Morgunblaðið - 20.10.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
Kjarnorkutilraun-
um fjölgar í Nevada
\\ a.shint'lon, 19. októher. Al*.
Bandaríkjamenn hafa sprengl fleiri kjarnorkusprengjur í tilraunaskyni á
þessu ári en nokkru ödru frá 1970, samkvæmt opinberum tölum.
Skýrt hefur verið frá að 17
sprennjur hafi verið sprengdar í
Nevada-eyðimörkinni það sem af
er þessu ári, en fróðir menn setya,
að aldrei sé skýrt frá öllum til-
raunasprenginKum, sem eigi sér
stað á hverju ári.
Flestar voru sprengingarnar 23.
september þegar sprengdar voru
þrjár sprengjur sama daginn.
Árið 1970 voru 30 kjarnorku-
sprengjur sprengdar neðanjarðar
í Nevada-eyðimörkinni norðvestur
af Las Vegas. Ekki hefur verið
sprengt ofanjarðar frá 1963 á til-
raunasvæðinu.
Talsmaður orkuráðuneytisins
sagði í dag að Bandaríkjamenn
væru að koma nýtízkulegri vopn-
um fyrir í vopnabúrum sínum og
væri unnið að því að gera þau ör-
uggari í meðförum.
Fjárframlög til kjarnorkutil-
rauna hafa rúmlega tvöföldast frá
því Ronald Reagan komst til
valda, og nema 354 milljónum
dollara á þessu ári.
V ændiskonurnar
vilja borga skatta
l'ordcnonf, Ítalíu. 19. októbcr. Al*.
TVÆK ítalskar gleðikonur hafa nú
komið af stað herferð í ítalska
bænum l'ordenone fyrir því að fá
viðurkenningu á starfsgrein sinni,
en vændi var bannað á Ítalíu fyrir
25 árum. Konurnar, sem ekki voru
nafngreindar, brugðust ókvæða við
cr banki þar í bæ neitaði að veita
þeim ávísanahefti eftir að þær
höfðu ritað á umsóknir sínar að
þær væru vændiskonur.
Vændiskonurnar hafa fengið
hinar 500 vændiskonur borgar-
innar í lið með sér, einnig sam-
tök sem hafa að leiðarljósi að
berjast fyrir róttækum málum.
Talsmaður þeirra samtaka, Dora
Pezzili, sagði að vændiskonurnar
vildu fyrir alla muni fá viður-
kenningu á starfsgrein sinni, dá-
litla virðingu og í staðinn myndu
þær greiða skatta af tekjum sín-
um, en til þessa hafa þær ekki
gert það, enda vændi bannað
sem fyrr segir.
Hagfræðiverð-
laun veitt í dag
Slokkhólmi, 19. októb4‘r. Al\
TILKYNNT verður á fimmtudag,
hver hlýtur bókmenntavcrðlaun
Nóbels, að því er sænska akademían
tilkynnti í dag.
Tilkynnt verður klukkan tólf á
hádegi að íslenzkum tíma hver
verðlaunin hlýtur.
Þá verður tilkynnt á morgun,
miðvikudag, hver hlýtur Nóbels-
verðlaunin í hagfræði.
Aðeins er eftir að úthluta bók-
mennta- og hagfræðiverðlaunum
Nóbels að þessu sinni, en áður er
lokið úthlutun læknisfræði-, eðlis-
fræði-, efnafræði- og friðarverð-
launa Nóbels.
Nóbelsverðlaunahafar fá í sinn
hlut hver 1,15 milljónir sænskra
króna, eða jafnvirði rúmra 157
þúsund dollara.
Glæpum í
Japan fjölgar
Tókýó, 19. oklób(‘r. Al\
GLÆPUM fjölgaði í Japan árið
1981, og hafa aldrei verið fleiri í 32
ár, samkvæmt opinberri skýrslu,
Nancy Víet-
nömum erfið
Bangkok, Thailandi. 19. október. Al\
FELLIBYLIIRINN Nancy kom
við í Víetnam á leið sinni frá
Suður-Kínahafi og varð talsverð
eyðilegging i kjölfarið.
Um miðbik landsins fóru til
dæmis hrísgrjónaekrur á kaf í
flóðum sem fylgdu óveðrinu.
Fóru 60.000 hektarar undir
vatn í þremur sýslum og þótti
þessi ógæfa koma á versta
tíma þ.e. skammt var í upp-
skeru. Það var útvarpið í
Hanoi, höfuðborg Víetnam,
sem greindi frá óveðrinu og gat
þess að talsverð eyðilegging
hafi einnig orðið á mannvirkj-
um. Ekki var getið um mann-
tjón. Nancy er þriðji fellibylur-
inn sem veður yfir landið á
fremur skömmum tíma.
sem birt var í dag. Hefur einkum
orðið mikil fjölgun á ofbeldisverkum
unglinga.
Alls var tilkynnt um 1,46 millj-
ónir glæpa í Japan árið 1981, þar
af 1,26 milljónir þjófnaða, og var
þar um að ræða 7,8% fjölgun frá
árinu áður.
Þjófnaðir hafa ekki verið fleiri á
einu ári frá 1945, en hið opinbera
kveðst ekki hafa skýringar á þess-
ari fjölgun.
Þá varð mikil fjölgun á fangels-
unum unglinga innan tvítugs árið
1981, en þá voru 303 þúsund ungl-
ingar lokaðir inni, en þar er einnig
um að ræða met frá því eftir 1945.
Fangelsanirnar jafngilda því að
17,2 unglingar af hverju þúsundi
unglinga hafi verið læstir á bak
við lás og slá, en það er um helm-
ingi hærra hlutfall en hjá full-
orðnum.
