Morgunblaðið - 20.10.1982, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
13
Myndlistarmenn:
Stofnun sambands íslenskra
myndlistarfélaga fyrirhuguð
ÁKVEÐIN hefur verið stofnun
sambands íslenskra myndlistarfé-
laga og verður stofnfundur haldinn
20. nóvember nk. að Hótel Borg.
Að stofnuninni standa eftirtalin
myndlistarfélög: Félag íslenskra
myndlistarmanna, Hagsmunafélag-
ið, Textilfélagið, íslensk grafik,
Myndhöggvarafélagið og Leirlistar-
félagið, en alls hafa þessi félög inn-
an sinna vébanda u.þ.b. 250
manns.
Hin einstöku félög munu
starfa eftir sem áður, en hlut-
verk heildarsamtakanna er að
einbeita sér fyrst og fremst að
hagsmunamálum félaganna.
A fundi með blaðamönnum,
þar sem fulltrúar hinna einstöku
félaga voru saman komnir, kom
fram að stofnun samtakanna
hefði verið lengi í deiglunni, en
fyrst í fyrra hefði málið komist á
verulegt skrið. Ríkir mikill ein-
hugur með mönnum um stofnun
þessara samtaka og enginn hefur
farið „í fýlu“, eins og einn úr
hópnum orðaði það.
Var það hald manna á fundin-
um að ekki væri vanþörf á stofn-
un slíkra samtaka sem ynnu
markvisst að hagsmunabaráttu.
Var á það bent að myndlistar-
menn hér á landi byggju við
mjög ótrygga afkomu, þar sem
þeir væru háðir duttlungum hins
frjálsa markaðar. Töldu fund-
armenn að það væri ekki annað
en sanngirniskrafa að skapa
myndlistarmönnum tryggari af-
komu með auknum starfslaunum
og verkefnum á vegum hins
opinbera. Var í því sambandi
vitnað í kafla úr riti UNESCO,
þar sem fjallað er um stöðu og
rétt iistamanna. Þar segir:
„Aðildarlöndunum ber að
vernda og styrkja stöðu lista-
manna með því að líta svo á að
vinna listamannsins, bæði í nýju
og hefðbundnu formi, sé þjóðfé-
lagsleg nauðsyn. Aðildarlöndun-
um ber að meta þannig störf
listamanna að þeir fái notið sín
og hljóti það fjárhagslega öryggi
sem þeim ber fyrir starf sitt að
menningarmálum."
Eigi að síður vildu fundar-
menn ekki gera lítið úr þeim
árangri sem náðst hefði í hags-
munabaráttunni. Voru t.d. nefnd
lög um listskreytingasjóð ríkis-
ins sem samþykkt voru sl. vor, en
aðalatriði þeirra er að 1% bygg-
ingarkostnaðar skal varið til
skreytinga. Þá kom fram að verið
er að endurskoða lög Listasafns
Islands og umræða er í gangi um
launasjóð myndlistarmanna.
Af óleystum hagsmunamálum
myndlistarmanna var m.a. nefnd
krafan um dagleigu- og sýn-
ingargjöld fyrir verk sem sýnd
eru á opinberum vettvangi. Þessi
LjótfmyiMjir Mbl. Kmilia.
Fulltrúar mvndlistarmanna sem voru á blaðamannafundinum í Norræna
húsinu.
krafa er samnorrænt baráttumál
listamanna um þessar mundir,
og stendur nú yfir dreifing
veggmyndar um öll Norðurlönd
með þessari kröfu skrifaðri á öll-
um Norðurlandamálunum. Er
þetta gert í sambandi við 14.
október, sem er baráttudagur
myndlistarmanna á Norðurlönd-
um.
Borgarfjörður:
Fengu ekki póstinn
vegna verkfallsins
Borgarnosi, 14. október.
VERKFALL mjólkurfræðinga hafði
ýmis fleiri áhrif í sveitunum en þau
að bændur gátu ekki losnað við
mjólkina nema niður um ræsið. Eitt
er það að sveitafólkið hér í hérað-
inu fékk ekki póstinn sinn.
Þótti mörgum það kúnstugt að
fá ekki póstinn sinn þó að 7
mjólkurfræðingar í Borgarnesi
væru í verkfalli. Þetta kemur
auðvitað til af því að mjólkurbíl-
stjórarnir sjá um póstdreifing-
'™9 á flesta bæi ofif meðan ekki
var hægt að ná í mjólkina fengu
menn heldur ekki póstinn sinn.
Stöðvarstjóri Pósts og síma í
Borgarnesi sagði í samtali við
Mbl. að aðeins hefði fallið niður
ein ferð þannig að póstleysisins
hefði lítið verið farið að gæta.
Hann sagði að þegar hefði verið
farið að undirbúa dreifingu
póstsins með öðrum hætti en til
þess hefði ekki þurft að grípa þar
sem verkfallið leystist það fljótt.
HBj.
MorgubL/HBj.
Þctta er fáséð sjón núorðið nema í verkfollum. Bændurnir fengu heldur ekki
póstinn þó mjólkurfræðingar færu í verkfall.
Hjálmlausir striplingar
GEORGE Stainthorpe og farþegi
hans urðu heldur betur einkenni-
legir á svipinn er lögregluþjónn
stöðvaði vélhjól þeirra í Durham.
Lögregluþjónninn kærði þá fyrir of
hraðan akstur og að vera ekki með
öryggishjálma. Það var kæran sem
stakk þá félaga, þeir bjuggust við
öðru og meira, því þeir voru báðir
kviknaktir á hjólinu!
Þannig var mál með vexti, að
þeir höfðu brugðið sér afsíðis
ásamt nokkrum félögum sínum
til að fá sér hressandi bað í lækj-
arsprænu. „Vinirnir" fengu þá
hugmynd að gera at, tóku fötin
og brunuðu af stað, en Stain-
thorpe og félagi veittu þeim þeg-
ar glæfralega og áberandi eftir-
för. Lögreglan skarst í leikinn
þar sem piltarnir óku heldur gá-
leysislega. Voru þeir sektaðir
fyrir að nota ekki hjálma eins og
fyrr segir, auk þess sem farþeg-
inn var sektaður fyrir að segja
rangt til nafns.
Ljósmæður útskrifast
Nýlega útskrifuðust 15 nýjar Ijósmæður frá Ljósmæðraskóla íslands. Þær eru í fremri röð talið frá vinstri: Kristín
Nieisen, Eva S. Einarsdóttir, kennari, prófessor Sigurður S. Magnússon, skólastjóri, Kristín I. Tómasdóttir, yfirljós-
móðir, Jón Þ. Hallgrímsson, sérfræðingur við Kvennadeild Lsp., kennari, Emma Tryggvadóttir, Hildur Nielsen. f
aftari röð frá vinstri: Björg Sigurðardóttir, Sigríður Þórhallsdóttir, Hanna Kristín Guðjónsdóttir, Anna Elísabet
Jónsdóttir, Laufey Helgadóttir, Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Friðrika Þórunn Árnadóttir,
Kristín Blöndal Magnúsdóttir og Eva Ásrún Albertsdóttir.
ÓVENJULEG GJÖF
FRÁ FYRIRTÆKINU?
Sérunnir listmunir.
■ggqMUR Qff
Sérmerktar gjafir
fyrirtækja^
HÖFÐABAKKA9
SÍMI 8 54 11
REYKJAVÍK