Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 Hallur Hallsson: Á landsliðið alltaf að hafa forgang? JÚLÍIIS Hafstein, formadur HSÍ, setti fram það stefnumið sambandsins í grein í Mbl. þann 14. nóvember að íslenzka landsliðið „á og verður alltaf að hafa forgang í verkefnum sínum“. I*á sagði hann að vitað hefði verið með hálfs árs fvrirvara um ferðir landsliðsins til Tékkósióvakíu og að oft hefði verið naumari tími til undirbúnings Evrópuleikja en ekki verið kvartað. Vegna verkfalls prentara hefur eftirfarandi greinarstúfur orðið að bíða. Þar með hefur Júlíus Hafstein boðað stefnu HSÍ — eða öllu held- ur stefnuleysi og í raun ráðleysi. Handknattleikur á íslandi er miklu meira en bara íslenzka landsliðið, þó auðvitað sé það and- lit handknattleiks út á við. Það er nefnilega svo, að einstakir þættir handknattleiksins verða að hald- ast í hendur. Það er til nokkuð sem heitir íslandsmót og ber að skipa veglegan sess og einnig þátttaka íslenzkra liða í Evrópu- keppni; og þau eru einnig andlit íslenzks handknattleiks út á við. Og því ber að leggja mismunandi áherzlu á hvern þessara þátta eft- ir hvernig á stendur hverju sinni. Júlíus sagði í grein sinni, að oft hefði verið naumari tími til undir- búnings Evrópuleikja og ekki hefði verið kvartað. I grein, sem Jón H. Karlsson, fyrrum fyrirliði íslenzka landsliðsins, skrifaði í Mbl. kom fram að fimm lands- liðsmenn Vals hefðu farið beint úr æfingabúðum í Póllandi undir stjórn Janusz Czerwinskis í Evr- ópuleik í Ungverjalandi. „Leikur- inn tapaðist auðvitað," skrifaði Jón í Mbl., en sagði ekki, að Valsmenn hefðu tapað með ellefu marka mun og bætti við að ekki hefðu Valsmenn séð ástæðu til að væla. En hvenær voru Valsmenn í æf- ingabúðum í Póllandi með ís- lenzka landsliðinu? Það var í upp- hafi undirbúnings íslenzka lands- liðsins fyrir HM-keppnina í Danmörku. Þá voru allir sammála um að láta íslenzka landsliðið hafa forgang, enda voru úrslit HM framundan og lítill tími til stefnu. Menn voru sammála um að láta íslandsmótið sitja á hakanum og einnig Evrópukeppni, enda árang- ur í samræmi við það. Þá töpuðu íslenzk félagslið oft illa fyrir er- lendum í Evrópukeppni og aðsókn að Islandsmótinu datt niður úr öllu valdi. Þrátt fyrir þetta voru menn sammála um að rétt væri að láta landsliðið hafa forgang, þó vissulega megi draga í efa í dag að rétt hafi verið að leggja slíkt ofurkapp á landsliðið. Sá lærdómur sem draga má af þessu er, að auðvitað verða allir þættir að haldast í hendur; Is- landsmótið verður að skipa veg- legan sess, gefa verður íslenzkum félögum tækifæri til þess að und- irbúa sig sem bezt undir Evrópu- keppni, enda hefur sjálfstraust ís- lenzkra félaga vaxið eftir góðan árangur fyrst og fremst Vals þeg- ar liðið komst í úrslit Evrópu- keppni meistaraliða, en einnig ágæta frammistöðu Víkings. Við verðum að meta hvenær áherzluna ber að leggja á landslið- ið. Það er ekki bara sjálfsagður hlutur. Og hvers vegna áttu fé- lagslið að hafa forgang núna? Vegna þess, að næsta B-keppni fer fram 1983. Okkur tókst ekki að komast í A-keppnina í Þýzkalandi ÁSKORUN til allra vina og kunningja í Reykjavík svo og allra annara Reykvíkinga, sem setja viröinguna fyrir einstaklingnum og frelsi hans og sjálfsákvöröunarrétti ofar öllu ööru í mannlegum samskipt- um og fyrirlíta stjórnlyndi og múg- hyggju: TAKIÐ ÞÁTT í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS NÚ OG KJÓSIÐ RÉTTA FÓLKIÐ Því til áréttingar leyfi ég mér aö benda á eftirfarandi fjóra frjálslynda fram- bjóöendur, sem líklega til þess aö viröa ætíö í starfi sínu hamingju og frelsi einstaklings, en þeir eru: Davíð Oddsson Ingibjörg Rafnar Markús Órn Antonsson Skafti Haróarson Oddur C.S. Thorarensen apótekari. í vor, því miður, og er það enn ein sorgarsaga. Landslið okkar fór fullt bjartsýni til Frakklands og takmarkið var auðvitað að komast í A-keppnina. Aðalkeppinautur okkar var mældur út: Það er að við þyrftum að sigra Svía, það yrði stóri leikurinn. Frakkar voru álitnir tiltölulega auðveldir við- fangs. Við töpuðum fyrir Svíum með eins marks mun og síðan kom leikurinn við Frakka. Fullir vonbrigða eftir ósigurinn gegn Svíum mættu íslendingar til leiks gegn Frökkum og töpuðu stórt. Þetta sýnir okkur að í fyrsta lagi voru ekki sett rétt markmið og í öðru lagi var undirbúningur undir Frakklandsförina rangur. Auðvitað voru aðalandstæð- ingar okkar í Frakklandi Frakkar sjálfir. Allt annað var