Morgunblaðið - 06.06.1982, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.06.1982, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982 Skúlína Giiðmundsdóttir. Skúlína er hér með föður sínum, Guðmundi Jóhannessyni, en Lundi SH 1 er í eigu hans og er það 52 tonna trébátur. ÍUMM) LUNDI Skúlína heldur hér á teikningu af Lunda. Skelin leiðinleg en lúðuveiðar spennandi Rabbað við Skúlínu Guðmundsdóttur formann á Grundarfirði — Ég ætla mér að eiga heima hér í Grundarfirði og naumast er aðra vinnu að hafa en frystihúsið eða sjó- inn og þar sem ég kunni ekki við mig í frystihúsinu valdi ég sjóinn, sagði Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir í Grundar- firði, formaður á Lunda SH 1, sem rær þaðan. Skúlína Guðmundsdóttir hefur lokið prófi frá Stýrimannaskólan- um og hefur síðan í fyrra stundað sjóinn á bát föður síns, Guðmund- ar Jóhannessonar, en hann er einnig á bátnum og hefur verið með hann sjálfur síðustu dagana þar sem Skúlína var frá vegna veikinda. En hvers vegna velur hún fiskibátinn?: Nærtækast að fara á fiskibát — Hann var nærtækastur og ég var áður búin að stunda sjóinn með pabba og tvo túra fór ég sem háseti á fragtara og gæti vel hugs- að mér að sækja um vist sem stýrimaður á farskipi. En þau eru flest gerð út frá Reykjavík og þá yrði ég að hafa aðsetur þar og ég hef engan áhuga á að búa í Reykjavík. Ég hef hugsað mér að stunda þessar veiðar fyrst um sinn og kannski kemur annað til greina síðar. Hins vegar er ég ráð- in í því að fara ekki á varðskip. Ég lít á varðskipin sem verndara okkar og þeir eru engir óvinir, en það er samt ekki fyrir mig að vinna á þeim. A hvers konar veiöum hafið þið verið hér? — Við höfum að undanförnu verið á netum. Um tíma vorum við í skelfiski, en það er leiðinlegur veiðiskapur og ég vil sem minnst um hann segja. Stundum höfum við líka verið á rækju. Líka förum við stundum í lúðu og það eru skemmtilegar veiðar. Það er spennandi að sjá hvað kemur, hvort þær verða stórar og margar. En þorskurinn, hann virðist ____________________EINAR GÍSLASON SEGIR FRÁ Sögur af sjómönnum Berdreymi Árið 1959 verður mér lengi minnisstætt frá sjómannsárum mínum. Vetrarvertíð var góð og þá afkoma eftir því hjá sjómönn- um í Vestmannaeyjum og víðar hér sunnanlands. Þegar að lokinni vetrarvertíð var haldið til humarveiða í botnvörpu. Humarveiðar voru nokkuð árvissar með afkomu. Þó skapaði tíðarfar mjög aflamögu- leika, eins og það reyndar gerir alltaf, a.m.k. fyrir minni skip. Leturhumar mátti þá veiða frá 60 faðma dýpi og minni bátar fóru ekki mikið dýpra en 120 faðma. Bátar úr Eyjum stunduðu veiðiskap austan og sunnan Eyja og svo þaðan til vesturs, eftir að- stæðum. Stærri skip stunduðu þessar veiðar allt austan úr Bugtunum, Breiðamerkur- og Skeiðarárdýpi og vestur um Eld- ey. Allstaðar þar sem leirbotn er, heldur sig leturhumar. Eitt sinn vorum við vestur við Eldey og fengum þá upp línustamp úr járni. Hann var hálffullur af leir. Öllu drasli, svo sem grjóti og gömium vírum var kastað á hraun, svo ekki skemmdust veiðisvæðin til hættu fyrir veiðarfæri. Þetta er algild regla hjá sjómönnum. Eftir að við höfðum komið afl- anum í lest og ís, tók ég „smúl- inn“ og sprautaði öflugri bun- unni á línustampinn og ætlaði að hreinsa leirinn úr honum. Þá verð ég var við hreyfingu í stampinum. Hætti þá að sprauta og helli úr balanum. Sé ég þá hvers kyns er. Ekki færri en 9 