Morgunblaðið - 20.10.1982, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1982
Gummersbach
er efst
Úrslit í síðustu leikjum
v-þýsku Bundesligunnar
voru þessi:
TV Grosswallstadt —
TV HUttenberg 25:17
Vfl Gunzburg —
Reinickend. FUchse 18:18
TuS Hofweier —
SG Oietzenbach 23:14
VfL Gummersbach —
THW Kiel 24:21
TuS Nettelstedt —
TuSEM Essen 14:14
PSV Hannover —
GW Oankersen 16:23
Staöan er þannig í Bund-
esligunni. Fyrst er leikja-
fjöldí, þá markatala liðanna
og síðan unnin stig og tðpuð
stig:
1. Vfl. (iummersbarh 7 165:120 14:0
2. TV (irusswallsladt 7 145:121 10:4
3. (iW Dankmen 7 140:131 10:4
4. TIIW Kiel 7 147:131 9:5
5. Keinirkend KiichHe 7 136:126 8:6
6. TikS Hofweier 7 137:123 7:7
7. TV Hiittenhcrg 7 143:15! 7:7
H. S(i Dictzcnbarh 7 125:134 7:7
9. TuS Nettelstedt 7 126:145 6:8
10. MTSV Schwahing 5 112:102 5J>
11. VfL (.unzhurg 7 135:142 5:9
12. FA (.öppingen 6 108:125 3:9
13. TuSEM Esnen 7 113:136 2:12
14. PSV Hannover 6 91:136 1:11
Slæmt gengi
Leverkusen
EKKI gengur vel hjá gamla
liðinu hans Viggó Sigurðs-
sonar, Bayer Leverkusen, en
líðið er nú í neðsta sasti í 2.
deíld með aðeins 1 stig eftir
5 leiki. Úrslit síðustu leikja í
deildinni og á eftir fytgir
staðan:
Weiche-HaiKÍewiM
- W* W.nne-Kklte! 18:21
Tttrnerbund W ulfr.lh
— OH<' DortmuBd 19:17
TSV Altenholz
- TSB Fletubnrtt 21:18
Kelniekemlerrer Fttrhoe II
— TSV Verden 18:21
TuiU Bergkamen
— TuBa Iremgo 20:18
1- IWT Wanne-Eickel 6 128:109 11:1
2. TuKa Bergkamen 6 117:96 10:2
3. TuBa licmgo 6 121:101 10:2
4. TSV Verden 6 105:111 8:4
5. OSC Dortmund 6 131:108 7:5
6. Weiche liandewitt 6 108:106 6:6
7. TSV Altenholz 6 114:116 6:6
X. Turncrbund W ulfr.th 6 103:110 4$
9. Keinickeitd. Ftichse It 6 99:125 3:9
10. VfL Fredenbek 5 82:101 2A
XI. TSB Flenzburg 6 105:120 2:10
12. SV Hayer I>everkiiNen 5 85:95 1:9
Coppell
formaöur!
Nýlega var skipt um for-
mann í Verkalýðsfélagi
enskra atvinnuknattspyrnu-
manna, en gamla kempan
Alan Gowling hefur gegnt
þeim starfa undanfarin ár.
Eftirmaður hans er Steve
Coppell, enski landsliös-
maðurinn snjalli hjá Man-
chester United. bess má
geta að þessir kappar eru
tveir mjög fárra atvinnu-
knattspyrnumanna I Eng-
landi sem eru háskóla-
gengnir.
Ásgeir Sigurvinsson:
„Það er alveg Ijóst að
ég verð að fara í uppskurð"
• Ásgeir Sigurvinsson vonast til
að geta jafnvel farið að leika eftir
viku til 10 daga. En hann þarf
samt sem áður að láta skera sig
upp.
— Heilsan hjá mér er svona
sæmileg. Ég fór til enn eins sér-
fræðingsins síðasta laugardag,
og hann tjáði mér að það væru
litlar líkur á því að ég myndi fá
bót á meiöslum mínum með
sprautumeðferð. Það liggur því
nú orðið Ijóst fyrir aö ég þarf aö
gangast undir uppskurð. Hvenær
hann veröur er ekki gott að segja
en mjög líklega verð ég skorinn
upp rétt áöur en vetrarhvíld lið-
anna hefst í desembermánuði.
