Morgunblaðið - 06.12.1981, Síða 7

Morgunblaðið - 06.12.1981, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1981 HTTOVEKJA eftir sr. Ólaf Skúlason dómprófast * Aminning adventunnar í gluggum margra húsa loga nú fleiri Ijós heldur en þar sáust fyrir aðeins viku. Alls konar skreytingar á svölum og á trjágreinum bíða enn eitt- hvað, en ljósaraðir í gluggum víkja víða myrkrinu frá og minna þá, sem eiga leið fram- hjá á það, að sennilega eru líka aðventukransar á borðum, og þar logar nú á tveimur kertum. Það er fallegur siður að hafa aðventukrans í stofu. Þó eru ekki svo ýkja mörg ár síðan þetta fór almennt að tíðkast. Vera má, að það hafi haldizt i hönd við þá vakningu, sem hef- ur fylgt aðventunni sem sér- staklega kirkjulegum tíma. Og eitt er víst, að aðventukrans- arnir með kertum fjórum eiga drjúgan þátt í því, að ferming- arbörn vita með meiri vissu um sunnudagafjöldann á þess- um tíma kirkjuársins en nokkrum öðrum tíma. Og miklu yngri börn gera sér þá líka grein fyrir því með ríkri tilhlökkun, að þeim mun nær hefur hin hæsta hátíð færst sem logar á fleiri kertum. Og þetta vita vitanlega allir, enda þótt það veki ekki sjálfkrafa hinar sömu kenndir í brjósti. Aðventan öll er áminning, hvatnng um að sofa ekki á verðinum eins og hinar fávísu meyjar, sem biðu brúðgumans. Aðventan hvetur alla þá, sem vilja virða kenningu hennar, til að sýna meiri árvekni. Og í jafn átakalitlu atferli eins og það raunar er að bera eld að kveik á kertinu, þá erum við að brýna okkur, í það minnsta ef við látum ekki hefðina eina ráða verki, heldur látum sívak- andi hugsun fylgja. En að hverju beinist hvatningin? Til hvers er verið að brýna okkur? Til þess að gleyma ekki að kaupa jólagjafirnar? Nei, á það minnir okkur allt annað en kerti á kransi. Þar glymur út- varpið, þar hrópar sjónvarpið, þar kveða blöðin í kór. Gleymska gjafa ætti sízt að vera hættuefnið, þegar þau færast nær, sem eru stærsta gjöf manninum færð. Brýning- in og skírskotunin, sem fólgin er í aðventunni, miðar að því að hvetja okkur til að sýna að- gæzlu í þeim málum, sem sál- ina varða, að láta ekki ytra borðið eitt ráða, heldur huga að því, sem þar er fyrir innan. Öll endurtekning getur verið svæfandi, sérstaklega ef hún fer að verða sjálfsögð og hugs- unarlaus. Samt hefur mér ætíð fundizt það brýnandi, þegar helgisiðabókin með lexíum sunnudaganna er opnuð aftur frá byrjun. Síðustu sunnudag- arnir eftir þrenningarhátíð eru síðustu sunnudagar kirkjuársins. Síðan er byrjað upp á nýtt, fyrsti sunnudagur í aðventu og bræður hans aðrir fylgja, sömu blaðsíður og sömu lexíur, endurtekning enn eitt árið. En mér finnst þetta vera áminning en ekki svæfandi endurtekning, áminning um það, að eins og dagar hverfa og renna í eilífðarsæinn, þá erum við líka á sömu leið. Við erum ekki fest við ankeri, sem held- ur bátnum okkar kyrrum, heldur rennum við líka til móts við þann ós, sem okkar bíður, og enginn veit, hvenær síðasta tjaldhæl er lyft. Og þegar ég skoða lexíur sunnu- daganna, þá ómar í eyrum mér niður tímans, eftir því sem sunnudagarnir líða hjá, og upphaf kirkjuársins verður þá enn eitt tækifærið, sem gefst, enn einn möguleiki til þess að tileinka sér það, sem kannski hefur runnið hjá af hugsunar- leysi árið áður. Og eins og presturinn verður að vera vakandi fyrir þessari framrás, sem sunnudagarnir marka, verður aðventukrans- inn með kertum í sunnudaga- stað lýsandi áminning um það, að sunnudagarnir skipta máli í þessari framrás tímans. Dag- arnir eru flestir hinu sama einkenni merktir: starf og skyldur, afmarkaðar tóm- stundir með ívafi, sem enginn veit fyrir fram hvernig muni reynast. En sunnudagarnir segja eitthvað sérstakt við okkur, ef við