Morgunblaðið - 20.10.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
25
Viljum auka menningarsam-
starf íslendinga og Færeyinga
- rætt við færr
eyska kennarann
Heðin Klein
Kærcyingurinn Heðin Klein,
sem er kennari og Ijóðskáld, er nú
staddur hérlendis nokkra daga í
boði Norræna félagsins. Tilgangur
dvalar hans hér er að ræða ?ið
mcnntamcnn um menningarsam-
starf Kæreyinga og íslendinga og
hann var einnig viðstaddur afmæl-
ishátíð Norræna félagsins fyrir
stuttu.
Blm. Mbl. ræddi við Heðin á
dögunum:
Hann var fyrst spurður að því
hvort menningarsamstarf þjóð-
anna tveggja væri nægilega mik-
ið?
„Nei. Við viijum efla menning-
artengsl Islendinga og Færey-
inga, enda eiga þessar þjóðir öld-
ungis margt sameiginlegt. Við
Færeyingar höfum haft mikið
samband við Dani og má segja
að dönsk áhrif séu fyrir hendi á
flestum sviðum þjóðlífs. T.a.m.
kemur nær allt sjónvarpsefni
þaðan, sem sýnt er í Færeyjum.
Og dönskukennsla hefst í fær-
eyskum skólum í þriðja bekk
grunnskóla. Hins vegar teljum
við að tími sé til þess kominn að
leita fanga annars staðar í þess-
um efnum. Af þeim sökum liggur
beinast við að leita til íslend-
inga.
Með hvaða hætti telur þú að
Heðin Klein
menningarsamstarf Færeyinga
og íslendinga verði aukið?
„Fyrir tveimur árum var skip-
uð nefnd á vegum íslendinga,
Grænlendinga og Færeyinga í
því skyni að stuðla að vaxandi
menningarsamstarfi þessara
þjóða. — Færeyingar vilja nú
hleypa nýju blóði í þessa um-
ræðu með því að setja fram fjór-
ar tillögur um hvernig menning-
arsamvinnu Islendinga og Fær-
eyinga skuli háttað. — í fyrsta
lagi höfum við mikinn áhuga á
því að einn kennari þeirra 25
framhaldsskóla, sem nú eru
starfræktir í Færeyjum geti far-
ið til íslands á 2—3 vikna nám-
skeið til að læra málið og kynn-
ast landi og þjóð. Síðan er ætl-
unin að þessir kennarar miðli
reynslu sinni og þekkingu á ís-
lenzkri menningu þegar heim
kemur. Einnig leggjum við til að
íslenzkir kennarar sæki sams
konar námskeið í Færeyjum. í
annan stað felst í þessum tillög-
um að ferðir færeyskra og ís-
lenskra skólabarna í fróðleiks-
skyni milli landanna verði
skipulagðar. I þriðja lagi leggj-
um við kapp á að stofnaður verði
menningarsjóður, sem gæti verið
fjármagnaður með styrkjum frá
ríkisvaldi beggja þjóðanna. í
fjórða lagi viljum við að sam-
skipti íslendinga og Færeyinga
verði aukin á sviði sjónvarps og
útvarps, og höfum við þá í huga
þessar þjóðir skiptist á menn-
ingarefni."
Hvernig hafa íslendingar tek-
ið í þessar tillögur?
nEf marka má viðræður mínar
við ýmsa menn að undanförnu
hafa íslendingar mikinn áhuga á
að auka menningarsamstarf
þessara þjóða, en þó er þetta mál
svo að segja á frumstigi. Og
hugsanlegt er að íslendingar
komi fram með einhverjar nýjar
hugmyndir um þessi mál á
næsta fundi þessarar nefndar
sem ég gat um, en fundurinn
verður haldinn nú í haust. En ég
og þeir íslendingar sem ég hef
talað við hér urðum sammála
um að ræða við ákvörðunarvald-
ið, stjórnmálamennina, um
hvernig bezt sé að haga þessum
málum, sagði Heðin Klein að
lokum.
Páll Askelsson
I
Anton Ingibjartsson
Barði Ólafsson
ég þeirrar skoðunar. En mér
finnst það miður, að þeir sem ráku
Ljónið, skuli hafa hætt. Kaupfé-
lagið hafði gott af því að hafa ein-
hvern við hliðina á sér. Þetta var
orðin mjög góð verslun hjá þeim
og það var mikið verslað þar.
