Morgunblaðið - 20.10.1982, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
PlKrgui Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 130 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakiö.
Mauno Koivisto
fagnað
Forseta Finnlands, Mauno
Koivisto, konu hans Tell-
ervo, utanríkisráðherra
Finna Per Stánbeck, eigin-
konu hans og fylgdarliði er
fagnað, þegar þau hefja
opinbera heimsókn sína hér á
landi í dag. Þótt lengst sé
milli Finnlands og íslands af
Norðulöndum í lengdarbaug-
um talið, gefur það alls ekki
rétta mynd af samskiptum
þjóðanna á norrænum vett-
vangi og þeim hug sem þær
bera hvor í annars garð.
Þjóð vor kann þakkir öllum,
sem þora að berja á tröllum,
þótt hæði þann hetjuanda,
heiglar kúgaðra landa.
Hver, sem lyginni lýtur,
lögmálið æðsta brýtur.
Heill þeim, er sannleikann segja
að svíkja hann er að deyja.
Þannig orti þjóðskáldið
Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi í Ijóðinu Kveðja til
Finnlands sem flutt var í Há-
skóla íslands við komu
finnsku forsetahjónanna á
sínum tíma. Þessi orð eiga
enn við þegar íslendingar
bjóða finnsk forsetahjón
velkomin til lands síns.
Öllum ber saman um að
Mauno Koivisto skipi for-
setaembætti lands síns með
miklum sóma. Forsetahjónin
njóta í senn virðingar og
vinsælda. Forveri Koivisto í
embætti, Uhro Kekkonen, var
í senn sterkur og umdeildur
maður. A löngum ferli sínum
tókst honum að sigla milli
skers og báru í alþjóðamál-
um. Það er ekki auðvelt að
taka við embætti af slíkum
manni. Koivisto gerir sér
grein fyrir vanda sínum. í
viðtali við Morgunblaðið í
dag segir hann: „Það dugir
ekki að hugsa sífellt um hvað
annar maður gerði og hvernig
hann mundi bregðast við.“
Einmitt sú staðreynd að
Koivisto lætur slík orð falla í
blaðasamtali er ef til vill
skýrasta merki þess, að hann
ætlar að skapa sitt eigið
tímabil í finnskri sögu.
Völd forseta Finnlands eru
meiri en forseta íslands þótt
íslenski þjóðhöfðinginn sé
kjörinn beinni kosningu af
allri þjóðinni en hinn finnski
sé kosinn óbeinni kosningu af
kjörmönnum. Finnlandsfor-
seti hefur bein afskipti af
stjórnmálum. Hann er yfir
flokkaríg hafinn en er ekki
afskiptalaus, og það eru eink-
um utanríkismálin sem hann
hlutast til um telji hann
ástæðu til þess. Vegna nábýl-
isins við Sovétríkin, hið öfl-
uga herveldi og tækifæris-
sinnaða nágranna, hvílir það
ekki síst á herðum Finn-
landsforseta að þræða hinn
þrönga stíg, sem skapar hóf-
samt jafnvægi gagnvart
Kremlverjum.
Mauno Koivisto er alls ekk-
ert um orðið „finnlandí-
sering“ gefið og kallar það
„hræðsluorð" blaðamanna í
leit að sökudólgi. Afstaða for-
setans er skiljanleg, því að
engin sjálfstæð þjóð getur
unað því hlutskipti til lengd-
ar, sem nú orðið felst í hug-
takinu „finnlandísering". Óg
spyrja má hvort þetta
„hræðsluorð" hafi ekki ein-
mitt hvatt til árvekni og
nauðsynlegrar varðstöðu? I
viðtalinu við Morgunblaðið
segir forsetinn um utanrík-
isstefnu Finnlands: „Hags-
munir okkar eru fyrst og
fremst í því fólgnir að búa í
friði og sátt við aðrar þjóðir
og þá vitaskuld ekki síst
nágrannaþjóðirnar. Slíkt er
forsenda þeirrar almennu
velmegunar sem leitast er við
að ná. Við höfum fullt at-
hafnafrelsi og rekum póli-
tíska og menningarlega
stefnu sem er hin rétta fyrir
okkur.“
Fyrir annarra þjóða menn
er ógerlegt að setja sig í spor
Finna, en allar þjóðir hvort
heldur þær eru hlutlausar,
utan hernaðarbandalaga eða
í slíkum bandalögum hljóta
að fylgja sömu utanríkis-
stefnu og forsetinn lýsir í
hinum tilvitnuðu orðum. Mið-
að við sovéskt ofríki og til
dæmis innrás sovéska hers-
ins í Afganistan þarf engan
að undra þótt samhliða að-
dáun á jafnvægislist Finna
gæti kvíða yfir því, að
Kremlverjum takist að
þrengja að finnsku fullveldi.
