Morgunblaðið - 20.10.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
Ríkisstjórnarfundur í gær:
Áður samþykkt frum-
varp um orlofslög
sent í ráðherranefnd
Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI í gærmorgun voru bráðabirgðalögin og fylgi-
frumvörp til umræðu, en skoðanir manna eru mjög skiptar i þeim herbúðum
um hvernig standa skuli að málum, eins og komið hefur fram í fréttum. I'að
bar til tíðinda á fundinum að þar kastaðist í kekki milli ráðherranna um
frumvarp til breytinga á oriofslögum, en rikisstjórnin hafði samþykkt inni-
hald frumvarps um það í síöustu viku og var Svavari Gestssyni félagsmála-
ráðherra falið að leggja frumvarpið fram eins og það lá fyrir þá. >á voru
ráðherrarnir ekki á eitt sáttir um fleiri atriði þessara mála. Orlofslaga-
frumvarpið, auk annarra hliðarráðstafana sem boðaðar voru með bráða-
birgðalögunum, hafnaði í lok ríkisstjórnarfundarins í þriggja manna
ráðherranefnd til frekari umfjöllunar.
Rússarnir stálu
keppnisbúningum
frá FH-ingum
LEIKMENN FH í handknattleik
urðu fyrir frekar óskemmtilegri
reynslu er þeir léku síðari leik
sinn í Evrópukeppninni í hand-
knattleik síðastliðinn sunnudag í
Zaporozhje i Rússlandi.
Eftir leik liðanna sátu leik-
menn hóf í matsal hótelsins
sem gist var á. Er einn leik-
manna FH brá sér upp á herb-
ergi sitt, sá hann að búið var
að stela öllu keppnisdóti hans.
Er hann fór að gaeta nánar að
öðrum herbergjum á gangin-
um, sá hann mótherja sína,
leikmenn Zaporozhje, þar sem
þeir voru að láta greipar sópa
á herbergjunum. Er þeir urðu
íslenska leikmannsins varir,
höfðu þeir sig á brott hið
skjótasta, en tókst að stela al-
veg frá þremur leikmönnum
FH keppnistöskum, skóm,
búningum og jafnframt galla-
buxum. Höfðu þeir stolið frá
fjórum leikmönnum, en köst-
uðu frá sér einni töskunni er
þeir hlupu út. Virtust þeir vera
á höttunum eftir Adidas-
keppnisskóm, -búningum og
-töskum leikmanna, svo og
gallabuxum.
Ingvar Viktorsson, formaður
handknattleiksdeildar FH,
sagði í viðtali við Mbl. í gær-
kvöldi, að þeir hefðu strax sett
sig í samband við rússnesku
lögregluna, en hún hefði ekk-
ert viljað gera í málinu. Þegar
kvartað var við forráðamenn
Zaporzhje, sögðust þeir kippa
málinu í lag og senda það sem
stolið var til Moskvu. En ekk-
ert slíkt gerðist. Lið FH átti að
koma heim í gærkvöldi, en
flugvélinni frá Moskvu seink-
aði svo rækilega, að liðið
komst fyrst til Kaupmanna-
hafnar í gærkvöldi og kemur
ekki heim fyrr en á morgun.
Fyrir utan húsnæði Iðnnemasambandsins i gærmorgun, þegar sá frestur sem hin nýkjörna stjóm hafði sett fráfarandi
stjórn, var útrunninn, en komið var að húsnæðinu lokuðu. Auglýsingin sem Haraldur Kristjánsson, sem kjörinn var
formaöur Iðnnemasambandsins á þingi þess á sunnudag, heldur á var fest á dyr húsnæðisins, en hún er á þá leið að
skrifstofan sé lokuð vegna undirbúnings að áframhaldi á þingi INSÍ. Til hægri er Þorsteinn Haraldsson, sem kjörinn
var ritstjóri Iðnnemans. i.jósmynd Mbi. köe.
