Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
61
Ríkisskattstofan sænska hefur reiknað
þaö út aö hver skattskyldur Svíi steli til
jafnaöar 11—12 bús. kr. undan skatti ár-
lega ... Sjá „ÞJOÐARÍÞRÓTTIN“
iFERÐALÖG
Erfiðis-
vinna
innifal-
in í far-
gjaldinu
Hér i eina tíö var það allra draumur
að vera „sigldur". Að hafa flatmag-
að á ströndum suðrænna sólarlanda,
drukkið höfug vín og virt fvrir sér minj-
ar gamalla menningarþjóða. Allt er
þetta nú gamlar lummur og ekki lengur
forréttindi fina fólksins eins og áður
var. Hvað er þá til ráða? Jú, hvernig
væri að bjóða fólki að sá til bauna og
planta hrísgrjónum meðal bláfátækra
Kínverja?
Ferðamálafrömuðir hjá BA,
breska ríkisflugfélaginu, duttu niður
á þessa bráðsnjöllu hugmynd nú
fyrir skemmstu og svo virðist sem
hún ætli að gera stormandi lukku.
Væntanlegir „sveitamenn" verða að
vísu að gera sér að góðu að gista hjá
kínversku bændunum og erfiða pínu-
lítið á akrinum eða í eldhúsinu en
það er þó huggun harmi gegn að
tveimur dögum af tólf er varið í
Hong Kong, einum í huggulega báts-
ferð til Kanton og svo nokkrum í
stórbænum Peking.
Sá galli er á gjöf Njarðar, að
„sveitamennirnir" bresku verða að
vera sæmilega efnum búnir því að
ferðakostnaðurinn fer fráleitt undir
30.000 kr. og líklega meir. Ekki sakar
heldur að kunna pínulítið fyrir sér í
kínversku því að í Xian Ngou-sveit í
Kanton-fylki er enskukunnáttu fólks
í ýmsu ábótavant.
„Það er þó mesta furða hvað hægt
er að gera sig skiljanlegan á skömm-
um tírna," segir Keith Wyness,
starfsmaður hjá BA, sem fór i til-
raunaferðina fyrr á þessu ári. „Vinn-
an var líka mjög skemmtileg, jafnvel
þótt skóflurnar og rúmin hafi verið
ætluð miklu minna fólki en okkur."
Ferðamönnum, sem veigra sér við
að ösla eðjuna á kínverskum ökrum,
mun verða boðið eitthvert annað
„starf“ og þeim, sem vilja bara hreint
ekkert á sig leggja, munu verða gefn-
ar upp sakir. Þeir hafa hvort sem er
borgað fyrir sig.
— MARTIN WAINWRIGHT
Argentínskir stríðsfangar: Dátarnir
löptu dauðann úr skel, — foringjarn-
ir snæddu steikur.
bótum í landbúnaði verði komið
á, og eru vinstri menn í ríkjum,
þar sem flestir íbúanna eru
hreinræktaðir Indíánar, helztu
talsmenn þess. Gerðar hafa ver-
ið tilraunir í þessa átt í ýmsum
löndum, en aðeins með hálfum
huga, og landeigendaaðallinn
hefur streitzt á móti af öllu afli.
Argentína er frá náttúrunnar
hendi eitt bezta landbúnaðar-
land í víðri veröld. Argentínu-
maðurinn Adolfo Pérez Esqui-
vel, sem nýlega hlaut friðar-
verðlaun Nóbels, skýrir frá eft-
irfarandi sjón, er bar honum
fyrir augu í bænum Santa Fe
þar í landi: Ég sá fjögurra eða
fimm ára gömul börn berjast
eins og hunda og ketti um
eitthvað ætilegt, sem þau höfðu
fundið á ruslahaugum bæjar-
ins.“
— GEOFREY MATTHEWS
OLLAND
Lítið og
lélegt — sé
það þá til
Vetur er nú að ganga í
garð í Póllandi og
landsmenn horfa til hans
með ugg í brjósti. Eina
fagnaðarefnið fyrir flesta
er að þeir hafa ekki verið
handteknir eða fangels-
aðir, hafa enn vinnu og
eru ekki í hópi þeirra,
sem þurfa að fara huldu
höfði fyrir öryggislög-
reglunni eða leyniþjón-
ustu hersins.
Starfsemi pólsku neð-
anjarðarhreyfingarinnar
er fyrst og fremst fólgin í
útgáfu alls kyns dreifirita
og margir eða kannski
flestir ritstjórar þeirra
eru konur. Ef ekki væri
fyrir fórnfúst og óeigin-
gjarnt starf þessara
óþekktu kvenna er hætt
við, að boðskapur Sam-
stöðu færi fyrir ofan garð
og neðan hjá flestum
löndum þeirra.
Árangur neðanjarð-
arhreyfingarinnar í
Varsjá hefur vakið furðu
margra og þar eins og
víðar í Póllandi er hún að
verða nokkurs konar ríki
í ríkinu. í mörgum héruð-
um hefur verið komið á
fót sérstöku fjáröflunar-
kerfi til stuðnings Sam-
stöðu og menningartíma-
rit og flugrit má fá á
hverju götuhorni.
í þessum ritum eru oft
upplýsingar, sem menn á
hæstu stöðum hafa lekið í
Samstöðumenn, og má
sem dæmi um það nefna
dauða nokkurra
óbreyttra borgara í Lubin
í ágúst sl. Opinberlega
var sagt, að þeir hefðu
ógnað lífi nokkurra her-
lögreglumanna en sann-
leikurinn var hins vegar
sá, að lögreglumennirnir
höfðu ekið um borgina
óeinkennisklæddir og
skotið að venjulegum
vegfarendum. Þeir sem
féllu reyndust líka allir
hafa fengið skot í bakið.
