Morgunblaðið - 09.09.1982, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1982
41
fcfk í
fréttum
Sir Laurence Olivier
gefur út ævisögu sína
+ í Kviminninguin Sir Laurence
Olivier sem birtist að hluta til í
dagblaði síðastliðinn sunnudag
segir hann að versta augnablik llfs
síns hafí verið þegar hin fagra eig-
inkona hans Vivien Leigh sagði við
hann: „Ég elska þig ekki lengur.'*
Leikkonan Vivien Leigh, sem
lék Scarlett O’Hara í myndinni
„A hverfanda hveli" gerði játn-
ingu þessa skömmu eftir að þau
hjónin sneru heim úr Ástralíu-
för 1948, en Olivier segir í ævi-
sögu sinni „Játningar leikara" að
hann hafi þegar verið meðvitað-
ur um að Vivien var orðin hon-
um fráhverf ... hún hafi þá þeg-
ar verið orðin ástfangin af ástr-
ölskum leikara, Peter Finch.
„Mér leið eins og ég hefði ver-
ið dæmdur til dauða," skrifar
Olivier í minningum sínum sem
birtust í blaðinu Sunday Tele-
graph, en þar birtust einungis
Sir Laurence Olivier
fyrstu fjórir kaflar bókarinnar,
sem ekki kemur formlega út fyrr
en 14. október í haust.
Hryójuverkamadur
í París
Hún var handtekin ásamt tveimur öðrum er yfirvöld í Frakklandi gerðu
mikla leit að hryðjuverkamönnum nú fyrir skömmu, en enn er verið að leita
þar í landi þar sem ógnaralda hryðjuverka hefur gengið linnulaust í París í
allt sumar. Frönsk yfirvöld hafa upplýst að þessi þrjú er handtekin voru séu
öll úr írska lýðveldishernum, IRA, og hafa írsk yfirvöld krafist þess að þau
verði framseld þarlendum yfirvöldum.
-t- Mary Reid veifar hér járnuðum bðndum sinnm til Ijósmyndara, en hún er ein
þeirra er handtekin var fyrir skömmu í París grunuð um.
COSPER
COSPER
Má Jakob koma út að leika?
Margrét
fær sér
reyk...
+ Margrét Danadrottning kvað
reykja grískar sígarettur sem ákaf-
lega erfítt er að höndla í almennum
tóbaksverslunum þar sem vöru-
merkið er svo fágætt... eða kann-
ast einhver við sígarettur að nafni
„Kapeaia"?
Hún dettur þó öðru hverju í
lukkupottinn í opinberum mót-
tökum þar sem hlerað hefur ver-
ið um þessar sérþarfir hennar og
svo var í skiptið sem þessi mynd
var tekin, við opnun bókasýn-
ingar í Kolding en við sama tæki-
færi mun Hinrik prins einnig
hafa þegið sígarettu og þá
franska.
BIIMGÓ
Bingó í Templarahöllinni, Eiríksgötu 5, kl. 8.30 í
kvöld. 18 umferðir og 4 horn. Verðmæti vinninga
10.200. Aðalvinningur vöruúttekt kr. 2.500,-. Sími
20010.
Tí^usýnirwi
í kvókd kL 21.30
Modelsamtökin
sýna Gazella
haustlínuna frá
Hlín.
Dávaldurinn
Frisenette
Skemmtir í kvöld
fimmtudag kl. 11.15 í
Háskólabíói.
• Frisenette hefur skemmt í öllum helstu
heimsborgum og ávallt fengiö frábæra
dóma
• Skemmtun fyrir unglinga og fólk á öll-
um aldri
• Frisenette svíkur engan
• Aögöngumiöasala í Háskólabíói, Ey-
mundsson Austurstræti og Fálkanum
Laugavegi.
Agöngumiðasala er hafin í Háskólabíói, Eymundsson og
Fálkanum, Laugavegi.
GÓÐUR - ÓDÝR - LIPUR - SÆLL AFBRAGÐ
Opnum kl. 11.30
SÝNISHORN ÚR
MATSEÐLI
Rjómalöguð
lerkisveppasúpa
Salat
Hreindýrapottréttur
með eplasalati
Verð kr. 135.-.
ARMARHÓLL
Hvíldarstaður
í hádegi
höll að kveldi
Velkomin
ÍS
8
o
>
í
8