Morgunblaðið - 06.12.1981, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1981
45
laumaðist þaðan í skjóli þoku 26.
nóvember og sigldi áleiðis til
Hawaii, og nálgaðist eyjarnar úr
norðri. Valin var leið þar sem
minnst hætta væri á að til flotans
sæist, þótt erfitt yrði fyrir skipin
að taka eldsneyti og búast mætti
við slæmu veðri.
Það dreifði athygli Bandaríkja-
manna og Breta að liðsflutn-
ingaskipalest lagði upp frá
Shanghai og talið var að hún
stefndi til Indókína, en raunar var
skipalestin á leið til Malayaskaga.
Þegar árásarflotinn fór frá Japan
var reynt að leyna siglingu hans
með kerfi falsaðra skeytasendinga
sem áttu að eyða grunsemdum
Bandaríkjamanna um að skipin
væru á siglingu. Að nokkrum tíma
liðnum uppgötvuðu Bandaríkja-
menn að skeyti voru hætt að ber-
ast til og frá flugvélamóðurskip-
um Japana. Þeir gerðu sér grein
fyrir því að flugvélamóðurskipin
höfðu fært sig, en drógu þá röngu
ályktun að þau hefðu verið send
suður á bóginn.
Að morgni 7. desember hafði
flotinn tekið sér stöðu á ráðgerð-
um stað um 230 mílur norður af
Pearl Harbor og var reiðubúinn til
árásar. Flotinn hafði komizt óséð-
ur á leiðarenda. Síðustu fyrirmæli
bárust frá Tokyo, hægskreið
fylgdarskip höfðu verið send heim
og flaggskipið dró að húni fánann
sem Togo aðmíráll hafði notað 36
árum áður þegar hann sigraði
rússneska flotann.
Fyrstu flugvélarnar hófu sig á
loft undir forystu Mistrou Fuch-
ida sjóliðsforingja, þótt enn væri
myrkur, kl. 6 f.h. að staðartíma: 40
Nakajima B5N2 („Kate")
sprengjuflugvélar til að varpa
tundurskeytum á skotmörk á
grunnsævi, 50 flugvélar af sömu
gerð til að varpa sprengjum úr
mikilli hæð, 50 Aichi D3A2 („Val“)
steypiflugvélar og 50 Zero-
orrustuflugvélar.
í næstu árásarbylgju, sem
Shimazaki sjóliðsforingi af „Zuik-
aku“ stjórnaði, voru 50 „Kate“-
flugvélar", 80 Val-vélar og 40
Zero-flugvélar. Arásarskilyrðin
gátu varla verið betri fyrir Japani,
vanræksla Bandaríkjamanna var
meiri en þeir áttu von á. Varla gat
heitið að Bandaríkjamönnum
bærist njósn af árásinni. I flotan-
um var aðeins fjórða hver vél-
byssa mönnuð (svokallaður „við-
búnaður 3“).
Kl. 7.30 f.h. sá bandarískur sjó-
liði til 20—25 flugvéla, en gerði sér
ekki grein fyrir að þær væru
óvinaflugvélar. Um ki. 7.55 sá yfir-
maður tundurlagningarflotans,
sem var um borð í tundurlagn-
ingarskipi í höfninni, flugvél
varpa sprengju, en hélt það vera
slys þar til hann sá japanska sól-
armerkið á flugvélinni. Hann
gerði aðalstöðvunum þegar við-
vart og sendi viðvörun til allra
skipa um loftárás. Nokkrum mín-
útum síðar frétti Kimmel aðmíráll
um árásina og Bellinger aðmíráll
sendi út þessa viðvörun: „Loftárás,
Pearl Harbor — þetta er engin æf-
ing.“
Fyrr um morguninn, kl. 6.45,
hafði sézt til dvergkafbáts og hon-
um var sökkt. Einu viðbrögðin
voru að senda annan tundurspilli
á vettvang. Dvergkafbátar Japana
áttu að gera usla í höfninni og
fimm komust inn í höfnina í þenn-
an sjálfsmorðsleiðangur. Þeim var
öllum eytt. Aðeins einn kafbáts-
mannanna komst af og var tekinn
til fanga. Árás kafbáta Japana fór
út um þúfur og síðan höfðu þeir
litla trú á þeim.
