Morgunblaðið - 06.06.1982, Síða 7

Morgunblaðið - 06.06.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ1982 7 Umsjónarmaður Gísii Jónsson______________149. þáttur Víkingur Guðmundsson tók upp í bréfi sínu barna- gæluna alkunnu: Bíum, bíum, bamba, börnin litlu þamba fram um fjaíla kamba að leita þar lamba. Margt er gott í lömbunum, þegar þau koma af fjöllunum, gollurinn og görnin, og vel stíga börnin. Ýmsir hafa þetta eilítið öðruvísi, en ég held, eins og Víkingur, að þamba hafi ver- ið breytt í ramba vegna þess að menn skildu ekki hvað sögnin að þamba merkir þarna. Sú sögn kemur ekki fyrir í fornum bókum okkar, svo að ég viti, en í seinni tíma máli merkir hún m.a. að kjaga áfram með erfið- ismunum, einkum í vondri færð, gegn stormi og hríð. Samsvarandi er nafnorðið þamb. í fjórðu braglínu fyrri vís- unnar hafa menn, eins og Víkingur innti upp, hneigst til að setja inn höfuðstaf í sögninni að fara („þau fara að leita lamba") í stað þess sem hér er prentað í upphafi. Hér hefur braglínan sjálf- stæða stuðlasetningu, en enginn höfuðstafur verður á milli lína. Hvað er svo gollur? Gollur- inn er poki sem lykur um hjartað, einnig nefndur goll- urshús (pericardium). í þenn- an poka létu menn koma kjöt og mör og gerðu sér af því gott í munni. Úr þjóðvísum og barna- gælum lifir hið besta á vör- um fólksins öld eftir öld, og enginn veit höfundinn. Oft verður þessi gamli, yndislegi kveðskapur frjór í síðari tíma bókmenntum með þeim hætti að skáld yrkja undir áhrifum frá honum með alls konar tilbrigðum, stundum lítt breytt frá hinum gamla texta. Ég tek hér fáein dæmi, og geta menn spreytt sig á að leita enduróms hinna gömlu stefja í yngri bókmenntum. Fagrar beyrði ég raddirnar við Niflungabeim. Ég get ekki sofið fyrir söngunum þeim. Fagurt syngur svanurinn um sumarlanga tíð. Þá mun lyst að leika sér, mín liljan fríð. Fagurt galaði fuglinn sá forðum tíð í lundi. Listamaðurinn lengi þar við undi. Stúlkurnar ganga sunnan með sjá með línsvuntur langar og léreftin blá. „Meitlaður og fægður" stíll Islendinga sagna verður ekki nógsamlega lofaður, hvernig sem þessar frægu sögur hafa orðið til í öndverðu. Mjög er það mikilvægt að lestur þeirra haldist við, og í því sambandi eru útgáfur með nútímastafsetningu afar nauðsynlegar. Ekki er þá heldur að gleyma þeim áhuga sem það vekur, ef vel tekst að gera kvikmyndir eft- ir sögunum, eins og til dæmis Útlagann eftir Gísla sögu Súrssonar. Fjöldi fólks kepptist við að lesa söguna eftir að hafa hrifist af mynd- inni og Gísla saga er til í þægilegri skólaútgáfu. Maður austur á landi hringdi í mig og þótti ámæl- isvert, þegar menn voru að auglýsa eitt og annað á kjör- dag. Honum fannst þolfallið á orðinu dagur athugavert og vildi, held ég, segja á kjör- degi. Auðvitað „má“ segja hið síðara, en fyrra orðalagið er ekki síður gott, gamalt og gilt. I íslensku er tíminn ýmist táknaður í þolfalli eða þágu- falli, hvort heldur er með forsetningum eða forsetning- arlaust. Til algerra undan- tekninga telst tímaeignarfall. „Komið annars dags“ = ann- an dag, segir í Völundar- kviðu, og í Hávamálum: Hins hindra dags (= daginn eftir) gengu hrímþursar ... Við segjum að eitthvað gerist á skírdag, á aðfanga- dag, á sumardaginn fyrsta, ekki á skírdegi, á aðfanga- degi eða sumardeginum fyrsta. Breytir engu um eðli málsins hvort orðið er með greini eða ekki. Komdu á fimmtudaginn, segjum við líka, ekki á fimmtudeginum. An forsetningar morar málið i fallegu tímaþolfalli: Daginn út og daginn inn. Hann var hér viku eða mán- uð. Forsetningarnar á eða í eru með öllu óþarfar og til lýta ef nokkuð er. Um hitt, þegar tíminn er táknaður í þágufalli, má svo taka dæmi eins og: Hann var hér vikum og mánuðum saman, eða hið fræga dæmi úr Völundar- kviðu: Nóttum fóru seggir, negldar vóru brynjur, skildir bliku þeira við inn skarða mána. Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins GENGI VERÐBRÉFA 6. JÚNÍ 1982 VEÐSKULDABREF MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓDS: JSSg 1970 1. flokkur 8.823,94 1970 2. flokkur 7.127,91 1971 1. flokkur 6.304,47 1972 1. flokkur 5.463,56 1972 2. flokkur 4.633,34 1973 1. flokkur A 3.376,04 1973 2. flokkur 3.109,72 1974 1. flokkur 2.146,78 1975 1. flokkur 1.761,32 1975 2. flokkur 1.326,71 1976 1. flokkur 1.256,68 1976 2. flokkur 1.007,68 1977 1. flokkur 934,74 1977 2. flokkur 780,61 1978 1. flokkur 633,77 1978 2. flokkur 498,73 1979 1. flokkur 420,25 1979 2. flokkur 324,87 1980 1. flokkur 245,06 1980 2. flokkur 192,60 1981 1. flokkur 165,48 1981 2. flokkur 122,89 Meóalávöxtun ofangreindra flokka um- fram verötryggingu er 3,7—5%. VEÐSKULDABREF ÓVERÐTRYGGO: Sölugengi m.v. nafnvexti (HLV) 12% 14% 16% 18% 20% 40% 1 ár 68 69 70 72 73 82 2 ár 57 59 60 62 63 77 3 ár 49 51 53 54 56 73 4 ár 43 45 47 49 51 71 5 ár 38 40 42 44 46 68 TÖK.UM OFANSKRÁÐ VERDBRÉF í UMBODSSÖLU Sölugengi nafn- Ávöxtun m.v. vextir umfram 2 afb./ári (HLV) verötr. 1 ár 96,49 2%5 7% 2 ár 94,28 2% 7% 3 ár 92,96 2'/2% 7% 4 ár 91,14 2’/2% 7% 5 ár 90,59 3% 7% 6 ár 88,50 3% 7Vl% 7 ár 87,01 3% 7'/<% 8 ár 84,85 3% 7%% 9 ár 83,43 3% 7%% 10 ár 80,40 3% 8% 15 ár 74,05 3% 8% VERÐTRYGGÐ HAPPDRÆTTISLAN RÍKISSJÓÐS pr. k” B — 1973 2,715,42 C — 1973 2.309,24 D — 1974 1.958,25 E — 1974 1.339,56 F — 1974 1.339,56 G — 1975 888.58 H — 1976 846,63 I — 1976 644,18 J — 1977 599,43 1. «. — 1981 119,55 Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lönaöarbankahúsinu Simi 28566 Per Kleppe, fram- kvæmdastjóri EFTA: Kemur í heimsókn til íslands jr • r r i jum llelsingfors, 4. júní. Frá Freysteini Jóhannssyni, fréttastjóra Mbl. PGR Kleppe framkvæmdastjóri friverslunarsamtaka Evrópu kem- ur í heimsókn til íslands 24. júní nk. Kleppe sagði í samtali við Morgunblaðið að hann myndi dvelja á íslandi dagana 25. og 26. júní og eiga þá viðræður við stjórnmálamenn og talsmenn ýmissa félagasamtaka, en ekki væri búið að ganga frá dagskrá heimsóknarinnar. Einnig kvaðst Kleppe myndu halda blaða- mannafund í Reykjavík og sagð- ist vona að tími gæfist til ferða- lags út fyrir borgina. Þetta er fyrsta heimsókn Kleppe til ís- lands eftip að hann varð fram- kvæmdastjóri EFTA í desember sl., hann hefur oft komið til ís- lands áður, en hann var um ára- bil viðskiptaráðherra Noregs. ALLTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM ★ ★ ★ ★ ★ LANDSLEIKUR ÍSLANDS OG MÖLTU Á SIKILEY Lýsing íþróttafréttaritara Mbl. á staðnum ÍÞRÓTTAMÓT HELGARINNAR ítarlegar og spennandi íþróttafréttir 73i lamalkaðulinn ■^■lattisqötu 12-18 Ford Mercury Capri 1979 Blár, V-6-vél, ekinn 34 þúsund, sjálfskiptur, aflstýri, snjó- og sumardekk. Verð 135 þús. (Ýmis skipti). Mazda 2000 626 1980 Blá sans, ekinn 20 þús., útvarp, segulb., snjó- og sumardekk. Verö 108 þús. Chevrolet Concour 1977 Silfurgrár, ekinn 85 þús., rafmagn í læsingum og rúöum, sjálfskiptur, aflstýri. Verð 120 þús. Drapplitur, ekinn 28 þús., útvarp, segulband, snjó- og sumardekk. Verö 108 þús. Mazda 929 1980 Blá sans, ekinn 28 þús., útvarp, segulband, snjó- og sumardekk. Verö 125 þús. Toyota Crown 1980 Rauður, ekinn 75 þús., aflstýri, út- varp, diesel. Verð 150 þús. Ath. skipti. Subaru 1800 4x4 1982 Brún sans, ekinn 15 þús., útvarp og segulband. Verð 145 þús. Galant G.L. 1978 Brúnn, ekinn 60 þús, útvarp. Verð 73 þús. Sapporo 2000 G.S.R. 1980 Silfurgrár, ekinn 21 þús., 5 gíra, út- varp og segulband. Verð 150 þús.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.