Morgunblaðið - 28.11.1981, Qupperneq 1
64 SÍÐUR MEÐ 16 SÍÐNA IÐUNNARBLAÐI
261. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 28. NOVEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Týndi 16 árum
á einum degi
Warrington, 27. nóvember. Al\
MATT Hrooks, írskættaður starfsmað-
ur hjá ofnaframleiðanda í Warrington,
sem farinn var að hlakka til að geta
sest í helgan stein og lifað og leikið sér
fvrir eftirlaunin, varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu á dögunum að
eldast um 16 ár á einum degi. Brooks
er sagður mjög þungt hugsi þessa daga
því að hann veit ekkert hvað orðiö hef-
ur af þessum hálfa öðrum áratug í lífi
sínu.
Svo er mál með vexti að Brooks
fékk atvinnurekanda sinn til að
skrifa til manntalsskrifstofunnar í
Dyflinni og fá það staðfest, að hann
væri orðinn 63 ára gamall og færi
því á eftirlaun eftir tvö ár. Mann-
talsskrifstofan brást vel og svaraði
um hæl, að Brooks væri alls ekki 63
ára, heldur 79 og hefði átt að vera
kominn á eftirlaun fyrir 14 árum.
„Þetta var ægilegt áfall fyrir mig,“
sagði Brooks í dag í viðtali bresku
fréttastofuna. „Mér finnst allt í einu
að ég sé orðinn gamall maður.“
Hríðarbylur
í Reykjavík
Hreinsanir
í Rúmeníu
Húkaresl, 27. nóvembor. Al\
SfTNTEIA, málgagn rúmenska komm-
únistaflokksins, sagði í dag, að „stór
kostleg" svik og falsanir forráða-
manna helsta kolanámafyrirtækisins í
Kúmeníu hefðu valdið miklum vand-
ræðum fyrir raforkuiðnaðinn í landinu.
Sagt var, að þeir hefðu falsað fram-
leiðslutölur og látið raforkufyrirtæki í
SuðurKúmeníu fá svo léleg kol, að á
þeim hefðu orðið miklar skemmdir.
Þessar upplýsingar koma deginum
eftir að Ceausescu, Rúmeníuforseti„
rak þrjá háttsetta embættismenn
vegna vandræðanna í Oltenia-
námunum, sem víða hafa valdið raf-
orkuskorti og framleiðslustöðvun.
Scinteia sagði, að á pappírunum
væri framleiðsla brúnkola einni
milljón tonna meiri en raun bæri
vitni.
Þessar upplýsingar eru taldar enn
einn vitnisburðurinn um þá efna-
hagserfiðleika, sem Rúmenar eiga
nú við að stríða.
Ljósm. RA\.
„Ekkert kjördæmi er nú
öruggt fyrir stóru flokkana“
(’rosby, 27. nóvember. Al\
GÍFURLEGUR íognuður ríkti í dag meðal félaga í jafnaðarmannaflokknum
nýja í Bretlandi og stuðningsmanna þeirra í Frjálslynda flokknum eftir að
frambjóðandi þeirra, Shirley Williams, hafði unnið frækilegan sigur í auka-
kosningum í ('rosby, kjördæmi, sem íhaldsflokkurinn hefur átt frá upphafi.
Frú Williams sagði, að héðan í frá
gætu stóru flokkarnir ekki talið
sér víst eitt einasta kjördæmi á
öllum Bretlandseyjum. Þessi úr-
Verkfallsbanns enn
krafist í Póllandi
Varsjá, 27. nóvember. Al\
LEIÐTOGAR pólska kommúnistaflokksins, sem segja að efnahagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar hangi á bláþræði vegna verkfallanna í landinu, kröfðust þess
í dag á miðstjórnarfundi flokksins, að verkföll yrðu bönnuð með lögum.
Talið er, að með þessari hörðu
afstöðu séu þeir ekki síður að
stappa stálinu í flokksmennina
sjálfa, sem eru orðnir heldur von-
litlir um að flokkurinn eigi sér við-
reisnar von. Hermt er, að hálft
þriðja hundrað þúsunda manna
hafi sagt sig úr flokknum að und-
anförnu auk þeirra 188 þúsunda,'
sem hafa verið reknir.
Fundur miðstjórnar kommún-
istaflokksins, sem skipuð er 200
mönnum, fer fram á sama tíma og
mikil ókyrrð er meðal pólskra
bænda, námsmanna, starfsmanna í
oliuiðnaði og slökkviliðsmanna,
sem ekki hafa sinnt skipunum yfir-
valda um að hætta mótmælaað-
gerðum.
1 skýrslu til framkvæmdanefnd-
ar kommúnistaflokksins dregur
efnahagsmálasérfræðingur mið-
stjórnarinnar, Marian Wozniak,
upp mjög dökka mynd af efnahags-
ástandinu í landinu. Þar kemur
fram, að erlendar skuldir þjóðar-
innar nema 23 milljörðum dollara,
hráefnisskortur er farinn að valda
alvarlegum framleiðsluvandræð-
um, þjóðartekjur muni minnka um
15% á þessu ári og að auki sé agi
meðal verkamanna orðinn enginn,
svartamarkaðurinn blómstri og að
ráðist sé á embættismenn og aðra
fulltrúa flokksins.
