Morgunblaðið - 20.10.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
29
Þóra Jónsdóttir
- Afmæliskveðja
Fyrir nokkrum vikum var ég á
ferð í Siglufirði og tók þar þátt í
mjög ánægjulegri kirkjuhátíð, í
tilefni 50 ára afmælis Siglufjarð-
arkirkju.
Ég hefi með nokkru millibili
komið til Siglufjarðar, síðan við
fluttum þaðan alfarin 1951. Alltaf
hafa einhverjar breytingar orðið,
eins og eðlilegt er. Gamlir vinir
hafa horfið af þessum heimi, en
aðrir hafa flust burt til annarra
byggðarlaga.
Meðal góðra vina, sem við hjón-
in söknuðum í þessari síðustu ferð
okkar voru þau hjónin Pétur
Björnsson kaupmaður og Þóra
Jónsdóttir kona hans, sem auk
þess að vera nánir vinir okkar,
voru þau vinsælir og velmetnir
borgarar í Siglufirði, um langt
skeið. En þau fluttust hingað til
Reykjavíkur nokkru eftir 1960, en
Pétur var erindreki Áfengisvarna-
ráðs í allmörg ár, en lést hér í
Reykjavík 1978.
Frú Þóra Jónsdóttir, kona hans,
er áttræð í dag og býr að Hraunbæ
138. Það er næsta eðlilegt, að við
vinir hennar, og þeirra hjóna,
sendum frú Þóru þakkir og hlýjar
hugsanir á þessum tímamótum í
ævi hennar, því svo farsælan ævi-
dag á hún að baki sér.
Frú Þóra er fædd að Yztabæ í
Hrísey, 20. október 1902, dóttir
hjónanna Jóns Kristinssonar út-
vegsbónda í Hrísey og Hallfríðar
Þórðardóttur.
Jón var sonur Kristins Tryggva
Stefánssonar í Yztabæ og Kristín-
ar Hólmfríðar Þorvaldsdóttur frá
Krossum. Bræður Jóns voru þeir
Stefán B. Kristinsson prófastur að
Völlum í Svarfaðardal og Tryggvi
Kristinséon, lengi kennari og
organleikari í Siglufirði. Allir eru
þessir merku bræður nú löngu
látnir.
Móðir Þóru, Hallfríður Þórðar-
dóttir, var fædd að Hólum í Öxna-
dal. Faðir hennar var Þórður
Pálsson Þórðarsonar frá Kjarna,
en móðir Guðrún Magnúsdóttir
frá Hólum. Eru þessar ættir
kunnar í Eyjafirði og víðar. Guð-
rún Pálsdóttir, móðir sr. Friðriks
Friðrikssonar, hins góðkunna
æskulýðsleiðtoga í Reykjavík, var
föðursystir Hallfríðar.
Frú Þóra ólst upp að Yztabæ
hjá foreldrum sínum, er þar
bjuggu við rausn og myndarskap.
Á þeim árum voru þar mikil bú-
skaparumsvif til sjós og lands og
fjölmennt heimili. Aðstaða til
skólagöngu var erfið í Hrísey á
þeim árum, en Jón faðir hennar,
fékkst nokkuð við kennslu og
kenndi börnum sínum heima, og
reyndist sú kennsla þeim nota-
drjúg, enda byggt þar ofan á, af
áhuga, með sjálfsnámi, eftir því
sem árin liðu.
Æskuára sinna í Hrísey minnt-
ist frú Þóra oft með hlýjum huga,
ekki síst hinna sólríku vordaga,
náttúrufegurðar og fuglalífs þar í
eyjunni.
I júní 1919 fluttist Þóra með
foreldrum sínum og systkinum til
Siglufjarðar, og þótt fjölskyldan
saknaði Eyjafjarðar, var bót í
máli, að í Siglufirði eru líka bjart-
ir og fagrir vordagar og kom fjöl-
skyldan sér þar fljótt vel fyrir og
undi þar hag sínum.