— Aö undanförnu hef ég fengiö
nýja lyfjameöferö meö sprautum
og er heldur betri. Ég er aöeins
farinn aö hlaupa og ætla aö reyna
aö mæta á æfingu í dag. Ég verö
[ Knattspyrna
sprautaður í vikunni og hugsanlegt
er aö ég lagist þaö mikiö aö ég geti
fariö aö æfa aftur. — Þaö er veriö
aö reyna aö stíla inná að ég veröi
orðinn góöur fyrir aöra helgi en þá
leikur Stuttgart á útivelli gegn Bay-
ern. Ég ætla aö reyna aö leika
þann leik. En bara ef ég verö orö-
inn nokkuö góöur. Þaö hefur eng-
an tilgang aö vera aö leika ef
meiðslin há mér verulega.
Stuttgart-liðið á tvo erfiöa leiki
fyrir höndum meö viku millibili.
Fyrri leikurinn er úti gegn Bayern
en síðari leikurinn er gegn Ham-
borg heima. Þaö er gott fyrir mig
aö vera búinn aö fá botn í þessi
meiðsli, vita þaö aö uppskuröur er
óumflýjanlegur. En ef ég næ ekki
aö leika á móti Bayern eöa Ham-
borg verö ég tekinn strax og skor-
inn upp, sagöi Ásgeir Sigurvinsson
er Mbl. innti hann eftir meiðslum
þeim sem hann hefur átt viö aö
stríöa undanfarnar vikur. — ÞR.
„Ekkert lið hefur komið jafn
mikið á óvart og THW Kier
HLÉ hefur nú verið gert á vestur-
þýsku Bundesligunni í handbolta
um tíma vegna undirbúnings
landsliðsins fyrir fjögurra liða
mót sem það tekur þátt í á næst-
unni. í síðustu umferðinni fyrir
hlé var toppleikurinn viöureign
Gummersbach og THW Kiel, liös-
ins sem Jóhann Ingi Gunnarsson
þjálfar. Lið Jóhanns var í ððru
sæti deildarinnar fyrir leikinn en
Gummersbach var í efsta sætinu.
2.000 áhorfendur mættu á leik-
inn og þykir þaö mikið í Gumm-
ersbach. j leikskrá Gummersbach
sagöi meðal annars fyrir leikinn:
„Sennilega hefur ekkert liö komiö
eins mikiö á óvart í byrjun þess?
keppnistímabils og THW Kiel. Alll
frá byrjun keppnistímabilsins hafa
þeir fylgt Gummersbach fast á eft-
ir. í upphafi tímabilsins var Kiel
ekki hátt skrifaö af flestum hand-
boltasérfræöingum, enda ekki
óeölilegt þar sem hættulegasti úti-
leikmaöur liðsins, Júgóslavinn
Fetahagic yfirgaf liöiö og sömu-
leiðis línumaöurinn snjalli, Júgó-
slavinn Delahmetovic.
Hinum nýja þjálfara, Jóhanni
Inga Gunnarssyni, sem er eini ís-
lenski þjálfarinn í vestur-þýsku
Bundesligunni hefur tekist á ótrú-
lega skömmum tíma aö mynda liö
sem býr yfir miklum krafti og bar-
áttuvilja, líð sem getur bitiö frá sér
og þar sem liðsheildin ööru fremur
ræöur ríkjum."
stórskyttan Erhard Wunderlich
hjá Gummersbach spáöi leiknum
23:15. Hann sagöi: „Kielar-liöiö
hefur aö vísu komiö mest á óvart á
þessu keppnistímabili, en ég trúi
því samt ekki aö þeir séu strax
orönir þaö sterkir aö þeir geti verið
í efri hluta deildarinnar eöa veitt
okkur keppni í þessum leik.“
Gummersbach sigraöi aö vísu i
Mknum, en aöeins meö þríggja
marka mun, 24:21. „Gleöin yfir aö
vera í ööru sæti stóö aöeins yfir í
tvo daga, strákarnir íslenska þjálf-
arans Jóhanns Inga Gunnarssonar
uröu aö sætta sig viö tap gegn
Gummersbach, en geta meira en
vel viö unaö. Liö Gummersbach
hefur ekki tapaö leik á heimavelli
síöan 1979 og varö aö taka á hon-
um stóra sínum til aö ná fram
sigri," sagöi meöal annars í einu
dagblaöanna eftir leikinn.
Þjálfari Gummersbach, hinn
rúmenski Petre Ivanescu, sem á
sínum tíma lék 200 landsleiki fyrir
Rúmena sagöi eftir leikinn aö liö
sitt heföi ekki leikiö nógu agaö á
köflum. Hann bætti viö: „Kielar-
liðið eru erfiðustu andstæöingar
okkar fram til þessa." Sérstaklega
rómaöi þessi reyndi þjálfari hinn
mikla aga sem ríkir í leik Kielar-
liösins.
