Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 Til sölu Tilboö óskast í aflaskipiö, Erling RE-65, sem selst meö þeim togveiöarfærum sem til eru. Skipiö er ný- komið úr slipp og getur afhenst strax. Réttur áskilinn til aö taka hvaöa tilboði sem er eöa hafna öllum. Tilboöin berist Fasteignamiöstööinni, Austurstræti 7, R. fyrir kl. 12 á hádegi 4. 12. nk. A morgun er fyrsti sunnudagur íaðventu og þá kynnum við jólalitina okkar. Við bjóðum aðventukransa, ótal tegundir. Allt efni í aðventukransana færðu hjá okkur. Á morgun, fyrsta sunnudag í að- ventu, hóldum við upp á daginn og bjóðum upp á heitt kakó og heima- hakaðar smákökur. OPIÐ ALLA DAGA OG UM HELGAR FRÁ KL. 9-9 <BIX)MUAVEXnR Hafnarstræti 3, sími 12717 — 23317 Austurstræti við hliðina á Búnaðarbankanum. ALLAR SKREYTINGAR UNNAR AF FAGMÖNNUM Sterk samstaða farstöðva- eigenda tryggir fullt sendiafl Það hefur orðið að ráði, að ég sjái um þátt hér í blaðinu er fjalli um svo nefndar ('B-talstöðvar. CB er skammstöfun á ensku orðunum „citizen band“ sem hefur verið nefnt á íslensku, almenningstíðni- svið, og þá skammstafað AT-tíðni- sviðið, sem notað er í 27 MHz-tíðnisviðinu. Þegar rætt er um þessar stöðvar eru þær einnig nefndar FR-stöðvar, en FR stend- ur fyrir Félag farstöðvaeigenda á íslandi. Ég hef í hyggju að leggja nokkra áherslu á félagslega þátt- inn í dálkum þessum, en að sjálf- sögðu mun tæknihliðin ekki verða útundan. Þeir sem nota þessar stöðvar í dag skipta orðið þúsund- um. Félagar í FR munu vera nær 7.000, en skráðar stöðvar hjá Póst- og símamálastofnun eru sennilega nær 14.000. En hvað er talstöð? Fyrir leik- mann sem fær sér talstöð í fyrsta sinn er þetta kassi með tökkum og ljósum, sem viðkom- andi veit harla lítið um. Og margir álíta, að talstöðin sé slíkt undratæki, að reglulega sé hægt að ná sambandi um langan veg. En það er mikill misskilningur. Til þess að það sé hægt, þurfa skilyrði í lofti að vera mjög góð. Eftir því sem notendafjöldi hef- ur aukizt og umræður orðið fjör- ugri, þá hefur þekking á tak- mörkunum og möguleikum CB-stöðva vaxið að sama skapi. Það er auðvitað mjög skemmtilegt og spennandi að ná sambandi um langan veg. Mér fannst ég hefði fengið vinning í happdrætti, þegar ég á sl. sumri, þá staddur á Laugarvatni, náði sambandi við FR 2473, en hann var staddur á ísafirði. Þannig samband næst stundum, en er ekki reglulegt. En hverjir eru möguleikarnir og hvað er gert fyrir þá mörgu, sem talstöð eiga. Eg ákvað að taka hús á Jónasi Bjarnasyni frkvstj. FR, en sá fé- lagsskapur hefur aðalskrifstofu að Siðumúla 2. — Hverjir eru möguleikar þessara stöðva í þágu almenn- ings? — Möguleikarnir í dag eru ótrúlega miklir og ekki hvað sízt vegna þess, að einstaklingum þeim er nota þessar stöðvar fer sífellt fjölgandi. Enga þjónustu er samt að fá frá hinu opinoera. Stefna FR er að leitast við að tryggja það sem allra bezt, að félagsmaður nái sambandi undir sem flestum kringumstæðum. Félagið hefur i þessu efni m.a. byggt upp radíó um land allt síð- astliðin tíu ár. Þá er jafnt og þétt unnið að fræðslu hvað varð- ar búnað og fjarskipti. Um þess- ar mundir er einmitt verið að fara af stað með námskeið á veg- um FR-deildar 4 hér í Reykjavík. FR átti hvað mestan þátt í því að ný reglugerð var sett um tíðni- sviðið í desember 1979, þar sem kveðið er á um alls 40 rásir og aukið sendiafl. Með auknum rásafjölda er rýmra um notend- ur og fleiri komast fyrir. Hvað þetta varðar, má nefna að við höfum haft prýðilega samvinnu við Almannavarnir ríkisins, SVFÍ, FÍB og Öryrkjabandalag Islands. Allt stuðlar þetta að auknum möguleikum og ekki hvað sízt, bættu öryggi. — Félag farstöðvaeigenda á íslandi er stórt félag sem nær yfir allt landið, hvernig er starfseminni háttað? — FR er ákafiega lýðræðis- lega uppbyggt félag, sem sam- anstendur af 18 deildum og sú 19. er reyndar í burðarliðnum. Og þar sem ekki eru starfandi deildir höfum við umboðsmenn. Farstöðvar Ragnar Magnússon Deildirnar halda sína aðalfundi, þar sem kosnir eru fulltrúar, sem síðan koma saman á árs- þingi og mynda æðstu stjórn fé- lagsins. Á milli þinga sjá deild- arstjórnir um starfið á hverju deildarsvæði í samráði við landsstjórn, sem situr í Reykja- vík. Vegna þessarar uppbygg- Jónas Bjarnason ingar og að landsstjórnarmenn eru víðs vegar að af landinu, hef- ur náðst mjög gott samstarf við deildir og þær hafa í