Árið ^1928 giftist Þóra Pétri
Björnssyni síðar kaupmanni í
Siglufirði og áttu þau heimili í Að-
algötu 25 þar í bænum, og þar
hafði Pétur verslun sína.
Á þeim árum var Siglufjörður í
örum vexti. Umferð var mikil í
Aðalgötunni og gott til verslun-
arstarfa, enda blómgaðist hagur
þeirra hjóna fyrir ráðdeild og
reglusemi.
Þegar árin liðu tóku þau vax-
andi þátt í félagslífi í Siglufirði,
einkum safnaðarmálum og bind-
indisstarfi og öðrum skyldum fé-
lags- og menningarmálum.
Frú Þóra starfaði lengi í kirkju-
kór SiglufjarðarkÍrkju og var í
mörg ár formaður kórsins, en föð-
Úr sláturhúsinu í Borgarnesi.
Slátrunin gengur vel í Borgarnesi:
Lömbin heldur
rýrari en í fyrra
BorcarneMÍ, 14. október.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN gengur vel í
sláturhúsinu i Borgarnesi að sögn
Gunnars A. Aðalsteinssonar, slát-
urhússtjóra. Sláturtíðin stendur nú
sem hæst, hún hófst 13. september
og áætlað er að slátruninni Ijúki um
13. nóvember.
í sláturhúsinu vinna 170—180
manns í sláturtíðinni og á hverj-
um degi er slátrað 2.500—2.600
fjár. í allt er áætlað að 82.000 fjár
verði slátrað í húsinu í haust.
Gunnar sagðist ekki hafa orðið
var við að bændur væru að fækka
við sig fé en það kæmi þó betur í
ljós við lok sláturtíðarinnar þegar
farið yrði að slátra fullorðna fénu.
Gunnar sagði að dilkarnir væru
heldur lélegri en í fyrra, þeir væru
líklega nálægt 13 kíló að meðaltali
en í fyrra var meðalfallþunginn
13,6 kíló.
HBj.
urbróðir hennar, Tryggvi Krist-
insson kennari, var lengi organ-
leikari kirkjunnar og söngkennari
barnaskólans. Má segja að frú
Þóra hafi verið hans önnur hönd í
söng- og félagsstarfi kórsins. Fáir
gera sér fulla grein fyrir því, um
hve mikið starf er hér að ræða. Þá
vann frú Þóra mikið að bindind-
ismálum, bæði sem áhugasamur
félagi í St. Framsókn og gæslu-
maður barnastúkunnar Eyrarrós,
sem í hennar tíð var ein fjölmenn-
asta og þróttmesta barnastúka
landsins.
Bindindismálin hafa alltaf verið
frú Þóru hugstæð og víst eru
margir henni þakklátir fyrir þá
góðu leiðsögu og ánægjustundir,
sem þetta starf veitti þeim í æsku,
og fyrir þá æfingu í félagsstarfi,
sem þeir hlutu í barnastúkunni á
þessum árum. Um langt skeið var
starfið í barnastúkum landsins
eitt þróttmesta æskulýðsstarf,
sem unnið var hér á landi.
Það verður að teljast mikilvægt
menningar- og nauðsynjastarf, að
vernda íslenska æsku fyrir þeim
óheillaáhrifum, sem áfengis-
nautnin leiðir yfir þjóðina. Besta
vörnin gegn áfengisbölinu, og öðru
því böli, sem siglir í kjölfar þess er
að neyta ekki áfengis. Þetta vilja
margir því miður ekki láta sér
skiljast.
Frú Þóra sat á mörgum Stór-
stúkuþingum og var í allmörg ár
stórgæslumaður unglingastarfs á
vegum Reglunnar, og ferðaðist þá
víða um land, og var hvarvetna
aufúsugestur, sakir síns glaða og
hlýja viðmóts, festu og lipurðar.
Það má óefað telja, að frú Þóra
hafi með þessu starfi sínu lagt
drjúgan skerf til heillavænlegs
uppeldis íslenskrar æsku, sem
margir eru þakklátir fyrir. Þó að
ævistarf frú Þóru væri lengst af
bundið við heimili þeirra hjóna í
Siglufirði, sem oftast var fjöl-
mennt og umsvifamikið, þá var
mesta furða af hve miklum tíma
hún gat séð í félagsstarfinu, og
opnað heimili sitt fyrir þessu
starfi.
