Morgunblaðið - 20.10.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
3
Koivisto Finnlands-
forseti kemur 1 dag
FORSETI Finnlands, Mauno Koivisto, og Tellervo kona hans koma í
opinbera heimsókn til íslands í dag í boði forseta íslands, Vigdísar
Finnbogadóttur. Finnsku forsetahjónin dveljast hér í þrjá daga ásamt
14 manna foruneyti sínu, en þar á meðal er finnski utanríkisráðherr-
ann, Per Stenbáck, og kona hans Sissel. Fylgdarmaður Koivistos for-
seta meðan á heimsókninni stendur er Kristín Mántylá skrifstofustjóri
en fylgdarmaður frú Tellervo Koivistos er Trausti Júlíusson BA. í fylgd
með Stenbáck utanríkisráðherra verður Hannes Hafstein sendiherra.
Flugvél forseta Finnlands
lendir á Reykjavíkurflugvelli kl.
11.45 en þar taka á móti gestun-
um forseti íslands og Martin Is-
aksson, hinn nýi sendiherra
Finna á íslandi. Þá verða á
flugvellinum ríkisstjórnin öll
ásamt forseta Hæstaréttar og
forseta Sameinaðs alþingis, auk
borgarstjórans í Reykjavík og
ýmissa embættismanna.
Finnsku forsetahjónin búa í
gestabústað forseta íslands að
Laufásvegi 72 meðan á heim-
sókninni stendur og þangað
halda þau fyrst en kl. eitt hefst
hádegisverður að Bessastöðum.
Að þvi búnu verður Stofnun
Arna Magnússonar skoðuð, en
kl. 16.45 verður móttaka Koiv-
istos forseta í gestabústaðnum
við Laufásveg. Um kvöldið held-
ur forseti íslands veizlu að Hótel
Sögu til heiðurs Koivisto Finn-
landsforseta þar sem gestir
verða um 230 að tölu.
A fimmtudagsmorgun kemur
Finnlándsforseti í skrifstofu for-
seta íslands í Stjórnarráðshús-
inu, en viðstaddir fund forset-
anna verða Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherrar begjya landanna, Per
Stenbáck og Olafur Jóhannes-
son. Að því búnu skoðar Finn-
landsforseti fiskvinnslustöð Is-
bjarnarins og síðan Þjóðminja-
safnið og Listasafn Islands.
Meðan samtalið í forsetaskrif-
stofunni og heimsóknin í Is-
björninn eiga sér stað heimsæk-
ir frú Tellervo Koivisto íslenzk-
an heimilisiðnað og Barnaspít-
ala Hringsins, en heldur að því
búnu í söfnin við Hringbraut, en
að þeirri heimsókn lokinni hefst
hádegisverður í boði Gunnars
Thoroddsen forsætisráðherra og
frú Völu Ásgeirsdóttur i Ráð-
herrabústaðnum. Síðdegis verð-
ur haldið í heimsókn að Brúna-
stöðum i Hraungerðishreppi,
með viðkomu við borholu í
Hveragerði, en í heimleiðinni
verður Mjólkurbú Flóamanna
skoðað.
Á föstudagsmorgun er ráðgerð
ferð til Vestmanneyja, þangað
sem flogið verður með flugvél
Landhelgisgæzlunnar. Þegar
gestirnir hafa skoðað sig um á
staðnum hefst móttaka bæjar-
stjórnarinnar í Eyjum en til
Reykjavíkur verður komið fyrir
hádegi og síðan snæddur hádeg-
isverður í boði Reykjavíkurborg-
ar að Kjarvalsstöðum. Þaðan
verður ekið til Þingvalla og er
gengið hefur verið á Lögberg
þ'KRja gestirnir hressingu í boði
forsætisráðherra og konu hans í
Ráðherrabústaðnum á Þingvöll-
um. Til Reykjavíkur verður kom-
ið um fimmleytið og hálfri
stundu síðar hefst móttaka
Finnlandsforseta fyrir Finna í
Norræna húsinu. Á föstudags-
kvöld halda finnsku forsetahjón-
in forseta Islands og fleiri gest-
um veizlu að Hótel Borg.
Kl. 10 á laugardagsmorgun
lýkur hinni opinberu heimsókn
Koivistos Finnlandsforseta og
konu hans, en þá er áætluð
brottför þotu þeirra frá Reykja-
víkurflugvelli. Eins og fyrr segir
eru fjórtán manns í fylgdarliði
forsetahjónanna en með þotu
þeirra koma auk þess 45 finnskir
fréttamenn.
Sjá viðtal við Koivisto bls. 33.
ÖRNÓLFUR Guðmundsson, vörubílstjórinn sem lá í 14 klukkustundir undir
vörubifreið sinni, þar sem hún hafði farið út af veginum við Dynjandisvog,
reyndist ekki beinbrotinn og fékk hann að fara heim af sjúkrahúsinu á
ísafirði í gær.
Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk sjúkrahúsinu voru meiðsli
Örnólfs mun minni en á horfðist og hlaut hann aðeins mar á hendi og
fæti. Ekki varð honum meint af útivistinni, enda var hann vel búinn,
Samkvæmt upplýsingum Mbl. Ljósmynd Gunnar llillsson
Stefnuræða forsætisráðherra:
U tvarpsumræð-
ur á mánudag
STEFNURÆÐU forsætisráðherra
og umræður um hana verða nk.
mánudagskvöld, 25. þ.m. Umræðun-
um verður útvarpaö og hefjast þær
kl. 20. Dregið var um röð stjórn-
málaflokkanna í umræðunum í
fyrradag og verður hún þessi:
Forsætisráðherra, Sjálfstæðisflokk-
ur, Framsóknarflokkur, Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag.
Samkvæmt 52. gr. þingskapa
skal útvarpa stefnuræðu forsæt-
isráðherra innan tveggja vikna
frá þingsetningu. Ræðunnr skal
dreift til stjórnarandstöðunnar
sem trúnaðarmáli viku fyrir flutn-
ing hennar.
Að venju fara fram tvær um-
ferðir í umræðunum. í fyrri um-
ferð fær forsætisráðherra allt að
30 mínútur til flutnings stefnu-
ræðu sinnar, og þingflokkarnir
síðan 20 mínútur hver. í síðari
umferð fær hver þingflokkur 10
mínútur, einnig sjálfstæðismenn
sem styðja ríkisstjórnina.
Samkomulag
viÖ meiri-
hluta félaga
innan BHM
„ÞAÐ hefur heldur þokazt í sam-
komulagsátt á fundunum undan-
farna daga, en það er ennþá óvissa
um niðurstöðu viðræðna nokkurra
félaga," sagði Ásthildur Erlingsdótt-
ir, formaður launamálaráðs Banda-
lags háskólamanna, BHM, í samtali
við Mbl., er hún var innt eftir stöðu
mála i viðræðum BHM og ríkisins,
en þeim lauk i gærdag.
Samningar hafa í raun tekizt
með ríkinu og meirihluta félaga,
en hins vegar verður samnings-
tilboð ríkisins borið undir félags-
menn í nokkrum félögum á næstu
dögum og niðurstöður ættu að
liggja fyrir undir lok vikunnar.
Það kom fram hjá Ásthildi, að
samningar hafa í raun tekizt um
aðalkjarasamning BHM og ríkis-
ins, sem verður á sömu nótum og
samningur BSRB og ríkisins, en
hann verður hins vegar ekki und-
irritaður fyrr en sérkjarasamn-
ingar einstakra félaga hafa verið
undirritaðir.
Kröfur BHM voru að fá um 25%
hækkun, en ríkið bauð þegar i
upphafi samninga BSRB og ríkis-
ins, sem gerir ráð fyrir liðlega
10% hækkun. Ásthildur sagði að-
spurð, að auðvitað fengju BHM-
menn ekki öllum kröfum sínum
framgengt, enda yrðu menn yfir-
leitt að mætast á miðri leið þegai
tveir deildu.
Hvaö er aö
gerast
um helgina?
ATIIYGLI skal vakin á því, að
efni, sem birtast á í þættinum
„Hvað er að gerast um helg-
ina?“, verður að hafa borizt rit-
stjórn Morgunblaðsins fyrir
klukkan 18 á miðvikudagskvöld-
um. Berist það ekki fyrir þann
tíma, er allt óvíst um birtingu
þess.
Effcktivt vaskepulver
til ajle vaskeprogrammer
Lágfreyðandi Ajax þýöir: gegnumhreinn þvottur meö öllum þvottakerfum.
Með Ajax þvottaeftii
verður mislití þvotturinn alveg
jafii hreinn og suðuþvotturinn.
1. Skjanna-hvítur suðuþvottur
Aj ax þvottaefni inniheldur virk efni sem ganga alveg
inn í þvottinn og leysa upp bletti og óhreinindi strax
í forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök for-
þvottaefni.
2. Tandurhreinn niislitur þvottur
Ajax þvottaefni sannar einnig ótvíræða kosti sína á
mislitum þvotti, því að hin virku efni vinna jafn vel
þó að þvottatíminn sé stuttur og hitastigið lágt.
Þvotturinn verður tandurhreinn og litirnir skýrast.
3. Gegnumhreinn viðkvæmur þvottur
Viðkvæmi þvotturinn verður alveg gegnumhreinn
því að hin virku efni vinnna jafnvel, þó að hitastig
vatnsins sé lágt. Blettir og óhreinindi leysast því
vandlega upp. Ajax þvottaefni hentar því öllum
þvotti jafnvel ...