holur voru grafnar niður í leir- inn og í hverri holu voru stórir humrar. Sást þar augljóslega hvernig heimkynnum þessara dýra var háttað. Við veiðiskap á humrinum virtist hann koma úr þessum leirholum sínum, helst um lág- nættið og fallaskifti. Keppst var við að hafa vörpuna úti, þegar svo stóð á. Fyrir og um miðjan júní gerði bræluþræsing, sem stóð nærri viku. Blés þá af austri og hindr- uðust því veiðar á austursvæðinu og dýpinu. Ungur maður úr Reykjavík, var skipsfélagi um borð. Hafði hann verið á nýsköpunartogur- um og hlotið þar í mörgu góðan á sjó skóla. Var auðséð á vinnubrögð- um hans og ýmsum töktum, að svo hafði verið. Við störf okkar við hlífingar og tilfæringar, var notaður „gils“ og bóma, eða rá. Togarastæll skipsfélagans kom fram í því, að hann vildi losna við bómuna. Hafa heldur blökk í seilingu mastursins og „gilsinn" í gegnum hana. Fékk hann leyfi skipstjórans, sem var Óskar bróðir minn, til að breyta þessu eftir eigin höfði og var honum heimil úttekt í reikning bátsins, á efni. Vinnuna lagði hann og háseti til fría. Brælunni létti og að áliðnu há- degi var farið út. Kastað var sunnan við Bessa og togað út í átt að Nýja hrauni. Veðrið fór batnandi og útlitið gott, eftir þessa friðun. Allir lögðu sig á fyrsta holinu, nema skipstjóri, er stjórnaði toginu. 4. júní þetta vor, varð það hörmulega slys í annarri af aust- ureyjum Vestmannaeyja, Bjarn- arey, að ungur maður, Bjarni Björnsson frá Bólstaðarhlíð, hrapaðí við eggjatöku. Jarðnesk- ar ieifar hans fundust ekki og fékk hann legstað í votri gröf. Þetta var hörmulegt slys. Bjarni heitinn var hinn mesti efnismað- ur, eins og hann átti ættir til. Því er hans nú getið, vegna draums sem tengist þessari frá- sögn. Eftir um 2 og ‘/í tíma tog, er ræst út, slegið úr blökkinni og farið að hífa. Við hífinguna er farið að tala um líkur á afla. Kveður þá fyrrgreindur skipsfé- lagi okkar frá draumförum, sem hann hafði orðið fyrir, þegar togað var. Fannst honum Bjarni heitinn vitja sín og endilega vilja vera með sér. Drauma mað- ur þýddi draum sinn svo, að sennilega fengjum við að sjá jarðneskar leifar Bjarna heitins. Hann hafði verið með um það áður að látinn maður kom í vörpu viðkomandi skips. Þessu tali var eytt, en berdreymi kom nú glögglega í ljós. Eftir hvíldir á miðunum, var oft mikið í, af kola og tinda- skötu, sem við þá hirtum í fiski- mjöl, nema það stærsta úr flat- fiskinum. Hífingin verður nú mjög þung og benti allt til þess að mikið væri í. Poki vörpunnar var raunar alltof stór fyrir flat- fisR, sem var miklu þyngri í sér, heldur en humarinn. Lína frá forvæng lá niður í skiptilínu pokans og var nú létt á trollinu, með því að hífa í hana. Loks kom gjörðin og var þá gilsinum þegar Kinar J. Gíslason slegið á hana. Nú skyldu nýju græjurnar verða reyndar. Þegar pokinn er að því kominn að kom- ast inn fyrir borðstokkinn og slást í bakreypið, kemur svo lítil alda á bakborðshlið bátsins, með þeim afleiðingum að pokinn slæst frá. Þá skeður það. Mikill hvellur heyrist, eins og skot. Vír- inn í sælingunni slitnar. Pokinn rússar út. Blökkinn og gilsvírinn skellur á dekkið. Hefði pokamað- ur staðið nokkrum tommum inn- ar á dekkinu, þá hefði líf hans verið allt. Dekkið sem var úr sterkri furu, markaðist með meira en tommu djúpu fari, sem fylgdi bátnum, meðan hann var til. Þá má geta til hvernig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.