Morgunblaðið - 06.06.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
21
óþrjótandi frekar en aðrar auð-
lindir er ekki til í dæminu. Við
verðum að vera gætin við sjóinn.
Það hefur margt breyst frá því
maður var að alast upp í Breiða-
firðiniyn hvað varðar sjósókn og
afstöðu manna til hafsins. Breiða-
fjörður var þannig byggður í þá
daga að það má segja að allir þar
hafi verið útvegsbændur. Fóru í
verin á vertíðum. Jarðir voru ekki
það stórar að hægt væri að lifa á
þeim eingöngu og því var sjórinn
stundaður af bændum langt fram
á þessa öld. Um annað var ekki að
ræða í Breiðafirði. Þá var litið á
sjóinn sem gullkistu, sem hann
sannarlega var hvað bjargræði
snerti á verstu tímum. Það var
fiskurinn, fuglinn og selurinn.
Hann hefur alltaf verið gjöfull
.Breiðafjörður í gegnum tíðina."
— Góður sjómaður, Gísli.
Hvernig verður maður góður sjó-
maður?
„Eins og þú verður góður hand-
verksmaður, verður þú góður sjó-
maður með því að ná tökum á
starfinu. Aðra skýringu held ég að
sé ekki að finna. Menn ná misjöfn-
um tökum á misjöfnum störfum."
Talið barst fljótlega að nýaf-
stöðnum bæjar- og sveitarstjórn-
arkosningum, og Gísli hefur
ákveðnar hugmyndir um pólitik.
„Mér líst bara vel á borgarstjór-
ann nýja,“ sagði Gísli og bætti við:
„Annars ræður enginn einn í
stjórnmálunum. Þau eru orðin allt
of mikil atvinnumennska í staðinn
fyrir að vera hugsjón. Mér finnst
það. Sjáðu bara stjórnmálamenn-
ina okkar. Fjórða hvert ár kjósum
við 60 stykki á þing og komi upp
stórmál geta þeir ekki tekið um
það ákvarðanir fyrr en búið er að
halda fleiri, fleiri fundi í flokkun-
um þeirra þar sem flokkarnir taka
ákvörðunina sem tekin er, og þar
með ræður hver og einn þingmað-
ur næsta litlu heldur Pétur og Páll
úti í bæ. Þingmennirnir eiga að
vera meiri menn og eiga að geta
tekið sínar ákvarðanir sjálfir. Þeir
eiga ekki alltaf að þurfa að segja:
„Það hefur ekki verið haldinn
fundur í mínum flokki, svo ég get
ekkert sagt.“ Ég held það sé ekk-
ert vit í megninu af stjórnmála-
mönnum yfirleitt nú til dags.
Ólafur Thors tók þó rösklega á
málunum þegar hann var og hét.
Eins fannst mér Hermann Jónas-
son taka vel á málum á heims-
styrjaldarárunum. Ég tek nú
kannski ekki svo sterkt til orða að
segja að ekkert vit sé í stjórn-
málamönnunum okkar. Það eru
eflaust margir mætir menn í öll-
um flokkum. En þessir menn njóta
sín bara ekki því þeir mega ekki
taka neinar ákvarðanir upp á eig-
in spýtur, þá verður allt vitlaust.
Sjálfur hef ég enga sérstaka
stjórnmálaskoðun. Ég tek afstöðu
til mála eftir mínu eigin höfði. Ég
þykist sjá margt gott hjá öllum
flokkum og margt slæmt líka.
En Islendingar hafa það gott
þrátt fyrir allt. Er þó ekki mikið
öryggisleysi á bak við þessa vel-
megun, sem hér ríkir? Hefur ekki
velmegunin byggst upp á því að
við höfum getað aukið aflann
jafnt og þétt hingað til? Hvað ger-
ist þegar við getum ekki lengur
aukið aflann og hann minnkar?
Það þætti mér gaman að vita.
Það er fyrir neðan allar hellur
hvernig gengið er um sjóinn. Og
það er undarleg stjórnunin, þegar,
á sama tíma og verið er að banna
veiðar svo og svo marga daga á ári
og takmarka veiðarnar þá daga
sem má veiða, er verið að kaupa til
landsins splunkunýja togara.
Rannsóknaskip Hafrannsókna-
stofnunarinnar ættu helst aldrei
að liggja í höfn. Þau ættu að vera
úti allan ársins hring við rann-
sóknir. Það þyrfti að auka marg-
falt við þær rannsóknir, sem nú
eru í gangi, því þegar teknar eru
ákvarðanir um takmarkanir á
veiðum, þurfa að liggja fyrir pott-
þéttar sannanir fyrir því að
hverju stefni. Ég held að þau tvö
skip sem stofnunin hefur yfir að
ráða geti ekki sinnt öllum þeim
rannsóknum sem þarf svo hægt sé
að taka sanngjarnar ákvarðanir
um hvað veiða má af síld, loðnu
eða þorski eða hverju sem er. Það
finnst mér.
