Morgunblaðið - 28.11.1981, Síða 3

Morgunblaðið - 28.11.1981, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 3 Blöndalsætt- in komin út BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, Hafn- arfirði, hefur gefið út bókina Blöndalsættina, niðjatal Guðrúnar l>órðardóttur og Björns Auðuns- sonar Blöndals sýslumanns í Hvammi í Yatnsdal. Lárus Jóhannesson, hæsta- réttardómari, sá um samantekt verksins. Hann tók að fást við ættfræði á efri árum. Safnaði hann saman óhemju fróðleik og leitaði víða fanga. Aðallega fékkst hann við að semja niðja- tal Björns Blöndals, sýslumanns í Hvammi í Vatnsdal, og Þórar- ins Jónssonar á Grund í Eyja- firði (Thorarensenætt). Lárusi entist ekki ævi til að vinna úr þessum fróðleik nema að nokkru leyti og raunar var tilgangur hans ekki sá, að þetta yrði gefið út. Jón Gíslason, fræðimaður, tók að sér að fullgera Blöndals- ættina og búa hana til prentun- ar. Blöndalsættin er niðjatal Björns Auðunssonar Blöndals, sýslumanns í Hvammi í Vatns- dal, og Guðrúnar Þórðardóttur, konu hans. Niðjatalið nær fram til ársins 1977 og í sumum tilfell- um lengra. Þetta niðjatal er að ýmsu frábrugðið öðrum slíkum ritum, m.a. eru ættir þeirra, sem tengjast Blöndalsættinni, oft raktar í marga liði; þá eru víða umsagnir um menn úr bókum eða öðrum heimildum eða frá höfundi sjálfum. í ritinu eru á áttunda hundrað myndir, eða á annað þúsund myndir af ein- Lárus Jóhannesson staklingum, ef þannig er talið, Hönd í bagga með þessari útgáfu hefur Guðjón læknir, sonur Lár-' usar heitins, haft. Hann hefur skrifað langa ritgerð sem inn- gang að bókinni. Itarleg nafna- skrá er í bókinni og einnig er hér prentuð æviminning Björns Blöndals eftir séra Svein Níels- son á Staðastað sem og ættar- tala hans, handskrifuð. Blöndalsættin var sett í Prentstofunni Bliki hf., filmu- unnin í Prentþjónustunni hf., prentuð í Offsetmyndum sf. og bundin í Bókfelli hf. Kápu gerði Auglýsingastofa Lárusar Blön- dals. RAGNAR JÚLÍUSSON skólastjóri Nýtum reynslu Ragnars # ískólamálum # í æskulýðsmálum # í atvinnumálum # ífélagsmálum Hann á erindi í borgarstjórn Munið prófkjör sjálfstæðismanna vegna borgarstjómarkosninganna ívor. Prófkjörið fer fram sunnudaginn 29. nóvember og mánudaginn 30. nóvember. Kjörstaðir verða fjórir talsins, í Átthagasal Hótel Sögu, t Valhöll við Háaleitisbraut að Hraunbæ 102b og Seljabraut 54. Sunnudaginn 29 nóvember verða kjörstaðir opnir frá kl. 10 til kl. 20. Mánudaginn 30. nóvember er aðeins kosið í Valhöll, og þar er opið frá kl 15.30 til kl. 20. Ragnar Júlíusson skólastjóri hefur um fjölda ára verið fulltrúi í borgarstjórn Reykvíkinga. Ragnar býr yfir mikilli reynslu á sviði stjórnsýslu, hann hefur haft víðtæk afskipti af fræðslumálum, félagsmálum og atvinnumálum Reykvíkinga. Ragnar hefur einnig tekið virkan þátt í félagsstarfi sjálfstæðismanna, auk margra annarra félaga, og var lengi formaður Landsmálafélagsins Varðar. Skrifstofa stuðningsmanna Ragnars er að Suðurlandsbraut 12, 3. hæð. Símar 81550 og 81551 STUÐNINGSMENN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.