Af yfirlýsingum finnskra
ráðamanna má draga þá
ályktun að samstaða Norður-
landa veiti þeim ákjósanlegt
svigrúm. Þessi þáttur hins
norræna samstarfs er ekki
oft til umræðu, en áhugi
Finna á góðu og einlægu
norrænu samstarfi er óum-
deildur og þeir eru til þess
búnir að leggja ýmislegt á sig
vegna þess eins og til dæmis
síðast hefur sannast hér á
landi með stofnun finnsks
sendiráðs í Reykjavík.
Morgunblaðið býður for-
seta Finnlands og föruneyti
hans velkominn til íslands
með lokaorðum í ljóði Davíðs
Stefánssonar:
Island mun aldrei bresta
ástúð til slíkra gesta.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐMUND HALLDÓRSSON
Andropov treystir
stöðu sína í Kreml
ÁTTA mánuðum eftir að hugmyndafræðingurinn Mikhail Suslov lézt
virðist öðrum forystumanni sovézka kommúnistaflokksins, Andrei Kiril-
enko, hafa verið vikið úr embætti. Sérfræðingar telja þó að Leonid
Brezhnev forseti sé ennþá traustur í sessi, þótt heilsuveill sé, en sú
breyting sem verður á valdahlutföllunum í yfirstjórn flokksins verður
mikilvæg. Enn bendir ekkert til þess að Brezhnev sé fús að leggja niður
völd og þvi er ekki vitað hvenær óhjákvæmiiegar breytingar í flokks-
stjórninni verða gerðar.
að sem fyrst benti til þess
að Kirilenko hefði verið
vikið úr embætti var að hann
skrifaði ekki undir minningar-
grein í Pravda um annan
flokksstarfsmann. Síðan fréttist
að myndir af honum yrðu fjar-
lægðar úr opinberum bygging-
um. Sagt var að brottvikning
Kirilenkos stafaði eingöngu af
því að hann væri við slæma
heilsu. Hann er 76 ára gamall og
hefur um tíma þjáðst af æða-
kölkun.
Kirilenko var einn af átta
flokksriturum og fór með skipu-
lagsmál flokksins, stjórnun iðn-
fyrirtækja og efnahagsmál sov-
étblakkarinnar. Ekki er lengra
síðan en í fyrrasumar að vest-
rænir sérfræðingar töldu Kiril-
enko einn þeirra manna, sem
helzt kæmu til greina sem aðal-
leiðtogi flokksins ef Brezhnev
segði af sér eða létist. Helzti
keppinautur hans var talinn
Konstantin Chernyenko, sem
hefur komið fram í hlutverki
eins konar framkvæmdastjóra
Brezhnevs síðan Suslov lézt. Síð-
an hefur Yuri Andropov, fyrr-
verandi yfirmaður öryggislög-
reglunnar KGB, verið talinn
helzti keppinautur Chernyenkos
í stað Kirilenkos og tekið við
nokkrum af fyrri störfum Susl-
ovs síðan hann var kjörinn einn
af flokksriturunum í maí.
Eftir brottvikningu Kirilenkos
hefur fulltrúum í stjórnmálaráð-
inu fækkað í 12 og talið er að
eftirmaður hans verði valinn á
næsta fundi miðstjórnarinnar.
Ýmislegt þykir benda til þess að
eftirmaður hans verði Vladimir
Dolgikh, sem er tiltölulega ung-
ur (58 ára) og er aukafulltrúi í
stjórnmálaráðinu. Hann þykir
hæfur maður og skipulagði iðn-
aðarmál í Síberíu við góðan orð-
stír. Sennilegt er talið að hann
verði valinn forsætisráðherra
þegar Nikolai Tikhonov, sem er
77 ára gamall, lætur af því
starfi.
Að undanförnu hefur óvenju-
mikið borið á Dolgikh og öðrum
tiltölulega ungum leiðtoga,
Mikhail Gorbachev, sem er 51
árs gamall og yngsti fulltrúinn í
stjórnmálaráðinu. Aðrir menn
úr æðstu forystunni hafa látið
lítið á sér bera síðustu þrjá mán-
uði, en Gorbachev og Dolgikh
hafa verið áberandi þegar er-
lendir leiðtogar hafa komið í
heimsókn. Þeir hafa verið tíðir
gestir á alþjóðlegum sýningum
og í diplómataboðum, þar sem
þeir hafa mikið spjallað við er-
lenda fulltrúa.
