Morgunblaðið - 09.09.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1982
Mynd af handriti um
Vínlandsferð Leifs
— var gjöf Vigdísar til Reagans
VIÐ heimsókn Forseta íslands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur til Hvíta
hússins í gær, færði hún Ronald
Reagan forseta að gjöf Ijósmynd-
aða opnu úr Grænlendingasögu i
Flateyjarbók.
Á þeim stað segir frá því er Leif-
ur Eiriksson hinn heppni fór til
Vínlands, og varð þar með fyrstur
norrænna manna til að líta hina
miklu heimsálfu i vestri augum.
*
Sjómannasamband Islands:
Lýsir sig reiðubúið til
samvinnu til að koma í
veg fyrir stöðvun flotans
— Brottför rádherra leysir ekki vanda
útgerðarinnar segir Óskar Vigfússon
„ÉG ÆTLA mér ekki að hafa nokkra skoðun á því að Stein-
grímur Hermannsson hverfí af landi brott. Honum er frjálst
að fara hvert sem er fyrir mér. Hins vegar leysir það ekki
vanda útgerðarinnar að ráðherra fari af landi brott, en það
hlýtur að vera staðgengill í hans stað, sem hefur fulla heimild
til að taka ákvörðun. Annað væri óábyrg afstaða,“ sagði
Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands íslands, er
hann var inntur eftir því í gær hvernig hann liti á brottfór
sjávarútvegsráðherra.
„Steingrímur var búinn að boða
til fundar með okkur í dag og átti
þá að veita upplýsingar um hugs-
anlegar leiðir til að leysa þann
vanda, sem fyrir hendi er hjá út-
gerðinni. í framhaldi af því gerði
ég ráð fyrir að stjórnvöld hefðu
ætlað að leggja einhverjar tillögur
undir okkur sjómenn og fá tillögur
okkar. Ég veit ekki um annað, því
um það var rætt af mér og Stein-
grími í fyrrakvöld. Þar hlýtur því
Birgir ísl. Gunnarsson um nýjustu ÍSALrskýrslur iðnaðarráðherra:
að koma til staðgengill hans hver
sem það er, fyrst Steingrímur er
farinn,“ sagði Óskar, er hann var
inntur eftir því hvort sjávarút-
vegsráðherra hefði ekki verið bú-
inn að boða til fundar með sjó-
mönnum, sem ekki varð af í gær
vegna brottfarar ráðherrans.
Að öðru leyti hvað varðaði stöðu
mála vísaði Óskar til eftirfarandi
tilkynningar frá Sjómannasam-
bandinu:
„Framkvæmdastjórn Sjómanna-
sambands íslands lýsir yfir fullum
stuðningi við ályktun miðstjórnar
ASÍ frá 22. ágúst síðastliðnum,
varðandi efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar, og þá sérstaklega
þann hluta ályktunarinnar sem
fjallar um skerðingu verðbóta á
Meðferð ráðherra á málinu
öllu er til mikiUar óþurftar
Fyrir löngu búið að ná samningum um hærra raforkuverð, ef skynsamlega hefði verið að málum staðið
„SKÝRSLA iðnaðarráðherra um raforkuverð í áliðnaði er enn ein skýrslan
frá ráðherranum og engin ástæða til að tengja meiri vonir við þá skýrslu en
aðrar, sem þaðan hafa komið. Iðnaðarráðherra heldur blaðamannafundi
nokkuð reglulega til að kynna nýjar skýrslur — og síðan leggst allt aftur í
dvala,“ sagði Birgir ísleifur Gunnarsson alþingismaður og fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í iðnaðarnefnd neðri deildar Alþingis aðspurður um nýjustu
skýrslur iðnaðarráðherra, er varða raforkuverð og skattamál álversins í
Straumsvík.
Birgir ísleifur sagði einnig:
„Meðferð iðnaðarráðherra á þessu
máli öllu er til mikillar óþurftar.