Eftir að þau hjónin fluttu
hingað suður unnu þau enn að
þessum áhugamálum sínum, með-
an kraftar entust.
Þau hjónin eignuðust 3 dætur
og einn son, en þau eru: Hallfríð-
ur, húsfreyja í Reykjavík, gift
Stefáni Friðrikssyni, lögreglu-
varðstjóra, Stefanía María, hús-
freyja í Kópavogi, gift ólafi Tóm-
assyni, yfirverkfræðingi hjá
Landsíma Islands, Kristín
Hólmfríður, bókasafnsfræðingur
(bókafulltrúi ríkisins), gift Baldri
Ingólfssyni, menntaskólakennara,
í Reykjavík, og Björn, skrifstofu-
stjóri á Akranesi, kvæntur Berg-
ljótu Ólafsdóttur. Öll bera bðrn
þeirra einkenni ættar sinnar um
dugnað, festu og myndarskap.
Við sem höfum notið vináttu
fjölskyldunnar um árabil erum
innilega þakklát fyrir þá vináttu.
Seint munum við hjónin gleyma
því, er við gistum á heimili þeirra
fyrstu nóttina, er við fluttumst til
Siglufjarðar sumarið 1935 og gott
var til þeirra að leita um margs-
konar fyrirgreiðslu, eftir því sem
árin liðu.
Þegar við hjónin sendum frú
Þóru og fjölskyldu hennar kveðjur
og árnaðaróskir á þessum tíma-
mótum í ævi hennar, þá hugsa ég
um hið góða samstarf okkar á
Siglufjarðarárunum, bæði í kirkj-
unni þar, í bindindisstarfinu, og á
öðrum sviðum. Einnig hugsum við
hjónin um hið góða samband sem
var milli heimila okkar alla tíð.
Við teljum okkur því standa í al-
veg sérstakri þakkarskuld við þau,
frú Þóru og Pétur.
Ég veit, að frú Þóra er þakklát,
er hún lítur til baka á þessum
tímamótum. Hún nýtur ástríkis
barna sinna, barnabarna, tengda-
barna, frændfólks og vina. Vin-
sældir hennar eiga sér djúpar ræt-
ur, því að hvar sem hún hefur
komið við sögu hefur hún lagt gott
til mála.
Sjálfsagt munu henni finnast
þetta óþarfa lofsyrði. En hví má
ekki geta þess, sem vel er gert og
til lofs má telja?
Ég og fjölskylda mín sendum
frú Þóru innilegustu árnaðaróskir
á þessum tímamótum og biðjum
henni blessunar og góðra daga,
einnig ástvinum hennar og heimil-
um þeirra.
Oskar J. Þorláksson
Þóra tekur á móti gestum á
heimili sínu, Hraunbæ 138, eftir
kl. 15 í dag.
Nýjungarnar
komafrá
BRIDGESTON E
„ÍSGRIP"
Bridgestone radial snjódekkin eru framleidd úr sérstakri
gúmmíblöndu, sem við nefnum „ÍSGRIP".
„ÍSGRIP“ hefur þá eiginleika að harðna ekki í kuldum,
heldur helst það mjúkt og gefur þannig sérstaklega góða
spyrnu í snjó og hálku.
„ISGRIP“ dekkin eru ennfremur með sérstyrktum hliöum
(Superfiller) sem veitir aukið öryggi við akstur á malarveg-
um.
Vegna þessa henta nýju BRIDGESTONE radial snjódekkin
sérstaklega vel á misjöfnum vegum og í umhleypingasamri
veðráttu eins og á íslandi.
Öryggið í fyrirrúmi með BRIDGESTONE undir bilnum
25 ára reynsla á íslandi.
Útsölustaðir um land allt.
á Islandi
BÍLABORG HF
Smiöshöfða 23, sími 812 99.