Morgunblaðið - 22.08.1982, Blaðsíða 48
Síminn á afgretöslunm er
83033
Jílorx>xmbl8Í»ií>
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982
Staðan í ríkisstjórninni kl. 14, laugardag:
Stjórnin riðar til falls
• Alþýðubandalagið dregur til baka fyrirheit um vísitölumál og fleira
• Þingflokkur Framsóknarflokks boðaður til skyndifundar
• Þingflokkur Alþýðubandalagsins enn á fundi þegar Mbl. fór í prentun
\1JÖ(; Ivísýnt var um líTdaga ríkisstjórnarinnar um það leyti scm Mbl.
fór í prentun kl. 14.00 í gær, laugardag. Á ráðherrafundi í gærmorgun
drógu alþýðubandalagsráðherrarnir til baka fyrri samþykktir sínar um
veigamikil atriði visitölumálanna og fleira í fyrirhuguðum efnahagsað-
gerðum og lögðu þeir um leið á
viðræðunum í framhaldi af því.
Samkvæmt heimildum Mbl.
setti Guðmundur J. Guðmunds-
son, væntanlega með stuðningi
fleiri verkalýðsleiðtofía, alþýðu-
bandalat?sráðherrunum úrslita-
kosti eftir heimkomu hans í fyrra-
dag. Þegar Mbl. fór í prentun í
218 hval-
ir á land
218 hvalir eru nú komnir á land
í llvalstöðinni í llvalfirði. 188
langreyðar hafa veiðzt og eru þá
aðeins G hvalir eftir af þeim veiði-
kvóta. 28 búrhvalir eru nú komnir
á land og 2 sandreyðar. Leyfi er til
að veiða 100 sandreyðar og 87 búr-
hvali.
Að sögn Kristjáns Loftssonar,
forstjóra Hvals hf., hefur bræla
hamlað veiðum í um viku tíma,
en nú er veður farið að lagast
aftur og veiðarnar að komast í
gang. Sagði hann að annars
hefðu veiðarnar gengið vel í
sumar og nú biðu menn eftir því
hvort sandreyðurin léti sjá sig.
Hún kæmi venjulega á miðin
seinnihluta ágústmánaðar, en
ætti það þó til að láta alls ekki
sjá sig. Það ylti því allt á komu
hennar hve mikið veiddist af
hval því aðeins væru eftir 6 dýr
af langreyðarkvótanum og 59
búrhvalir.
í fyrra veiddust alls 397 hval-
ir, 254 langreyðar, 100 sandreyð-
ar og 43 búrhvalir.
borð nýjar kröfur. Slitnaði upp ur
gær var enn beðið úrslita þing-
flokksfundar Alþýðubandalagsins.
Þingflokkur Framsóknarflokksins
var um hádegsbilið boðaður til
fundar síðdegis og voru framsókn-
armenn þeir sem Mbl. ræddi við í
gær sammála um að sú fundar-
boðun þýddi að endanlega hefði
slitnað upp úr þeim „ramma", sem
ráðherrum þeirra hafði verið sett-
ur af þingflokknum um samnings-
grundvöll við Alþýðubandalagið.
Guðmundur J. Guðmundsson
sat langan fund með forystu-
mönnum Alþýðubandalagsins í
fyrradag. Samkvæmt heimildum
Mbl. gekk hvorki né rak og lyktaði
viðskiptum þeirra svo, að alþýðu-
bandalagsráðherrarnir fóru inn á
ráðherrafundinn í gærmogun með
fyrrgreindan boðskap. Niður-
staðna þingflokksfundar þeirra
var beðið með óþreyju í gær, en
talið var af þeim stjórnarliðum
sem Mbl. ræddi við í gær að komn-
ir væru slíkir brestir í ríkisstjórn-
arsamstarfið að vart myndi gróa
um heilt, þó svo takast myndi að
ná saman um einhverjar „mála-
miðlunarleiðir", eins og einn við-
mælandi blaðsins orðaði það.
I gærmorgun var reiknað með
að ríkisstjórnarfundur yrði síð-
degis. Allt benti þó til þess þegar
upp úr slitnaði í ráðherranefnd-
inni laust fyrir hádegi að fundar-
ins mætti bíða enn um sinn. Mbl.
fer fyrr í prentun á laugardögum
en aðra daga, eða um kl. 14.00 og
var staðan í málefnum ríkis-
stjórnarinnar þá sú sem að fram-
an greinir.
Innbrot í skartgripaverslun á Laugavegi 30:
• •
Ollu gulli stolið
úr versluninni
Þjófavarnarkerfið ekki 1 gangi
UROTIST var inn í skartgripaversl-
un Jóhannesar Leifssonar, Lauga-
vegi 30 í fyrrinótt, aðfaranótt laug-
Ljómarallið
Landmannalauj;um 21. ájpíat.
Krá (tunnlauei Kögnvald.sHyni.
