Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981
19
Aðventusamkoma helguð
Tómasi Guðmundssyni, skáldi
NÆSTKOMANDI sunnudag, 29.
nóv., fcr fram aðventusamkoma í
Garðakirkju. Verður hún helguð
Tómasi Guðmundssyni skáldi.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason prófessor
mun flytja ræðu um skáldið og
sérstaklega fja.Ua um trúarlegan
' þátt skáldskapar hans. Einsöngv-
ararnir Elísabet Erlingsdóttir og
Kristinn Hallsson munu syngja
lög við ljóð skáldsins og einnig
munu Belcanto-kór Garðabæjar
undir stjórn Guðfinnu Dóru
Ólafsdóttur og Garðakórinn undir
stjórn Þorvaldar Björnssonar
fiytja verk eftir Tómas. Félagar úr
Leikfélagi Garða munu og lesa
upp úr ljóðum hans. Helgi K.
Hjálmsson, formaður sóknar-
nefndar flytur ávarp. Kaffiveit-
ingar verða seldar á Garðaholti að
athöfninni lokinni.
Um þessa helgi fer fram hin ár-
lega fjársöfnun Hjálparsjóðs
Garðasóknar. Félagasamtök í
Garðabæ aðstoða við söfnun þessa
með því að bera út umslög til allra
heimila í bænum, en gjafir fólks
eru settar í þessi umslög og þeim
síðan safnað saman. Allar gjafir
munu dð þessu sinni renna til
styrktar starfi fyrir fatlaða og
aldna í Garðabæ.
Tómas Guðmundsson
Bókaforlagid
Svart á hvítu hf.:
Endurútgáfa
á Ijóðabókum
Einars Más
BÓKAFORLAGIÐ Svart á hvítu
hf., hefur sent frá sér aðra útgáfu
á ljóðabókunum “Sendisveinninn
er einmana" og „Er nokkur í Kór-
ónafötum hér inni?“, eftir Einar
Má Guðmundsson. Ný bók hefur
verið þýdd og gefin út í Danmörku
eftir Einar Má, „Frankensteins
kup“ og hlotið jákvæða dóma í
dönskum blöðum.
Aðventuhátíð
Víðistaðasóknar
FRÁ ÞVÍ kapella sóknarinnar í
Hrafnistu var vígð 1. sunnudag í
aðventu 1977 hefur eitt og annað
verið um að vera í sókninni þenn-
an dag. Á sunnudaginn verður
barnaguðsþjónusta kl. 11, hátíð-
arguðsþjónusta kl. 14 og aðventu-
kvöld kl. 20.30, þar sem boðið verð-
ur upp á fjölbreytta dagskrá að
venju. Ræðumaður kvöldsins verð-
ur Árni Grétar Finnsson, bæjar-
fulltrúi, Kór Víðistaðasóknar
syngur, Lúsíur koma í heimsókn,
þá verður einsöngur og tvísöngur,
helgileikur o.fl. Systrafélag Víð-
istaðasóknar verður með fjöl-
skyldusamveru milli kl. 15 og 17 á
sunnudaginn og að loknu aðventu-
kvöldinu. Þar verða á boðstólum
veitingar og skemmtidagskrá,
m.a. skyndihappdrætti. Vonast er
til að sem flestir geri þátttöku í
dagskrá sunnudagsins að föstum
lið í aðventuhátíðahaldi sínu.
Sóknarprestur
Aðventuhátíð í Neskirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag, 29. nóv-
ember, verður aðventuhátíð í Nes-
kirkju.
Dagskráin verður sem hér segir:
Kl. 2. Ljósamessa sem ferming-
arbörn annast. Arnhildur Reynis-
dóttir leikur á trompct. Organisti:
Reynir Jónasson. Góðar kaffiveit-
ingar í félagsheimilinu.
Kl. 4. Davíð Oddsson borgar-
fulltrúi flytur ræðu. Strengjasveit
Tónlistarskóla Seltjarnarness leik-
ur nokkur jólalög undir stjórn
Hannesar Flosasonar. Kórsöngur
og einsöngur: Kolbrún á Heygum
syngur nokkur lög við undirleik
Reynis Jónassonar. Sagt verður frá
hjálparstarfi kirkjunnar í máli og
myndum.