aðeins viljum leyfa þeim að fá málið. Þeir heita eitthvað, alveg eins og aðventusunnudagarnir, og þeim fylgir líka sérstakur boðskapur, sem kirkjan hefur valið þeim til þess að miðla okkur aftur. En til þess að svo megi verða, þá hljótum við að þurfa að þiggja, annars renna þeir hjá, án þess að athygli festist við framrás þeirra. Sunnudagarnir eru merki kirkjunnar, liðir kirkjuársins, og boðskapur þeirra er þýð- ingarmikill. Sumum fer þó eins og fermingarbarni mínu einu, sem kvað upp úr með það, að því þætti vænt um kirkjuár- ið, og vildi helzt fá að láta það eitt ráða lífi sínu. Spurn- ingarsvip mínum svaraði barnið síðan á þann veg, að það eitt réði þessari ósk, að það sæi í sunnudögunum frí frá skyldu, svefn til hádegis og ljúfari stundir en á virkum dögum. Þetta var sett fram í nokkrum hálfkæringi, en lýsir þó undur vel afstöðu svo ótrú- lega margra, er hafa skrum- skælt boðorðið um hvíldardag- inn þannig, að í stað þess að fara eftir því að halda helgi hans, láta þeir boðorðið hljóma eitthvað á þessa leið: Minnstu þess að halda hvíld- ardaginn — í leti! En kertin, sem smám saman er kveikt á á aðventunni, minna á sérstöðu sunnudagsins, og þau hvetja líka til þess, að hann sé virtur vel. Þetta er góð áminning að- ventunnar, en hún þyrfti að spanna lengri feril, já, árið allt. „Frá ystu nesjum“ eftir Gils Gudmundsson BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, Hafnar firði, hefur gefið út annað bindi af „Frá ystu nesjum“, endurútgáfu á vestfirzkum sagnaþáttum Gils Guð- mundssonar. „Frá ystu nesjum" kom fyrst út árið 1942—1953 í sex heftum, sem fyrir löngu eru uppseld. Þessi nýja útgáfa verður í þrem bindum og hefur að gcyma allt það efni, sem í fyrri útgáfunni var, og allverulega viðbót að auki. Meðal efnis í þessu bindi er rit- Gils Guðmundsson gerð um höfuðbólið Vatnsfjörð við Isafjarðardjúp og höfðingja þá og presta, sem þar hafa gert garðinn frægan fyrr og síðar; ritgerð er eftir Kristján Jónsson frá Garðsstöðum um Sigurð „skurð“; sagt er frá Skúlamálunum ísfirzku á síðasta áratug 19. aldar; frá- sagnir eru af Alfi Magnússyni, skáldmæltum en drykkfelldum hæfileika- og ævintýramanni, sem BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, llafnar firði, hefur gefið út bókina „Þjóðsögur og þættir“, I. bindi í samantekt Einars Guðmundssonar kennara. „Einar Guðmundsson, skrásetjari þessa safns, er einn afkastamesti maður á síðari tímum við söfnun sagna og varðveizlu þjóðlegs fróð- leiks hvers konar," segir í frétt frá útgefanda. „Þjóðsögur og þættir" verða tvö væn bindi, heildarútgáfa áður prentaðra sagna Einars, sem út komu í átta misstórum heftum og hafa verið ófáanleg um langt skeið á almennum bókamarkaði. í þessu víðkunnur var vestra á sinni tíð, og birt er ýmislegt af kveðskap hans, og ritgerð eftir Jóhannes Bárðarson um þróunarsögu Bol- ungarvíkur. Loks skal nefna þjóð- sögur og sagnaþætti, sem skráð hefur Magnús Hj. Magnússon, „Skáldið á Þröm“, fyrirmynd Hall- dórs Laxness af Olafi Kárasyni Ljósvíkingi. — Ýmsar fleiri frá- sagnir er hér einnig að finna. Frá ystu nesjum II var sett og prentuð í Steinholti hf. og bundin í Bókfelli hf. Kápu gerði Auglýs- ingastofa Lárusar Blöndal. fyrra bindi heildarútgáfunnar er Is- lenzkar þjóðsögur, sem upphaflega komu út í fimm heftum, en í síðara bindinu verða sagnaheftin Gamban- teinar, Nýtt sagnakver og Dulheimar. Hér er að finna hið fjölbreyttasta úrval þjóðlegs fróðleiks í bundnu og óbundnu máli, sagna og kveðskapar, sem lifað hefur á vörum fólksins í landinu, sumt um langan tíma, ann- að skemur. Margt er hér sagna af Vestfjörðum og úr Árnes-, Rangár- valla- og Skaftafellssýslum, en minna annars staðar frá, enda þótt sögur og