Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 33 Aðventukvöld í Árbæjarsókn Kirkjudagur í Langholtssókn SUNNUDAGINN 29. nóvember verður kirkjudagur í LangholUsókn, en það er afmælisdagur safnaóarins. Dagskrá hefst kl. 9:30 með Oska- stund barnanna og er þar sögumad- ur Sigurdur Sigurgeirsson. Verða sagðar sögur, sungið og sýndar myndir. Klukkan 11 er guðsþjónusta á vegum Alfa-nefndarinnar, en þá hefst vikan „Líf og list fatlaðra" og verður dagskráin einnig út- skýrð á táknmáli. Signý Sæm- undsdóttir syngur einsöng. Klukk- an 14 verður afmælisguðsþjón- usta. Þá mun kór kirkjunnar flytja kantötu nr. 61 eftir Bach ásamt Garðari Cortes, Kristni Sigmundssyni og Ólöfu K. Harð- ardóttur. Að lokinni messu er fjáröflunarkaffi kvenfélagsins til styrktar kirkjubyggingunni. Um kvöidið er síðan aðventu- hátíð og hefst hún kl. 20:30. Ólafur Örn Arnason formaður safnaðar- stjórnar flytur ávarp, dr. Kristján Eldjárn er ræðumaður kvöldsins og Kór Langholtskirkju flytur að- ventutónlist. Nemendur úr Tónl- istarskólanum leika flautukvart- ett eftir Mozart og Arngunnur Ýr Gylfadóttir flytur franska tónlist á flautu. Að samkomunni lokinni verður kirkjukaffi. Með aðventu eða jólaföstu hefst nýtt kirkjuár í kristnum heimi, en þetta fyrsta tímabil kirkjuársins, aðventa, er undirbúningstími krist- inna manna fyrir komu jólanna, fæðingarhátíðar frelsarans. Og mikill er hann vissulega ytri undir- búningurinn fyrir þessa blessaða hátíð lífs og ljóss í myrkum skammdegisheimi. Síðustu vikurn- ar fyrir jól einkennast af önn og erli jafnt ungra sem aldinna, sem mikið leggja á sig til þess að jólin geti orðið þeim og vandamönnum þeirra sem ánægjulegust og gleði- ríkust. En það hefur einnig færst í vöxt meðal kristinna safnaða að menn gefi hinum innra undirbúningi jól- anna aukinn gaum á aðventunni, en sá undirbúningur miðar að því, að menn geti eignast heilög jól friðar og kærleika í hug og hjarta. Leiðrétting í MORGUNBLAÐINU í gær urðu þau mistök, að fyrirsögn vantaði á umsögn um matreiðslubókina „Áttu von á gestum?" Einnig féll niður að umsögnin væri eftir Jó- hönnu Kristjónsdóttur. í því skyni eru aðventukvöldin haldin í söfnuðum landsins, þar sem boðið er upp á að menn geti eignast kyrrar næðisstundir til helgrar hugleiðslu um það, hvers virði jólin raunverulega eru lífi okknr allra og hvílík nauðsyn það er hverjum manni að eignast hann, sem minnst er á jólum, í hjarta og sál. Og i öllu annríki og erli hins ytra jólaundirbúnings, sem aðeins er umgjörð um perluna dýru, sjálf- an jólaviðburðinn, eru menn farnir að skynja mikilvægi þess að koma saman í húsi Drottins fyrir jólin til innri undirbúnings og aðventu- kvöld safnaðanna hafa því verið mjög fjölsótt og mörgum til gleði og gagns. Að kvöldi fyrsta sunnudags í að- ventu, hins 29. nóvember, verður aðventukvöld haldið í Safnaðar- heimili Árbæjarsóknar og hefst samkoman kl. 20.30 (kl. 8.30 síðdeg- is). Dagskrá aðventukvöldsins verð- ur sem hér segir: 1. Ávarp. Gunnar Petersen, safn- aðarfulltrúi. 