Frank M. Halldórsson
Fyrirlestur um franska
plakatlist frá öndverðu
MÁNUDAGINN 30. nóvember kl.
20.30 heldur franski málarinn
Claude Verdier fyrirlestur um
franska plakatlist frá öndverðu til
okkar daga. >
í Frakklandi hefur plakatlist
löngum staðið með blóma og næg-
ir að nefna listamenn á borð við
Mucha, Cappiello og Toulouse-
Lautrec. Verdier bregður upp
fjölda piakata með myndvörpu og
plakötin varpa síðan ljósi á það
þjóðfélagsumhverfi sem þau eru
sprottin úr.
Claude Verdier er fæddur árið
1932 í París og hefur haldið fjölda
einkasýninga, myndskreytt bækur
og fjallað um myndiist í ræðu og
riti. Þetta er þriðji fyrirlestur
Verdier á Isiandi og fer fram í
Franska bókasafninu, Laufásvegi
12. Öllum er heimill aðgangur.
Sveinn
Björnsson
kaupmaður
Á undanförnum árum hefur Sveinn Björnsson, vara
borgarfulltrúi unniö markvisst aö hverskonar félagsmál
um í borgarstjórn og innan frjálsra félagasamtaka.
HANN HEFUR M.A. ÁTT SÆTI í:
— í stjórn Varöar í 20 ár, formaöur í 3 ár.
— í stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í 3 ár.
— í stjórn íþróttanefndar ríkisins í 9 ár.
— í íþróttaráði Reykjavíkur í 8 ár, formaður í 4 ár.
— í stjórn Verzlunarráös Islands og
— í stjórn Kaupmannasamtaka Islands um skeið.
— í stjórn ÍSÍ í 21 ár og
nú forseti íþróttasambands islands.
Stuðningsmenn.
Sveinn Björnsson kaupmaður
hefur upplýsingaskrifstofu
að Laugavegi 1. Sími 11745.
Ævar R. Kvaran: UNDUR ÓFRESKRA
Síðan sögur hófust hafa lifað frásagnir
um fólk, sem öðlaöist þekkingu án að-
stoðar skynfæranna. Þessi óvenjulega
bók hefur aö geyma fjölda sagna af
slíku fólki, dularfullar furóusögur, sem
allar eru hver annarri ótrúlegri, en einnig
allar vottfestar og sannar.
Enginn íslendingur hefur kynnt sér
þessi mál jafn ítarlega og Ævar R. Kvar-
an. Þessar óvenjulegu sögur bera því
glöggt vitni hve víöa hann hefur leitaö
fanga og hve þekking hans á þessum
málum er yfirgripsmikil.
SKUGGSJA BÓKABÚO OUVERS STEINS SE
Ruth Montgomery: ÓVÆNTIR GESTIR
Á JÖRÐU
w ri'R.'iuMv.niuu
| ÖWMR .
„GESIIRA
JORÐU
' SKirraiá ■■
SKUGGSJÁ
Ruth Montgomery er vel kunn hér á
landi af fyrri bókum sínum: .Framsýni
og forspár", ,í leit aó sannleikanum“ og
.Lífió eftir dauöann". Þessi bók hennar
er óvenjulegust þeirra allra. Megin hluti
hennar fjallar um þaó, sem höfundur-
inn kýs aó kalla ,skiptisálir“ og hlutverk
þeirra. Tugþúsundir skiptisálna eru
meóal okkar, háþróaóar verur, sem hafa
tileinkað sér Ijósa vitund um tilgang lífs-
ins. Flestar þeirra starfa í kyrrþei mitt á
meðal okkar og leitast vió að hjálpa
okkur. Þetta fólk leitast vió aó þroska
meó okkur lífsskoðun, sem stuölar að
kjarki og góóleika.
BÓKABÚO OUVERS STEIHS SE