I viðtali, sem birtist í júgóslavn-
eska vikublaðinu Nin í dag, sagði
Mieczyslaw Rakowski, varaforsæt-
isráðherra Póllands, að hætta væri
á blóðsúthellingum og borgara-
styrjöld í landinu vegna þess
ástands, sem nú ríkti þar. Hann
sagði ennfremur, að ef ofsóknir og
morð á kommúnistum hæfust í
landinu myndu Sovétmenn ekki
láta það afskiptalaust, jafnvel þó
að þeir vildu síst af öllum þurfa að
hafa afskipti af pólskum innan-
landsmálum. „Pólverjum geðjast
ekki öllum vel að sósíalismanum og
það get ég vel skilið,“ sagði Rak-
owski, „en þeir eru líka til, sem
skirrast ekki við að segja, að þeir
vilji kollvarpa núverandi kerfi og
koma öðru á.“
slit eru meiriháttar áfall fyrir
Ihaldsflokkinn og stjórnarstefnu
Thatchers og þá ekki síður fyrir
Verkamannaflokkinn, en útkoma
hans var svo hörmuleg, að fram-
bjóðandi hans tapaði tryggingar-
fénu, sem krafist er í Bretlandi.
„Þetta var ekki aðeins sigur,
heldur hrein slátrun" sagði Daily
Mirror, sem er stuðningsblað
Verkamannaflokksins í dag og
Shirley Williams sagði, að eftir
þennan dag væru bresk stjórnmál
með allt öðrum hætti en verið
hefði. Cecil Parkinson, formaður
Ihaldsflokksins, viðurkenndi í dag,
að flokkurinn væri „ekki jafn vin-
sæll og þeir vildu að væri“ og Roy
Hattersley, talsmaður Verka-
mannaflokksins í innanríkismál-
um, sagði, að kosningasigurinn
sýndi vel hve stóru flokkunum
stafaði mikil hætta af hinu nýja
kosningabandalagi. „Þetta er
skilgetið afkvæmi vonbrigðanna
og vonleysisins meðal Breta,"
sagði hann.
I kosningunum í gær fékk Shir-
ley Williams um 50% atkvæð-
anna, íhaldsflokkurinn tæp 40%
og Verkamannaflokkurinn ekki
nema 9,5%, sem olli því að hann
tapaði því fé, sem lagt er fram til
tryggingar því, að stjórnmála-
flokkur eigi eitthvert erindi í
kosningar. Ihaldsflokkurinn hefur
haldið Crosby í 63 ár og sigraði í
síðustu kosningum með miklum
yfirburðum. Að þessu sinni töpuðu
stóru flokkarnir hvor um sig
fjórðungi atkvæða til kosninga-
bandalagsins.
Shirley Williams, sem tapaði
þingsæti sínu í kosningunum 1979,
er fyrsti maðurinn, sem jafnað-
armannaflokkurinn nýi fær kjör-
inn á þing og annar maður kosn-
ingabandalagsins. Fyrir nokkru
vann William Pitt úr Frjálslynda
flokknum öruggan sigur í Croy-
don, einni útborg Lundúna. Marg-
aret Thatcher, forsætisráðherra,
óskaði í dag Shirley Williams til
hamingju með sigurinn en bætti
því við, að hún væri þess fullviss,
að hún væri á réttri braut og að
það yrði orðið lýðum ljóst áður en
til kosninga kæmi 1984.
Reyndi að múta fólki til
að skrifa lesendabréf
þar sem krafist var kjarnorkuvopnalausra Nordurlanda
gestur í norska stórþinginu og í
blaðinu Verdens Gang segir í
Osló, 27. nóv. Krá fréltaritara Mbl.
LKYNIÞJÓNUSTAN norska hefur
farið fram á það við utanríkisráðu-
neytið, að Stanislav Tsjebotok,
fyrsta sendiráðsritara Sovétmanna
í Osló, verði vísað úr landi. Ákær
urnar á hendur Tsjebotok þykja
mjög alvarlegar en hann er sakað-
ur um að hafa reynt að múta
a.m.k. fimm mönnum til að skrifa
lesendabréf í norsk blöð og krefj-
ast þess, að Norðurlönd verði gerð
að kjarnorkuvopnalau.su svæði.
Tsjebotok hefur verið tíður
dag, að hann hafi reynt að koma
sér í mjúkinn hjá fólki þar og fá
það til að starfa fyrir sig. Hann
var áður við sendiráð Sovétríkj-
anna í Kaupmannahöfn en á
dögunum var eftirmanni hans
þar vísað frá Danmörku fyrir að
kosta áróður friðarhreyfingar-
innar svokölluðu með rússnesku
fé.
Tsjebotok hefur lengi verið
undir smásjánni hjá norsku
leyniþjónustunni og þegar up
víst varð, að hann hefði reynt að
múta fólki til að skrifa lesenda-
bréf og krefjast kjarnorku-
vopnalausra Norðurlanda, var
ekki lengur beðið boðanna með
að æskja brottvísunar hans.
Talið er, að þetta mál verði
mikið áfall fyrir norska frið-
arhreyfingarmenn enda kemur
það í kjölfarið á njósnaniálinu í
Danmörku og strandi sovéska
kafbátsins í Svíþjóð, sem reynd-
ist búinn kjarnorkuvopnum.