2. Einleikur á orgel. Unnur Jens- dóttir. 3. Flautuleikur. Manuela Wiesler. 4. Ræða. Friðjón Þórðarson, dóms- og kirkjumálaráðherra. 5. Einsöngur. Kolbrún á Heygum Magnúsdóttir syngur við undir- leik Unnar Jensdóttur. 6. Yngri kór Árbæjarskóla syngur undir stjórn Áslaugar Berg- steinsdóttur söngkennara. 7. Helgistund í umsjá sóknar- prests. Kynnir á samkomunni verður Rannveig Guðmundsdóttir. Árbæingar og Selásbúar. Komum saman á nýársdegi kirkjuársins í aðventubyrjun og eignumst kyrra og helga stund í húsi Drottins til undirbúnings há- tiðinni æðstu, hátíð friðar og kær- leika, lífs og ljóss, heilögum jólum. Tendrum einnig aðventuljósin í hug og hjarta. Fjölmennum í Safn- aðarheimili Árbæjarsóknar annað kvöld klukkan hálf níu. Verið öll velkomin. Sr. Guðmundur Þorsteinsson Kirkjudagur Seltjarnarness SÍÐASTLIÐIÐ sumar var tekin fyrsta skóflustunga að væntan- ,Iegri kirkjubyggingu á Seltjarn- arnesi. Næstkomandi sunnudag, á fyrsta sunnudegi í aðventu, efnir söfnuðurinn til hins árlega kirkju- dags. Segja má að markmið kirkjudagsins sé tvíþætt, annars vegar efling trúarlífs safnaðarins og hins vegar fjáröflun fyrir væntanlega kirkjubyggingu. Allir velunnarar kirkjunnar eru hvattir til að sýna samstöðu og fjölmenna til guðsþjónustu og á kökubásar og kvöldsamkomu í félagsheimili Seltjarnarness. Kl. 11: Ljósamessa sem ferm- ingarbörn annast. Blásarakvartett leikur undir stjórn Skarphéðins Einarssonar. Organisti: Sighvatur Jónasson. Kl. 3.: Kökubasar. Kl. 8.30: Kvöldvaka. Skólakór Seltjarnarness syngur undir stjórn Hlínar Torfadóttur. Ein- söngur: Kolbrún Harðardóttir syngur við undirleik Kolbrúnar Sæmundsdóttur. Erindi: Sr. Ólaf- ur Oddur Jónsson ræðir um fjöl- skylduvernd og trúarlegt uppeldi. Hugvekja: Jóhann Guðmundsson. Frank M. Halldórsson L TT rr — i ii r * 11 m ii; ' i 1 1 'i L jj- .L Okkar verð Leyft verð Rúsínur pr. kg......... Sýróp 500 gr........... Kókosmjöl 500 gr....... Möndlur 250 gr......... Heslihnetukjarnar 100 gr. Valhnetukjarnar 100 gr. .. Súkkat 100 gr.......... Kakó 400 gr............ Majones 400 gr......... Kaffi ................. 27,00 21,30 12,15 13,60 6,65 10,70 6,40 35,10 10,40 12,50 23,65 13,50 15,10 7,40 11.90 7,10 39,00 4,60 12.90 Dilkaskrokkar, niðursagaðir og Vínarpylsur (afsláttarverð) ... Yacuumpakkað saltkjöt .... Úrbeinaður hangiframpartur . Kjúklingar ............... London-lamb .............. Lambahamborgarahryggur ... pakkaðir 46,62 pr. kg. 45,45 pr. kg. 76,76 pr. kg. 63,30 pr. kg. 116,00 pr. kg. 73,15 pr. kg. JOLAMARKAÐUR ALLT Á VÖRUMARKAÐSVERÐI Frönsk BABYBOTTE bamaskómir í stæröunum 18—24. Verö frá 166 kr Húsgögn í bama- og unglingaherbergi, svefnbekkir. veggeiningar, skrifbord og stólar. Nýjar geröir sófasetta og einstaklingsrúm á góöu verdi. Ný komiö 82 modelin af GAGGENAU blástursofnum, sem em alveg frábærir til baksturs og steikingar. Vörumarkaðurinn hf. ÁRMÚLAIa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.