Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 Á kristniboðsári Spurt er: Það er nú svo mikið gagnrýnt til- standið kringum jólin, að maður hef- ur hálfslæma sam- visku af þessum venjulega jóla- undirbúningi ofsókn gegn honum, sem lagður var í jötu, átti hvergi höfði að halla á jörðu, og var síðast seld- ur fyrir 30 silfurpeninga. Hin fyrstu jól, sem kristnir menn halda, eru í rauninni svar við heiðinni sóldýrkun. Þeir tóku að minnast fæðingar frelsarans, sem er hin sanna sól réttlætis- ins. Og trú þeirra bar sigurorð af heiðninni. En hvað eru vor jól? Hvort eru þau fremur heiðin eða kristin? Sr. Guðmundur Óli Olafsson er dómkirkjuprestur í Skálholti. Þessi orð hafa eilíft gildi. Það varðar öllu, að erindi Guðs kom- ist til manna. Þetta erindi er fólgið í textum, sem lesnir eru á helgidögum. Þeir eru svo mikils háttar, að hvorki amstur né hé- gómi mega glepja svo fyrir læri- sveininum, að hann fari á mis við þá. Aðventukransar með fjórum kertum tíðkast álieimil- um á seinni árum. Sums staðar erlendis er venja að lesa ein- hvern texta dagsins, þegar kveikt er á hverju kerti. Þann sið mætti gjarna taka upp ásamt stuttri bænagjörð eða söng. Heimilisguðrækni er orðin fá- tækleg á Islandi. Það mun fátítt, að fjölskylda hafi sameiginlega helgistund. Morgunbænir og borðbænir munu sjaldgæfar. Kvöldbænir munu þó víðast En hvernig vill kirkjan að mað- ur undirbúi sig fyrirjólin ? Ogger þú nú snjallræði nokkurt, svo fólkið finni í fordæmi þínu hygginn og slóttugan mann: Með kurteisum svip skaltu kveikja í stofunni þinni, og kauptu svo sóknarprestinn — og éttu hann. Þetta lagði Steinn Steinarr til málanna. Þau eru þó nokkur, ís- lenzk skáld, sem tekið hafa i streng með honum um jólin og undirbúning þeirra. Einhver bit- ur fleinn virðist hafa stungizt á hol og sitja fastur þar, — í sam- vizkunni. Steinn segir um kapp- átið í koti og höllu á jólum, um klukknahringingar, messur og bænagjörð: Það er kannski heimskast og and- styggilegast af öllu, / sem upp var fundið á þessari voluðu jörð. Islenzku skáldin segja þó ekki annað en það, sem H.C. Ander- sen sagði fyrir löngu í sögu um litla stúlku með eldspýtur: Jól fara svo oft hjá garði þess, sem þurfti þeirra mest. Slíku reiðast skáld. Heimur mannsins er ekki sannur. Stundum er hann líkast- ur allsherjar kaupstefnu. Þar er allt til sölu, en ekkert gefið, og allt er keypt og selt við hæsta verði. Þar er glaumur, glys og flæðandi sóun annars vegar, hins vegar hungur, örbirgð og myrkasta vonleysi. Kristin jól eða heiðin Margt sem fylgir nú jólahaldi á Islandi, virðist fara lærisvein- um Jesú Krists heldur illa. Óhóf í mat og drykk dögum saman á ekki mikið skylt við hann, sem sagði: „Minn matur er að gera viija þess, sem sendi mig og full- komna hans verk.“ Sóun fjár- muna í stundargleði og hégóma er varla annað en spott og Erindi Guðs til manna Erindi Guðs til manna í Jesú Kristi er harla ljóst, bæði í spá- dómum og guðspjöllum: „Sjá, yngismær verður þunguð og fæð- ir son og lætur hann heita Imm- anúel." — Nafnið Immanúel merkir. Guð er með oss. — Og engillinn kom til Maríu og sagði: „Vertu óhrædd, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði. Ög sjá: þú munt þunguð verða og fæða son. Og þú skalt láta hann heita Jesúm." — Nafnið Jesús merkir: Guð frelsar. Jólafasta heitir aðventa á gömlu kirkjumáli, en merking orðsins er koma. Það lýtur að komu Krists. Fyrsti sunnudagur í aðventu er fagnaðardagur. Skrúðinn er hvítur, allt ljósum prýtt, og söfnuðurinn syngur. „Hósanna Davíðs syni! Blessaður sé sá, er kemur í nafni Drottins!" Og þessi er hinn blessaði boðsk- apur: Hann kemur, já, er þegar kominn, hann Jesús, Immanúel. — En minnstu þess þá einnig, að enn sitja margir í myrkrinu fyrir utan. Víða tíðkast að hringja um miðjan aftan á laugardegi til þess að minna á hið nýja kirkju- ár, sem hefst með aðventu. Þá er gott að lúta höfði, þakka Guði gæzku hans á liðnu ári og fela sig náð hans á því nýja. Á þeirri stundu væri við hæfi sá eldforni aðventusálmur, sem hérra Sig- urbjörn Einarsson færði í nýjan búning: Kom þú, kom, vor Immanúel, og leys úr ánauð ísrael —. Er ekki jólafastan kjörinn tími til þess að neita sér um eitthvað, spara örlítið öðrum til hjálpar? Hví ekki syngja sálm eða lesa biblíuvers þegar kveikt er á nýju kerti á aðventukransinum. Eitt er nauðsyn Frá því segir í Lúkasarguð- spjalli, að Jesús kom til Mörtu og Maríu, og María settist við fætur hans og hlýddi á orð hans. Mörtu mislíkaði hins vegar, og hún átaldi hann. Hann svaraði: „Marta, Marta, þú ert áhyggjuf- ull og mæðist í mörgu. En eitt er nauðsynlegt. María hefur valið góða hlutann. Hann skal ekki verða frá henni tekinn." kenndar börnum. Það er mikils vert, því að dagleg iðkun verður gróin venja. Ekki er minna vert um þátt- töku í helgihaldi safnaðarins. Kristnu lífi er þannig farið, að það þrífst ekki í einangrun. „Ég er vínviðurinn. Þér eruð grein- arnar," sagði Jesús. Hann er frumgróðurinn, rótin og stofn- inn. Enginn grein fær þrifizt nema hún þiggi líf og næring af honum. Og þannig verða þær all- ar eitt í honum. Það er lífsnauð- syn og dýrðleg lífsreynsla að fá að sameinast trúuðum í húsi Guðs. Þar verður allt dýrara, fyllra og meira: gleðin, lofsöng- urinn, fagnaðarerindið og máltíð Drottins — á fyrsta sunnudegi í aðventu, — síðan fastan í fjólu- bláum skrúða með iðrun og yfir- bót, áminning þess, að Jesús kemur aftur, — vitnisburður Jó- hannesar, sem var röddin í óbyggð og ruddi hinum hæsta veg, lagði frelsi sitt og líf í sölur fyrir sannleikann. Hverju hef ég til kostað? Enn er margt ósagt. Guð á ekki aðeins erindi við mig, held- ur alla menn. Jóhannes kostaði miklu til að flytja kynslóð sinni hinn dýra boðskap. Hverju hef ég til kostað? Sagt er, að dýrt sé að halda jól á íslandi. En hví skyldi ég eta mér til óbóta á fæðingarhátíð frelsarans, þegar milljónir líða skort og hungur? Hví skyldi ég sóa hundruðum og þúsundum króna í gjafir til þeirra, sem hafa allsnægtir, á meðan millj- ónir manna þekkja ekki gjöf Guðs, hið sanna ljós heimsins? Hvern gieð ég með slíku? Er jólafasta ekki kjörinn tími til að neita sér um eitthvað, spara ör- lítið öðrum til hjálpar? Víðast erlendis hafa kristnir menn þann sið að færa fram einhverja fórn, tíðast peninga, í hverri messu. Þannig minnast þeir í þökk hinnar mestu fórnar, sem færð var á krossinum. Fátæk- ustu menn skorast ekki undan slíku, eigi þeir nokkuð til að gefa. Þessi háttur hefur fylgt kristninni frá öndverðu. Hér er hann ekki tíðkaður í þjóðkirkj- unni og íslenzk kristni er stórum fátækari fyrir bragðið, því að „sælla er að gefa en þiggja". Oft gefa íslendingar rausnar- lega til hjálparstarfs. Þó vita allir, að þær gjafir eru aðeins brotabrot þess, sem þjóðin sóar að þarflausu. Slíkt er ekki lofs- vert. En þótt margir vilji rétta hjálparhönd í hungursneyð og hörmungum, eru þeir í raun fáir, sem styðja vilja kristniboð að nokkru gagni. Fáein hundruð manna kosta að mestu það merka starf, sem íslenzkir kristniboðar vinna í Afríku. Ætla mætti, að þúsund ára kristin þjóð, sem búið hefur við nágrenni kristinna frænda alla tíð, vissi betur en svo, hvað í húfi er. Eða leiðir enginn maður á ís- landi huga að því, hvar bæri- legust og mannsæmandi lífskjör séu meðal manna? Hér er ekki amazt við sannri jólagleði. Gleðjumst, fögnum, kristnir menn, því að lausnari heimsins kemur, og velþóknun Guðs stígur af himnum ofan. — En minnumst þess, að vér erum kallaðir til að færa þeim, sem enn sitja í myrkrinu fyrir utan, erindi Guðs, — frið, fögnuð og Ijós. Hve margir komu til kirkju Á morgun er fyrsti sunnudag- ur í aðventu og kirkjuárið hefst. Þetta er að sjálfsögðu hátíðis- dagur í kirkjunni og ættu sem flestir að halda hátíðlegt og koma til kirkju. Það er lítið vitað um almenna kirkjusókn hérlendis. Gjarnan er sagt að „fáeinar hræður" séu í kirkjunum. Hins vegar virðist sem kirkjusókn sé oft betri en almennt er álitið. Á fyrsta sunnudegi í aðventu í fyrra, 1980, voru kirkjugestir taldir í ýmsum söfnuðum víða um landið. Fjöldi kirkjugesta var talinn við hinar almennu helgisam- komur dagsins, þ.e. hinar venju- legu guðsþjónustur, barnaguðs- þjónustur og safnaðarkvöld, t.d. aðventukvöld. Hins vegar eru ekki taldir gestir við sérathafnir svo sem skírnir, hjónavígslur eða við helgihald utan kirkju- hússins, t.d. á sjúkrastofnunum. Aðventukvöldin voru yfirleitt vel sótt og hleypa því upp prósentu kirkjugesta þennan dag í þeim söfnuðum sem þau vöru haldin. Sums staðar hamlaði veður kirkjusókn þennan dag. Staðir þeir sem hér eru nefnd- ir eru valdir af handahófi meðal þeirra sem upplýsingar fengust frá. Kirkjusókn er reiknuð í pró- sentum miðað við fjölda skírðra. Höfn, Hornafirði, 9,6%, Stóri-Dalur, RanK-, 115%, (margt aðkomufólk var viö kirkju), Vestmannaeyjar, 6,6%, Víðistaða- sókn, Hafnarfirði, 15,6%, Seljasókn, Rvík, 6,7%, Rústaðasókn, Rvík, 17,4%, Dómkirkj- an Rvík, 9,8%, Brautarholt, Kjalarnesi, 15%, Mosfell, Mosfellssveit, 16,2%, Innri- Hólmur, Bíir^arfjaröarpróf.d., 16,8%, Bol- unKarvík, 10,2%, Sauðárkrókur, 9,6%, Ljósavatn í Þin>?., 22%, Svalbarð í Þistil- firði, 8%, Kgilsstaðir, 10,5%, Neskaupstað- ur, 14,1%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.