Morgunblaðið - 20.10.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
5
Sinfóníuhljómsveitin:
Einleikarar eru Eugene
List og Lárus Sveinsson
Ólavur Gregersen
Eimskipafélagið
leigir færeyskt ný-
smíðað frystiskip
EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur
tekið á leigu nýsmíðað frystiflutn-
ingaskip frá Færeyjum, Ólav Greg-
ersen. Mun skipið aðallega flytja
frystan físk milli Islands og Evrópu.
Að sögn Þórðar Sverrissonar,
blaðafulltrúa Eimskipafélagsins,
hefur verið gerður leigusamningur
til 12 múnaða og gengið frá því, að
hægt verði að leigja skipið eitthvað
lengur. Sagði hann ástæðu þess, að
skipið hefði verið tekið á leigu þá,
að vegna þess að frystiskipið Sel-
foss hefði nýlega verið selt, hefði
verið nauðsynlegt að fá annað skip
í stað þess. Einnig væri verið að
gera tilraunir með flutning freð-
fisks á brettum og væri þetta nýja
færeyska skip mjög vel til þeirra
flutninga fallið. Það er mjög full-
komið og meðal annars væri hægt
að ferma það með gaffallyfturum í
gegnum lúgur á hliðum þess.
Þórður sagði einnig, að skipið
væri leigt samkvæmt svokölluðum
þurrleigusamningi, þannig að Eim-
skipafélagið annaöist allan rekstur
þess og áhöfn væri íslenzk utan
skipstjóra og vélstjóra, sem væru
færeyskir.
Skipið er byggt í skipasmiðjunni
á Skála í Færeyjum og var hleypt
af stokkunum fyrir rúmri viku. Það
er 1.500 lestir að stærð, 67,3 metrar
að lengd, 12 metra breytt og ristir
6,5 metra. I því eru tvær lestir og
burðargeta er 1.350 lestir. Eigandi
skipsins er hlutafélagið Dreki í
Götu.
AÐRIR áskriflartónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands verða í Há-
skólabíói annað kvöld. Á efn-
isskrá eru eftirfarandi verk:
Svendsen: Karnival í París, Liszt:
Píanókonsert nr. 1, Shostakow-
itch: Píanókonsert nr. 1, Schu-
mann: Sinfónía nr. 4.
Stjórnandi tónleikanna er að-
alhljómsveitarstjóri hljómsveit-
arinnar, Jean-Pierre Jacquillat,
einleikari á píanó er Eugene
List og einleikari á trompet í pí-
anókonsert Shostakowitchs er
Lárus Sveinsson fyrsti tromp-
etleikari Sinfóníunnar.
Um píanóleikarann Eugene
List segir svo í kynningu frá
Sinfóníuhljómsveit Islands:
„Hann hefur lengi verið talinn
í allra fremstu röð amerískra pí-
anóleikara. Hann fæddist í Fíla-
delfíu en var alinn upp í Kalif-
orníu og kom þar fyrst 10 ára
gamall fram sem einleikari, með
Fílharmoníuhljómsveitinni í
Los Angeles. Tónverkið sem
hann lék var þriðji píanókonsert
Beethovens, stjórnandinn var
Arthur Rodzinski. Síðan hefur
hann leikið með flestum fræg-
ustu og bestu hljómsveitum
heims og haldið óteljandi ein-
leikstónleika um víða veröld.
Meðal stjórnenda sem hann hef-
ur unnið með má telja: Stok-
owski, Klemperer, Koussevitsky,
Mitropoulos Barbirolli, Bern-
stein, Monteux, Reiner, Kleiber
og Maxim Shostakowitch.
Eugene List hefur einnig leikið
inn á yfir 30 hljómplötur."
Athugasemd frá fram-
kvæmdastjóra SR
Vegna þeirra skrifa í dagblöðum
undanfarna daga um uppsagnir
starfsmanna SR á Siglufirði og þá
einkum og sér í lagi um uppsögn
Jóhanns Möller er rétt að eftirfar-
andi komi fram:
Jóhann Möller hefur verið verk-
stjóri hjá SR á Siglufirði í yfir
tuttugu ár og síðustu árin við
löndun loðnu. Sem verkstjóri hef-
ur hann verið trúnaðarmaður fyrir-
tækisins gagnvart þeim starfs-
mönnum, sem hann hefur stjórn-
að, en ekki öfugt eins og fram hef-
ur komið í fjölmiðlum.
Þegar hann sat i stjórn SR var
hann fulltrúi Alþýðuflokksins en
ekki sérlegur fulltrúi starfsmanna
SR og sama er að segja um setu
hans í „Loðnubrestsnefnd".
Hvernig Jóhann telur sig vera
einhvern fulltrúa starfsmanna SR
gagnvart fyrirtækinu er óskiljan-
legt.