sagnir séu af nánast hverju landshorni." „Þjóðsögur og þættir“ í samantekt Einars Guðmundssonar GENGI VERÐBREFA 6. DES. 1981. VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: 1969 1. flokkur 1970 1. flokkur 1970 2. flokkur 1971 1. flokkur 1972 1. flokkur 1972 2. flokkur 1973 1. flokkur A 1973 2. flokkur 1974 1. flokkur 1975 1. flokkur 1975 2. fiokkur 1976 1. flokkur 1976 2. flokkur 1977 1. flokkur 1977 2. ftokkur 1978 1. flokkur 1978 2. flokkur 1979 1. flokkur 1979 2. flokkur 1980 1. flokkur 1980 2. flokkur 1981 1. flokkur Medalávöxtun spariskírteina tryggingu er 3,25—6%. Sölugengi pr. kr. 100.- 7.548,37 6.974,35 5.379,42 4.810,50 4.174,62 3.541,61 2.619,97 2.413,80 1.666,00 1.364,59 1.027,83 973,65 784,29 728.41 610,09 497,24 392.41 331,84 257,46 200,26 157,93 138,69 umfram verd- VERÐTRYGGÐ HAPPDRÆTTISLÁN RÍKISSJÓÐS Sölugengi pr. kr. 100.- 2.672,19 2,178,83 1.853,02 1.571,33 1.074,85 1.074,85 712.98 679,38 516,91 480.98 A — 1972 B — 1973 C — 1973 D — 1974 E — 1974 F — 1974 G — 1975 H — 1976 I — 1976 J — 1977 Ofanskráö gengi er m.v. 5% ávöxtun p.á. umfram verötryggingu auk vinn- ingsvonar. Happdrættisbréfin eru gef- in út á handhafa. HLUTABRÉF Eímskipafélag Islands Tollvöru- geymslan hf. Skeljungur hf. Fjárfestingarf. Islands hf. Kauptilboö óskast Kauptilboö óskast Sölutilboö óskast Sölutilboö óskast. VEÐSKULDABREF MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU: VEÐSKULDABREF ÓVERDTRYGGD: ugengi m.v. nafnvexti Ávöxtun Sölugengi m.v. nafnvexti 2V*% (HLV) umfram (HLV) 1 afb./ári 2 afb./ári verótr. 12% 14% 16% 18% 20% 40% 1 ár 95,79 96,85 7% 1 ár 68 69 70 72 73 86 2 ár 93,83 94,86 7% 2 ár 57 59 60 62 63 80 3 ár 91,95 92,96 7% 3 ár 49 51 53 54 56 76 4 ár 90,15 91,14 7% 4 ár 43 45 47 49 51 72 5 ár 88,43 89,40 7% 5 ár 38 40 42 44 46 69 6 ár 86,13 87.13 7V4% 7 ár 84,49 85,47 7V.% 8 ár 82,14 83,15 7%% 9 ár 10 ár 80,58 77,38 81,57 78,42 7Vi% 8% TÖKUM OFANSKRÁÐ VERÐ- 15 ár 70,48 71,42 8% BRÉF í UMBOÐSSÖLU FjÁRPElTincnRP^lAC ÍJUMDI MA VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R. Iðnaðarbankahúsinu. Sími 28566. Opiö alla virka daga frá kl. 9.30—16. Spástefna um þróun efnahags- mála árið 1982 Stjórnunarfélag íslands efnir til spástefnu um þróun efnahagsmála áriö 1982 og verður hún haldin í Krist- alssal Hótels Loftleiöa fimmtudaginn 10. desember 1981 og hefst kl. 14.00. Dagskrá: 14:00 Spástefnan sett — Tryggvi Pálsson, Stjórnunarfélagi íslands. 14:20 Spá um þróun efnahagsmála árið 1982 — Ólafur Davíðsson, forstjóri Þjóöhagsstofnunar. 14:40 Spó um þróun peningamála áriö 1982 — Bjarni Bragi Jónsson, hagfræöingur Seölabanka islands. 15:00 Álit á þróun etnahagsmála árið 1982 — Valur Valsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðn-' rekenda. 15:15 Álit á þróun efnahagsmála áriö 1982 — Björn Björnsson, viðskiptafræöingur, Alþýöusambandi islands. 15:30 Katfi Efnahagslegar forsendur viö gerö fjárhagsóætlunar 1982 fyrir: 16:00 Álafoss hl. — Pétur Eiríksson, forstjóri Álafoss hf. 16:10 Samband íslenskra samvinnufélaga — Eggert Ágúst Sverrisson, fulltrúi Sambandi íslenskra samvinnufélaga. 16:20 Ftugleiðir hf. — Valgeröur Bjarnadóttir, forstööumaöur hagdeildar Flug- leiöa hf. 16:30 Eimskipafélag íslands ht. — Þóröur Magnússon, framkvæmdastjóri fjármálasviös Eimskipafélags islands hf. 16:40 Reykjavíkurborg — Björn Friðfinnsson, framkvæmdastjóri fjármáladeildar Reykjavíkurborgar. 16:50 Almennar umræöur. Spástefnan er ætluö framkvæmdastjórum, fjármála- stjórum, starfsmönnum hagdeilda og öörum sem hafa meö höndum áætlanagerð í fyrirtækjum og stofnunum. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. STIÓRNUNARFÉLA6 ISIANDS SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.