Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 Nitze mætir til Genfar-fundar (ienf, 27. nóvember. Al*. I’AUL NITZE, gamalreyndur samn- ingamadur Bandaríkjastjórnar, kom í dag til Genfar að ræða við Rússa um takmörkun kjarnorkuvopna í Evrópu og sagði að hann yrði „sanngjarn og harður“. Hann sagði að það væri hagur bæði Bandaríkjamanna og Rússa að reyna af einlægni að ná sam- komulagi um fækkun kjarnorku- vopna. Hann kvaðst telja horfur á því að takast mætti að ná sam- komulagi, sem gæti lagt grundvöll að nýju tímabili í samskiptum austurs og vesturs. Viðræðurnar hefjast á mánu- daginn og munu standa í marga mánuði. Nitze er formaður banda- rísku sendinefndarinnar í viðræð- unum, hinum fyrstu um kjarnor- kuhergögn í forsetatíð Ronald Re- agans. Formaður sovézku sendinefnd- arinnar er Yuli Kvitsinsky og er væntanlegur á morgun, laugardag. Mikið tjón eftir átök f Kandahar Nýju Delhi, 27. nóvember. Al*. KANDAHAR í Afghanistan lítur út eins og borg að lokinni loftárás í heimsstyrjöldinni, eftir þriggja mán- aða stöðuga bardaga afghanskra skæruliða og stjórnarhermanna samkvæmt heimildum sem áður hafa reynzt áreiðanlegar. Vestrænir stjórnarerindrekar hafa einnig skýrt frá miklu tjóni í Kandahar og miki- um fólksflótta frá borginni. Hundruð íbúðarhúsa hafa eyði- lagzt í Kandahar, sem er fylkis- höfuðborg 500 km suðvestur af Kabúl. Verulegur hluti 200.000 íbúa borgarinnar hefur flúið til nálægra sveita eða yfir landa- mærin til Pakistans. Matvælaskortur er orðinn al- varlegur þar sem litlar birgðir berast frá nágrannaþorpum vegna bardaganna. Mörkuðum hefur ver- ið lokað og aðeins örfáar matvöru- verzlanir eiga nægar matvæla- birgðir. Skæruliðar hafa ráðizt á birgða- Iestir ríkisstjórnarinnar og eyði- lögðu í síðustu viku 42 fullhlaðna vörubíla í nágrannabænum Puza. Minna ber nú en áður á sovézk- um hermönnum og stjórnar- hermönnum í Kandahar. Embætt- ismenn hafa hingað til komið til Kandahar að degi til undir vopn- aðri vernd og snúið aftur fyrir sól- arlag til sovézkra herbúða nálægt flugvellinum utan við borgina. Skrifstofuembættismenn láta nú ekki sjá sig lengur og aðeins sov- ézkir skriðdrekar og brynvarðir bílar fara inn í Kandahar þar sem aðeins er höfð nokkurra klukku- tíma viðdvöl í björtu. Háttsettur maður sem ætlaði til Kandahar snemma í október komst ekki lengra en á flugvöllinn og varð að snúa aftur til Kabúl án þess að fara inn í borgina þar sem ekki var hægt að veita honum nógu örugga vernd. Skæruliðar gerðu árás á afgh- anskan herflokk nálægt flug- vellinum 21. nóv. og rændu úr vopnabúri með aðstoð nokkurra liðhlaupa. Sovézkir hermenn komu á vettvang og neyddu skæruliða til að hörfa. Mikið mannfall hefur orðið í bardögun- um um borgina síðustu þrjá mán- uði. Kínversk leikkona handtekin samskipta IVking, 25. nóvember. Al*. LÖGREGLAN í Peking hefur hand- tekið 23ja ára kínverska leikkonu sem hafði á prjónunum að giftast ít- ölskum kennara í Shanghai. Heimild- ir AP fréttastofunnar segja að stúlk- an hafi verið handtekin þann 19. nóv. Hjónaleysin höfðu ekki sótt um giftingarleyfi, en ætluðu að gera það að mánuði liðnum, um svipað leyti og stúlkan hefði lokið prófi frá leiklistarskólanum í Shanghai. vegna við ítala Þau sátu oft saman á almannafæri, en bjuggu ekki saman. - Mönnum er í fersku minni hand- taka annarrar kínverskrar stúlku í haust, sem var handtekin og úr- skurðuð í