Morgunblaðið - 22.08.1982, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982
37
hann dó. Þrátt fyrir ungan aldur,
hafði hann unnið til gullmerkis
Konunglega landfræðifélagsins,
sem er æðsta heiðursmerki sem
það veitir og er hann sá yngsti
sem nokkru sinni hefur hlotið það.
Tveir meðlimir úr leiðangrinum
frá 1932, þegar hann fórst, verða
viðstaddir athöfnina. Þeir eru ekki
með okkur núna, en munu slást í
hópinn skömmu áður en við förum
á staðinn þar sem hann fórst.
Annar er nú 77 ára, en hinn 74
ára.“
„Gino Watkins hlaut gullmerkið
fyrir störf sín á Grænlandi,“ bætir
Chapman við. „Hann dvaldist þar
frá 1930—’32 og vann meðal ann-
ars að rannsókn og kortlagningu
strandarinnar. Eitt af því sem
rannsóknir hans sýndu var að
stysta leiðin milli Evrópu og
Kanada var um ísland til Græn-
lands. Dauða hans bar þannig að
höndum, að hann fór út á kajak að
veiða sel til matar fyrir sig og fé-
laga sína. Hann lagði að ísbreiðu
og skildi bátinn eftir þar. Stykki
úr skriðjökli sem gengur fram í
sjó þarna, brotnaði og féll í sjóinn,
með þeim afleiðingum, að bátnum
skolaði af ísbreiðunni. Watkins
lagðist til sunds, en talið er að
Dr. Ian Ashwell, yfirmaður vísinda-
manna leiðangursins.
Við höldum göngunni áfram og
förum nú út úr flugskýli, þar sem
við hittum nokkra leiðangurs-
menn, sem þar höfðu látið fyrir-
berast um nóttina. Þetta eru þau
John Moore, Richard Fielden,
Paul Trott og Lisa Stephensson.
Við spyrjum þau, hvernig hafi far-
ið um þau um nóttina. Þau voru
sammála um að það hafi bæði ver-
ið dálítið hvasst og blautt þakið,
og við lítum upp, þar sem víða má
sjá í gegnum það upp í lágskýjað-
an himininn, sé ekki alveg vatns-
helt, né séu veggirnir vindheldir.
„Ég svaf nú í einni flugvélinni,
enda fannst mér gólfið ekki mjög
fýsilegt að sofa á, bæði hart og
sumsstaðar blautt," segir John
Fielden.
Aðspurðir segjast strákarnir
vera alls staðar að af Bretlands-
eyjum, en í ljós kemur að ungfrú
Stephenson er frá Kanada. Þetta
er þeirra fyrsti leiðangur af þessu
tagi, en flest hafa þau samt ein-
hverja reynslu af útivist og slíku.
Þau hafi ráðist í þessa ferð ánægj-
unnar vegna og af ævintýralöng-
un, svæðið sem þau fari til sé lítt
kannað og ekki mikið kortlagt og
það geri þetta skemmtilegra en
ella. Annars ráðist menn í þessa
Alan Ilonaldson.
hann hafi fengið krampa því að
hann fannst síðar drukknaður."
Sváfu í flugskýlinu.
Þegar hér er komið sögu erum
við staðnir upp og göngum um
meðal ferðalanganna. Meðal
þeirra sem við hittum er Alan
Donaldson, sem blaðamanni skilst
að sé yfirmaður þeirra rannsókna,
sem fram eiga að fara á lífríkinu.
Hann segir vera „botany-ecolog-
ist“, plöntufræðingur skýtur dr.
Ashwell að, en hann hefur haft
það til siðs að skjóta öðru hverju
að íslensku orði, enda kemur í ljós,
að hann hefur verið nálægt 20
sinnum áður á Islandi, þar af 12
sinnum með fyrri leiðangra fé-
lagsins. Við spyrjum Donaldson í
hverju verk hans hóps verði fyrst
og fremst fólgið á Grænlandi. „Við
munum safna sýnum og auðkenna
þau, númera þau og merkja, og
gera það sem venjulegt er að gera
í rannsóknum af þessu tagi,“ segir
Donaldson og minnist sérstaklega
á þær rannsóknir á fiski sem þeir
hyggjast gera, að þær gætu verið
mikilvægar.
ferð af ýmsum ástæðum. Sumir
séu hér vegna verðlauna sem her-
togin af Edinborg, maður drottn-
ingarinnar, veiti en þáttaka í
svona ferð sé eitt af því, sem gefur
stig í keppninni um þau verðlaun.
„Við verðum hér aftur að 5 árum
liðnum sem aðstoðarmenn," segir
John Moore, þegar við erum að
kveðja og hin taka undir. Það var
því greinilega engum ótta fyrir að
fara hjá þeim, við að leiðast í
þetta skipti.
Þegar það var athugað seinna
um daginn, hvort fært væri orðið
til Grænlands, var okkur tjáð að
byrjað hefði verið að flytja Bret-
ana yfir til Kulusuk skömmu eftir
tvö. Ekki bjóst þó sá sem fyrir
svörum varð hjá Flugskóla Helga
Jónssonar við, að það tækist að
flytja þá alla yfir í einni lotu, því
spáð var þoku í Kulusuk með
kvöldinu. Bjóst hann við að fyrir
þann tíma tækist að koma helm-
ingnum af Bretunum yfir og að
hinn helmingurinn færi daginn
eftir, því spáð var að þokan yrði
ekki lengi viðloðandi. — H.J.
Þau sem sváfu í flugskýlinu og rætt var við, talin frá vinstri: John Moore,
Lisa Stephenson, Richard Fielden og Paul Trott.
Viðarbrandur og surtarbrandur
ÞAU mistök urðu við vinnslu laugardagsblaðsins, að niður féll mynd af Haraldi Ag-
ústssyni, þar sem hann bendir Ijósmyndara Mbl. á sérstæðasta viðarsafnssýnishornið,
sem Haraldur sýnir nú að Kjarvalsstöðum. En hér kemur myndin: Haraldur bendir á
10—12 milljón ára kaliforníurauðvið, sem er viðarbrandur úr Bolungarvík, en í hægri
hendinni heldur hann á surtarbrandi sömu tegundar.
bjóöum viö landsmönnum aö eignast
íslensku DBS reiðhjólin á einstökum vildarkjörum.
Veittur veröur 20% staðgreiðsluafsláttur eöa 15%
afsláttur meö 1000 kr. útborgun og eftirstöðvar á
allt að 4 mánuðum.
EjfmtíAhM FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
t2
Þt AIGLVSIR l M AI.LT LAND ÞKGAR
Þl AKÍLVSIR I MORC.l'NBLADIM