Deilurnar innan Iðnnemasambandsins:
Sambandsstjórn hefur til
athugunar að leita réttar
síns fyrir dómstólunum
„ÉG VIL lýsa furðu minni yfir þessum orðum fyrrverandi formanns
Iðnnemasambands íslands,“ sagði Gunnar Tryggvason, nýkjörinn varafor-
maður INSI i gær þegar Morgunblaðið bar undir hann ummæii fyrrverandi
formanns INSI, Pálmars Halldórssonar í Dagblaðinu og Þjóðviljanum þess
efnis, að það væri flokkspólitísk hreyfing, sem hefði yfirtekið Iðnnemasahi-
bandið, en Gunnar gegnir störfum formanns, þar til afsögn kjörins formanns
Haralds Kristjánssonar, hefur formlega verið dregin til baka og samþykkt.
„Hérna er um að ræða hóp ungs
fólks með mismunandi þjóðfé-
lagsskoðanir, en með það sameig-
inlegt og sem markmið að endur-
reisa iðnnemahreyfinguna. Það er
furðulegt, þegar inn koma nýir
menn með frjóar hugmyndir, að
þeir skuli fá þetta á sig. Vissulega
eru þarna sjálfstæðismenn, jafnt
og menn úr öðrum flokkum, en ef-
laust eru þó flestir óflokksbundn-
Sú fullyrðing fyrrverandi for-
manns í Þjóðviljanum í gær, að
iðnnemasamtökin hafi starfað
óflokkspólitískt á undanförnum
árum, er beinlínis út í hött. Fyrr-
verandi formaður og stjórn hafa
barist hatrammlega fyrir því, að
þing sambandsins ályktaði
flokkspólitískt. Fyrir rúmum
tveimur árum voru ályktanir
Sambandsins slíkar, að halda
hefði mátt að þær væru samdar
beint upp úr stefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins. Gleggsta dæmið um
að þarna hafa ráðið önnur sjón-
armið, en hagur iðnnema er það að
fyrrverandi stjórnarmenn skyldu
draga sig hver og einn út af lista
uppstillingarnefndar og neita að
vera í framboði fyrir iðnnema-
hreyfinguna, eftir að úrslit for-
mannskjörs lágu fyrir. Það sýndi
algjört ábyrgðarleysi gagnvart
Ingvar Gíslason menntamálaráðherra um fjárhagsvanda Háskólans:
Verður að finna ráð til
að beina stúdentum annað
Má til nefna fjöldatakmarkanir — aðgangur þrengdur og gerðar meiri kröfur
Á Alþingi í gær var loft lævi
blandið og þrátt fyrir að ljósatöfl-
ur sýndu að meirihluti þingheims
væri á staðnum voru fáir þing-
menn á ferli. Fáir vermdu sæti sín
í deildum og aðsókn var samt sem
áður óvenjudræm í kaffistofunni
að sögn kunnugra. Álag á síma-
borð Alþingis var þó með því
mesta sem gerist. Með því að
fylgjast með eftirgrennslan og leit
þingvarða að þingmönnum vegna
fundaboða o.fl. kom í ljós að hlið-
arsalirog herbergi voru upptekin í
öllum hornum hússins. Þingmenn
„MÉR er fyllilega Ijóst, að það eru
miklir erfiðleikar í fjárhagsmálum
Háskólans, en það verður reynt að
ráða fram úr þeim. Ég tel að það sé
of mikið sagt að það sé beinlínis
stefnt að því að fækka stúdentum,
en hins vegar er alveg greinilegt að
það verður að finna ráð til þess að
beina stúdentum í aðrar greinar.
Það getur vel farið svo að við stönd-
um frammi fyrir ofvexti Háskólans á
næstu árum og að það verði að fínna
leiðir til að lagfæra það,“ sagði Ing-
var Gíslason menntamálaráðherra
aðspurður um ummæli Guðmundar
K. Magnússonar háskólarektors í
viðtali við Mbl. í gær, en þar segir
Guðmundur m.a. að miðað við nú-
þeir sem blaðamaður Mbl. hitti að
máli voru sammála um að „logn“
virtist vera á yfirborðinu, en menn
voru ekki á eitt sáttir hvort það
„logn“ væri fyrirboði „stórviðris",
eða tákn þess sem við mætti búast
á næstu vikum.