Það alhlálegasta við allt þetta
er þó að þegar við höfum fengið
margfalt stærri landhelgi en við
vorum með fyrir nokkrum árum,
þá er varðskipunum fækkað í stað-
inn fyrir að fjölga þeim.“
Það er sjómannastéttin, sem
þarf að vera miklu betur vakandi
og virkari og réttsýnni í þessum
málum en verið hefur. Þar eru
mennirnir sem ættu að vita um
hvað verið er að tala þegar rætt er
um stjórn á veiðum. Mér fyndist
það óeðlilegt ef ráðamenn ættu að
fara að stjórna sjómannastétt-
inni.“
Það er ekki fyrr en að samtalinu
loknu og ég er að kveðja Gísla, að
ég rek augun í -tvö stór hrein-
dýrshorn hangandi á vegg hvort á
móti öðru í stofunni. Ég spyr hann
hvort hann hafi afrekað að veiða
þau dýr, sem eitt sinn báru horn-
in.“
„Nei,“ sagði Gísli, „ég hef aldrei
verið veiðimaður á landdýr."
Og það finnst mér.
— ai.
því að friða beri eitt og annað, en
það þarf að gera það af ein-
hverju viti. Við höfum mikið ver-
ið að ræða við sjómenn allsstað-
ar að af landinu og þeir segja
okkur að þar sem er æti í sjónum
þar er hann svartur af hrefnu.
Sá kvóti, sem nú er á hrefnuveið-
unum, og ég tala aðeins um
hrefnuna í þessu sambandi, er
ákveðinn með hliðsjón af veiði-
magninu þegar tveir eða þrír
bátar stunduðu þessar veiðar.
Við teljum að það mætti stækka
kvótann, en öfgamenn ráða víst
ferðinni.
Hvalveiðiráðið er undarlegt
ráð. Inn í það ganga þjóðir, sem
engra hagsmuna hafa að gæta,
og eiga jafnvel ekki land að sjó.
Þær þjóðir, sem halda enn
hvalveiðum áfram, eyða stórfé í
rannsóknir á hvalnum til að
missa hann ekki.“
— Þú telur að hrefnunni sé
ekki hætta búin af ofveiði?
„Nei, ég efast um að nokkur
hætta sé á því að þessir örfáu
bátar, sem eru að eltast við
hrefnuna, eigi eftir að útrýma
henni. Ég tel reyndar enga
ástæðu til að fjölga hrefnuveiði-
bátunum meðan við vitum ekki
meira um ástand stofnsins. Það
þarf að auka rannsóknir á
hrefnustofninum hér við land en
um leið og kemur í ljós að henni
er ekki hætta búin, þá á að fjölga
bátunum."
Talið barst aftur að byssunni
frammi í stafni.
„Ég brenndi af 15 skotum í
fyrrasumar og geri það aldrei
aftur að skrifa niður þau skot,
sem feila. Það gerir mann tauga-
veiklaðan. Hitti maður ekki, þá
annað hvort þjóta hrefnurnar í
burtu eða taka það rólega á með-
an maður er að hlaða aftur. Það
er nú eins skrítið og það er. Ef
háhyrningar komast í hrefnu-
torfu, hverfur hún af svæðinu.
Eitt sinn sáum við háhyrninga
tvo taka hnísu á milli sín og slíta
hana í sundur. Það var ægilegt
blóðbað en svona er náttúran.
Og það er skrítið finnst mér að
það sé fullt af þjóðum.sem vilja
banna hvalveiðar vegna þess hve
miskunnarlausar og sársauka-
fullar þær eru sagðar vera, á
sama tíma og þær standa að því
að það er drepið fólk á miskunn-
arlausan hátt með pyntingum og
öðru slíku. Þjóðhöfðingjarnir
geta sent skeyti á hvalveiði-
ráðstefnur meðan þeir eru að
láta drepa manneskjur í sínu
eigin landi og út um heim jafn-
vel. Svo tala þeir um mannúðleg
viðhorf."
----ai.
AUCLYSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF
Hagbeit
Tekiö veröur á móti hestum í sumarbeit í Geldinga-
nesi, mánudaginn 7. júní kl. 21—23.
Hagbeitargjald greiöist á skrifstofu félagsins á mánu-
dag kl. 13—18.
Tekiö veröur í hagbeit á aöra staöi eftir umtali.
Hestamannafélagiö Fákur.
Hentunú
paink burstammi
jog láttLi Pliilips
leysa þig af!
Þaö eru ófáir klukkutímarnir, sem eytt er í uppvask
á meðalheimili í viku hverri.
Þar aö auki eru jafnt rauösokkur sem húslegustu heimilisfeöur
sammála um að uppvask sé með leiðinlegri
húsverkum til lengdar.
Uppþvottavélar eru svo sem engin nýjung, en fram til þessa
hafa þær af flestum verið taldar „lúxustæki”,
ef ekki hreinn og beinn óþarfi og bruðl.
Nýja Philips uppþvottavélin veldur þáttaskilum í þessu efni.
Hún er ekki bara tæknilega fullkomin, hljóðlát og vandvirk
heldur líka ódýr!
Verð frá 7.850.- krónum.
Hafðu samband, við erum sveigjanlegir í samningum. £
PHILIPS
fullkomin og ódýr
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655