I þessum skrifum hefur einnig
verið mikið talað um embættis-
menn fyrirtækisins, en hjá fyrir-
tækinu starfa engir embættis-
menn í þeim skilningi að þeir séu
skipaðir af ráðherra eða hafi lífs-
tíðarráðningu. Framkvæmda-
stjóri er ráðinn af stjórninni en
hann ræður verksmiðjustjóra á
hinum ýmsu stöðum, sem ráða
aðra starfsmenn i verksmiðjun-
um. Þessir stjórnendur eru allir
ráðnir með gagnkvæmum 3ja
mánaða uppsagnarfresti.
Einnig skal það tekið fram að
uppsagnir þær, sem hafa átt sér
Tillaga að útivist-
arsvæði kynnt
SAMKVÆMT ákvörðun skipulags-
nefndar Reykjavíkur hefur verið
ákveðið að kynna tillögu um skipu-
lag á fyrirhuguðu útivistarsvæði í
Sogamýri milli Gnoðarvogs og
Miklubrautar.
Kynningarfundur um þetta efni
verður haldinn í veitingahúsinu
Glæsibæ, miðvikudaginn 20.
október nk. og hefst kl. 20.30.
Frummælandi verður Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson formaður skipu-
lagsnefndar Reykjavíkur. Fundur-
inn er öllum opinn.
stað að undanförnu hafa verið
framkvæmdar samkvæmt ítrekuð-
um samþykktum stjórnar SR, en
mat verksmiðjustjóra á hverjum
stað og framkvæmdastjóra látið
ráða hverjum hefur verið sagt
upp. Jón Reynir Magnússon,
framkvæmdastjóri Síldar-
verksmiðja ríkisins.
Nýja kökuhúsið:
Einar Laxness
les úr nýrri bók
í VETIIR verða bækur kynntar í
Nýja kökuhúsinu við Austurvöll.
Bókaútgefendur og aðrir aðstand-
endur nýrra bóka munu standa að
kynningum þessum í samvinnu við
ísafold og Nýja kökuhúsið.
Höfundar, þýðendur eða aðrir
lesarar munu lesa stutta kafla
úr bókunum og ef ástæða þykir
verða umræður og fyrirspurnir.
Þá munu höfundar árita bækur
sínar.
Fyrsti upplesturinn verður
fimmtudaginn 21. þessa mánað-
ar, kl. 20.30. Einar Laxness les
þá úr bókinni „Jakob Hálfdan-
arson sjálfsævisaga, bernskuár
Kaupfélags Þingeyinga." En
bókin kom út hjá Isafold fyrir
stuttu.
Einar taxness
Inngangur í Nýja kökuhúsið er
frá Austurvelli, en einnig verður
Bókaverslun ísafoldar opin að
Austurstræti.
Bad fram-
kvæmdastjórann
um skýringar
— segir Páll Flygenring
„ÉG IIKINGDI í framkvæmdastjór-
ann og bað hann um að gefa mér skýr-
ingar og sagðist hann ætla að setja
eitthvað niður á blað,“ sagði l’áll Flyg-
erning, ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðu-
neytinu í samtali við Mbl., en hann var
spurður hvort gerðar hefðu verið
athugasemdir vegna utanfarar stjómar
Kísilmálmvcrksmiðjunnar á Keyðar-
firði.
Fram hefur komið í blöðum að
ferð þessi hafi þótt dýr. Páll kvaðst
ekki enn hafa kynnt sér skýringarn-
ar, en framhaldið yrði það að hann
og iðnaðarráðherra myndu kynna
sér málið. Sagði hann að sumt væri
missagt í frétt þeirri sem birst hefði
um málið, þó sumt hafi verið rétt.
Sagði hann að athuga þyrfti hvaða
reglur giltu um ákveðin tilvik í mál-
inu og fyrr væri ekki hægt að skýra
frá málinu opinberlega.
Agætt atvinnu-
ástand á Súdavík
SúAavík. IH. október
ATVINNIIÁSTAND er hér með ágæt-
asta móti um þessar mundir, en togar-
inn Bessi kom til hafnar í dag með 140
tonn af ágætum fiski. l'ppistaöa aflans
er þorskur, en ennfremur er einhver
ýsa.
Þá má geta þess, að litiu bátarnir
Sigrún og Valur hafa aflað þokka-
lega að undanförnu. Komu hér inn í
dag með um 7 tonn.
— Sigurður.
p 11 !Ú r 11 n f -markai iurinn
1 kj allara Kjörgarðs |
Opið kl. 12
daga kl. 12
alla virka daga, fföstu
laugardaga kl. 9—12.
FATNAÐUR:
Á karla — konur — börn.
EFNI:
Efnisbútar, mikiö úrval.
HLJÓMTÆKI:
Videokassettur, hljómtækjaskápar,
samstæöur, magnarar, plötuspilar-
ar, ferðastereotæki, segulbönd, út-
f/i varpstæki, hátalarar, bíltæki, bíl-
loftnet, úr og tölvur.
SKÓR:
Á karla — konur — börn.
Sængurfatnaður — Handklæöi o.fl.
þess háttar. — Leikföng.
ÖS.U-
Karnabær — Belgjageröin — Hljómbær — Skóver