Heinz Jacobsen, framkvæmd-
astjóri Kielar-liösins, sá sem var
framkvæmdastjóri vestur-þýsku
heimsmeistaranna 1978, sagði eft-
ir leikinn: „Hér eru greinilega á
feröinni framfarir vegna komu nýja
þjálfarans Gunnarssonar."
Þaö fer greinilega ekki á milli
mála aö Jóhann Ingi hefur gert
góöa hluti þann stutta tima sem
hann hefur veriö meö llöiö.
Þróttur kærir
leik gegn
Víkingi
ÞRÓTTUR hefur kært leik sinn við
Víking um helgina. Telja Þróttar-
ar, að 18. mark Víkings hafi veriö
ólöglegt. Víkingur sigraði í leikn-
um, 18—17. Þremur mínútum
fyrir leikslok var einum leik-
manna Víkings vísað af leikvelli.
Skömmu síðar sendi hinn pólski
þjálfari Víkings, Bogdan Kow-
alzcyk annan leikmann of
snemma inné og Víkingar höföu
því fullskipaö liö en éttu aöeins
aö vera sex inné. Tímavöröur og
dómarar áttuöu sig ekki é þessari
röngu innáskiptingu fyrr en Vík-
ingar höfðu skoraö 18. mark sitt
— breytt stööunni í 18—15.
Þá hins vegar áttuöu dómarar
sig á því, aö Víkingar voru einum
fleiri. Þeir vísuöu því tveimur leik-
mönnum Víkings af velli, en
dæmdu markiö gilt. Þessu vilja
Þróttarar ekki una og telja aö
markiö heföi átt aö dæma af. Þess
má geta aö þetta var í annaö sinn,
sem Bogdan uröu á þau mistök aö
senda mann of snemma inná eftir
brottvísun.
Stjarnan
AÐALFUNDUR handknatt-
leiksdeildar Stjörnunnar
verður haldinn í safnaöar-
heimilinu Garðabæ á
fímmtudagskvöldiö og hefst
hann klukkan 20.30. Fundar-
efni er venjuleg aðalfund-
arstörf.
• THW Kiel, liö það sem Jóhann Ingi þjálfar (V-Þýskalandi, hefur komiö mjög é óvart. Jóhann Ingi er annar
frá hægri í efri röð é myndinni.
Á komandi vetri munu yfir
7.600 bíleigendur
njóta góös af
Lumenition
platínulausu transistorkveikjunni, viö
gagnsetningu og kaldakstur í slyddu
og byl.
Ert þú einn af þeim?
gBBBiwea j i UAnrpruc
Skeðunní 3e. Sínvi 8.47.88
Getrauna- spá MBL. .* 1 ■ 1 s 1 s ! Æ 1 1 Newsof ihe W orld I J3 5- "8 j? 1 1 % SAMTALS
1 X 2
Birmingham — Ipswich X X X X X X 0 6 0
Brighton — West Ham 2 2 2 2 2 X 0 1 5
Everton — Sunderland X 1 1 1 1 1 5 1 0
Man. Utd. — Man. City 2 1 X 1 1 1 4 1 1
Norwich — Aston Villa 2 1 1 X X 2 2 2 2
Nottingham Forest — Arsenal X 1 X 1 X 1 3 3 0
Stoke — Liverpool 2 X 2 2 2 2 0 1 5
Swansea — Southampton X 1 1 1 1 1 5 1 0
Tottenham — Notts County X 1 1 1 1 1 5 1 0
Watford — Coventry X 1 I 1 1 1 5 1 0
WBA — Luton 1 1 X X X X 2 4 0
Fulham — Burnley 1 1 1 1 1 X 5 1 0
Fékk 242.659
fyrir 12 rétta
í 8. leikviku Getrauna kom
fram einn seðill með 12 rétt-
um og var vinningur fyrir
röðina kr. 222.895,- en með
11 rétta voru 29 raðir og
vinningur fyrir hverja röð kr.
3.294,-.
Vinningshafinn er Reyk-
víkingur, sem var með 36
raða kerfisseðil og þess
vegna einnig með 11 rétta í 6
röðum og heildarvinningur
fyrir seðilinn verður kr.
242.659,-. Þetta mun vera
hæsta vinningsupphæð, sem
Getraunir hafa greitt út frá
upphafi.