Morgunblaðið - 20.10.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
19
Hér helur fjarað undan Flatey, en fólkið keppist við sölvaöflunina meðan
lágsjávað er. Ljósm: Hugo Rasmus.
Reykhólasveit:
Á sölvafjörum
Mtöhúsum, Keykhólasveit, 4. september.
Fyrir nokkru sendi Þörunga-
vinnslan hf. fólk á Saurbæjar-
sölvafjörur í Dalasýslu undir leið-
sögn Karls Gunnarssonar sjávar-
líffræðings og var eftirtekjan um
2 tonn af sölvum.
Söl eru rauðþörungar og vaxa
þau neðarlega í fjöruborðinu og er
því ekki hægt að afla þeirra nema
á stórstraumsfjöru og þá aðeins í
2 til 3 klukkutíma í senn.
Orðið söl merkir bleikur (sam-
anber mannsnafnið Sölvi) og hafa
þau verið notuð hér til manneldis
frá því að landið byggðist og hafa
íslendingar sennilega haft þekk-
ingu á neyslu þeirra frá gamla
landinu, Noregi. Sagt er frá sölv-
um í Egilssögu og Eggert Ólafsson
skrifaði um þau í ferðabók sinni
og samkvæmt heimildum úr Hlín,
blaði Halldóru Bjarnadóttur, eru
Saurbæjarsölvafjörur bestar á
landi hér og kostur er að ekki þarf
að afvatna sölin þaðan, því að ár
og lækir sem um fjöruna falla
minnka seltuna.
Hér áður fyrr voru söl mikil
verslunarvara og frá sölvafjörum
á Eyrarbakka og Stokkseyri voru
þau seld austur um sýslur í vætta-
tali (ein vætt er 50 kg). Söl voru
hér áður fyrr oft borðuð með harð-
fiski og smjöri. Sölin eru ekki að
jafnaði soðin heldur borðuð eins
og þau koma fyrir og við geymslu
kemur út á þeim hvítt efni: það er
kölluð hneita og samkvæmt bók
Björns L. Jónssonar, „íslenskar
lækninga- og matarjurtir", eru söl
ágæt til þess að auka matarlyst og
talin góð við klígju, sjóveiki, upp-
þembingi og harðlífi.
Hins vegar hefur ekki alltaf
gengið slysalaust að ná í sölin og
7. ágúst 1869 fórust 4 menn af
Reykjanesi í svonefndri Hrúteyj-
arröst er þeir voru að koma úr
Saurbæjarfjöru. Svo segir frá
þeim atburði í bókinni Fylgsnum
fyrri aldar eftir séra Friðrik Egg-
erz: „Þeir lögðu af stað úr fjörunni
í hægum norðanstormi og höfðu
hlaðið svo af sölvum, að ekki var
meira en borð fyrir. Stórstraumur
var og aðfall og sigldu þeir. En er
kom í Hrúteyjarröst gekk sjór inn
á bæði borð og svo óður að ekki
varð rutt, fyllti bátinn og velti
hann öllu úr sér og komust Run-
ólfssynir á kjöl. Fórust þar for-
maðurinn Bjarni, stúlkur og Bene-
dikt með miklu orgi. Hann var tal-
inn lítt vandaður og minnstur
missirinn í honum.“
Þó að sölin, sem starfsfólk Þör-
ungavinnslunnar aflaði, fari á er-
lendan markað sem gripafóður, þá
er það staðreynd að á undan-
gengnum öldum björguðu sölin
mörgum frá hungurvofunni, eink-
um þó fólki sunnan- og vestan-
lands.
Jón Pálsson fyrrverandi banka-
gjaldkeri gaf Helgu Sigurðardótt-
ur tvær uppskriftir úr norskum
blöðum um matreiðslu á sölvum
og birtust þær í bók Helgu,
„Grænmeti og ber allt árið".
Þar sem þessi bók mun vera
löngu uppseld kemur önnur upp-
skriftin hér:
Söl með sveskjubýting
110 gr sveskjur
30 gr söl
sykur eftir vild
Vi sítróna
Sveskjurnar og sölin eru þvegin
og lagt hvort i sína skál með Vt
lítra af heitu vatni og látið standa
yfir nóttina. Næsta dag eru
sveskjurnar hitaðar í vatninu sem
þær hafa legið í og soðnar við
hægan hita í 10 mínútur. Sveskj-
urnar færðar upp og steinarnir
teknir úr þeim og þær lagðar í
skál. Sölvunum með vatninu sem
þau hafa legið í er hellt í sveskju-
löginn og allt soðið í 'k klst. með
sítrónuhýðinu. Þessu er hellt yfir
sveskjurnar. Borðað kalt með
eggjamjólk eða rjóma.
— Sveinn
Indíana Olafsdóttir
Uetur aöl I poka.
Sölvunum landað á Keykhólum.
Orgeltónleikar í
Fíladelfíukirkju
Skoðanakönnun DV:
41,3% óákveðin
Sjálfstæðisflokkur með meiri-
hluta þeirra sem afstöðu tóku
UM helmingur þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnun I)V sagðist
styðja Sjálfstæðisflokkinn, en niðurstaða könnunar þessarar birtist í DV
í gær.
DAVID Pizarro organleikari heldur
tónleika í Fíladelfiukirkjunni nk.
Tóstudagskvöld 22. okt. kl. 21.
