Morgunblaðið - 06.06.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ1982
19
Argentínskar herþotur.
Harrier-þotur flotans geta því
nú gegnt því meginhlutverki sínu
að elta uppi argentínskar flugvélar,
en Harrier-þotur flughersins ein-
beita sér að skotmörkum á landi.
Talið er að Harrier-þotur flughers-
ins noti nú flugvöllinn í Goose
Green og fleiri flugbrautir, sem
hafa verið teknar af Argentínu-
mönnum, og það tekur þær aðeins
örfáar mínútur að komast á
Stanley-vígstöðvarnar.
Brezka herliðið er einnig búið
hreyfanlegum, ratsjárstýrðum
Rapier-eldflaugum, sem þegar hafa
grandað nokkrum argentínskum
Mirage- þotum og A-4 Skyhawk-
flugvélum. Brezku hermennirnir
eru einnig vopnaðir Blowpipe-
eldflaugum, sem þeir bera á öxlinni
þegar þeir skjóta. Þær hafa einnig
grandað argentinskum flugvélum í
hinum miklu loftárásum á San
Carlos.
Því hefur verið veitt eftirtekt að
Argentínumenn senda ekki lengur
fram bylgjur Skyhawk- flugvéla,
sem njóta verndar Mirage- flug-
véla. I staðinn senda þeir litlar
flugsveitir, þrjár eða fjórar flug-
vélar, sem fljúga í lítilli hæð og
þræða strandlengjuna til að forð-
ast ratsjár Breta.
Þótt argentínsku flugmennirnir
vilji lítið gera úr hæfni Harrier-
flugvélanna og eldflauga Breta
hafa Harrier-arnir reynzt hljóð-
fráum Mirage-þotum Argentínum-
anna skeinuhættir andstæðingar.
Bretar segjast hafa skotið niður 20
argentínskar flugvélar í loftbar-
dögum, án þess að missa eina ein-
ustu vél sjálfir. Bretar segjast hafa
misst átta Harrier-þotur, þar af
þrjár vegna slæmra veðurskilyrða
og óhappa. Argentínumenn segjast
hafa skotið niður 25.
Hreyfanlegum ratsjárskermum
mun hafa verið komið fyrir í
Stanley-hæðum til þess að vara við
árásarflugvélum sem nálgast.
Eldflaugafreigátur milli Falk-
landseyja og meginlandsins mynda
ratsj árviðvörunarkerfi.
Harrier- þotur sjóhersins eru í
stöðugum eftirlitsferðum yfir
freigátunum og Nimrod- ratsjár-
flugvélar halda uppi eftirlitsflugi
allan sólarhringinn frá Ascension-
eyju. Þær eru fjögurra hreyfla og
hafa verið vopnaðar tveimur Side
winder-eldflaugum, sem Banda-
ríkjamenn hafa útvegað, til að
mæta árásum Mirage-flugvéla úr
mikilli hæð.
/ a (F/ -
Olle Adolphson
í Norræna húsinu
SÆNSKI vísnasöngvarinn Olle
Adolphson heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu i kvöld, sunnudag, en
tónleikarnir eru liður i Listahátið.
Olle Adolphson hefur mikið gert af
því að flytja vísur Everts Taube, en
ásamt syni hans, Sven-Bertil Taube,
átti hann mikinn þátt i að endur-
vekja áhuga á vísnasöng.
Aðrir tónleikar Olle Adolphson
verða í Norræna húsinu á þriðju-
daginn, en í bæði skiptin hefjast
tónleikarnir kl. 20.30.
Starfsfólk Félagsstofnunar stúdenta lætur fara vel um sig í endurnýjuðum
matsal Félagsstofnunar. Frá vinstri: Stefanía Harðardóttir, fulltrúi, Sigrún
Magnúsdóttir, hótelstjóri, Hildur Pálsdóttir, ritari, og Sigurður Skagfjörð
Sigurðsson, framkvæmdastjóri. Mbl. Kmilia Bjore.
Klúbbur Listahá-
tíðar opnar að nýju
KLÚBBUR Listahátíðar var opnaður í gær. Klúbburinn er rekinn af Félags-
stofnun stúdenta í samvinnu við Listahátið i Reykjavík og munu þar koma
fram ýmsir landskunnir skemmtikraftar.
Klúbburinn verður opinn frá og
með 5. þessa mánaðar til hins 20.
og verður hann opinn frá klukkan
18 til 01 á hverjum degi þetta
tímabil. Á boðstólum verður mat-
ur og meðlæti frá klukkan 18 til 22
á kvöldin, en léttar veitingar
verða seldar meðan opið er.
Á laugardagskvöldið mun Tríó
Kristjáns Magnússonar leika létt-
an jazz, á sunnudagskvöldið mun
Strengjasveit Tónlistarskólans
skemmta gestum og á mánudag
leika þeir Jónas Þórir og Graham
Smith. Að öðru leyti verður
dagskráin kynnt í daglegum
dagskrárdálki Listahátíðar í
dagblöðunum.
Klúbbur Listahátíðar verður til
húsa í matsal Félagsstofnunar
stúdenta við Hringbraut, sem nú
hefur verið endurbættur, parket
hefur verið lagt á gólf og húsgögn
endurnýjuð.
Fréttatilkynning.
Enginn efast
um gæðin frá
Þvotturinn þinn á aðeins skilið það besta
ÞVOTTAVÉL — tekur allt að 9 kg. og tekur inn á sig
heitt og kalt vatn.
Stillanlegt vatnsmagn í samræmi við þvottinn hverju sinni.
ÞURRKARI — tekur allt að 7 kg. af þurrum þvotti.
Meðal þurrktími 60-70 mín. 3 mismunandi hitastillingar.
_______RAFT/EKJAbEILD
BlRCpiR .. [h]HEKIA HF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Listahátíðar að með ýktri karl- að dylja óöryggi sitt. Flugmenn-
rembu sýni listamennirnir irnir verða aðeins sýndir í þetta
hvernig venjulegt fólk leitist við eina sinn.