Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 17 „Þær hafa orðið til á síðustu fjórum árum. Ég gerði margar skissur við hverja mynd, af þess- ari gerði ég til dæmis 14 skissur áður en ég varð ánægður," sagði Haukur og benti á mynd sem ber nafnið „Illvætturinn." Eru margar tegundir til af tröllum? „Já, það er fjöldinn allur til af tröllum eins og sést á þessari sýningu. Það eru nátttröll sem urðu að steinum ef sól skein á þau. Svo voru bergþursar. Þeir bjuggu í bergi og komu lítið fram í dagsljósið. Önnur voru kölluð illvættir því þau réðust á fólk og hremmdu. Það var mikið af þeim í Skaftafellssýslu. Svo voru það skessur. Þekktasta sagan er eflaust af Loppu og Jóni Loppufóstra og þegar hún stækkaði hann með þeim aðferðum sem ég var að lýsa hér áðan. Þegar hann loks slapp til byggða eftir stækkunina sligaði hann þrjá hesta á leið- inni. Hryggbraut þá.“ Þú hefðir ekki viljað lenda í skessum? „Ég held við séum meira og minna í höndunum á skessum dags daglega með allri virðingu fýrir kvenþjóðinni að sjálfsögðu. Ég ber mikla virðingu fyrir kven- þjóðinni." Ætlar þú að halda áfram að teikna tröll? „Ætli það bara ekki. Annars hef ég hugsað mér að snúa mér meira að álfum og þá ætla ég að nota liti og breyta til með form og annað." En krumlan hér fyrir ofan okkur? „Hana gerði ég hér á staðnum. Það væri ráð að gefa skattinum hana til að hafa við innganginn á gjaldheimtunni. Snúa henni bara þannig að lófinn verði opinn í staðinn fyrir krepptur. Svona betlandi." Að lokum Haukur Halldórs- son, eiga tröllskessur erindi við okkur í dag? „Tvímælalaust. Hingað hefur komið fólk og sagt mér hvað það hefur séð í myndunum. Einn sagði mér hann sæi fjölmiðlana eða ríkið, það var í þessari," segir Haukur og bendir á eina þar sem gríðarlega ljót tröllskessa heldur manni föngnum með sínum stóru krumlum. „Önnur manneskja sagði mér hún sæi í myndunum þar sem skessurnar verða að steinum, hvað allt væri njörvað niður og fast í böndunum, stein- runnið hér í þjóðfélaginu og svona mætti lengi telja,“ sagði Haukur og bætti við „jú, það hef- ur verið fín sala.“ Sýningunni lýkur á sunnu- dagskvöld. — ai. | Júlíus Hafstein Frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstœðisflokksins 29. og30. nóv. n. k. Sjálfstæðisfólk Tryggjum Júlíusi Hafstein öruggt sæti í komandi meirihlutastjórn okkar í Reykjavík Kosningaskrifstofan er aö Garöastræti 6, 3. hæö s. 27930. Stuðningsmenn. VANTAR ÞIG VINNU (n) VANTAR ÞIG FÓLK í ff) 1*1 AL'GLYSIR I M ALLT LAXD ÞEGAR ÞL AL'G- LÝSIR I MORGLNBLAÐCSL Gils Guömundsson: FRÁ YSTU NESJUM II GILS GUÐMUNDSSON SKUGGSJÁ Safn skemmtilegra vestfirskra þátta. Meðal efnis þessa bindis er veigamik- ill þáttur um höfudbóliö Vatnsfjörö við ísafjarðardjúp og höföingja þá og presta, sem þar hafa gert garðinn fræg- an. Ritgerö er um Sigurö skurö, önnur um skáldiö og ævintýramanninn Álf Magnússon og hin þriöja um þróunar- sögu Bolungarvíkur, auk margskonar annars efnis i bundnu og óbundnu máli. Þetta er þjóóleg bók og bráðskemmti- leg aflestrar. BÓKABÚO OUVERS STEINS SE Hendrik Ottósson: GVENDUR JÓNS, prakkarasögur .^ úr Vesturbænum — GVFNDUR M í-jfey 53%, ííí. :« i Þessar prakkarasögur úr Vesturbæn- um eru fyrir löngu orönar sígildar. Hver getur gleymt persónum eins og Hensa og Kidda bróöur hans, bræðrunum Júlla og Nílla, Eika Bech og Kela Grjóta, Hákonarbæjarbræörunum og Sigga í Kapteinshúsinu eöa Þorvaldi pólití. Þeir, sem ekki hafa kynnst þessum persón- um, eru öfundsveröir, svo skemmtilegar eru frásagnir af þeim við fyrsta lestur. Hinir rifja fagnandi upp gömul kynni við þessa óviójafnanlegu prakkara. SKUGGSJÁ BÓKABÚO OUVERS STEINS SF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.