Dularfullum skeytasendingum
milli Japans og Japana nokkurs í
Honolulu hafði verið veitt eftir-
tekt, en Bandaríkjamenn uggðu
ekki að sér (eftir að árásin hófst
kom í ljós að í skeytum frá Hono-
lulu var sagt nákvæmlega hvaða
skip yrðu líklega í höfn 7. des., á
lítt dulbúnu og auðráðnu dulmáli).
Leyniþjónustan vissi um lykilorð-
ið sem yrði notað í japönskum út-
varpsdagskrám nokkrum klukku-
stundum áður en átök hæfust
(fyrir japanska útsendara erlend-
is, japönsk skip o.fl.). Lykilorðið
var notað og því var veitt eftir-
tekt, en vegna skriffinnsku tókst
ekki að koma viðvörun á framfæri.
Ratsjárvarnir voru frumstæðar
og vanmetnar og fáir kunnu þá
tækni. Þeir einu sem urðu ein-
hvers varir voru menn sem voru
að æfa sig á ratsjártæki, en yfir-
menn þeirra töldu að þeir hefðu
villzt á japönskum og bandarísk-
um sprengjuflugvélum og viðvör-
un þeirra var ekki sinnt. Japanir
gátu því óáreittir ráðizt til atlögu
og höfðu ótakmarkað svigrúm.
Fyrsta árásin hófst um kl. 7.55
f.h. og stóð í um hálftíma. Fjórar
árásir voru gerðar með flugvélum
búnum tundurskeytum og tvær
þær fyrstu beindust að aðalskot-
mörkunum, orrustuskipum sem
lágu í röð út af suðausturströnd
Ford-eyju. Þriðju árásina gerði
ein flugvél á beitiskipið „Helenu“
og fjórða árásin var gerð á skip
við norðanverða eyjuna.
Önnur meiriháttar árásin var
gerð um kl. 8.40 eftir stutt hlé.
Varpað var sprengjum úr mikilli
hæð í nokkrum ferðum yfir
skotmörkin. Steypuflugvélar og
orrustuflugvélar fylgdu á eftir
með hálftíma árás og kl. 9.45 hörf-
uðu flugvélarnar. Lokaárás var
ekki gerð eins og Fuchida og aðrir
flugsveitarforingjar lögðu til og
Nagumo aðmíráll skipaði flota
sínum að sigla á brott. Það voru
slæm mistök, því að slík árás hefði
Uyggt fullkominn árangur, en
Nagumo vildi ekki stofna flugvéla-
móðurskipum sínum í hættu. En
Japanir náðu fram mikilvægasta
markmiði sínu: þeir gerðu Kyrra-
hafsflotann óvirkan á aðeins hálf-
tíma og unnu mikið tjón á banda-
rískum flugvélum og mannvirkj-
um.
Ofboðsleg
e
iiyðileggmgin” var ofboðsleg.
„West Virginia“ varð fyrir sex eða
SJÁ NÆSTU SÍÐU
eynni Oahu, því að þótt leyniþjón-
ustufréttir gæfu til kynna að ein-
hvers konar árás væri yfirvofandi
var ekki vitað um stað eða tíma
árásarinnar. Flestir herforingjar
töidu að Japanir mundu fremur
ráðast á Filippseyjar en aðal-
stöðvar Kyrrahafsflotans og einu
varúðarráðstafanirnar, sem gripið
var til, voru gerðar að frumkvæði
Thomas C. Hart aðmíráls, yfir-
manns Asíuflotans í Manila. Her-
stjórnin á Hawaii var gersamlega
óviðbúin árás þar til um morgun-
inn 7. desember.
