Morgunblaðið - 09.09.1982, Page 48

Morgunblaðið - 09.09.1982, Page 48
STEINAKRÝL - málningin sem andar Sími á ritstjóm og skrifstofu: 10100 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1982 Alþýðubandalagið beitti neitunarvaldi stjórnarsáttmálans í flugstöðvarmálinu: „Athuga framlengingu á fjár- veitingu Bandaríkjastjórnar“ — sagði Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í gærmorgun „Wí I.A(iÐI fram tillögu um að far- ið yrði eftir tillögum meirihluta- nefndar, sem ég skipaði vegna þessa mals. Sjálfstæðismenn og framsókn- armenh voru með tillögunni en ráð- henar Alþýðubandalags á móti og beittu þeir neitunarvaldi því sem þeir hafa samkvæmt stjórnarsátt- málanum," sagði Ólafur Jóhannes- son, utanríkisráðherra, í samtali við blaöamann Morgunblaðsins þegar hann kom af ríkisstjórnarfundi um háii. ^isbilið i gær, en hann var þá spurður um afgreiðslu flugstöðvar- byggiugarmálsins á ríkisstjórnar- fundinum. Olafur var einnig spurður um hvtr yrðu viðbrögð hans, hvort mál- inu væri þar með lokið af hans hálfu Ólafur svaraði: „Málinu er lokið að því leyti að framkvæmdir geta ekki hafist, en ég mun nú at- huga hvort hugsanlegt sé að fá ein- hvcrja framlengingu á fjárveitingu B mdarikjastjórnar til flugstöðv- arhv ggtngarinnar, en hún á að falla niður 1. október næstkomandi. iivort það tekst eða ekki er ómögu- legt að segja á þessu stigi, en með því að þetta verði reynt, voru sömu aðilar og samþykktu flugstöðvar- bvgginguna en ráðherrar Alþýðu- bandalagsins voru á móti því að tek- ið yrði við þessu fé.“ Nú liggur það fyrir, að sjálf- stæðismenn munu á þingi í vetur leggja fram tillögu um að flugstöðin verði byggð. Hver verður þín af- staða til þessarar tillögu? „Eg tek ekki afstöðu svo langt fram í tímann. Ég skal engu spá hvað kemur upp á þingi, en ekki er þ<, ólíklegt að þetta mál komi upp í einhverri mynd, en ég tek ekki af- stoðu svo langt fram í tímann." Úlafur Jóhannesson sagði einnig aðspurður í gær, að væntanlega myndi það skýrast upp úr miðjum mánuðinum, hvort takast muni að fá framlengingu á fjárveitingu Bandaríkjastjórnar. Háðherrar sjálfstæðismanna logðu fram á ríkisstjórnarfundinum í gær sérstaka bókun fyrir af- gretðslu flugstöðvarmálsins. Þar leggja þeir m.a. áherslu á verulega þátttöku varnarliðsins í fjármögnun flugstöðvar. ... .... Sjá bokun sjalfstæðts- BUSAVÍGSLA Morgunbladið/KÖE Samferða- menn segja frá Ragnari í Smára BÓK um Ragnar Jónsson í Smára er væntanleg nú fyrir jólin, en að útgáfu hennar standa Lögberg, bókaforlag og Listasafn Alþýðu- sambands Islands. Ragnar i Smára, sem ekki er síöur kunnur sem bókaútgefandi í Helgafelli, hefur sem kunnugt er um ára- tugaskeið verið mikill stuðnings- maður hvers konar listsköpunar hér á landi og hann hefur haft frumkvæði aö margvíslegri menn- ingarstarfsemi á sviöi tónlistar, bókmennta, myndlistar og fleiri listgreina. Sverrir Kristinsson, bókaút- gefandi í Lögbergi, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að í bókinni yrðu viðtöl við fjölda samferðarmanna og samstarfs- manna Ragnars í gegnum tíð- ina, en þau hefur Ingólfur Mar- geirsson blaðamaður unnið. Þá er í bókinni ritgerð um Ragnar, ævi hans og störf, og síðast en ekki síst eru litmyndir af 48 listaverkum eftir marga af kunnustu listmálurum þjóðar- innar. Listaverk þessi eru hluti safns þess er Ragnar færði Listasafni ASÍ að gjöf fyrir nokkrum árum. Bókin um Ragnar Jónsson er upphafið að frekara samstarfi Lögbergs og Listasafns ASf um útgáfu listaverkabóka, og eru þegar í undirbúningi bækur um ýmsa þjóðkunna listamenn að sögn Sverris Kristinssonar. Framhaldsskólarnir eru nú sem óðast að byrja vetrarstarfið. f menntaskólunum er sá siður að efna til svokallaðrar busavigslu, þ.e. yngstu nemendur skólans eru teknir í karphúsið. Nemendur Menntaskólans í Hamrahlíð voru með busavígslu í gær, svo og Ármúlaskóli. Á myndinni eru busarnir í MH látnir hneigja sig af kletti í Öskjuhlíðinni fyrir sér eldri nemendum. Geir Hallgrímsson á Varðarfundi í gærkvöldi: Sjálfetæðisflokkur ítrek- ar kröfuna um kosningar