Stöðugt fjölgar glæpum, sem
flokkaðir eru undir tölvusvindl, en
árið 1981 voru 288 tilfelli af því
tagi, miðað við 64 tilfelli 1977.
Glæpir þessir felast flestir í fölsun
greiðslukorta, og korta til þcss að
taka peninga út úr sjáífvirkum
bankavélum.
V er kamannaflokkur
vinnur á íhaldsflokk
l-ondon, 19. október. Al\
Verkamannaflokkurinn brezki
sækir nú á íhaldsflokkinn að
vinsældum, samkvæmt skoðana-
könnun, sem birt var í dag, og er
talið að það eigi sinn þátt í því að
Falklandseyjadeilan fyrnist í hug-
um kjósenda.
Samkvæmt könnuninni, sem
kennd er við MORI-stofnunina,
hlyti íhaldsflokkurinn 42% at-
kvæða ef kosið væri nú, Verka-
mannaflokkurinn 33%, kosn-
ingabandalag Jafnaðarmanna-
flokksins og Frjálslynda flokks-
ins 23% og minni flokkar 2%.
Forskot íhaldsflokksins á
Verkamannaflokkinn er nú níu
prósent, en var 12% í sams kon-
ar könnun MORI fyrir mánuði,
og 20% í júní sl. þegar Falk-
landseyjadeilan stóð sem hæst.
I könnuninni í júní naut
íhaldsflokkurinn fylgis 48%
kjósenda, Verkamannaflokkur-
inn 28% og kosningabandalagið
23%, eða sömu vinsælda og nú.
Jafnframt þessu hafa per-
sónuvinsældir Michael Foot
leiðtoga Verkamannaflokksins
aukist úr 14% í sumar í 22%.
Hins vegar voru 46% kjósenda
ánægðir með Thatcher forsæt-
isráðherra, og jafnmargir
óánægðir.
MORI-stofnunin gerði könn-
unina fyrir kvöldblaðið Stand-
ard, og sagði í blaðinu, að þótt
Thatcher nyti hylli helmingi
fleiri kjósenda en Foot, væri
í tilkynningu ráðuneytisins
sagði að flugmaðurinn hefði óskað
eftir hæli sem pólitískur flótta-
maður og að hann vildi fá að flytj-
ast til þriðja landsins.
Talsmaður ráðuneytisins vildi
ekki segja hvert flugmaðurinn
óskaði að flytjast, eða hversu
langur tími liði þar til mál hans
yrðu afgreidd, en það yrði þó ekki
fyrr en að undangenginni rann-
sókn á flóttanum.
ekki þar með tryggt að flokkur
hennar sigraði í næstu kosning-
um. Fastlega er við því búist að
Thatcher efni til kosninga á
næsta ári, þótt kjörtímabil
hennar renni ekki út fyrr en í
maí 1984.
Stjórnin á Taiwan hefur látið í
ljós áhuga á að taka við flugmann-
inum.
Jafnframt var frá því skýrt, að
tveir kínverksir hermenn hefðu
flúið til Suður-Kóreu á lítilli
flutningaflugvél af gerðinni AN-2
15. september 1961. Ekki var sagt í
tilkynningu ráðuneytisins hvaða
örlög þeir hefðu hlotið, eri heim-
ildir hermdu að þeir hefðu flust til
annars lands.
Herflugmaður
biður um hæli
Seoul, 19. október. AP.
VARNARMÁLARÁÐUNEYTI Sudur-Kóreu staðfesti í dag að kínverskur
orustuflugmaður hefði flúið til S-Kóreu í herþotu sinni, sem er af gerðinni
MiG-19, á laugardag.
Útlendingum fjölgar í
bandarískum skólum
New York, 19. október. AP.
FJÖLDI erlendra námsmanna í Bandaríkjunum hefur stóraukist á síð-
ustu árum og er hann nú tvöfaldur á við það, sem gerðist 1976. Þessar
upplysingar komu í dag frá Alþjóðamenntastofnuninni í New York en þar
sagði einnig, að á þessum sama tíma hefði bandarískum langskólanem-
endum stöðugt verið að fækka.
Á skólaárinu 1981—’82 stund-
uðu 326.299 erlendir menn nám
við æðri menntastofnanir í
Bandaríkjunum, 6% fleiri en ár-
ið áður, og er búist við að þeim
eigi eftir að fjölga enn á næstu
árum. Innlendum námsmönnum
hefur hins vegar verið að fækka
og af þeim sökum leita margar
menntastofnanir annarra leiða
við að fylla kennsiustofurnar og
þá fyrst og fremst með því að
laða til sín útlendinga.
Margir erlendu námsmann-
anna eru frá þriðja heiminum
þar sem samfélagið og flestir
siðir eru með allt öðrum hætti
en í Bandaríkjunum. Sumir eiga
í erfiðleikum vegna ónógrar
enskukunnáttu, þeim finnst
frjálsleg afstaða Bandaríkja-
manna til kynlífsins hneykslan-
leg og eiga í vandræðum með að
bindast tilfinningalegum tengsl-
um við hina innfæddu. Þetta
veldur því að þeir einangrast fé-
lagslega og ná minni árangri í
náminu en ella hefði verið.
Ýmislegt er nú gert til að búa
erlenda nemendur betur undir
lífið í Bandaríkjunum og eru
nemendasamtökin óspart virkj-
uð í þeim tilgangi. Reynt er að fá
þá til að taka þátt i félagsstarf-
seminni, þeim er boðið heim til
bekkjarfélaganna og svo um
hnútana búið að þeir fái ekki
tækifæri til að draga sig inn í
einhverja vanmáttarskel eins og
oft vill verða með útlendinga í
Bandarikjunum, einkum þá, sem
koma frá ríkjum þriðja heims-
ins.