Morgunblaðið - 06.12.1981, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 06.12.1981, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1981 38 Minning: Guðmundur Benedikts- son fv. borgargjaldkeri Fæddur 29. januar 1898. Dáinn 27. nóvpmber 1981. Dauðinn hefur að undanförnu hoxgvið stór skorð í vinahópinn. Hafa látist með stuttu millibili margir góðkunningjar mínir og hollvinir, menn, sem mikill sjón- arsviptir er að. Er sú ein huggun harmi mót, að minningarnar lifa um mikilhæfa menn og góða drengi. I hóp horfinna góðvina minna hefur nú bæst afbragðsmaðurinn Guðmundur Benediktsson lög- fræðingur og fyrrverandi borgar- gjaldkeri. Varð hann bráðkvaddur í Borgarspítalanum að kvöldi 27. nóv. sl., en þar hafði hann verið til athugunar og aðgerðar í fáa daga. Guðmundur Benediktsson var fæddur 29. janúar 1898 á Stóra- Hálsi í Grafningi. Voru foreldrar hans Benedikt bóndi þar, fæddur 1860, Eyvindsson, bónda að Litlu- Heiði í Mýrdal, Jónssonar og kona hans Margrét Gottskálksdóttir bónda að Sogni í Ölfusi Gissurar- sonar, fædd 1862. Vorið eftir að Guðmundur fæddist fluttu foreldrar hans bú- ferlum að Gljúfurárholti í Ölfusi. Olst Guðmundur þar upp hjá þeim. Vorið 1918 brugðu þau búi og fluttu til Hafnarfjarðar þar sem þau stunduðu almenna vinnu. Er Guðmundur lauk námi 1926 voru foreldrar hans orðin farin að heilsu. Tók hann þau þá til sín til Reykjavíkur og annaðist þau eftir það. Bjuggu þau hjá honum til dánardægurs. Andaðist faðir hans 1938 en móðir hans 1944. Foreldrar Guðmundar voru þess ekki umkomin að kosta hann til náms, en hann braust áfram til mennta af eigin rammleik og oft við kröpp kjör. Vann hann að öllu leyti sjálfur fyrir námskostnaði sínum af miklum dugnaði. Stund- aði hann á námsárunum margs- konar vinnu, svo sem farkennslu, sjósókn og verkamannavinnu. Guðmundur var í 3. bekk Flensborgarskóians í Hafnarfirði vcturinn 1917—1918 og lauk prófi um vorið. Sama vor tók hann próf upp í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík. Hann var næsta vetur í 4. bekk skólans og í 5. bekk til jóla vetur- inn á eftir. Las hann síðan utan- skóla og lauk stúdentsprófi vorið 1922. Hann hóf síðan nám í laga- deild Háskóla íslands og lauk þar lagaprófi 10. júní 1926 með I. ein- kunn. Ber það ljósastan vott um ágætar gáfur, einbeitni og dugnað Guðmundar, að honum tókst að Ijúka námsferli sínum þannig við þær erfiðu aðstæður sem hann átti við að búa. Haustið 1926 stofnaði Guð- mundur eigin málflutningsskrif- stofu í Reykjavík og rak hana til 1930. Jafnframt var hann ritstjóri vikublaðsins Island, blaðs frjáls- lyndra manna, frá stofnun þess í mars 1927 til 1930, en þá var út- gáfu blaðsins hætt. Hinn 1. júlí 1930 varð Guð- mundur bæjargjaldkeri í Reykja- vík (síðar borgargjaldkeri). Gegndi hann þessu ábyrgðarmikla starfi með mikilli prýði og sam- viskusemi þar til í mars 1968, en þá lét hann af störfum fyrir ald- urssakir. Þó Guðmundur ætti mörg áhuga- mál, eins og síðar verður að vikið, og fórnaði sérstaklega einu þeirra miklum tíma og kröftum, lét hann það aldrei koma niður á störfum sínum fyrir Reykjavíkurborg. Borgargjaldkerastarfið stundaði hann ávallt með sömu árvekninni og dugnaðinum við góðar vinsæld- ir samstarfsmanna sinna og við- skiptamanna borgarinnar. Hinn 12. júní 1942 steig Guð- mundur