Morgunblaðið - 09.09.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1982
37
Treir hressir; Jón M. Guðmundsaon á Reykjum (t.v.) og Matthías Eggerts-
son, ritstjóri Freys.
Jón M. Guðmundsson, Reykjum:
Aldrei við því búist að
tillagan yrði samþykkt
Fulltrúar bænda í Gullbringu-
og Kjósarsýslu lögðu fram tillögu
á þinginu um breytingu á sam-
þykktum Stéttarsambandsins um
skipan fulltrúa á aðaifund. Tillag-
an var í þá veru, að hin ýmsu sér-
búgreinasamtök — kjúklinga-
bændur, eggjaframleiðendur,
svínarækt, gróðurhúsabændur,
o.fl. — fengju fulla aðild að fund-
um félagsins.
Laganefnd fjallaði um þessa til-
lögu og komst að þeirri niður-
stöðu, „að ekki væri tímabært að
breyta félagslegri uppbyggingu
Stéttarsambandsins. Aftur á móti
verði sérbúgreinafélögunum fram-
vegis boðið að senda áheyrnar-
fulltrúa á aðalfundi þeirra".
Jón M. Guðmundsson, kjúkl-
inga- og eggjabóndi á Reykjum,
sagði, „að í rauninni hefðu sér-
greinasamböndin alls ekki búist
við því að tillaga þeirra yrði sam-
þykkt. Markmiðið hefði fyrst og
fremst verið að reyna að nálgast
Stéttarsambandið meira, koma á
meiri tengslum".
Það kom fram á fundinum, að
Guðmundur Stefánsson, landbún-
aðarhagfræðingur, hefði verið
ráðinn til starfa hjá Stéttarsam-
bandinu, og ætti hann að sinna
samskiptum Stéttarsambandsins
við sérgreinabændur.
Sigurður Jónsson, Kastalabrekku:
Starfsréttindi í land-
búnaði eru brýnt
hagsmunamál
Siguröur Jónsson, Kastalabrekku
í Rangárvallasýslu, taldi starfs-
réttindamálið vera mikilvægasta
mál þingsins.
„Við sjáum fram á það nú þegar
markaðsmöguleikar dragast sam-
an, að það er nauðsynlegt að hafa
eitthvert vald yfir því hvernig
búreksturinn er. Það er því brýnt
stéttarverndunarmál, að koma því
þannig fyrir, að hver sem er geti
ekki hafið búskap.“
Um fyrirhugaða fækkun sauð-
fjár hafði Sigurður þetta að segja:
„Ég vil fara hægt í sakirnar í þeim
efnum. Því markaðsmálin gætu
breyst til batnaðar t.d. gæti inn-
lendi markaðurinn stækkað með
tilkomu nýjunga í vinnslu á á
kindakjöti. Nú á dögum vinna hús-
mæður mikið úti, svo það ætti að
vera talsverður markaður fyrir
unnar kjötvörur.
Nokkrír fulltrúa i þinginu.
Sigurður Jónsson, Kastalabrekku í
Rangárvallasýslu. Sigurður er einn
þeirra sem hefur gert tilraunir með
páskalömb.
Öm og Örlygur:
Gefa út
Tröllasögur
— eftir Hauk Halldórsson
MEÐAL væntanlegra bóka frá Erni
og Örlygi í haust er bókin Tröllasög-
ur, eftir Hauk Halldórsson myndlist-
armann. Haukur er einkum kunnur
fyrir kynngimagnaðar myndir sínar
úr þjóðsögum, þar sem tröll og aðrar
forynjur koma ekki sist við sögu.
I þessari nýju bók hefur Haukur
valið úr þjóðsögum ýmsar þekktar
tröllasögur er hann myndskreytir,
en auk þess hefur hann sjálfur
samið nokkrar sögur í svipuðum
dúr. Um leið og íslenska útgáfan
kemur út, kemur einnig út ensk
útgáfa bókarinnar, og hefur Peter
Cahill þýtt hana á ensku.
Bókin, sem væntanlega verður
sú fyrsta í flokki. bóka af þessu
tagi, er ætluð öllum aldurshópum,
samkvæmt upplýsingum er Morg-
unblaðið fékk hjá útgáfunni, en
ekki er miðað við börn og unglinga
sérstaklega.
Örn og Örlygur:
Heitur snjór
— Ný skáldsaga um
undirheima Reykjavíkur
eftir Viktor Ingólfsson
„HEITUR SNJÓR“ heitir ný skáld-
saga eftir Viktor Ingólfsson, sem
væntanleg er frá Bókaútgáfunni
Erni og Örlygi nú fyrir jólin. Þetta er
önnur bók höfundar, og gerist hún í
Reykjavík dagsins í dag, og fjallar
um eiturlyfjaneyslu, um það fólk
sem ánetjast eiturlyfjum og ekki síð-
ur um hina sem auðgast á því að
selja og smygla til landsins eiturlyfj-
unum.
