Morgunblaðið - 20.10.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
17
Á blaöamannafundi Landsráös gegn krabbameini í ráðherrabústaðnum í gær.
Þjóðarátak gegn krabbameini:
Landssöfiiun fer fram 30. okt.
Fjárþörfin talin um 15 millj.
LFNT verður til landssöfnunar á vegum Landsráðs gegn
krabbameini laugardaginn 30. október nk. Hér er um að
ræða lið í áætlun um þjóðarátak gegn krabbameini sem nú
stendur yfir. Er fjárþörf talin um 15 millj. kr., en það er um
70 kr. á hvert mannsbarn í landinu, unga sem aldna.
l>etta kom m.a. fram á blaðamannafundi í gær, þar sem
gerð var grein fyrir framkvæmd landssöfnunarinnar. Auk
þess var ýmsum tölulegum upplýsingum komið á framfæri um
bættar lífshorfur krabbameinssjúklinga hérlendis, sem birtar
eru hér á síöunni.
Meðal þeirra sem ávörpuðu
fundargesti voru forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir,
forsætisráðherra dr. Gunnar
Thoroddsen og biskupinn yfir
íslandi hr. Pétur Sigurgeirsson,
en þau skipa heiðursráð Lands-
ráðs gegn krabbameini.
í upphafi flutti Eggert Ás-
geirsson, formaður fram-
kvæmdanefndar Landsráðsins
ræðu. Hann gat þess að Lands-
ráð gegn krabbameini hafi verið
stofnað 4. maí sl. í þeim tilgangi
að beita sér fyrir að þjóðin sam-
einaðist í að vinna gegn hinum
mikla vágesti sem krabbamein-
ið er með því að gera Krabba-
meinsfélagi íslands kleift að
ráðast í ný og stærri verkefni.
Eggert sagði ennfremur að aðil-
ar að Landsráðinu væru nú 61.
Þar væru flest helztu samtök
þjóðarinnar á sviði heilbrigðis-,
menningar-, félags-, viðskipta-
og stjórnmála.
Það kom fram á fundinum að
í undirbúningi er á vegum
Krabbameinsfélags íslands
nýbygging við Hvassaleiti sem
rúma mun þá starfsemi sem
fyrirhuguð er. Jafnframt verða
húseignir félagsins við Suður-
götu seldar, en vegna þrengsla
þar er ekki unnt að þróa frekari
leitarstarfsemi félagsins. Gert
er ráð fyrir að taka húsnæðið í
notkun í áföngum en fullbyggt
verður það þrisvar sinnum
stærra en núverandi húsnæði.
Með tilkomu hins nýja húss
verður Krabbameinsfélagi Is-
lands gert kleift að hefja loka-
atlögu gegn leghálskrabbameini
og umfangsmikla leit að
brjóstakrabbameini og krabba-
meini í meltingar- og þvagfær-
um. Fram að þessu hefur
Hér er líkan af fyrirhugaðri nýbyggingu Krabbameinsfélags íslands við
Hvassaleiti.
krabbameinsleit einkum beinst
að konum, en nú stendur hins
vegar til að byrja leit að
krabbameini á byrjunarstigi í
körlum ásamt nýjum verkefn-
um. Dr. Snorri Ingimarsson
sagði að krabbameinsskráin hér
á landi væri ein sú besta sinnar
tegundar í heiminum, enda væri
tiltölulega auðvelt að fylgjast
með krabbameinssjúklingum
vegna fólksfæðar.
Æ$kn&r
MffðMJÍM
ff/ffff
ffffMffMf/ff/
Eins og áður sagði voru lagð-
ar fram á fundinum tölulegar
upplýsingar úr krabbameins-
skránni um hundraðshlutfall
þeirra krabbameinssjúklinga
sem lifðu fimm ár eða lengur
eftir að meinið var greint. Þau
greiningarár sem hér um ræðir
eru annars vegar 1956—1960 og
hins vegar 1971 — 1975.
Ef niðurstöður um lífslíkur
krabbameinssjúklinga á þessum
tveimur tímabilum eru bornar
saman kemur í ljós að lífslíkur
karla hafa batnað um 13% og
kvenna um 18%.
Þess má geta að gert er ráð
fyrir að um 4 þúsund manns
vinni að landssöfnuninni 30.
október um allt land. Að kvöldi
söfnunardags verður síðan
dagskrá í sjónvarpi. Þar mun
m.a. fara fram talning söfnun-
arfjárins og verður því ljóst
hver árangur söfnunarinnar er.
Loks er að nefnam að í fram-
kvæmdanefnd Landsráðs gegn
krabbameini eru: Eggert As-
geirsson, formaður, Bryndís
Schram, Jóhannes Pálmason,
dr. Snorri Ingimarsson og
Þorsteinn Pálsson. Starfsmenn
eru Eggert Ásgeirsson, Elsa
Hermannsdóttir, Sólveig Thor-
oddsen og Halldór Thoroddsen.
BÆTTAR
LÍFSHORFUR
KRABBAMEINS-
SJÚKLINGA
Hundraöshlutfall þeirra krabba-
meinssjuklinga sem liföu fimm ór
eða lengur eftir aö meinlð var
greínt. Upplýsingar úr Krabba-
meinsskránni. '
Greiningarár 1956 1971
„ . +60+75
Kartar
Ölf krabbamain_______ 17% 730%
Blaðra----------------- 25% 57%
Biööruhóiaktrt--------- 29% 42%
RiatHI----------------- 16% 36%
Hýrw.................... 6% 34%
EndaþaniHir------------ 25% 26%
Magi-------------------- 9% 13%
Lungti----------------- 0% 7%
Kanur
öll krabbamein......... 27% 45%
Skjafcikirim........... 48% 84%
Leghóls.......'........ 43% 71%
Legbolur............... 57% 67%
Brjóst................. 48% 65%
Ristlll................ 14% 34%
Lungu.................. 10% 13%
Magi.................... 8% 12%
ALGENGUSTU KRABBAMEIN
HJÁ KÖRLUM
StöAluð tiðnl, mlðað vlð 100.000