Fyrir fjarðarbúa var nauðsynlegt
að hafa þarna verslun. Til dæmis
getur vegurinn lokast, ef það kem-
ur skriða.
Eg vil að það komi skýrt fram
að ég er hlynntur kaupfélaginu og
samvinnustefnunni. En Kaupfé-
lagið, eins og aðrar verslanir,
þarfnast samkeppni. Þetta var
skynsamleg fjárfesting hjá Kaup-
félaginu, til að veita kúnnanum
þjónustu og þar af leiðandi var
rétt að ráðast í þetta," sagði Páll
Askelsson að lokum.
Móti því að Kaup-
félagið vaði uppi
Næstan hittum við að máli Ant-
on Ingibjartsson. Hann sagði:
„Það nálgast það að Kaupfélagið
sé eina verslunin sem eftir er hér
á ísafirði. Að vísu eru hér tvær
aðrar verslanir, sem versla með
matvöru, en umfangið er ekkert í
líkingu við Kaupfélagið. Mér
finnst þetta því nokkuð hart og
hefði gjarnan viljað sjá einhvern
annan taka við Ljóninu."
Þá var tekinn tali Höskuldur
Ingvarsson. „Ég er alveg á móti
því, að Kaupfélag ísfirðinga skuli
vera að yfirtaka allt hér. Þegar
vegurinn verður orðinn það góður
til Bolungarvíkur, að honum sé
treystandi, fer fólk og verslar þar
að einhverju leyti, gæti ég trúað,"
sagði Höskuldur.
Slæmt að einkaframtakið
þurfi að gefast upp
„Það er mjög slæmt að það skuli
svo komið fyrir einkaframtakinu,
að það J)urfi að gefast upp,“ sagði
Barði Ólafsson, sem talað var við
síðast, „og ég harma það, að ekki
skuli vera betur búið að því en svo,
að það leggi upp laupana unnvörp-
um, eins og maður hefur orðið
vitni að að undanförnu. En ég
fagna því, út af fyrir sig, að versl-
un skuli halda áfram á þessum
stað, þar sem Ljónið var, því að
það hefði verið slæmt fyrir þetta
hverfi, ef verslun hefði lagst niður
þar,“ sagði Barði Ólafsson að lok-
um.
HÚSINÆO
KRNJVfKUR-
SKÓIANS
er laust til umsól<nar
fyrir félapsamtök
eöa aöra sem vilja
nýta sér aóstööuna
Húsið er óinnréttað, en býður upp á fjölbreytta nýtingar-
möguleika t.d. hótelrekstur, heilsuhæli, vistheimili,
heimavistarskóla, vísindastarfsemi og margt fleira.
( húsinu er gert ráð fyrir eftirfarandi aðstöðu:
1. (BÚÐARHÚSNÆÐI:
2ja herb. íbúð
4 herbergja íbúð
5 herbergja íbúð
19 herbergi 12 m2 hvert
4 herbergi 10 m2 hvert
sameiginleg stofa með svölum.
2. SALUR:
Fjölnýtisalur með setkrók 164 m2
stofa 29 m2
salur 77 m2
salur 60 m2
salur 37 m2
tómstundaaðstaða 84 m2 (skiptist í nokkur herb.)
3. ELDHÚSAÐSTAÐA:
eldhús 45 m2
geymsla 22 m2
kæli- og frystigeymslur 7 m2
4. ANNAÐ HÚSRÝMI:
Snyrtingar fylgja íbúðum. Auk þess eru sameiginlegar
snyrtingar fyrir einstaklingsherbergi. Þvottahús og
geymslur fylgja íbúðum. Auk þess er stórt þvottahús og
aðstaða til þvotta á snyrtingum. Geymslur, verkstæði
og bílskúr eru samtals u.þ.b. 200 m2.
Húsnæðið er samtals rösklega 2000 m2.
Umsóknarfrestur er til
1. nóvember 1982.
Umsóknir sendist til stjórnar Samtaka sveitarfélaga í
Reykjaneskjördæmi, SAS(R Pósthólf 400, 270-Varmá.
Upplýsingar veitir formaður SAS(R, Salome Þorkelsdóttir
alþingismaður, á skrifstofu samtakanna, föstudaginn
22. okt. frá kl. 10-12, sími 66922 eða eftir nánara
samkomulagi.
S'NSÍR
Samtök sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU