Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 13 Ég ferðast talsvert um, tek ljósmyndir og kannski frumskiss- ur, sem ég síðan fullvinn heima. Ljósmyndirnar nota ég til að gefa mér innblástur, til að minna á viðfangsefnið — þó konan mín segi nú reyndar að ég noti þær aldrei þegar ég fer að mála. — En úti í náttúrunni vinn ég ekki, mér finnst veðurfarið hérna ekki leyfa það, svei mér þá. Það er alltof kalt, menn gera sér sjálfsagt ekki í hugarlund hvað þessir gömlu meistarar lögðu á sig til að vinna að list sinni hérna áður fyrr. En landslagið hérna er ein- stakt, og þetta tæra loft. Ég gæti aldrei búið annars staðar held ég, það væri lítið gaman að búa í landi þar sem engin væri Lands- sveitin og enginn Hornafjörður- inn. Enda leggja menn ýmislegt á sig til að búa hér, menn þreyja jafnvel vinstri stjórnir og hvers kyns óáran bara fyrir þetta land. En áður en við skiljum við landslagið og ljósmyndirnar: Ég nota aldrei myndvörpu við mál- unina, mér líkar ekki við það verkfæri. Sumir kunna að segja að þetta sé bara ný tækni, og kann að vera að það megi til sanns vegar færa, en mér finnst að það sé eitthvað „óekta" við málverk sem unnin eru eftir myndvörpu. Ég ætla því aldrei að eignast slíka, svo ég falli ekki í freistni. En ég er oft óhemju lengi að „dedúa“ við myndirnar, sumir segja of lengi, þær tapi hugsanlega einhverju við það. En ég geri mjög lítið af þessum „quick-sketches", ég vil leggja meira í mínar myndir. Örn morgunsvæfur — Jón í Ríkinu árrisull Ég vakna oft um helgar klukk- an fimm á morgnana, og fer þá að mála, mála þá oft fram undir sjö, átta í lotu. Én þá verð ég yfirleitt að sýna einhverjum það sem ég hef verið að gera, ég hef mikla þörf fyrir það. Yfirleitt fer ég þá til hans Jóns Bárðarsonar ná- granna míns, hann er forstjóri fyrir Ríkinu í Keflavík, en hann fæst við að mála eins og ég. Ég veit af honum á fótum, því hann vaknar svo snemma, og mér finnst óskaplega gott að geta sýnt honum það sem ég hef verið að gera. Örn? — Jú, ég sýni honum mik- ið myndir líka, en hann sefur bara svo lengi frameftir, að hann er ekki vaknaður þegar við Jón erum að skoða morgunverkin. Ég held að ekki geti verið mikið gaman að mála, ef enginn sæi það sem maður hefur gert. Þeir, sem segja að þeim sé alveg sama um hvað aðrir segja, þeir eru bara að ljúga til um tilfinningar sínar held ég. Metnaðurinn úr íþróttunum Já, metnaðinn hef ég kannski úr íþróttunum, það er rétt. Ef til vill er það metnaðurinn sem hef- ur gert þessa sýningu að veru- leika. Það var hann Jónas Guð- mundsson málari og rithöfundur, sem var alltaf að segja mér að Morgunn vid Reykjavíkurhöfn. Fyrsta sýning — yfirlitssýning Á sýningu Hauks eru sem fyrr segir 105 málverk, olía, vatnslitir, pastel. Með tiliiti til þess, að að- eins eru til um 200 m.vndir eftir Hauk, þá má segja að hér sé ekki aðeins um fyrstu sýningu að ræða, heldur einnig nokkurs kon- ar yfirlitssýningu, þó myndir frá bernsku vanti. Óhætt er að hvetja fólk til að leggja leið sina að Kjarvalsstöð- um á þessa sýningu, þar sem ís- lensk náttúra er dregin fram eins- og best gerist. Hér er þó ekki ætl- unin að leggja dóma á eitt eða neitt, það bíður þeirra Braga eða Valtýs, en „leikmaðurinn" á þó erfitt með að dylja hrifninguna á mörgum myndanna sem þarna sækja um Kjarvalsstaði, og það fór svo að ég sendi inn bréf í vor. Ekki átti ég nú von á því að fá hér inni, en svo fór þó, og hér stend ég og get ekki annað. Þú spyrð hvort erfitt hafi verið að hverfa úr sviðsljósinu eftir að hafa verið frægur íþróttamaður. Ég svara því neitandi. það var ekki erfitt, það kom bara af sjálfu sér, og nú er það ekki nema þegar gamlir vinir hittast, að menn fara að grobba af gömlum afrek- um. En þátttaka okkar í íþróttun- um hafði bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar seinna, þegar út í lífið var komið, og á meðan á „ævintýrinu" stóð. Við höfum mætt velvild, því það hjálpar að vera þekktur, en um leið hefur sá böggull fylgt skammrifi, að við höfum oft verið harðar dæmdir, fyrir ýmislegt sem við höfum gert eða höfum átt að hafa gert. Það hafa því bæði fylgt því kostir og gallar, að hafa náð langt á íþróttasviðinu hér áður fyrr.“ Kjarval meiri en Picasso Við göngum um sýní^funa, og talið berst að uppáhaidsmálurum Hauks. „Af gömlu meisturunum finnst mér Ásgrímur vera konungur ís- lenskra málara. Og svo náttúru- lega Kjarval, hann er án efa einn mesti málari heims, hann var betri en Picasso finnst mér, það máttu hafa eftir mér, og það hef ég lengi sagt. Kjarval var bara fæddur hér inn í einangrunina, en hinn var í stærra samfélagi. Ég get nefnt Kristínu Jónsdótt- ur, hún var frábær listamaður, einnig er ég mjög hrifinn af Jóni Engilberts. Af yngri málurum má nefna ýmsa, þar fer nú að vandast málið. Sverrir Haralds- son er ofsalegur málari. Ég hef alltaf haldið upp á Pétur Friðrik, ég er hrifinn af Baltasar, þannig mætti áfram telja. Ég var búinn að segja að ég hef ekki dálæti á abstrakt var það ekki? Af erlendum mönnum gæti ég líka nefnt fjölmarga, mér detta þó einkum í hug þeir Andrew Wyeth og Winslov Homer, þeir eru góðir." sjást nú í fyrsta skipti. „Já, þetta er sölusýning," segir Haukur, „þó talsvert af myndun- um sé að vísu í einstakiingseigu. En hvort sem ég sel vel eða illa, þá mun ég eftir helgina halda áfram í tannlækningunum, það var aldrei ætlunin að gera þetta að ævistarfi, og það verður ekki nú. — Það getur þó verið gott að eiga þetta til góða þegar ellin sækir að.“ Þar með kvöddum við Kristján Ijósmyndari Hauk, eldhressan og sprækan þrátt fyrir 30 klukku- stunda vöku, enda „er það ekki vafamál, hvað sem gott og slæmt má segja um íþróttaiðkun okkar bræðranna, að góða heilsu höfum við að minnsta kosti haft upp úr krafsinu." Anders Hansen l próf kjöri minnum viö á Markús örn Antonsson Hann er ötull og stefnufastur talsmaður Sjálfstæðisflokksins í borgarstjóm Reykjavíkur, íjölmiðlum og á öðrum opinberum vettvangi. Markús Öm hefur mikla reynslu í meðferð borgarmála og glögga þekkingu á hagsmunamálum Reykvíkinga. Markús örn Antonsson, ritstjóri, Krummahólum 6. Sjálfstæðisflokkurinn þarf á slíkum mönnum að halda. val þitt nú skiptir máli Stuöningsmenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.