Kadarma'lingar lögreglunnar hafa sett
strik í reikning ökumanna í Ljómarallinu
sem hófst á föstudaginn, en vegna mæl-
inganna hafa fjórar leirtir verið felldar úr
keppninni. Kr ökumenn fóru af start í
ga-rmorgun var keppnin mjög jöfn og
skildu arteins um niu mínútur fvrsta og
fjórða bíl. I fyrsta saeti þá voru Hafsteinn
llauksson og Birgir Viðar Halldórsson á
Kscort RS 2000, i örtru sjeti voru Óskar
Olafsson og Árni Kriðriksson, í þriðja sæti
Jóhann Hlörtversson og í fjórða saeti
Omar Kagnarsson og Jón Kagnarsson.
ardags, og var miklu stolið, sam-
kvæmt upplýsingum sem Morgun-
hlaðið fékk hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins í gær. Þetta er tíunda inn-
brotið í skartgripaverslun á þessu
ári.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Jóhannes Leifsson, eigandi
verslunarinnar, að enn væri ekki
vitað hvert verðmæti þýfisins
væri. Sagði hann þó að miklu virt-
ist hafa verið stolið og taldi hann
að allt gull hefði verið tekið úr
versluninni. Sagði hann að brotist
hefði verið inn bakatil og þar
spenntur upp hleri, þannig að ekki
sæist að framanverðu að brotist
hafi verið inn í verslunina. Jó-
hannes sagði að þjófavarnarkerfi
væri í versluninni, en það hefði
ekki verið í gangi.
„Það var mjög skemmtilegt og aýstárlegt að koma
upp á Kldey í þessa stórkoatlegu súlubyggð, en það
sem kom mér mest á óvart í ferðinni var dugnaður og
ósérhlifni bjargmannanna, hvað það virtist þeim eðli-
legt að fást við leiðir sem engum virtust færar nema
fuglinum fljúgandi, ég varð satt að segja dolfallin yfir
tilþrifunum í þverhníptum hamrinum," sagði Halldóra
Filippusdóttir flugfreyja hjá Flugleiöum í samtali við
Mbl. í gær en hún er fyrsta konan sem klífur Eldey.
Halldóra tók þátt í súlumerkingunum, en hún kvaðst
mjög ánægð yfir því að hafa fengið tækifæri til þess að
kynnast þessari sérstæðu eyju.
Myndina tók Ragnar Axelsson af Halldóru með
súluunga uppi á Eldey.
Þórir Qddsson, vararannsóknarlögreglustjóri:
Hegningarhúsið óhæft sem
gæsluvarðhaldsfangelsi
Inn um þetta gat á bakhlið bússins
komst þjófurinn með því að spenna
upp hlera, sem fyrir því var.
Ljósmynd Mbl. Guðjón.
„ÉG TEL AÐ þetta sé fyrst og fremst vegna þess að Hegningarhúsið er
óhæft sem gæsluvarðhaldsfangelsi, ekki bara vegna hættunnar á að fangar
flýi, heldur vegna þess aðbúnaðar sem þarna er,“ sagði Þórir Oddsson
vararannsóknarlögreglustjóri ríkisins í samtali við Morgunblaðið um strok
gæsluvarðhaldsfangans úr Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg á föstudag,
en hann var ófundinn, þegar Mbl. spurðist fyrir um málið siðast klukkan 14
„Þarna eru menn sem eru í
skammtímaafplánun og það er
erfitt að koma við einangrun
fanga, þannig að þeir nái ekki
saman," sagði Þórir. „Auk þess
hefur verið hægt að hafa samband
við fanga utanfrá með ýmsum
hætti, þó reynt sé að koma í veg
fyrir það. Það er vegna þeirra
húsaþyrpinga sem þarna eru í
kring og þar af leiðandi hefur
Hegningarhúsið alltaf þótt mjög
óheppilegt sem einangrunarfang-
elsi. Aðbúnaðurinn að öðru leyti,
til þess að leyfa föngum að hreyfa
sig úti, er allsendis ófullnægjandi.
Það sem verður til þess að Hegn-
ingarhúsið er notað nú, er sú
ákvörðun stjórnvalda að loka
Síðumúlafangelsinu á meðan
sumarleyfi standa yfir. Við höfum
gagnrýnt þetta, en samt hefur
þessi háttur verið hafður á. Þó
ekki hafi tekist svona til áður, þá
skapar þetta geysilega mikil vand-
kvæði, því við höfum verið með
allmarga menn í gæslu og manni
finnst, þó fangaverðir séu allir af
vilja gerðir að reyna að gæta þess-
ara manna, að mjög erfitt sé að
koma við gæslu sem miðast við
gæslufanga. Það er mjög bagalegt
að okkar mati að fangelsum skuli
lokað vegna sumarleyfa," sagði
Þórir Oddsson.
Mbl. náði ekki í Friðjón Þórð-
arson dómsmálaráðherra í gær
vegna þessá máls.
Hræin grafin
eða dregin út
30 til 40 grindhvalir liggja nú dauö-
ir í fjörunni við syrtri hafnargarrtinn á
Rifí. Eins og fram hefur komið í frétt-
um tókst art koma þaðan um 300 hvöl-
um á haf út í gær eftir að vaða gekk
þar á land.
Að sögn Kristjáns Guðmundsson-
ar, hreppstjóra á Rifi, hefur ekki
verið ákveðið hvað gert verður við
hræin. Sagði hann, að líklega yrðu
þau dregin á haf út eða grafin. Ekki
væri hægt að nýta kjötið af þeim þar
sem hvalirnir hefðu ekki verið blóðg-
aðir, en þó hefðu menn strax í gær
blóðgað tvo eða þrjá hvali og hirt af
þeim eitthvað af kjöti.