óraunsæi, en hefði tekist að sigra Svía þá var það betri frammistaða en menn áttu von á; bónus. Ekki að heimur- inn hefði hrunið eftir ósigur gegn Svíum. Frakkar sjálfir sögðu eftir leikinn við íslendinga, að sá leikur hefði verið þeirra úrslitaleikur. Þessi málalok í Frakklandi eru nánast endurtekning á „fimm svörtum dögum í Danmörku". Þá vorum við í riðli með Rússum, Dönum og Spánverjum. Það yrði ekkert tiltökumál að sigra Spán- verja, það höfðum við gert í Aust- urríki í B-keppninni, eða svo ályktuðu menn. Við skyldum sigra annað hvort Dani eða Rússa! Við töpuðum fyrir Rússum. Við töpuð- um fyrir Dönum, þjóðum sem síð- ar urðu í 2. og 4. sæti og væng- brotnir vegna vonbrigða mættum við til leiks gegn Spánverjum. Og við töpuðum. Spánverjar mættu til leiks í Danmörku með það markmið að vinna íslendinga, allt annað væri óraunsæi. Og þeir sigruðu vegna þess að leikurinn við Islendinga var þeirra úrslita- leikur. Og Spánverjar hafa markvisst unnið að uppbyggingu með þeim árangri, að á Ólympíu- leikunum í Moskvu urðu þeir í 5. sæti. Spánverjar settu sér raunsæ markmið hverju sinni. Við ætlum okkur í hvert sinn að sigra heim- inn; það er ekki markvisst byggt upp hér, eins og annars staðar. Islenzka landsliðið vann góða sigra fyrir B-keppnina í Frakk- landi. Ölympíumeistarar A-Þjóð- verja voru að velli lagðir í Reykja- vík og heimsmeistarar V-Þýzka- lands voru sigraðir ytra. En það sem vantaði inn í undirbúning var að taka þátt í túrneringum. Þenn- an stóralærdóm dró Hilmar Björnsson Iandsliðsþjálfari af óförunum í Frakklandi. Hann sagði, að íslendingar yrðu að taka þátt í túrneringum. Rétt einu sinni settu menn und- ir sig hausinn, og íslenzka lands- liðið var sent í fyrstu túrneringu sem bauðst; i Tékkóslóvakíu. En stöldrum aðeins við. Hvaða þjóðir tóku þátt í mótinu í Tékkóslóv- akíu? Jú, Ungverjar, Sovétmenn, Rúmenar og Tékkar. Þjóðir sem nú vinna af kappi að undirbúningi landsliða sinna fyrir keppnina í V-Þýzkalandi eftir nokkra mán- uði. Um Evrópu hafa A-þjóðir ver- ið að taka þátt í túrneringum, til að vanda undirbúning fyrir þol- raunina í Þýzkalandi. Það er tímaskekkja nú að vera að senda íslenzka landsliðið í túrneringu. B-keppnin næsta fer fram 1983 og í ljósi bágs fjárhags HSÍ, þá þarf að velja vel þær túrn- eringar, sem íslenzkt landslið tek- ur þátt í, ekki sízt hvað tímasetn- ingu varðar. Það sem HSÍ á að gera, er að safna kröftum til þess að undirbúa íslenzka landsliðið sem bezt næsta vetur. í vetur eiga félögin að hafa forgang. Það kom fram, að Víkingar höfðu ekki leikið einn einasta keppnisleik í þrjár vikur fyrir við- ureignina við Atletico Madrid í Reykjavík. Þar vó þyngst tíma- skekkjuferð landsliðsins til Tékkó- slóvakiu. Keppnin í 1. deild var slitin í sundur. Víkingar urðu að Ieika fyrri leikinn í Reykjavík, vegna þess hve lítill tími var til stefnu, en Víkingur dróst fyrst ytra, sem yfirleitt þykir hagstæð- ara. Víkingur tapaði í Reykjavík. Sýndi afleitan leik, fyrst og fremst sóknarleik. Þorbergur Aðal- steinsson hafði ekki getað æft sem skyldi vikuna fyrir leikinn vegna meiðsla sem hann hlaut í Tékkó- slóvakíu, og var aðeins skugginn af sjálfum sér, sem og liðið í heild. Eftir frammistöðuna í Madrid, þá er ljóst að Víkingur tapaði viður- eigninni við Atletico fyrst og fremst hér heima; liðið mætti illa undirbúið til leiks. Það er ekki sjálfgefinn hlutur að landsliðið eigi að hafa forgang, alltaf. Það verður að vega og meta hverju sinni. Stjórn HSÍ má ekki gleyma því, að hún er kosin af fé- lögunum til að hlúa að íþróttinni í landinu, að félögunum. Ekki leggja stein í götu þeirra. Við verðum að vinna skipulega, setja okkur markmið og vinna eftir þeim. Handknattleikur er ekki bara landsliðið; félagsliðin eru „mjólkurkýrin" og að þeim verður að hlúa. Menn verða að gera upp við sig, hvenær félögin og Is- landsmótið eigi að hafa forgang og hvenær landsliðið. Ekki setja und- ir sig haus, þegar menn hafa fund- ið út þann stórasannleik, að ís- lenzka landsliðið þurfi að taka þátt í túrneringum. Það er ein- faldlega ekki sama hvenær farið er í slík mót. Vegna sífelldra fjár- hagsvandræða HSÍ verður að velja vandlega, og ekki sízt tíma- setninguna. Með öðrum orðum; það þarf að móta heilsteypta stefnu, þar sem tekið er fullt tillit til islenzka landsliðsins, til félag- anna og til íslandsmótsins. Hver þessara þátta styður annan. 'i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.