Hægt að ná samkomulagi um kjördæmamál — Framlengjum ekki líf ríkisstjórnar sem vinnur gegn grundvallarstefnu flokksins ráðherranna á bls. 2. Irinn sendi skartgripi til Englands Rannsóknarlögreglu ríkisins hefur tekist að hafa upp á send- ingu, sem írinn, er játað hefur að hafa brotist inn í sex skartgripa- verzlanir í Reykjavík, sendi til Fnglands. Skartgripirnir voru komnir í hendur viðtakenda á Knglandi þegar tókst að hafa upp á þeim. Enn skortir talsvert á, að skartgripir, sem stolið var úr verzlunum, séu komnir í leitirn- ar, en talið er að verðmæti mun- anna nemi um 3 milljónum króna. Mikill hluti þýfisins fannst í húsakynnum Ananda Marga-hreyfingarinnar á ís- landi. Gæzluvarðhald yfir íranum var í gær framlengt um þrjár vikur í Sakadómi Reykjavíkur og er rannsókn haldið áfram af fullum krafti. GEIR Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ítrekaði á fundi Landsmálafélagsins Varðar í gærkvöldi, kröfu Sjálfstæðisflokks- ins um, að þing yrði kvatt saman, ríkisstjórnin segði af sér og efnt yrði til nýrra kosninga. Formaður Sjálf- stzeðisflokksins sagði, að menn ættu jafnvel ekki að setja fyrir sig vetrar- kosningar þegar mikið væri í húfi, enda yrði tryggt, að allir gætu neytt kosningaréttar síns. En hann bætti við, að enn væri hægt að bregðast fyrr við, þannig að til vetrarkosninga þyrfti ekki að koma. Geir Hallgrímsson sagði, að sjálfstæðismenn vildu ekki bera ábyrgo á því »ð framlengja þá stjórnmáiakreppu, sem við mundi blasa í allan vetur. „Við erum ekki reiðubúnir að standa að því að nú- verandi ríkisstjórn sitji áfram í þeirri stjórnskipulegu sjálfheldu, sem forsætisráðherra hefur lýst og í þeirri siðferðilegu sjálfheldu, sem hún hefur sjálf komið sér í,“ sagði Geir Hallgrímsson. Þá sagði Geir Hallgrímsson í ræðu sinni, að engin þörf væri á að fórna leiðréttingu á atkvæðahlut- falli milli kjördæma, þótt efnt yrði til kosninga í haust. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna gætu á skömmum tíma komið sér saman um nauðsynlegar leiðréttingar, sem lagðar yrðu fyrir þjóðina í kosningum á næstu mánuðum. Formaður Sjálfstæðisflokksins SKYNDILEG brottför Steingríms Hermannssonar, sjávarútvegsráð- herrá, íi! Amsterdam i gær, kom flatt upp á samráðherra hans óg VS." stjórnarfundinum, sem í fyrradag var boðaður klukkan 11, flýtt í gærmorg- un til klukkan 10 vegna ferðalags sjávarútvegsráðherra í 5 daga frí. Urðu umtæður á fundinum um þetta ferðalag, en Steingrímur bar því við samkvæmt heimildum Mbl., að vandamál sjávarútvegsins yrðu i höndum embættismanna fram yfir helgi. Fór Steingrímur af fundi, þar sem fóru fram umræður um málefni kvaðst hafna þeim kröfum, sem talsmenn ríkisstjórnarinnar hefðu gert til stjórnarandstöðunnar um að greiða fyrir framgangi mála á Alþingi. Með því væri Sjálfstæðis- flokkurinn að framlengja líf ríkis- stjórnar, sem skipulega og mark- útgerðar og byggingu nýrrar flug- stöðvar, nokkru áður en honum lauk og hélt af landi brott. Sjávarútvegs- ráðherra hafði boðað fund með sjó- mönnum í gær, CS af honum varð ekki. „Brottför ráðherrans gefur allra sízt tilefni til frestunar," sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ. Hann sagði einnig: „Á fundi með Steingrími í gærmorgun komu fram hugmyndir þess eðlis, að þær hagga ekki afstöðu okkar, mæta ekki óskum okkar og duga engan visst hefði unnið gegn grundvall- arhugsjónum Sjálfstæðisflokks- ins. Ræða Geirs Hallgrímssonar verður birt í heild í Morgunblað- inu á morgun. veginn. Stjórnvöld biðja ekki um frest á stöðvun flotans og við sjá- um ekki, að þessar hugmyndir gefi okkur tilefni til að fresta neinu.“ Eftir brottför Steingríms eru því alls ijorir fáðherrar erlendis. Ing- var Gíslason, menntamdiaráo- herra, er í Bandaríkjunum; Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, og Tómas Árnason, viðskiptaráð- herra, eru í Kanada. Því fer Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra með öll ráðherraembætti Fram- sóknarflokksins. Brottför Steingríms vakti undrun ráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.