Morgunblaðið - 06.06.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.06.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ1982 „Það er líka lifibrauð að lifa á grút og rgði“ Maíspjall við Brynjólf Einarsson bátasmið í Vestmannaeyjum „Þær eru nú ekki langar í mér garnirnar ef þú ætlar þér að rekja þær,“ sagði Brynjóifur bátasmiður Einarsson þegar við hittumst í Hraunbúðum í Vestmannaeyjum á seinna fallinu í maí, þegar svartfuglinn kveður hvað hæst á eggjahljóðinu. „Það er nú ekki lengdin á görnunum sem ég er á eftir, heldur gæðin,“ svaraði ég. „Ég held að það sé nú bara blágirni,“ svaraði Brynjólfur um hæl og við hófum hjal. __________________ - V ^ _ __ _ _____ Brynjólfur hefur vinnnaðstöóu f kjallara Hraunbúða og þar duddar hann með smíðatólin sín við eitt og annað listrent í smíðunum. Hann gerir við gamla hluti, rennir kertastjaka og krúsir svo eitthvað sé nefnt. Við, sem ólumst upp í samfélag- inu sem hýsti bæði okkur og Brynjólf. litum ósjálfrátt á hann eins og hluta af eilífðinni. Það fór aldrei mikið fyrir honum, en samt var hann alltaf að, vann sina vinnu og setti svip á mannlífið og visur hans komu að landi með full- fermi af gamansemi þótt oft væri róið á undiröldunni. Þannig svip hefur Brynki bátasmiður, rís úr hafi eins og úteyjarnar, alltaf á sínum stað, síkvikt lif þegar að er gáð. Hann segist aldrei hafa ort ljóð og sé allt annað en skáld, geri bara vísur, þótt vísur hans séu geirnegldar af speki skáldsins. En hann er ekki aðeins kunnur að því að smíða vísur, hann teiknaði og smíðaði stærsta tréskip sem smíð- að hefur verið á íslandi, Helga Helgason VE, á árunum 1943—1947 fyrir Helga Bene- diktsson í Vestmannaeyjum og ég vék talinu að bátasmiðinni. „Ég hef verið bátasmiður síðan 1932, en til Vestmannaeyja fluttist ég 1933 frá Eskifirði. Ég vann jöfnum höndum við húsasmíði og bátasmíði og reyndar hverju sem var, en alla mína bátasmíði stund- aði ég í Vestmannaeyjum, allt til 1960 er ég hætti því starfi vegna magasjúkdóms. Á sinni tíð var ég yfirsmiður fyrir Gunnar Marel á Helga gamla VE 333, en teiknaði síðar og smíðaði Helga Helgason sem var og er stærsta tréskip sem smíðað hefur verið á íslandi, 189 tonn að stærð. Hann var á stokk- unum frá 1943 til 1947, smíðaður að mestu í hjáverkum inni í Botni á sandinum þar. Ég vann hjá Helga Benediktssyni í nærri 17 ár, var hans maður eiginlega frá því að ég tók við verkstjórn á Helga gamla árið 1936 og þar til um ára- mótin 1952—1953 er ég fór frá honum. Helgi Helgason var íhlaupa- verkefni eins og oft hefur vantað milli vertíða til að grípa í, en oft hefur framkvæmdamönnum hald- ist illa á mannskap vegna verkefn- askorts. Jú, það þótti í mikið ráð- ist að byggja svo stórt skip inni í Botni og sumum leizt lítið á. Sum- ir sögðu að skipið væri of grunnt og þegar góðkunnur skipasmiður benti mér á það, svaraði ég því til að Jói hefði sagt að báturinn væri nógu djúpur. Jóhann Guðmundsson lærði hjá mér og hann var kunnur að reikni- snilld, svo menn spurðu hvort Jói hefði reiknað bátinn út? „Nei, hann datt ofan i hann,“ svaraði ég og síðan kom þessi vísa: Keynzlan er á við rt-ikning fleslan, reynzluna tel ég skóla beztan. Jói, sér niður í skipió skaut, skrnkkurinn við það meið.sli hlaut. Dýptina sagði næsta nóga, nú myndi heldur cngum tjóa að kvarta um grynnsli á grindinni, Guð er andvígur syndinni. Þetta síðasta kemur náttúru- lega eins og skrattinn úr sauðar- leggnum og minnir á Leirulækj- ar-Fúsa þegar hann var kominn í þrot