Lítið bar á þessum mönnum
opinberlega þar til í haust og
kunnugir telja að í gangi sé her-
ferð tií að kynna þá erlendis og
veita þeim reynslu í alþjóðamál-
um. Vestrænir fulltrúar, sem
hafa hitt þá að máli, bera þeim
vel söguna, einkum Gorbachev,
sem er sagður mjög alúðlegur og
fullur sjálfstrausts. Traust staða
Gorbachevs kemur á óvart, þar
Fedorchuk
sem hann hefur stjórnað land-
búnaðinum síðan hann tók sæti í
æðstu forystunni fyrir tveimur
árum og á þeim tíma hefur hon-
um ekki tekizt að stöðva öfug-
þróunina á því sviði og undir
venjulegum kringumstæðum
hefði léleg uppskera síðustu
tveggja ára veikt stöðu hans.
Skýringin á velgengni Gorb-
achevs virðist sú að hann hafi
áhrifamikla stuðningsmenn í
flokksstjórninni og þeirra helzt-
ur er sennilega enginn annar en
Andropov. Vera má að Gorbach-
ev verði valinn æðsti eða næst-
æðsti maður flokksins. Hvor
staðan það verður fer sennilega
eftir því hve lengi Brezhnev, sem
er tæplega 76 ára, verður við
völd og hvort Andropov tekur
við af honum strax eða velur sér
það hlutverk, sem Suslov hafði,
að vera valdamikill að tjalda-
baki.
Andropov hefur ekki sézt
opinberlega í rúman mánuð og
fréttir herma að hann sé að
hvíla sig, þótt aðrar heimildir
hermi að hann vilji láta lítið
bera á sér meðan hann reyni að
efla valdaaðstöðu sína. Ándro-
pov, sem er 68 ára gamall, hefur
lengi verið heilsuveill og það
gæti haft mikið að segja þegar
eftirmaður Brezhnevs verður
valinn. Ýmislegt bendir til þess
að þeirri skoðun vaxi fylgi innan
kommúnistaflokksins að ekki
eigi að kjósa annan gamlan
mann eftirmann Brezhnevs.
Ýmsir flokksstarfsmenn fara
hjá sér út af hrörleika Brezhn-
evs og telja veikindi hans nei-
kvæð fyrir stjórnarstefnuna.
Margir gefa í skyn að Andropov
yrði lítt skárri, þar sem hann sé
líka hrumur.
Kastljósið hefur að undan-
förnu beinzt að eftirmanni
Andropovs í KGB, Vitaly Fedor-
chuk hershöfðingja, sem hefur
alla tíð starfað í öryggislögregl-
unni. Óvenjulegt þótti að blöðin
birtu forsíðumynd þar sem hann
stóð beint aftan við Chernyenko
er þeir voru að taka á móti þjóð-
arleiðtoga Eþíópíu, Haile Mari-
am, ásamt Brezhenv og fleiri
Kremlverjum. Undir stjórn Fed-
orchuks hefur KGB gripið til
strangra ráðstafana gegn þeim
fáu andófsmönnum, sem eftir
eru í Sovétríkjunum, og baráttu-
mönnum gyðinga. Þrýstingur á
útlendinga hefur einnig aukizt.
Mikil fækkun beinna símalína
vestur fyrir járntjaldið auðveld-
ar jafnframt KGB að fylgjast
með símtölum til útlanda.
Þessi nýja harka er undarleg,
þar sem andófshreyfingin er í
molum. Verið getur að Fedor-
chuk vilji láta að sér kveða í
hinu nýja starfi, en enginn einn
embættismaður geti tekið svo
mikilvæga ákvörðun, allra sízt
pólitískur utangarðsmaður eins
og hann. Ef til vill hafa yfirvöld
ákveðið að útrýma pólitísku and-
ófi fyrir fullt og allt og almenn-
ingsálitið á Vesturlöndum, sem
líklega hefur dregið úr hörku
sovézkra yfirvalda hingað til,
hefur lítil áhrif í Moskvu nú orð-
ið, þar sem samskipti Rússa og
Bandaríkjamanna eru í svo mik-
illi lægð.
Fedorchuk er skjólstæðingur
Andropovs, en skipun hans í
stöðu yfirmanns KGB kann að
hafa stafað af því að fulltrúarnir
í stjórnmálaráðinu vilji ekki að
stjórnmálamaður stýri öryggis-
lögreglunni á meðan millibils-
ástand ríkir í Rússlandi. Val eft-
irmanns Brezhnevs er mál mál-
anna í sovézku forystunni, þótt
heilsa Brezhnevs sé miklu betri
en fyrr á árinu. Enginn veit hve
lengi þetta millibilsástand á eft-
ir að standa, en vestrænir sér-
fræðingar telja að hin nýja
harka innanlands sýni að sov-
ézkir valdamenn vilji vera vel á
verði gegn því álagi, sem mun
skapast þegar Brezhnev hverfur
af sjónarsviðinu. Sem fyrr er
Andropov þrátt fyrir allt talinn
líklegasti arftaki Brezhnevs, þar
sem hann hefur beztu valdaað-
stöðuna ti! að taka við af honum,
og verið getur að hann útnefni
Gorbachev „krónprins" sinn frá
byrjun.