„Hinir lostafullu“
sýnd á vegum
Fjalakattarins
FJALAKÖTTURINN sýnir nú
myndina „Hinir lostafullu", en þaö
er bandarísk mynd, gerð árið 1952
af hinum nýlátna leikstjóra Nicolas
Kay. Þetta er sá hinn sami Nicolas
Ray og þýzki leikstjórinn Wim
Wenders gerði um myndina „Nicks
movie“ sem sýnd var á kvikmynda-
hátíð í Regnboganum.
Myndin fjallar um ródeókappa í
villta vestrinu. Kannaðar eru þær
hættur, sú æsing og þau vonbrigði
sem þessari hættulegu íþrótta-
grein fylgja.
Þessi mynd er sýnd í Tjarnar-
bíói, en þar sýnir Fjalakötturinn
myndir sínar 6 daga vikunnar.
„Hinir lostafullu" verður sýnd frá
14.—28. október.
Fernandel og
kýrin Margrét
í aðalhlutverkum
„KÝRIN og fanginn“ heitir kvik-
mynd, sem Kvikmyndaklúbbur All-
iance Francaise sýnir í Regnbogan-
um, K-sal, klukkan 20.30 miðviku-
dag, fímmtudag, og aftur sömu daga
eftir viku.
I aðalhlutverkum er hinn frægi
gamanleikari Fernandel og kýrin
Margrét. Myndin er sýnd með
enskum skýringartexta.
Pizarro er organleikari frá New
York. Hann hefur farið tónleika-
ferðir til Evrópu og leikið í flest-
um þjóðlöndum Vestur-Evrópu.
Hingað kemur Pizarro frá Eng-
landi þar sem hann hefur undan-
farið haldið tónleika. Pizarro var
hér á ferð fyrir tveim árum og hélt
þá tónleika í Kristkirkju.
I fréttatilkynningu sem Mbl.
barst um tónleika Pizarro, segir
m.a. að nýlega hafi organleikarar í
Reykjavík komið saman og lagt á
ráðin um styrktarfélagakerfi fyrir
orgeltónleikahald. Fyrsta skrefið
verða áskrifendalistar, sem munu
VERKALÝÐSFÉLAGID Hörður í
Hvalfirði hefur nú sent sjávarút-
vegsráðherra áskorun um að mót-
mæla samþykkt alþjóðahvalveiði-
ráðsins um bann við hvalveiðum í
Noröur-Atlantshafi frá og með árinu
1986. Frestur til að mótmæla bann-
inu er til 4. nóvember næstkomandi.
Verði banninu mótmælt eru ís-
lendingar ekki bundnir af sam-
þykktinni, en verða annars að fara
eftir henni. Þá hefur það komið
fram, að möguleiki er á því að
Bandaríkjamenn stöðvi innflutn-
ing sjávarafurða frá þeim löndum,
sem ekki virða hvalveiðibannið.
Islenzka ríkisstjórnin hefur enn
ekki tekið ákvörðun um það hvort
David Pizarro
liggja frammi í Fíladelfíukirkj-
unni á tónleikunum á föstu-
dágskvöld.
banninu verður mótmælt, en sam-
kvæmt upplýsingum sjávarút-
vegsráðuneytisins er það nú í at-
hugun.
Hér fer á eftir áskorun verka-
lýðsfélagsins Harðar:
„Aðalfundur verkalýðsfélagsins
Harðar, haldinn að Heiðarbóli 17.
október 1982, samþykkir einróma
að beina þeirri áskorun til sjávar-
útvegsráðherra, að hann mótmæli
samþykktum alþjóðahvalveiði-
ráðsins um bann við veiðum í
Norður-Atlantshafi, þar sem
hvalveiðar hér við land hafa mikil
áhrif á atvinnulíf í hreppunum
sunnan Skarðsheiðar."
41,3% þeirra sem spurðir voru
sögðust vera óákveðnir, en 10,5%
aðspurðra neituðu að svara. Af
heildinni sögðust 25% styðja
Sjálfstæðisflokkinn, 11% Fram-
sóknarflokkinn, 7% Alþýðubanda-
lagið og 5,2% Alþýðuflokkinn.
ALLIR hclstu fjallvegir eru færir nú,
cn hálka er á sumum vegum, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk
hjá vegaeftirlitinu í gær.
Þeir fjallvegir sem þegar eru
orðnir ófærir vegna snjóa eru
Ef aðeins eru teknir þeir sem
afstöðu tóku, styðja 51,9% að-
spurðra Sjálfstæðisflokkinn,
22,8% Framsóknarflokkinn,
14,5% Alþýðubandalagið og 10,7%
Alþýðuflokkinn.
nokkrir óbyggðavegir, Kaldidalur,
Kjölur og Sprengisandur, svo
dæmi séu nefnd. Hins vegar er
aurbleyta á nokkrum fjallvegum
þó ekki sé þar snjór, t.d. á Axar-
fjarðarheiði.
Det Danske Selskab
afholder andespil
söndag den 24. oktober kl. 20.30 pá Hotel Loftleiöir, Vikingasal.
Pladerne koster kr. 25.00 stykket. Mange gode præmier Eftir andespillet
underholder den kendte danske forfatter Hans Hansen.
Det Danske Selskab
heldur Andespil — Bingo, sunnudaginn 24. október kl. 20.30 aö Hótel Loft-
leiðum, Vikingasal. Spjöldin kosta kr. 25.00, stykkiö. Margir góöir vinningar.
Eftir bingóiö skemmtir hinn þekkti danski rithöfundur Hans Hansen.
Verkalýðsfélagið Hörður:
Skorar á ráðherra að mót
mæla hvalveiðibanninu
Allir helstu
fjallvegir færir