Benediktsson mesta heilla- spor sitt, en þann dag gekk hann að eiga Þórdísi Vigfúsdóttur, út- gerðarmanns í Holti í Vestmanna- eyjum og konu hans Guðleifar Guðmundsdóttur. Lifir hún mann sinn. Frú Þórdís er ágætlega gefin fróðleiks- og mannkostakona. Var Þórdís Guðmundi mikil heilladís og hjónaband þeirra mjög ástríkt. Þeim Þórdísi og Guðmundi varð þriggja barna auðið og eru þau þessi: 1. Vigfús, lyfsali á Norðfirði, fæddur 1942, kvæntur Þórunni Helgu Kristjánsdóttur, sýslu- manns Steingrímssonar. 2. Mar- grét, fædd 1944, gift Brynjólfi Kjartanssyni, hæstaréttarlög- manni. 3. Sjöfn, fædd 1946, gift Steini Sigurðssyni, sölustjóra og bifreiðahönnuði. Barnabörn Þórdísar og Guð- mundar eru 9. Hafa þau ávallt verið tíðir gestir á heimili þeirra og verið þeim til mikillar ánægju. Eins og fyrr segir átti Guð- mundur Benediktsson mörg áhugamál. Hann hafði yndi af ferðalögum og ferðaðist um mið- bik æfinnar mikið um héruð og óbyggðir landsins, bæði á hestum og bifreiðum. Hann var mikill bókamaður, átti gott bókasafn og las mjög mikið, einkum bækur um söguleg efni og stjórnmál. Var hann mjög vel að sér í sögu og þá sérstaklega stjórnmálasögu, bæði íslenskri og erlendri. Hann var einnig ættfróð- ur og kynnti sér mikið ættfræði eftir að hann lét af embættisstörf- um. Stjórnmál voru þó það áhuga- mál hans, sem hann um langt skeið fórnaði mestum tíma og kröftum. Hann var einstaklings- hygRjumaður, rammíslenskur í anda og eldheitur skilnaðarmaður meðan á sjálfstæðisbaráttunni stóð og lagði ríka áherslu á að lýð- veldið yrði stofnað við fyrstu möguleika. Guðmundur gekk í Frjálslynda flokkinn er hann var stofnaður 1926 og var eins og fyrr segir rit- stjóri vikublaðsins Islands, sem var málgagn flokksins. Skrifaði hann þá, sem og síðar, skeleggar greinar um fullan skilnað við Dani og stofnun lýðveldisins. Er Frjálslyndi flokkurinn og Ihaldsflokkurinn sameinuðust um stofnun Sjálfstæðisflokksins 1929, gekk Guðmundur í Sjálfstæðis- flokkinn. Fórnaði hann síðan um langt skeið miklum tíma og kröft- um í þágu þess flokks. Guðmundur varð þegar eftir stofnun Sjálfstæðisflokksins mjög virkur og áhrifamikill félagi í flokksfélögunum, fyrst í Heim- dalli en síðar í Verði. Hann var varaformaður Heim- dallar 1931—1932 og formaður 1932—1933, og í varastjórn Sam- bands ungra sjálfstæðismanna 1930—1932. Á vegum Heimdallar komu út eftir hann bækurnar: Bjargráð sósialismans og dómur reynslunnar (1934) og Sjálfstæð- ismál íslendinga (1937) og margt annað ritaði hann um stjórnmál. Guðmundur var formaður Varð- ar 1935—1940 og í stjórn félagsins 1940-1942 og 1945-1946. Hann var formaður Fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík í sjö ár. Vann hann um langt skeið mikið starf í fulltrúaráðinu og í uppstillinganefndum flokksins við kosningar. Árin 1938—1940 var Guðmund- ur meðútgefandi að tímariti sjálfstæðismanna „Þjóðin". Guðmundur var í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vestur- ísafjarðarsýslu við Alþingiskosn- ingarnar 1931 og 1933. Það var á allra vitorði að þetta kjördæmi var óvinnandi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Fór Guðmundur í þessi framboð af þjónustusemi við flokkinn en ekki í von um að vinna þingsæti. Það vissu menn að Guðmundur var ágætlega til þingmennsku fallinn, stefnufastur, heiðarlegur