Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981
9
Sóttmálsörk
lanckog þjóðar
Þegar fyrsta bindi endurútgáfu hins mikla ritverks Þorsteins Jósefssonar og Steindórs
Steindórssonar „LANDIÐ ÞITT“ kom út í fyrra komst einn gagnrýnenda dagblaðanna,
Andrés Kristjánsson, þannig að orði að bókin væri á allan hátt öndvegisverk og einskon-
ar sáttmálsörk lands og þjóðar. Voru það orð að sönnu þar sem í engu öðru einstöku
ritverki verður að finna eins mikinn fróðleik um ísland og í þessu, þar sem saga og
sérkenni þúsunda staða, bæja, kauptúna, héraða og landshluta er rakin. Þeir sem nota
þessa bók munu öðlast nýjan skilning á landi sínu og opnast sýn til fjölmargra staða,
sem þeir til þessa hafa varla heyrt getið um, hvað þá meira. Segja má að bókin LANDIÐ
ÞITT — ÍSLAND sé lykillinn að leyndardómum landsins og sögu þess, og því er þetta
ekki aðeins glæsileg og falleg bók, heldur óþrjótandi fróðleiksnáma allra þeirra er leitast
viö aö kynnast og þekkja landið sitt.
í bókinni LANDIÐ ÞITT — ÍSLAND er gífurlegt magn litmynda. Munu þær skipta
þúsundum þegar útgáfu ritverksins lýkur, og myndir þessar auðvelda mönnum að
kynnast staðháttum og þekkja staðina. í bókinni eru einnig fjölmargar gamlar litmyndir
sem fengnar eru úr ýmsum áttum, og auka þær enn gildi bókarinnar, svo og myndir af
merkum byggingum og munum sem eru í byggingum, t.d. kirkjum, víöa um land.
ÚR RITDÓMUM UM 1. BINDI
LANDIÐ ÞITT - ÍSLAND ER ÚT KOM í FYRRA
„Ekki er að efa að margir munu fagna útkomu
þessa þarfa uppsláttarverks um island. Þaö
ætti þá ekki aö spilla ánægju manna aö verkið
er prýtt fjölda afbragösgóöra Ijósmynda og öll
er bókin stórfalleg og vel unnin."
Jón Þ. Þór. (Tíminn)
„... Þessi bók er því mjög falleg og í henni er
óhemjumikill staðfræðilegur og sögulegur
fróöleikur."
Gunnlaugur Ástgeirsson (Helgarpósturinn)
„Áður en Þorsteinn Jósepsson lést haföi hann
bent á Steindór sem langsamlegasta hæfasta
manninn til þess aö Ijúka þessu mikla verki og
bæta þaö. Steindór Steindórsson er fáum
mönnum líkur og margra manna maki aö
dugnaöi. Hann hefur ekki brugöist í þeim
vanda, sem Þorsteinn vék til hans, og ekki
aðeins lokiö verkinu, heldur aukiö þaö, bætt
og lyft því, svo aö þaö er nú orðiö sérstætt
ágætisverk, ein besta og traustasta brú í sam-
búö þjóöar og lands, óbrotgjörn gjöf þessara
tveggja afreksmanna til þjóöar sinnar. Útgef-
andinn hefur einnig lagt sitt fram til þess aö
færa verkið í þann búning sem því hæfir, enda
er þaö þeirrar geröar og náttúru, aö þaö hæfir
jafnt sem hátíðargestur og hversdagslegur
feröafélagi.
... Þessi bók er á allan hátt öndvegisverk og
eins konar sáttmálsörk lands og þjóðar.“
Andrés Kristjónsson (Vísir)
ÖRN&ÖRLYGUR
Siðumúlan, sími 84866
LANDID ÞITT
ISLAND
LANDIQÞlll
ISLAND