og sagði: Hér á endann hnoða ég ró, haldið þig piltar við. Blessaður strikaður nú yfir þetta allt saman." - Hví þá? „Það er vízt of veraldlegt." — Var ekki örðugt að byggja svo stórt skip sem Helga Helgason í íhlaupum? „Það gekk á ýmsu en gekk. Helgi Benediktsson var alltaf hræddur við stiga og við vorum með marga stiga við grindina, en hann lét sig alltaf hafa það að koma og fylgj- ast með. Kkki er ráð að senda til siga svimagjarna á öröugum stað. Húsbóndinn er hræddur í stiga, hefur sýnt og viðurkennt það. Þegar efnið er búið, en formið ekki fyllt verður maður að segja eitthvað, rímið hefur stundum gert manni þetta og þá grípur maður jafnvel til almættisins. Yfirleitt var þetta vinna við við- gerðir og viðhald, því um langt árabil var ekki um neinar nýsmíð- ar að ræða. Allt í nýsmíði skipa var ríktollað, bæði efni og áhöld, en nýir útlendir bátar voru með tolleftirgjöf og þar með útlenda vinnan. Nei, það var ekki mikið um nýsmiði, hvorki í stóru né smáu. Ég smíðaði eitt par af snurpubátum." — Hvað segir þú um sálina í skipum, tréskip hafi meiri sál en stálskip? „Það getur vel verið að tréskipin hafi meiri sál, að menn hafi lagt meira af persónu sinni í tréskipin en stálskipin, en ég veit það ekki, þekki ekki þessi nýju skip. Annars veit ég yfirleitt ekki hvernig bátur á að vera, það vita allir nema bátasmiðir. Maður sér tvo báta standa uppi og menn virðast hafa forðast að smíða það í öðrum sem í hinum var lögð áherzla á. Báðir hljóta gott orð og hvernig stendur á því. Þannig er báturinn eins og mann- eskja. Bátasmiðir af gamla skólanum urðu að treysta á það að þeim væri ekki að mistakast. Gunnar Marel var einn af þessum gömlu góðu, það var ákaflega margt vel um Gunnar Marel." — Hvernig líkaði þér vistin hjá Helga Benediktssyni? „Ég var aldrei í vandræðum með pláss hefði ég viljað vinna hjá öðrum." — Hvað endaði hið reista fley, Helgi Helgason? „Hann endaði sitt æviskeið i bútum norður á Akureyri. Það átti að þurrafúa byggjaupp, en eigend- urnir hættu við það, sáu að það yrði eins dýrt og nýtt skip. Skipið var brytjað niður í eldinn eftir að hafa þjónað í 24 ár og fengið allra orð sem ágætisskip. Fyrsti skip- stjóri á Helga Helgasyni var Arn- þór Jóhannsson frá Selá, Addi á Dagný, en hann fórst með Helga á Faxaskeri um miðja öldina ásamt stýrimanni sínum, Gísla Jónas- syni. Þeir voru farþegar um borð í Helga, en tvíburasynir Helga Benediktssonar, Arnþór og Gísli, bera nöfn þeirra." — Það hefur sem sé verið þitt hlutskipti að smiða hús, skip og vísur? „Ég veit ekki hvort það var mitt hlutskipti að gera vísur, en ég gerði það. Jón Stefánsson gerði einu sinni vísu um mig í ótukt- arskap, þá beztu, sá skratti, sem ég hef fengið á mig. Við Bárður skipasmiður vorum þá að vinna í stýrishúsinu á Björgu VE 5. Bjössi á Barnum, (Björn Guðmundsson útvegs- bóndi) var þá að byggja íbúðar- húsið sitt og var að velta því fyrir sér að ef hver rúmeining í húsinu kostaði eins mikið og stýrishúsið á Björgu, þá yrði það mikið dýrt hús. Ég var þá nýbyrjaður að nota gleraugu og allt var þetta jafn níð- angurslegt hjá Jóni: Brillur meó bronsuðum spóngum ber hann á nefinu löngum, hæglætismadur i mörgu, en mest þó í húsinu á Björgu. Þetta þótti Birni gott, og mér líka. Gjarnan hefði ég viljað snupra náungann eins vel og þetta var gert." — Þú hefur gert urmul af vís- um. „l!m vísur mínar helzt er það að hafa í minni, þær áttu við á einum stað og einu sinni.“ — Þú leggur upp úr broddinum í vísum þínum. „Ekki er ég nú neinn sérstakur broddgöltur í vísnagerð, en ég sár- öfunda menn þegar þeir hafa sagt eitthvað skemmtilega ótuktarlegt, mér hefði betur dottið það í hug þó þetta sé vitleysa allt saman, tóm EYJÓLFUR GÍSLASON SEGIR FRÁ | Sögur af sjómönnum Það verða margar keilur föðurlausar Eyjólfur Ci.sla.son frá Bessastöðum í Vestmannaeyjum er 85 ára gamall. Hann stundaði sjómennsku í nær hálfa öld og er sérlega greinargóður maður varöandi allt er lýtur að sjósókn og sögu Vestmannaeyja. Eyjólfur gekk til liðs við okkur í ritun þessa sjómannablaös Morgunblaðsins. Góðkunningi minn, Árni John- sen, bað mig að segja sér einhverj- ar gamlar sjósögur, ef ég myndi eða kynni. En því miður er ég ansi hrædd- ur um, að það verði fátt og fátæk- legt, sem ég kann um það að skrifa og ekkert um sjálfan mig. Þó stundaði ég sjómennsku í 48 ár. Margir sjómenn eru þannig, að þeim finnst það ekki frásagnar- vert, þó illa líti út um stund og óvíst hvort fljóta myndi eða sökkva. Mér datt í hug að skrifa hér nokkur hreystileg orð ásamt fleiru og aðdraganda þeirra, sem sögð hafa verið á sjó á alvarlegum stundum, þegar ekkert sást annað framundan en opinn dauðinn því þau mega geymast. Kappsigling frá Eyjum til Seyðisfjarðar Um og stuttu fyrir 1890 fóru Sunnlendingar fyrst að sækja sumaratvinnu til Austfjarða og hélst það allt fram yfir 1930. A árunum 1910—20 var þar oft mik- ill mannfjöldi, konur og karlar. Flest af því fólki, sem til Aust- fjarða fór, var frá Akranesi, Reykjavík, öllum byggðum Suður- nesja, Grindavík, Eyrarbakka, Stokkseyri og Vestmannaeyjum. Um 20. maí 1916 komu þrjú milli- landagufuskip svo til samtímis á ytri höfnina í Vestmannaeyjum, voru þau öll að koma frá Reykja- vík, á leið austur á Seyðisfjörð og mátti heita að þau væru öll troð- full af fólki, sem þangað var að fara. Þessi skip voru Flóra, Sterl- ing og Vesta. Léttu þau akkerum á sama tíma og kappkeyrðu svo austur á Seyðisfjörð og hafði Vesta vinninginn á 22 klukkutím- um og var ég þar um borð ásamt fleiri Vestmanneyingum á leið til sumarstarfa að Brekku í Mjóa- firði. Vont að vera ekki búinn að borða bitann sinn Sumarið 1895 fór Magnús Guð- mundsson í Vesturhúsum í Vest- mannaeyjum fyrst austur á firði til sjóróðra og réðist hann þá formaður fyrir sexróinn bát með færeysku lagi til Vilhjálms Hjálmarssonar, óðalsbónda á Brekku í Mjóafirði. Magnús var svo formaður hjá Vilhjálmi tvö sumur. Þetta fyrsta sumar Magnúsar í Mjóafirði gekk honum mjög vel að fiska og í lokin var hann hæstur til hlutar af þeim þremur bátum, sem Vilhjálmur gerði þá út. En Magnús var þá orðinn þjálfaður og góður sjómaður, búinn að vera 5 vetrarvertíðir formaður með sex- æring í Eyjum. Byrjaði 1890 18 ára gamall. Fékk hann fljótlega orð á sig fyrir formannshæfileika, en það var að vera fiskisæll, veð- urglöggur og stýra skipi vel í úfn- um sjó. Þessi tvö sumur, sem Magnús var í Mjóafirði, reru hjá honum tveir síðar vel kunnir Eyjamenn, þeir Vigfús Jónsson í Túni, síðar í Holti, og þá orðinn mágur Magnúsar, og Jón Jónsson í Jón Jónsson í Brautarholti Dölum, síðar í Brautarholti, og síðast spítalaráðsmaður, en fjórir voru þeir á bátnum. Annað sumarið sem þeir voru saman, 1896, fengu þeir eina slæma sjóferð, sem varð þeim ævilangt ógleymanleg. Voru þeir þá á línu með hlaðinn bátinn af fiski og fengu á sig brotsjó svo bátinn yfirfyllti af sjó og fiskur og fleira flaut út úr honum. Um leið og þetta skeði þreif Jón austurtrog

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.