endurhæfingarbúðir vegna áætlana um að giftast frönskum diplómat sem hún bjó með. Þykir mönnum sýnt að Kín- verjar séu staðráðnir í að koma í veg fyrir að Kínverjar giftist fólki af öðru þjóðerni. Max Euwe látinn Amstt rdam, 27. nóvember. Al*. DR. Max Euwe, fyrrverandi heims- meistari í skák og forseti Alþjóða- skáksambandsins, Fide, lést úr hjartaslagi aðafaranótt róstudagsins. Ilann var áttræður að aldri. Dr. Euwe varð skákmeistari Hollands árið 1921 og 14 árum síð- ar, 1935, sigraði hann Alexander Aljekhine, útlægan, rússneskan stórmeistara, í einvígi um heims- meistaratitilinn. Tveimur árum síðar endurheimti Aljekhine titil- inn úr höndum Euwes. Euwe þótti maður alvörugefinn en þó góður samningamaður og slunginn í því að umgangast skáksnillingana, sem margir hverjir eru ekkert lamb að leika sér við. Hann var forseti Fide 1972 þegar Bobby Fischer og Boris Spassky leiddu saman hesta sína hér á landi og stóð sig þá vel í viðskiptunum við Fischer. Margir þakka honum það fyrst og fremst að það tókst að ljúka einvíginu. Max Euwe Euwe hafði gengist undir mik- inn uppskurð á Wilhelmina- sjúkrahúsinu í Amsterdam og var á batavegi þegar hann fékk hjartaslag og lést. Hann lætur eft- ir sig konu og þrjár dætur. Getið í tilraunaglasi og tekið ined keisar skurói . Adrian litli, tíu ára gamall, heldur hér hreykinn á svip á Martin bróður sinum, sem getinn var i tilraunaglasi. Talið er að Adrian sé fyrstur til að eignast glasabarn fyrir systkin og móðir þeirra bræðra, sem einnig sést á myndinni, jafnframt fyrsta konan sem á hvort tveggja — glasabarn og barn getið með eðlilegum hætti. Glasabarnið var tekið með keisaraskurði. Rússnesk leynihreyfing skipu- leggur „hljóðar mótmælaaðgerðir“ ANDKOMMÚNÍSK neðanjarðarhreyfing í Sovétríkjunum er að skipu- leggja „hljóðlátar mótmælaaðgerðir“ til stuðnings kröfum af ýmsum toga, meðal annars um að Sovétmenn hverfi með herlið sitt frá Afganistan, segir í frétt brezka blaðsins Daily Telegraph. Þar segir að Lýðræðishreyfing stuðningsmenn sína að virða Sovétríkjanna hafi skorað á „hálfrar klukkustundar þögn“ þann 1. des. sem samtökin hafa lagt til að verði vítt um landið, og þessar hljóðu stundir verði síðan 1. vinnudag hvers mánaðar um ótiltekna tíð. Hreyfingin segist hafa nokkur þúsund félaga innan vébanda sinna í Sovétríkjunum. í yfirlýsingu samtakanna er og hvatt til að Sovétríkin forðist íhlutun um málefni Póllands, krafizt er lausnar pólitískra fanga og að virt verði aðskiljan- leg atriði í Helsinki-sáttmálan- um. Vestrænir sérfræðingar um sovézk málefni segjast ekki geta gert sér grein fyrir því hversu víðtækur stuðningur sé við hreyf- inguna né heldur hvort hún sé raunverulega öflug og muni hafa bolmagn til að verða einhver ógnun við stjórnvöld. Þá er álitið að KGB fylgist nú orðið gaumgæfilega með athöfn- um þeirra sem eru grunaðir um trúnað við samtökin og það muni aðeins verða þeir allra kjörkuð- ustu sem þori að ljá fylgi sitt við „hljóðlátu mótmælaaðgerðirnar" enda sé sýnt, að KGB taki ekki vettlingatökum á þeim, sem leggi samtökunum lið. Sergei Soldatov, einn af stofn- endum Lýðræðishreyfingarinnar, sem var rekinn frá Sovétríkjun- um í maímánuði eftir að hafa af- piánað sex ára þrælkunarbúða- dóm, sagði í London á dögunum að félagar í Lýðræðishreyfing- unni sættu æ meiri áreitni af Begin heldur stjórnar- fund á sjúkrahúsinu Sinai og sjálfsstjórnarmál