Morgunblaðið - 06.06.1982, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 06.06.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982 43 Halldór Hermannsson af dekkinu, lóðarbala og ýmislegt fleira. Þarna á Hornvíkinni urðum við svo að bíða fram á laugar- dagsmorgun fyrir páska. Það var alveg hörku garður allan tímann. Nú var loksins farið að hægja en haugasjór. Við sáum að Súðin gamla fór fyrir víkina á austur- leið og fréttum síðar að hún hefði þá um morguninn fengið á sig brotsjó í Sraumnesröst og mikið hefði skemmst ofandekks sem lauslegt var, vissi ég þá að hún myndi hafa lent á öfugu falli, straum á móti báru í rústinu. Um hádegisbilið lögðum við af stað austur fyrir Horn, en Kveldúlfur beið betra veðurs. Gekk allt vel hjá okkur þótt mikill sjór væri enn, þar til að við vorum staddir út af Rananum austantil við mitt Hornbjarg, þá stoppar vélin. Þá kemur það í ljós að boltinn sem áður er um getið, hafði aldrei þakka gjöfum ýmissa félaga- samtaka svo sem sjómanna og út- gerðarmanna sem hafa nánast tækjað skólann upp á síðastliðn- um árum.“ „Nú hefur talsvert verið rætt um að fella Stýrimannaskólann inn í Fjölbrautaskólann, hvernig líst ykkurá það?“ lent á réttum stað í raufina, heldur skrúfast á sléttan öxulinn og má furðulegt heita að hann skildi ekki hreyfast fyrst. Ef þetta hefði bilað út af Hælavík- urbjarginu fyrr í ferðinni, þá væri ég ekki til frásagnar hér. Ymsir urðu síðar undrandi að við skyldum slampast af í þessu veðri en Gissur hvíti var listasjó- skip af ekki stærri bát að vera. Eg hafði ekkert samband heim þegar við lögðum af stað í ferð- ina. Konan vissi ekkert að við værum á leiðinni í þessu veðri. Og boltinn var kominn á rétt- an stað í raufina og sett á fulla ferð. Guðmundi verður litið upp í Hornbjargið þar sem heitir Úrð- arnef. Upp í huga hans kemur atvik sem skeði fyrir hálfum öðr- um áratug. Þeir höfðu sigið 8 ungir menn í landvað niður Harðveðursgjá og niður á Urð- arnef. Þetta var í enduðum júní. Mikil rigning hafði staðið í marga daga og nýlega hafði stytt upp. Þeir vildu samt freista þess að snara fugl, enda þótt grótflug væri mikið í bjarginu eftir slíka úrkomu. Nokkuð vel gekk að snara fyrst í stað, en þar kom að Guðmundur og Jónas bróðir hans gengu aust- ur yfir skriðu í bjarginu, sem var 60—70 metra breið. Vitað var að þar er mikil hætta á ofanhruni. Jónas var góðan spöl á undan. Skyndilega heyrast miklar drun- ur í fjallinu fyrir ofan þá og fugl- inn flýgur ákaft upp. Jónas náði að komast í var við klettanef sem var austan til við skriðuna. En Guðmundur sem var staddur á miðri skriðunni sá að hann átti enga möguleika á undankomu. Honum verður litið niður fyrir sig. Örskammt neðar er smá- „Við stjórnendur skólans höf- um verið því mótfallnir alla tíð, og sömu sögu er að segja um flesta velunnara okkar. Nemend- ur í Stýrimannaskólanum eru eldri en nemendur í Fjölbrauta- skólanum og það er heldur ekki verið að kenna það sama, við kennum að vísu t.d. bæði ensku og stærðfræði í báðum skólunum en þessar greinar eru meir bundnar við siglingafræði hjá okkur. Það er líka skilyrði fyrir inngöngu í Stýrimannaskólann að nemendur séu búnir að vera a.m.k. tvö ár á sjónum, ég held að það sé ómögulegt að kenna þetta nemendum sem aldrei hafa á sjó komið. Sjávarútvegur er mikilvægasti atvinnuvegur landsmanna í dag, og að öðrum starfskröftum ólöst- uðum þá er góður skipstjóri mik- ilvægasti hlekkurinn í farsælu starfi. Það hlýtur því að vera nauðsynlegt að starfrækja góða stýrimannaskóla á íslandi, og ég vona að skólinn komi til með að halda sjálfstæði sínu áfram því þannig held ég að við fáum hæf- asta fólkið til starfa." „Eitthvað að lokum, Friðrik?