- ingar", dalamyndir/skreytingar en svo er nefnd alþýðulist sú, sem blómstraði í Dölunum á s.hl. 18. aldar og f.hl. 19. aldar. Voru heilu herbergin prýdd þessum myndum, sem voru ýmist málaöar á dúk eða pappír. Myndirnar lýsa oft at- burðum úr biblíunni eða verald- legum atvikum. Mikil litadýrð er gjarnan í þessum myndum og mikið um blómaskrúð. Falun-minjasafnið, sem Erik Hofrén veitir forstöðu, hefur á síðustu árum orðið miðstöð fyrir söfnin í léninu og þar er að finna heildarskrá yfir muni í þessum söfnum, en söfnin í Dölunum hafa haft forgöngu um endurskipulagn- ingu innan sænsku byggðasafn- anna. Erik Hofrén er, ásamt Rune Runbro ritstjóra, í heimsókn hér á landi og ætla þeir að gera út- varpsdagskrá um menningarlíf og söfn á íslandi. Þeir eru gestir Ár- bæjarsafns. Norræna húsið og Árbæjarsafn standa sameiginlega að fyrirlestr- inum. Finnski grafíklistamaðurinn Lisbet Lund er gestur Norræna hússins um þessar mundir og sýn- ir grafík í anddyri hússins 7.—20. nóv. Sýningin verður opin á opnunartíma hússins kl. 9—19, nema sunnud. 12—19. Aðgangur er ókeypis. Rádstefna um mennt- un kennara HIÐ ÍSLENZKA kennarafélag verð- ur með ráðstefnu í dag, laugardag og á morgun, sunnudag, um menntun kennara. Ráðstefnan hefst kl. 10 árdegis að Hótel Esju með erindi Arnórs Hannibalssonar og fjallar hann um tilgang kennaramenntunar. Að erindinu loknu verða umræður. Síðdegis verða starfshópar við störf og fjallað verður um niður- stöður starfshópanna á morgun, sunnudag. Valli víðförli í brezkum fjölmiðlum: Hlýtur að vera von í veröldinni - fyrst unnt er að skipuleggja þúsund mílna ferð, eingöngu fyrir vegvilltan rostung „ÞAÐ hlýtur að vera von í veröldinni fyrst með samvinnu þjóða á milli er unnt á svo snöggan og einfaldan hátt að skipuleggja þúsund mílna ferð, ein- göngu til að koma vegvilltum rostungi til heimkynna sinna“. Svo hljóðar leið- ari brezka stórblaðsins Sunday Express 27. september sl., en Valli rostungur víðförli vakti mikla athygli brezkra fjölmiðla og var vandlega rætt og ritað í blöðum og sjónvarpi um allt sem varð- aði Valla frá því hann strandaði við Skegnes á miðausturströnd Englands og þar til skipverjar á v/s Tý slepptu honum á borgarísjaka við austurströnd Grænlands. Athygli brezku þjóðarinnar beindist óhjákvæmilega að íslandi um leið og Valla, þar sem mestur hluti ferðar hans var á vegum og í boði Flugleiða og ís- lenzku ríkisstjórnarinnar og einnig vegna ófyrirséðs „stop-over“ á Kefla- víkurflugvelli. í viðtali við Mbl. sagði Jóhann Sigurðsson, forstjóri Flugleiða í London, að umtal brezks almennings um þátt íslendinga í málinu hefði verið mjög jákvætt og mjög í anda leiðara Sunday Express, sem vitnað er í hér í upphafi, þ.e. að ekki væri með öllu úti vonin um manngæzku í heiminum og jákvæðari samvinnu þjóða á milli fyrst svo mikið væri viðhaft vegna eins veg- villts rostungs. Einnig er talið, að Valli rostungur víðförli og saga hans hafi breytt afstöðu margra til íslendinga, en þáttur okkar í hvalveiðum hefur verið mörgum erlendum dýraverndunar- mönnum þyrnir í augum. Margar hugmyndir hafa komið fram um hver afdrif Valla víðförla við Græn- landsstrendur hafa orðið eða verða, og m.a. verið á það bent að Grænlendingar myndu nota fyrsta tækifæri til að skjóta hann og nýta sem fæðu. Hver sem afdrif hans verða stendur þó eftir einstæð ferðasaga og birtum við hér með nokkrar úrklippur úr brezkum blöðum þar sem fjallað er um Valia rostung víðförla og ferðasögu hans. £x-lcelandair duo set up holidays, flights venture 2 7SIPIX, SEP1W Wally the lost Walrus heads for home by air_ for* ,,,CUM “ ulh*n- ,n .IOn aP°Ci»|Jy *r é OCél c*n>ér. Ur. h, <« HMthro. . Omuh tna i lo«*minmu h« I SÍP'W (j 'wmdebiw “ WALRUS ON MMniOME tföliun A f XI Wally goes home Walrus makes big splash with V alerie '^iana set for tourfetboom A CLOSE •neount*, of tha Aretic kmd put • d«»h of maqic into V•!•,■• Scott • 'Olctléé- r,ö*ci«d Sl"ífirld Just th ticket for a walrus Walrus going home- Wt|lrus Wally gets an airlift home WALtr. Wally getsl diplomatlc airlift 2 8 SEP|98| 24 SEPI981 wm.lv. I vv aily on “ jhis way-b Igunboat rr LOOKED as If w i) the Walrus was 0n h »t laat toda _*ítef aí> intematlona S2SS, /ou, SkÍ?n ,r0fn hlS Wally Walrus to fly home hom* oa sa,v"iséias *n~jS S ?%2!nS ’» Amrriran éir baac m tJl? •'aSia? í Bnxsh trfcíti. t!r f. fca!,.a War nWM ta Cod his ordral not “»viva Creentand ^ ' í“e'W r>£*;„ "gx ■ 5*ss? SL? l&SVSS : m*trruiu« to mt!n« permixMnn í * díl»y i Grernlaúd ff'S? to *° 1 •uthorltlrs tTOm DanJsh I % «S33? 5?', I 2 5SEPIW Washed up'Wally to tly home Airlift for Wafly 'r Ít Uliir'd , tinct /P54 ot Noture our shorts

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.