Allt frá því að ráðherrann tók við
embætti hefur hann lagt meiri
áherslu á að standa i orðaskaki og
opinberu stríði við ÍSAL í stað
þess að snúa sér af einlægni og
krafti að því að endurskoða samn-
ingana, eins og gert var 1975. Það
er enginn ágreiningur um það að
rafmagnsverðið til ÍSAL þarf að
hækka. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur til dæmis lengi verið þeirrar
skoðunar, og má þar nefna sem
dæmi ályktun þingflokksins frá
því í júlí 1981. Iðnaðarráðherra
hefur hins vegar reynst óhæfur
samningamaður fyrir íslands
hönd í þessu máli.
Um skýrsluna, sem ráðherra
lagði fram um raforkuverð til Is-
lenska álfélagsins vil ég segja, að
hún er að mörgu leyti ófullkomin
og alls ekki hægt að draga af
henni þær ályktanir, sem ráð-
herra virðist gera. í skýrslunni er
ekki lagt neitt mat á hvað er
raunhæft í samningnum, en mjög
mörg atriði geta haft áhrif á
rafmagnsverðið, sem þarf að
sjálfsögðu að kanna, þegar borið
er saman rafmagnsverð til álverk-
smiðja í hinum ýmsu löndum. Þar
má nefna skattamál, hvernig haga
megi skerðingu á afhendingu raf-
orku og hvort álveri sé skylt að
greiða fyrir rafmagnið, hvort sem
það notar það eða ekki. Þessi at-
riði hafa mikil áhrif á rafmagns-
verð, en þeim eru engin skil gerð í
þessari skýrslu.
Svo dæmi séu tekin þá er ÍSAL
skylt að greiða fyrir 90% af um-
samdri orku, hvort sem hún er
notuð eða ekki. Það ákvæði á vafa-
laust veigamikinn þátt í því að hér
er enn framleitt með fullum af-
köstum, þótt verið sé að loka ál-
verum allt í kringum okkur. Þetta
ákvæði virðist eiga mikinn þátt í
að tryggja starfsfólki álversins
vinnu og okkur íslendingum aðrar
þær tekjur, sem við höfum af ál-
verinu. Hvað yrði um þetta
ákvæði, ef ráðherrann gripi til
einhliða aðgerð, eins og honum er
mjög tamt á tungu? Mér virðast
hugmyndir ráðherrans um ein-
hliða aðgerðir mjög varhugaverð-
ar og fæ ekki séð annað en að þær
Jóhanni Þóri Jónssyni ritstjóra og
útgefanda Tímaritsins Skák hefur
verið falið að annast umsjón og út-
gáfu á mótsblaði Ólympíuskák-
mótsins í Luzern i Sviss dagana 30.
október til 17. nóvember næstkom-
séu liður í þeirri stefnu hans að fá
álverinu lokað og gera frekari
samvinnu við erlenda aðila á sviði
stóriðjumála erfiðari í framtíð-
inni.“
Birgir sagði að lokum: „Ég er
sannfærður um að það væri fyrir
löngu síðan búið að ná fram samn-
ingum við ISAL um mun hærra
raforkuverð, ef skynsamlega hefði
verið að máli þessu staðið. í raun
hefuy ÍSAL því ekki átt betri
bandamann í þessu máli en núver-
andi iðnaðarráðherra."
andi. Mótsblaðið er hugsað sem
aukaútgáfa Skákar, undir haus þess
blaðs. Alls verða gefin út 14 tölublöð
í um 50 þúsund eintaka upplagi.
Áætlaður kostnaður nemur um
hálfri milljón bandarískra dala. Um
laun.
Bendir stjórn sambandsins á að
vegna minnkandi afla og óhag-
stæðrar aflasamsetningar hafi
sjómannastéttin orðið fyrir mun
meiri kjaraskerðingu á þessu ári
en almennt hefur orðið hjá laun-
þegum í landi.
Þeirri tilhneigingu stjórnvalda
að leysa vanda útgerðarinnar
hverju sinni með skerðingu hlut-
askiptakjara hefur ávallt verið
mótmælt af samtökum sjómanna.
Þar sem stjórn Sjómannasam-
bandsins telur sig hafa tryggingu
fyrir því að engin slík skerðingar-
áform séu uppi af hálfu ríkis-
stjórnarinnar, og með tilliti til
þess gífurlega vanda sem fram-
undan er fyrir sjómenn og þjóðar-
búið í heild komi til stöðvunar
fiskiskipaflotans, lýsir stjórn
sambandsins sig reiðubúna til
samvinnu við stjórnvöld og Land-
samband ísl. útvegsmanna um
leiðir til þess að koma í veg fyrir
að slíkt ástand skapist."
tuttugu manna starfslið mun fara
héðan vegna þessarar útgáfu.
Ólympíuskákmótið er afar um-
fangsmikið. Nú eru um 120 þjóðir
innan Alþjóðaskáksambandsins,
og þar af munu um 90 mæta til
leiks í Sviss í karlaflokki, auk 40
til 50 kvennasveita. Keppendur
eru því alls um 800 talsins og
verða tefldar um 250 skákir á dag
og alls um 3.500 á mótinu. Sviss-
lendingar munu sjá um ritun
skáka og fleiri tæknileg atriði, en
Jóhann Þórir og hans menn verða
með yfirumsjón á sinni hendi, þar
með talda ritstjórn, en mikið af
viðtölum og skákskýringum verð-
ur í blaðinu og myndir af öllum
keppendum.
Jóhann Þórir sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær,
að hann hygði á útgáfu Skákar á
ensku innan tíðar, og ef vel tækist
til nú væri hér góður Stökkpaiiur
Út í pá útgáfu. Þá hefur Jóhann
einnig tekið að sér yfirumsjón al-
mannatengsla fyrir FIDE, Alþjóða-
skáksambandið, sem einkum mun
felast í fjáröflun fyrir sambandið.
„Leggjum áherzlu á verulega þátttöku varn-
arliðsins og að framlög verði framlengd“
— segir m.a. í bókun sjálfstæðisráðherranna í tilefni af afgreiðslu
ríkisstjórnarinnar á flugstöðvarmálinu
RÁÐHEKRAR sjálfstæðismanna
lögóu fram sérstaka bókun á ríkis-
stjórnarfundinum í gær, áður en
tillaga utanríkisráðherra um bygg-
ingu flugstöðvar á Keflavíkurflug-
velli kom til afgreiðslu. Eins og
kemur fram í baksíðufrétt Mbl.
nýttu alþýðubandalagsráðherrarn-
ir neitunarvald sitt í stjórnarsátt-
málanum og felldu tillögu utanrík-
isráðherra, en í stjórnarsáttmálan-
um er kveðið á um að allir ráðherr-
arnir veröi að vera sammála til að
slík tillaga nái fram að ganga. Bók-
un forsætisráðherra, dómsmála-
ráðherra og landbúnaðarráöherra
fer hér á eftir:
„1. Við teljum, að hefja þurfi
hið fyrsta byggingu nýrrar
flugstöðvar við hæfi á Kefla-
víkurflugvelli.
2. Kostnaður íslendincra yií.
byggingu hinnar fyrirhuguðu
flugstöðvar er nú áætlaður
300 til 400 milljónir króna.
Með hliðsjón af þeim áföll-
um, sem þjóðarbúið hefur orð-
ið fyrir og miklum viðskipta-
halla verður erfiðleikum
bundið að afla fjár til þessara
fjárfrekii fránikvæmda nú og
á næstunni og hlýtur það að
draga úr framkvæmdum m.a.
í orku- og samgöngumálum.
Við leggjum áherslu á veru-
lega þátttöku varnarliðsins í
fjármögnun flugstöðvar og
teljum nauðsynlegt, að fram-
lög, sem samþykkt hafa verið,
verði framlengd.
meo vísun til framan-
greindra atriða samþykkjum
við tillögu utanríkisráðherra."
Timaritið Skák sér um útgáfu á Ólympíuskákmótinu:
Kostnaður hálf milljón dollara,
20 manna starfslið frá íslandi