„Eins og hefur mátt lesa í Morg-
unblaðinu að undanförnu er hér
um mikið vandamál að ræða,“
sagði Örlygur Hálfdánarson fram-
kvæmdastjóri útgáfunnar, „og
höfundi tekst á afar sannfærandi
og óhugnanlegan hátt að segja
sögu af þessum ófögnuði. Segja
sögu af þeim er bölinu verða að
bráð, en ekki síður að lýsa þeirri
kaldrifjuðu manngerð, sem lifi-
brauð hefur af því að selja fólki
eiturlyf, og átakanleg lýsing er á
því hvernig slíkir menn geta látið
fólk er ánetjast hefur, gera nánast
hvað sem er. Þetta er saga sem
gerist í undirheimum Reykjavík-
urborgar," sagði Örlygur að lok-
um, „og hún er óghugnanlega
raunveruleg að mínum dómi“.
Flugræningjar
fyrir rétti
London, 7. Heptembor. AP.
FIMM Tanzaníumenn, sem rændu
þotu flugfélagsins Air Tanzania i
febrúar sl., voru dregnir fyrir rétt í
London í dag.
Tanzaníumennirnir eru allir á
þrítugsaldri og meðal þeirra eru
tvennir bræður. Þeir rændu
Boeing 737-þotu í innanlandsflugi
í Tanzaníu og neyddu flugmennina
til að fljúga til Stanstead-flugvall-
ar fyrir utan London, með við-
komu í Nairóbí í Kenýa, Jiddah í
Saudi-Arabíu og Aþenu í Grikk-
landi.
Flugræningjarnir eiga yfir
höfði sér allt að lífstíðarfangelsi.
Þeir hafa lýst sig alsaklausa. Þeg-
ar þeir gáfust upp voru þeir af-
vopnaðir og voru vopnin lögð fram
sem sönnunargögn við réttarhöld-
in, sem hófust í dag. Meðal vopn-
anna voru tveir rifflar og hand-
sprengja.
Siglfirðingar > Jfc (
í Reykjavík og nágrenni. Muniö síldarballiö í Ártúni,
laugardaginn 11. september kl. 21.00.
Nefndin.
Einkaritaraskólinn
Kennsla hefst 20. sept. Þeir nemendur sem pantað
hafa pláss, vinsamlegast gangi formlega frá skólavist
í þessari viku. Þeir sem eru á biðlista eru beönir aö
hafa samband viö okkur eftir helgina.
Enn eru eftir pláss í Ensku-deildinni.
Sími 10004 og 11109 (kl. 1—5 e.h.).
T Bleian
Veitiö ungbarninu loft með réttri bleiutegund.
Allar bleiur með plasti utan um eru eins og
gróðurhús.
T-bleian er einungis með plasti aö neöan, en
ekki á hliöum og með henni notist laglegu
t-buxurnar, sem eru úr taui og veita því lofti
um barnið.
Eingðngu t-bleiurnar veita barninu nóg loft.
Barnarassar þurfa á miklu lofti að halda til að
líða vel.
Auglýsing
um aöalskoöun bifreiöa og bifhjóla í Hafnarfiröi,
Garöakaupstað og Bessastaðahreppi frá 8.
sept.—30. sept. 1982.
Skoöun fer fram sem hér segir:
Miðvikud. 8. sept. G-13801 til G-14000
Fimmtud. 9. sept. G-14001 — G-14200
Föstud. 10. sept. G-14201 — G-14400
Mánud. 13. sept. G-14401 — G-14600
Þriðjud. 14. sept. G-14601 ' — G-14800
Miövikud. 15. sept. G-14801 — G-15000
Fimmtud. 16. sept. G-15001 — G-15200
Föstud. 17. sept. G-15201 — G-15400
Mánud. 20. sept. G-15401 — G-15600
Þriðjud. 21. sept. G-15601 — G-15800
Miövikud. 22. sept. G-15801 — G-16000
Fimmtud. 23. sept. G-16001 — G-16200
Föstud. 24. sept. G-16201 — G-16400
Mánud. 27. sept. G-16401 — G-16600
Þriðjud. 28. sept. G-16601 — G-16800
Miðvikud. 29. sept. G-16801 — G-17000
Fimmtud. 30. sept. G-17001 og yfir
Skoöunin fer fram viö Suöurgötu 8, Hafnarfirði frá kl.
8.15—12.00 og 13.00—16.00 alla framantalda daga.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiöum til skoöunar. Viö skoöun skulu ökumenn
leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir
því, aö bifreiöagjöld séu greidd, aö vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi og aö bifreiöin hafi veriö
Ijósastillt eftir 1. ágúst sl. Athygli skal vakin á því aö
skráningarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver aö koma ökutæki sínu til skoöun-
ar á auglýstum tíma, veröur hann látinn sæta sekt-
um samkvæmt umferöarlögum og ökutækiö tekiö
úr umferö hvar sem til þess næst án frekari aövör-
unar.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga aö máli.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirói
og í Garöakaupstaö.
Sýslumaöurinn i Kjósarsýslu,
6. september 1982.
Einar Ingimundarson.