Palest- ínumanna, en ísraelar hafa látið í Ijós mikla gremju vegna afstöðu og afskiptasemi, eins og þeir kalla það, sem Efnahagsbandalagsríkin hafa sýnt í þessu máli. Begin hef- ur ákveðið að fundurinn verði á sjúkrahúsinu. Læknir Begins sagði að ráðherr- ann myndi geta unnið þótt hann væri rúmliggjandi, en á spítalan- um yrði hann að vera a.m.k. tvær vikur. JerÚKalem 27. nóvetnber. Al*. TALSMAÐUR Hadassah-sjúkra- hússins í Jerúsalem sagði í dag, að líðan Begins forsætisráðherra væri „eftir atvikum góð, en hann hefði átt svefnlausa nótt“. Væri hann þó furðu hress og væri í stöðugu sam- bandi við skrifstofu sí«a. Begin var lagður inn á sjúkrahús til uppskurð- ar, eftir að hann beinbraut sig fyrir fáeinum dögum. Á sunnudag átti að vera mjög mikilvægur ríkisstjórnarfundur til að ræða brottför ísraela frá Sjónvarpid neit- adi beiðni Flint- imlinbinwhin- bimlim Bus Stop FTang-FTang- Ole-Biscuit- Barrel ('rosby, 27. nóvember. Al*. TARQUIN Fintimlinbinwhin- bimlim Bus Stop rTang-fTang- Ole-Biscuit-Barrel, frambjóðandi í hinum mikilvægu aukakosning- um í Crosby á Englandi í gær, var neitað um þá kröfu að fullt nafn hans, eins og það er ritað hér að ofan væri lesið upp í sjón- varpi, þegar atkvæði voru lesin upp að lokinni talningu í Crosby í morgun. John Desmond Lewis, sem er 22ja ára háskólanemi, fékk nafni sínu breytt með lögum í Tarquin Fintimlinbinwhin- bimlim Bus Stop f’Tang- f’Tang-Ole-Biscuit-Barrel til að taka þátt í kosningunum sem frambjóðandi Larfaláka- flokks Cambridge-háskóla. Hann fékk 233 atkvæði. Shir- ley Williams, sigurvegarinn í aukakosningunum hlaut 28.118 atkvæði. hálfu stjórnvalda, ekki hvað sízt í Eistlandi, þar sem þjóðernistil- finning er enn mjög sterk. Sold- atov var einn þeirra sem Pyott Yakir, sovézkur andófsmaður, sveik í hendur KGB eftir að Yak- ir var handtekinn fyrir undirróð- ursstarfssemi. Soldatov sagði að innanlands- ólga víða í Sovétríkjunum hefði magnazt og væri langtum meiri en menn á Vesturlöndum grun- aði. Þessa ólgu mætti meðal ann- árs rekja til matarskorts og bágra lífskjara þorra manna, reiði vegna innrásarinnar í Afg- anistan, Póllandsmálsins og ofsókna á hendur hvers kyns minnihlutahópum. Tveir fundust er skip fórst New York, 27. nóvember. Al*. BANDARÍSKA strandgæzlan hef- ur fundið tvo menn af 24 manna áhöfn vesturþýzka flutningaskips- ins „Elma Tres“ þar sem þeir héngu á kjölum björgunarbáta austur af Bermuda þar sem skipið sökk. Þrjár flugvélar strandgæzl- unnar og ein flugvél sjóhersins halda áfram leit að öðrum mönnum sem kunna að hafa komizt af. Stór olíubrák sást skammt frá þeim stað þar sem mennirnir sáust. Bandaríska olíuskipið „Chancellorsville" var nærstatt og búizt var við að það mundi bjarga mönnunum og taka síðan þátt í leitinni. Síðasta neyðarkallið frá vestur-þýzka skipinu barst þeg- ar það var 346 km austur af Bermuda. Ekki er ljóst hvers vegna skipið fór að sökkva, þótt í neyð- arkallinu væri talað um að farmur þess hefði færzt til. Ölduhæð á svæðinu er þrír til fjórir metrar og vindhraði 128 km á klst. Dimmt var þegar skipið bað um aðstoð og neyðarblysum var varpað úr flugvél til að finna svæðið þar sem skipið var statt. Skipið fór frá Puerto Madryn í Suður-Argentínu 9. nóv. með ávaxtasafa, leður og ull. Ferð- inni var heitið til Boston og skipið var væntanlegt þangað á sunnudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.