Japanir gátu aðeins háð stutt
stríð. Þeir höfðu uppi áætlanir um
að ná olíusvæðunum í Austur-
Indíum, Singapore og Filippseyj-
um og að eyða Kyrrahafsflota
Bandaríkjanna til að koma í veg
fyrir afskipti hans. Fyrst yrði gerð
árás á Pearl Harbor og því næst
sótt suður á bóginn í Austur-Asíu
eftir Hnu frá Wake-eyju um
Gilbert-eyjar, Nýju Guineu og
hollenzku Austur-Indíur til
Burma og landamæra Indlands.
Síðan átti að styrkja þessa línu og
loks hrinda árásum óvinarins unz
þreyta bæri hann ofurliði.
Undirbúningur árásarinnar á
Pearl Harbor hófst í ágúst. í árás-
arliðinu voru sex flugvélamóð-
urskip („Kaga“, „Akagi“, „Hiryu“,
„Soryu“, „Zuikaku" og „Shakaku")
og níu tundurspillar. Hjálparfloti
var skipaður tveimur orrustuskip-
um, tveimur beitiskipum, þremur
kafbátum, olíuflutningaskipum og
birgðaskipum. Framvarðarfloti
var skipaður um tuttugu kafbát-
um. Ellefu þeirra báru litlar
flugvélar og fimm voru búnir
dvergkafbátum, sem báru tvo
menn hver og voru knúnir rafhlöð-
um.
Alger leynd
Arásarflotinn, sem var undir yf-
irstjórn Chuichi Nagumo aðmír-
áls, sigldi frá Kure-flotastöðinni í
Japan 17. til 18. nóvember og fór
fyrst með algerri leynd til Tank-
an-flóa á Kúríleyjum. Flotinn
Japanskar flugvetar fljúga til árásar.
henda Bandaríkjastjorn svar Jap-
ana, greinilega um stjórnmálarof,
kl 1. Aðstoðarmaður forsetans
fékk dulmálsþýðingu á skeytinu 20
mínútum síðar. Marshall hers-
höfðingi kom seint heim úr venju-
legum útreiðartúr og las ekki
skeytið fyrr en um hálftólf. Hann
sá hvers kyns var og sendi strax
viðvörun til helztu yfirmanna
hersins, m.a. til herstjórnarinnar
á Hawaii, en orðsendingin sem var
send til Pearl Harbor barst ekki
þangað fyrr en eftir að árásin var
hafin.
í Washington voru Bandaríkja-
menn fljótari að ráða dulmálsorð-
sendingar Japana en japanska
sendiráðið, og seinagangur sendi-
ráðsins varð til þess að japönsku
fulltrúarnir komust ekki á fund
Hull utanríkisráðherra fyrr en
klukkutíma á eftir áætlun,
skömmu eftir 2 e.h. (Yamamoto
hafði mælt svo fyrir að árásin
skyldi ekki gerð fyrr en hálftíma
eftir að Japanir tilkynntu Banda-
ríkjamönnum að þeir litu svo á að
friðarviðræðum væri lokið). Þegar
Hull var á leið til fundar við jap-
önsku fulltrúana hringdi Roose-
velt forseti og sagði: „Það hefur
borizt frétt um að Japanir hafi
ráðizt á Pearl Harbor." Forsetinn
bætti því við að fréttin væri
óstaðfest.
Hull gekk síðan á fund sendi-
herrans og Kurusu, sem las grein-
argerðina sem Hull hafði þegar
séð, þótt Japanirnir vissu það
ekki. Hull hélt mikinn reiðilestur
yfir Japönunum og sagðist „aldrei
á fimmtíu ára ferli hafa séð annað
eins skjal, eins uppfullt af sví-
virðilegum lygum og svo stórfelld-
um rangtúlkunum að ég hefði ekki
getað ímyndað mér að nokkur rík-
isstjórn á þessari plánetu gæti lát-
ið nokkuð slíkt frá sér fara“. Hann
kvaddi þá síðan og fékk nokkrum
mínútum síðar staðfestingu um
árásina á Pearl Harbor.
Bandarísk yfirvöld höfðu lítið
gert til að efla varnir hernaðar-
mannvirkja í flotastöðinni í Pearl
Harbor eða nágrenni hennar á