I gærkvöldi hafði ekki verið
boðaður nýr fundur fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar og stjórnarand-
stöðu, en viðmælendur Mbl. úr
hópi þingmanna reiknuðu ekki
með að þær viðræður skiptu sköp-
um um framvindu þjóðmálaum-
ræðunnar.
verandi forsendur í fjárlagafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar muni mest-
allar framkvæmdir við nýbyggingar
skólans stöðvast og rekstur hans
dragast saman. Hann segir það geta
leitt til þess að hætta verði með öllu
eða takmarka mjög inngöngu nýrra
stúdenta í skólann næsta haust.
Ingvar var spurður hvaða leiðir
væru færar að hans mati til að
koma í veg fyrir ofvöxt Háskólans,
eins og hann orðaði það. Hann
svaraði: „Þetta er mjög vandmeð-
farið mál og það hafa engar
ákvarðanir verið teknar um slíkt á
þessari stundu. Þetta er bæði póli-
tískt mál og einnig málefni Há-
skólans sjálfs. Það hefur engin
stefna verið tekin í þessu nú og
verður ekki án ítarlegrar umræðu
milli stjórnvalda og Háskólans.
Hins vegar finnst mér eðlilegt að
kannað verði hvort ofvöxtur sé í
Háskólanum.
Menntamálaráðherra var
spurður í framhaldi af því, hvort
vel menntað fólk væri ekki ein að-
alundirstaða sköpunar þjóðar-
verðmæta. Hann svaraði: „Jú, það
er mjög mikið atriði, en hins vegar
kann að vera að offjölgun háskóla-
menntaðra manna verði að stað-
reynd. Það er heldur ekki heppi-
legt. Við þurfum. menn í fleiri
greinar heldur en þær sem Há-
skólinn skapar. Við verðum einnig
að tryggja það að háskólamenntun
komi að fullu gagni og komi að
notum, bæði fyrir einstaklinginn
og þjóðfélagið.
Aðspurður um hugsanlegar leið-
ir til að draga úr ofvexti Háskól-
ans svaraði Ingvar Gíslason: „Ég
vil nú ekki segja neitt ákveðið um
það, en það kemur sjálfsagt margt
til. Má þar nefna til að mynda
fjöldatakmarkanir í einhverjum
skilningi, — að aðgangur sé
þrengdur og að gerðar verði meiri
kröfur til þeirra sem fara þessa
Ieið.“
iðnnemahreyfingunni í landinu og
var í raun og veru móðgun við
iðnnema almennt," sagði Gunnar.
Þá sagði Gunnar, að boðað hefði
verið til fundar í hinni nýju stjórn
Iðnnemasambandsins klukkan
9.00 um kvöldið og væri hann þess
fullviss að hún myndi taka á mál-
unum af festu og ganga til starfa
af krafti.
Um það hvernig gengi að fá
lyklavöldin að húsnæði sambands-
ins og önnur gögn þess sagði
Gunnar: „Við hringdum í fulltrúa
fyrrverandi stjórnar í gærkveldi,
mánudag, og var þeim gefinn
frestur til klukkan 11.00 í morgun,
til að skila fundargögnum. Þá
voru vinsamleg tilmæli um það, að
þeir yrðu búnir að yfirgefa hús-
næðið fyrir klukkan 12.00. Því var
ekki sinnt, heldur búið að setja
upp auglýsingu á hurð húsnæðis-
ins, undirritaða af starfsmanni
Iðnnemasambandsins, þess efnis
að skrifstofan væri lokuð vegna
undirbúnings undir áframhald af
þingi INSÍ. Það verður lagt fyrir
hina nýju sambandsstjón í kvöld,
hvort nauðsynlegt sé fyrir sam-
bandsstjórnina að leita réttar síns
fyrir dómstólunum," sagði Gunnar
Tryggvason varaformaður Iðn-
nemasambands íslands að lokum.
80 lítrar af
spíra fundust
í Eddunni
ÁTTATÍU lítrar af 95% spíra
fundust við tollleit I fíutninga-
skipinu Eddunni við komu skips-
ins til Reykjavíkur í fyrrakvöld.
Þá fundust 19 flöskur af áfengi,
mest vodka, og þrjú karton af
sigarettum.
Stærstur hluti góssins
fannst í holfi, sem hafði verið
smíðað fyrir aftan aðalvél
skipsins. Eddan var að koma
frá Bretlandi og Portúgal.