og einarður, manna fróðastur um þjóðfélags- og stjórnmál, ágætlega máli farinn og ritfær. Hinsvegar otaði hann sér aldrei fram né gerði kröfur fyrir sjálfan sig og var því miður aldrei knúinn til þingmennsku af flokksbræðrum sínum. Bjami heitinn Benediktsson, forsætisráðherra, er þekkti Guð- mund Benediktsson allra manna best, bæði sem yfirmaður hans á borgarstjóraárum sínum og af löngu samstarfi að flokksmálum, segir svo í grein í Morgunblaðinu 28. janúar 1968 í tilefni af sjötugs- afmæli Guðmundar: „Af þeim mörgu samviskusömu mönnum sem ég hef kynnst um æfina, ber Guðmundur Bene- diktsson, bæjargjaldkeri, af. Hann gegndi lengi hinum umsvifamestu störfum í starfi sjálfstæðismanna hér í Reykjavík, bæði sem formað- ur flokksfélaga og fulltrúaráðs. Á þessum árum réð hann miklu um frama annarra manna en aldrei otaði hann sér sjálfum fram. Og af eigin raun veit ég að Guðmundur var með öllu ófáaniegur til að taka að sér embætti, sem þó þóttu álit- leg og gáfu meiri tekjuvon en bæj- argjaldkerastarfinu fylgdi. Guð- mundur hefur sjálfur valið sér þann kost að vinna fyrir aðra af frábærri skyldurækni og kröfu- leysi. En hann er einnig flestum öðrum farsælli á falslausa vináttu allra er honum hafa kynnst." Hér mælti sá er gleggst vissi. Þannig var Guðmundur Bene- diktsson. Er ég kom í lagadeild Háskólans 1924 var Guðmundur þar fyrir. Vorum við saman í deildinni í tvö ár. Betur kynntumst við þó í hópi nokkurra ungra manna, sem um þetta leyti og næstu ár komum stundum saman til skrafs og skemmtunar, eins og ungum mönnum er títt. Eftir stofnun Sjálfstæðisflokksins unnum við Guðmundur og fleiri þessara manna saman í félagsskap ungra sjálfstæðismanna. Jókst þá enn kunningsskapur okkar. Guðmund- ur var góður og skemmtilegur fé- lagi, greindur og gamansamur og þannig gerður að er maður kynnt- ist honum vel, hlaut maður að verða vinur hans. Tókst fljótt með okkur góð vinátta, sem haldist hefur síðan og aldrei borið skugga á. Stuttu eftir að ég fluttist frá ísafirði til Reykjavíkur, eða í árs- byrjun 1944, gekkst Guðmundur fyrir stofnun spilaklúbbs. Tók hann mig í þann félagsskap ásamt tveim gömlum vinum okkar, þeim Birni Snæbjörnssyni stórkaup- manni og Pálma Jónssyni aðal- bókara. Hélst sá félagsskapur meðan við lifðum allir. Spilaklúbbur þessi var með þeim ágætum, að við þreyttum okkur ekki á flóknum spilareglum né alvöruþrunginni spilamennsku, en lögðum meira upp úr glaðværð og skemmtan. Sóttum við því hvíld og ánægju til spilakvöldanna en ekki erfiði. Við félagarnir fórum tvisvar saman til útlanda ásamt konum okkar og nokkrar ferðir um land- ið. Björn Snæbjörnsson andaðist 17. okt. sl. Erum við Pálmi nú ein- ir eftir og söknum horfinna félaga og vina. Okkur var ávallt ljóst að félagsskapurinn við þá var okkur mikils virði og finnum við það nú enn betur, er þeir eru horfnir. Með Guðmundi Benediktssyni er mætur maður genginn, en minningarnar lifa um góðan vin og góðan dreng. Eg og kona mín sendum konu hans, börnum og öðrum ástvinum, innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þeim velfarnaðar. Megi minningarnar um góðan dreng sefa sorgir þeirra. Torfi Hjartarson Guðmundur Benediktsson fyrrverandi borgargjaldkeri var fæddur 29. janúar 1898 að Stóra- Hálsi í Grafningi. — Hann ólst upp hjá foreldrum sínum að Gljúf- urárholti