Morgunblaðið - 10.11.1982, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.11.1982, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982 63 Sigfús Þorsteinsson, formaður Lionsklúbbsins Múla, afhendir sundlaugina. Sr. Davíð Baldursson, formaður Styrktarfélags vangefinna á Austur- landi, tekur við gestabókinni úr hendi formanns Múla. var stofnað 1973 til að vinna að bættum högum og aðbúnaði þroskaheftra í fjórðungnum — sem þá var knýjandi nauðsyn og mannúðarmál. Félaginu varð það vel ágengt í baráttu sinni fyrir velferð þroskaheftra með góðum stuðningi annarra félagasam- taka innan og utan fjórðungs að hafist var handa um byggingu vistheimilisins árið 1977. Það tók síðan til starfa haustið 1981. Félagsmálaráðherra þakkaði styrktarfélaginu óeigingjarnt starf að málefnum þroskaheftra og sagði nafn heimilisins tákn- rænt fyrir þann málstað sem styrktarfélagið vinnur að. Ráð- herra lagði áherslu á að styrkt- arfélagið hyrfi ekki af þessum starfsvettvangi þótt ráðuneytið tæki nú formlega við rekstrinum. Hann sagði það vilja sinn að áfram verði starfað í náinni sam- vinnu við styrktarfélagið og for- eldrafélag heimilisins. Þá þakk- aði hann öllum þeim sem stuðlað hefðu að uppbyggingu heimilis- ins og nefndi sérstaklega í því sambandi Lionsklúbbinn Múla á Fljótsdalshéraði — og óskaði að lokum starfsmönnum og heimil- ismönnum velfarnaðar. Þá flutti oddviti Egilsstaða- hrepps, Sveinn Þórarinsson, árn- aðaróskir hreppsnefndar Egils- staðahrepps: Viðstaddir þágu veitingar á Vonarlandi — er heimilismenn báru fram. — Ólafur 20 ára afmæli Lions- klúbbs Patreksfjarðar Patrcksrirði. 3. nóvembcr. LAUGARDAGINN 30. október sl. var haldin í Félagshcimili PatreksfjarAar sameiginleg árshátíö Lionsklúhbanna á Þatreksllrdi, Tálknafirði og Bildu- dal. Var þar jafnframt haldið upp á 20 ára afmæli Lionsklúbbs Patreks- fjarðar og sem var stofnaður 19. febrúar 1962 og voru stofnfélagar 28 og eru sjö af þeim enn starfandi innan klúbbsins, en þeir eru Ágúst Pétursson, Guðjón Guðjónsson, Bragi Thoroddsen, Hafsteinn Dav- íðsson, Ingólfur Arason, Jón Ara- son og Páll Janus Pálsson. Voru þeir allir heiðraðir sérstaklega svo og konur þeirra. Á árshátíðina var mættur Jón ísberg sýslumaður á Blönduósi, umdæmisstjóri B-um- dæmis og færði hann klúbbnum fundarhamar að gjöf. Einnig bárust klúbbnum gjafir frá nágranna- klúbbunum. Ingveldur Magnúsdótt- ir afhenti fyrir hönd Lioninja fána og blómakörfu. Fyrsti formaður Lionsklúbbs Patreksfjarðar var Sigurður Jón- asson, en núverandi formaður er Hilmar Jónsson. Klúbburinn hefur starfað að ýmsum menningar- og líknarmálum innan byggðarlagsins, einnig hafa klúbbmeðlimir haldið þeim sið frá stofnun klúbbsins að rita annál staðarins og er þar getið þess helsta sem gerist í bæjarlífinu svo og veðurfars, sjósóknar, afla- bragða og skipakoma, og má þar finna margar merkar heimildir. Veislustjóri var einn af stofnfé- logum klúbbsins, Jón Þ. Arason, og fórst honum það vel úr hendi eins og hans er von og vísa, hljómsveitin Kjarnar lék fyrir dansi sem dunaði fram á nótt. — P/G. |U|/£ia| 3)013 ) || \VJ || Inl'slKI Krl IN i\\\m Snorrabraut Sími 13505 Glæsibæ Simi 34350 Hamraborg -Kópavogi Simi 46200 Mióvangi - Hafnarfirði Slmi 53300 ^úperBa PRJÓNA VÉL TEGUND 2310 Hefur al!a þá kosti, sem prýtt geturprjóna vél til heimilisnota. Prjónar fínt og gróft garn, einnig lopa. • Hefur tvö nálaborð, tvo bandleiðara og 360 nálar alls. • Fáanleg með rafmótor. Hefur munsturbanka, sem stjórnar Átta tíma kennsla og íslenskur leiðarvísir fjölbreyttu munsturprjóni, svo sem fylgir vélinni. litaprjóni, tvöföldu mynsturprjóni, Leitið nánari upplýsinga um hagstœtt verð útprjóni eftir frjálsri teikningu, vefnaði og góð greiðslukjör. og gata og garðaprjóni. Prjónar sokka, heila í hœl og tá, hring- prjón og klukkuprjón. RAFBUÐ SAMBANDSINS Ármula 3 ■ Simi 38900 SÝNIKENNSLA ÞRIÐJUDAGA OG FIMMTUDAGA KL.2-5

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.