“ „Ég vil bara að endingu óska öllum sjómönnum til hamingju með daginn." Fri vinstri: Arnar Valsteinaaon 12 ira, Stefin Akaaon 11 ira og Olgeir Þór Marinósson 12 ira. Ijíajad Mbl. Ri|ut akIkod. klöpp í skriðunni, þó svo lítil að hún rétt svo jafnaði við líkama hans þegar hann fleygði sér niður fyrir hana. Upphófst nú slikur darraðardans yfir höfði hans að erfitt er að lýsa, þegar mörg hundruð tonn af grjóti dundu yfir honum og á litlu klöppinni sem naumast skýldi honum. Hjálm hafði hann á höfði og lenti einn hnullungur á hon- um og hrakti hann spöl niður undir hengiflug í bjarginu. í hálfgerðu roti tókst honum að skríða undir klöppina aftur. Þegar ósköpin voru gengin yfir og Jónas horfði á bróður sinn rísa upp úr skriðunni þá leyndi undrunarsvipurinn sér ekki á andliti hans yfir að sjá Guðmund á lífi. Skömmu síðar hljóp önnur skriða úr bjarginu á sama stað. Þegar þeir bræður fóru eftir það að svipast um eftir klöppinni sem skýldi Guðmundi þá var hún með öllu horfin. Guðmundi verður litið ofar og vestar í bjargið, einhvers staðar þarna er syllan mjóa þar sem i.„~r fr>rðum dag vó salt á öðrum fæti, eftir að hafa hrasað. Það augnablik var lengra en önnur. En fjaran sem lá mörg hundruð metrum neðar missti af bráð sinni. Sörli kemur upp í lúkarsgatið, hann sér að bros leikur um varir Guðmundar, þar sem hann horfir upp í bjargið. Hvað sér hann þar. Guðmundur lítur fram og set- ur stefnuna innan til við Geir- ólfsgnúp um leið og hann kallar til Sörla: „Þeim er kannske farið að leiðast eftir okkur heima." Síðan kemur hneggjandi hlátur sem blandast saman við skellina í skandia-rokknum. ísafjörður: Aldrei fengið svona veður svona lengi Spjallað í brúnni á Víkingi III Það varð handagangur í öskj- unni þegar Víkingur III sigldi í höfn á ísafirði síðasta miðvikudag. Hann var að koma úr vikulöngum róðri, en það var erfitt að finna pláss fyrir hann við bryggjuna. Hann sigldi upp að hrefnuveiði- bátnum Pólstjörnunni og skipstjór- Sigurhjörtur Jónsson skipstjón i brúnni á Víkingi III frá Isafirði. Hann var að koma úr vikutúr en gat bara veitt í tvo daga vegna veðurs. inn spurði Konráð skipstjóra á hrefnuveiðibátnum hvort hann gæti ekki fært sig eitthvað til. Konráð þótti það slæmur kostur þar sem hann var að sjóða eitthvað í byssuna á stefninu. Og það var hrópað og kallað og Pólstjarnan færði sig og Víkingur gat lagt að bryggju. Skipstjóri á Víkingi III heitir Sigurhjörtur og er Jónsson og spjölluðum við aðeins við hann. Það voru nokkrir menn í brúnni hjá Sigurhirti og þeir voru að tala um hin verstu veður sem Víkingur III hafði hreppt í þess- ari veiðiferð. „Við vorum að hrökklast und- an stórviðrum allan tímann," sagði Sigurhjörtur. „Gátum ekki veitt nema í tvo daga af þessari viku sem við vorum úti. Sex til átta vindstig og snjókoma buldi á okkur allan tímann nema þessa tvo daga. Við vorum út við Kolbeinsey og í Reykjafjarðar- álnum og ég verð bara að segja það að ég hef aldrei fengið svona veður svona lengi." Og aflinn var eftir því. Menn- irnir í brúnni býsnuðust yfir þessu óskemmtilega veðri, sem Víkingur III lenti í og það líka á þessum tíma árs. En það verður seint botnað i veðrinu. — ai unuF Glæsibæ. simi 82922. Stuttbuxur Síöar buxur Peysur og jakkar T A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.