í Ölfusi, en þau voru Margrét Gottskálksdóttir og Benedikt Eyvindsson. Eina systur átti Guðmundur, Guðrúnu Theó- dóru, sem er rúmfastur sjúklingur hér á heimili mínu og Hreiðars Magnússonar. Guðmundur kvæntist árið 1942 Þórdísi Vigfúsdóttur, ættaðri úr Vestmannaeyjum. Var hún honum góð eiginkona og bjó honum og börnum þeirra fallegt heimili, að Grenimel 39 hér í bæ. Börnin eru: Vigfús, Margrét og Sjöfn. Eigi verður því með orðum lýst hve Guðmundur var mér mikils virði, ætíð boðinn og búinn að hjálpa ef eitthvað á bjátaði. Ætíð var gaman að koma á heimilið á Grenimelnum, því þar ríkti glað- værðin. Með þessum línum kveð ég elskulegan frænda minn og trega hann mjög. — Þórdísi, Vigfúsi og Sjöfn votta ég mína dypstu samúð. Stella María Reykdal. Kveðja frá Landsmálafélaginu Verði í dag er kvaddur hinstu kveðju einn þeirra er áttu hvað mestan þátt í því að gera Landsmálafélag- ið Vörð að einu sterkasta stjórn- málaaflinu á íslandi. Guðmundur Benediktsson kom til starfa í Verði eftir stofnun Sjálfstæðis- flokksins 1929. Fljótlega varð Guðmundur ein aðaldriffjöðurin í starfsemi félagsins og formaður þess varð hann 4. maí 1935 og gegndi formennsku til 23. maí 1940. Markmið Varðar er að sameina til starfa alla þá, er aðhyllast víð- sýna, þjóðlega umbótastefnu án tillits til stétttahagsmuna og á grundvelli séreignar og einstakl- ingsfrelsis. í stjórnartíð Guð- mundar voru miklir umbrotatím- ar í íslensku þjóðlífi. Guðmundur veitti félaginu trausta forystu, trúr grundvallarmarkmiðum þess. Landsmálafélagið Vörður var og er langfjölmennasta stjórnmála- félag landsins. í áranna rás hefur það einnig verið eitt virkasta og starfsamasta stjórnmálaaflið í landinu. Það voru kempur eins og Guðmundur er lögðu grunninn og leystu aflið úr læðingi. Nú þegar við, er eftir stöndum, kveðjum hinn aldna foringja, þá lifa með okkur þær vonir, að okkur takist að halda merkinu uppi með sömu reisn og forverarn- ir. Því kveðjum við með einkunnar- orðum Landsmálafélagsins Varð- ar — Gjör rétt — þol ei órétt —. + Útför eiginmanns míns-. + Útför eiginmanns míns og fööur. EINARS ÁSMUNDSSONAR, ÍSLEIFS VIGFÚSSONAR, forstjóra, Grettisgötu 56b, Háuhlið 20, Reykjavik, fer fram frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 8. desember kl. 13.30. fer fram í Fossvogskirkju þriöjudaginn 8. desember kl. 3 e.h. Fyrir hönd vandamanna. _ Jakobina H. Þóróardóttir. Sigriður Siguröardóttir, Siguröur ísleifsson. + Uttör fööur okkar, HALLDÓRS SIGUROSSONAR, beykis, Kirkjuhvoli, Fossvogi, er lést 30. nóvember, fer fram frá Fossvogskirkju miövikuclaginn 9. desember kl. 13.30. Kristín Halldórsdóttir, Auöur Halldórsdóttir, Halldór G. Halldórsson, Unnur A. Halldórsdóttir. Útför systur okkar, ÞÓRUNNAR SIGURGEIRSDÓTTUR, kaupkonu, Austurbrún 2, veröur gerð frá Fríkirkjunni, þriöjudaglnn 8. desember kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuö. Katrín B. Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Sigurgeirsson, Ingibjörg Sigurgeirsdóttir, Kristján Sigurgeirsson. Birting afmœlis- og minningar- greina. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðst- Ktt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendi- bréfsformi. Þess skal einnig get- ið, af marggefnu tilefni, að frum- ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.