raun mjög frjálsar hendur. Starfið í deild- unum fer mikið eftir landfræði- legri sérstöðu hvers svæðis og fólkinu sjálfu. Deild 3 hefur til dæmis töluvert byggt starfsemi sína á uppsetningu á FR-rad- íóum og viðhaldi þeirra, til dæm- is í Þórsmörk, Landmanna- laugum, Veiðivötnum og Nýjadal undir Tungnafellsjökli. Um starf landsstjórnar og skrifstofu hennar hér í Reykja- vík er það að segja, að stórt verkefni er útgáfa árlegs félag- atals. Álíka verkefni er dreifing og vinna við blað félagsins, Rás- 6, sem kemur út sex sinnum á ári og er ritstýrt með myndarbrag frá Borgarnesi. Snar þáttur í starfi landsstjórnar eru heim- sóknir á deildasvæðin til eflingu innri tengsla félagsins, milli þess sem hún tekur ákvarðanir um mikilvæg mál. Almennt starf á skrifstofu fer í úrvinnslu gagna og alhliða fyrirgreiðslu til félagsmanna. Radíóþjónusta er hér daglega í gangi og við verð- um vör við að það kemur sér oft vel. I víðara samhengi er starf- semin héðan þó viðameiri og sem dæmi má nefna, að oft er aðstoð- að við skipulagningu deilda á starfseminni, útvegun tækni- fróðra manna og annars efnis. — Aðhald og eftirlit af hálfu FR gagnvart félagsmönnum? — Sem reglu leggjum við áherzlu á, að málin séu afgreidd á viðkomandi deildasvæðum, án beinnar íhlutunar héðan. Hins- vegar er reynt til hins ýtrasta að ná samkomulagi, þegar óskað er aðstoðar. En til þess kemur sjaldan að grípa þurfi til þeirra örþrifaráða að senda kæru til Póst- og símamálastofnunar. í þessu sambandi má benda á, að starfandi eru aganefndir. Einnig er verið að koma upp sérstökum sveitum, sem eiga að hafa uppá þeim er truflunum valda, og í því sambandi er verið að festa kaup á slíkum búnaði þessa dagana. — Hyggst félagið sækja um annað tíðnisvið, og hvað með SSB? — Með hliðsjón af þróun þess- ara mála í næstu nágrannalönd- um okkar, hefur félagið í hyggju að sækja um annað tíðnisvið án þess að láta af hendi það sem þegar hefur áunnizt. Þessir hlut- ir eru til nánari skoðunar hjá Landsstjórn. I þessu sambandi hefur hvað helzt verið rætt um metra- og centimetrabylgjuna. Hvað SSB-tegund útgeislunar varðar, þá þýðir umsókn af því tagi í raun kollvörpun á grund- vallarskilgreiningu notkunar tíðnisviðsins. Þetta þýðir samt ekki, að afstaða félagsins sé neikvæð. Það verða síðar sett fram rök fyrir því, að þessi teg- und útgeislunar (mótunar) verði leyfð. Eins og málin standa í dag, þá teljum við hagkvæmast, að leiða þau mál til lykta, sem þegar hafa verið sett fram við Póst- og símamálastofnun og ráðuneyti. — Nú er það Póst- og síma- málastofnun, í umboði ráðuneyt- is, sem talstöðvar og önnur fjar- skipti heyra undir. Er búið að skipuleggja 40 rása-bandið eins og talað var um að gert yrði, eft- ir að reglugerðin var sett í des- ember 1979? — Þessi mál eru einmitt í vinnslu hjá samgönguráðuneyti. Félagið hefur sem ábyrgur aðili og fulltrúi notenda átt ákaflega góð og náin samskipti við starfsmenn ráðuneytisins. Við erum mjög bjartsýnir á útkom- una í ljósi þess, að öll gögn máls- ins eru okkur í vil. — Eru sambærileg félög til í nágrannalöndunum, og ef svo er, hefur FR einhverja sérstöðu? — Þetta er að mörgu leyti mjög ánægjuleg spurning vegna þess, að FR hefur einmitt ein- staka sérstöðu á þessum vett- vangi, samanborið við önnur lönd í okkar heimsálfu. Ekkert land í Evrópu á eitt landsfélag notenda í 27 MHz-tíðnisviðinu sambærilegt við FR. Danskir farstöðvaeigendur eru tii dæmis mjög sundraðir, þar eru starf- andi yfir eitt hundrað smáklúbb- ar. Sömu sögu er að segja viðast hvar í Evrópu, til dæmis frá Frakklandi. Við erum sannfærð- ir um að þessi sterka samstaða farstöðvaeigenda hér á landi, að skipa sér undir fána eins félags, hefur tryggt okkur, einum allra Evrópubúa, 40 rásir og fullt sendiafl. Að lokum er gaman að geta þess, að við erum með ýmislegt nýtt á prjónunum, sem þegar er farið að vinna að, svo sem útgáfu sérbæklinga sem koma inn á öll notkunarsvið farstöðva án þess að fara út í þungt tæknimál. Þá eru tryggingarmál farstöðvaeig- enda einnig til skoðunar hjá okkur og væntum við þess að geta boðið félagsmönnum upp á mjög hagstæð kjör í þeim efnum í framtíðinni. Samvinna á nýjum vettvangi við önnur félaga- samtök mun einnig gera okkur kleift að standa enn betur vörð um hagsmuni farstöðvaeigenda í 27 MHz tíðnisviðinu á komandi árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.