Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 39 Cliff + Cliff Richards, poppsöngvari og eftirlæti kvenna í mörg ár, staðhæfir í nýjum enskum sjón- varpsþætti, sem verður sendur út í janúar, að hann hafi ekki sofið hjá konu í 16 ár. — Nei, nei, ég er ekki kynvilltur, sagði Cliff, það er af og frá. Ég hef einungis tamið mér einlífi sem lífsmáta og líkar það vel... Kjörn og hin rúmenska eiginkona hans, Marina. Borg-hjónin + í amerískum blöðum mátti nýlega sjá þá staðhæfingu Björns Borg, sænsku tennisstjörnunnar, að hann hefði kynmök við konu sína einu sinni í viku, og ekki oftar. — Við höfum ekki þörf fyrir meira, játaði hann við bandarískt blað. Ekki fylgdi fréttinni af hverju maðurinn þurfti að básúna þessari staðreynd um einkalíf sitt yfir allan heims- lýð — nema hann hafi verið að skopast að þessum villimönnum, sem hafa það að atvinnu sinni að elta heiðarlegt fólk á röndum ... ffclk f. fréttum ýi Yoko tekin sam- an viö annan? + Það gengur nú fjöllum hærra í New York aö Yoko Ono sé tekin saman við Sam nokkurn Habatoida, og fylgir sögunni aö sambandiö sé orðiö svo náið, að það endi kannski með bruðkaupi. John Lennon, siðasti maður Yoko, var myrtur sem kunnugt er fyrir tæpu ári siöan — og finnst sumum ekki óeðlilegt að Yoko sé farin að hugsa sér til hreyfings. Ljósmyndari nokkur náði ágætum myndum af parinu, sem við höfum því miöur ekki undir höndum, en Ijósmyndarinn sagði: „Svei mér þá, þau tóku ekkert eftir ,mér, létu eins og þau sæju mig ekki. Þau virtust svo upptekin hvort af ööru og sýndust mjög hamingjusöm og geislaöi af þeim gleðin. Þaö fylgdu þeim, sem betur fer, engir stórir og svakalegir lif- verðir, eins og venjulega, og ég gat því athafnað mig nokkurn veginn rólegur um líf mitt.“ Pariö sást á þessari innilegri göngu í garði einum i New York sem Strawberry Fields heitir, en þar gengu Yoko og John Lennon gjarnan meðan Lennon lifði. En fulltrúi einn á skrifstofu Yokos brást reiöur við þegar blaðamenn færöu þetta í tal, hvort Sam Habatoida og Yoko myndu bráöum giftast: „Sam Habatoida," sagði hann: „er einungis einn af fjöl- mörgum aðstoðarmönnum Yokos. Þaö er ekkert til i þess- um orðrómi, ég get lofaö ykkur því, strákar minir. Þau eru aðeins góðir vinir . . .“ ABBA + Nú í desember er væntanleg ný hljómplata frá hljómsveit- inni vinsælu, Abba. Hljóm- sveitarmeðlimir hafa nýlega veitt viðtöku konunglegum tónlistarverðlaunum fyrir bestu hljómplötu ársins 1980—1981, en það er platan „Super Trouper“ — sem kannski einhverjir kannast við. Agnetha Fáltskog tók við verðlaununum ásamt stöllu sinni Annifrid Lyngstad, sem vakti athygli viðstaddra með nýklipptu og stuttu hári sínu ... Einstœðar œvi minningar HORFT TIL LIÐINNA STUNDA Eftir Þórarinn Þórarinsson fyrrverandi skólastjóra á Eiöum. Þaö er alþjóð löngu kunnugt aö Þórarinn er mikill fræöaþuiur en jafnframt glettinn og spaugsamur. í bók sinni segir hann frá kynnum sínum af margskonar fólki sem hann hefur hitt á lífsleiöinni, meistara Kjarval jafnt sem kotbændum og sannar Þórarinn í bók sinni aö hann hefur haft næmt auga fyrir því sem var að gerast í kringum hann og frásagnarlistin bregst honum ekki. Bókin er prýdd fjölda mynda og teikninga. BÆNDUR SEGJA ALLT GOTT Eftir Jón Bjarnason frá Garðsvík. Tvær fyrri æviminningabæk- ur Jóns: Bændablóö og Hvaö segja bændur gott? hlutu mjög góöar viötökur bæöi gagnrýnenda og almennings, enda hefur fyrrum Garösvíkurbóndi einkar lipran penna og létta lund og kann aö segja þannig frá ævikjörum íslenskra bænda og bændamenningu aö bækur hans geymast en gleymast ekki. í hinni nýju bók sinni heldur Jón áfram þar sem frá var horfiö aö segja frá lífshlaupi sínu og sveitunga sinna Þingeyjarsýslumeg- in í Eyjafirði og fatast honum hvergi flugiö í frásögn sinni. Endurminningar Karvels Ögmundssonar skipstjóra og útgerð- armanns, skráöar af honum sjálfum. Karvel Ögmundsson er löngu landsþekktur aflaskipstjóri og dugmikill útgerðarmaöur, en hann man sannarlega tírnana tvenna. í 1. bindi æviminninga sinna segir Karvel frá uppvaxtarárum sínum á Snæfellsnesi, og hinum kröppu kjörum sem öll alþýða bjó viö — hver dagur var barátta fyrir brauðinu, og i þeirri baráttu tóku ungir jafnt sem eldri þátt. En jafnframt þróaðist einstæö menning, sem fólst ekki síst í því að hinir yngri námu af vörum hinna eldri og lífsreyndari. Karvel Ögmundsson hefur frá mörgu að segja, og saga hans er jafnframt spegill af baráttu íslendinga frá erfiöi og örbyrgð til velsældar. Brugöiö er upp skýrri mynd af at- vinnuháttum þess tíma er Karvel var aö alast upp, og raktar fjölmargar merkar frásagnir, er Karvel nam í æsku sinni. ÖRN&ÖRLYCUR Síðumúlan, simi 84866

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.