Dagsdaglega hafa Pól-
verjar mestar áhyggjur
af því hvernig þeir eigi að
draga fram lífið. í októ-
ber sl. fékk fólk í hendur
enn einn skömmtunarseð-
ilinn og í þetta sinn fyrir
skóm í heilt ár. Nú ætti
það ekki að heyra til
neinna ótíðinda en gall-
inn er bara sá, að hverj-
um og einum eru aðeins
skammtaðir einir skór í
vetur og það, sem er enn
verra, það fást yfirleitt
engir í verslununum.
Frá og með nóvem-
bermánuði breyttist
kjötskammturinn í Pól-
landi. Fólk fær að vísu
enn 2,5 kg á mánuði en nú
verða 700 g af þessum
skammti að vera mjög
lélegt kjöt, þ.e.a.s. „kjöt
með beinum" eða öllu
heldur „bein með kjöti“.
Bensín er skammtað sem
áður nema fólk geti greitt
fyrir það með erlendum
gjaldeyri, þá getur það
fengið nóg.
Segja má, að pólska
þjóðin hafi verið sem í
járngreipum síðan 13.
desember á fyrra ári og
svo lengi sem frelsisöflin
halda uppi baráttu sinni
mun herstjórnin neyðast
til að grípa til stöðugt ör-
væntingarfyllri aðgerða.
Hún hefur hafnað öllum
samningum við þjóðina
og þess vegna einkennist
nú lífið í Póllandi af
óvissu og ótta við fram-
tíðina.
- FELIKS POLONSKI
LITLI BRÓÐIR
Brátt mun hefjast opinber rann-
sókn á fjármálaumsvifum
Esmat Sadats, yngri broður Anw-
ar heitins Sadats, Egyptalands-
forseta. Esmat Sadat var áætlun-
arbílstjóri framan af ævinni, en
flogið hefur fyrir, að hann hafi
rakað saman miklum auðæfum, á
meðan bróðir hans gegndi forseta-
embætti. Anwar Sadat var sem
kunnugt er myrtur fyrir ári, en þá
hafi hann verið forseti Egypta-
lands um 11 ára skeið.
I desember næstkomandi mun
hinn svonefndi siðgæðisdómstóll,
sem Sadat forseti stofnaði á sínum
tíma til að fjalla um ákærur um
spillingu og óheiðarleika í við-
skiptum, hefja rannsókn á málum
Esmat Sadats. Ákærur hafa komið
fram af hálfu embættis saksókn-
ara, en hann hefur þegar lagt lög-
hald á eignir þær, sem skráðar eru
á nafn Sadats, eiginkvenna hans
fjögurra og barna hans, 15 að tölu,
meðan rannsókn málsins fer fram.
Samkvæmt frásögoum sumra
egypskra blaða er Esmat Sadat
margfaldur milljónamæringur.
Meðal þeirra eigna, sem lagt hefur
verið löghald á, eru nokkur fjölbýl-
ishús, mnikill bílafloti og 55-her-
bergja hús í glæsihverfinu Mardi í
sunnanverðri Kaíró. I því hverfi
búa einkanlega efnaðir útlend-
ingar, sér í lagi Bandaríkjamenn.
Þeir fluttu til Egyptalands eftir að
Sadat bætti samskiptin við Banda-
ríkin á síðari árum.
Meðan Sadat forseti lifði, voru
ættingjar hans stöðugt að baka
honum vandræði, því að þeir
neyttu hvers kyns bragða til að
hagnast á frændseminni við æðsta
Ksmat: Fjórar eiginkonur, 55 her-
bergja einbýlishús.
mann ríkisiqp. í sjálfsævisögu
sinni skýrir Sadat svo frá, að eini
maðurinn, sem hann sjálfur hafi
fyrirskipað að láta taka höndum,
hafi verið eldri bróður hans, Tal-
aat.
Anwar Sadat var einn 13 systk-
ina, en faðir þeirra var opinber
starfsmaður, lágt settur, og reyndi
hann að kosta börn sín til mennta
af rýrum tekjum. Forsetinn var
einkum hændur að yngsta bróður
sínum, en hann var orrustuflug-
maður og lét lífið á fyrsta sólar-
hring stríðsins við ísrael árið 1973.
Sadat dró enga dul á ósamlyndi
sitt og Esmat. Hann gerði eitt sinn
upptækt vegabréf hans og bannaði
honum að koma til hafnarinnar í
Alexandríu, sem er stærsta flutn-
ingamiðstöð Egyptalands. í einu
blaðaviðtali komst hann svo að
orði um Esmat, að hann væri
óstýrilátur.
I grein í blaðinu Akhbar el Yom
fyrir skömmu er gefið í skyn, að
Esmat og bandarískur félagi hans
hafi krafizt þess að varnarmála-
ráðuneyti landsins veitti samþykki
til þess að þeim yrði falið að ann-
ast flutning bandarískra vopna
sjóleiðis ti Egyptalands, enda þótt
þeir hefðu engu skipafélagi yfir að
ráða.
Rannsókn á viðskiptaháttum og
fjárreiðum Esmat Sadats er engan
veginn unnt að skoða sem upphaf
baráttu gegn fylgismönnum hins
látna forseta og uppgjör við valda-
tíð hans. Hins vegar eru hættu-
legustu andstæðingar Mubaraks
forseta sömu bókstafstrúarmenn-
irnir og þeir sem styttu fyrirrenn-
ara hans aldur. Þessir menn telja
að hið hróplega misrétti sem ríkir
í Egyptalandi geti verið góður
jarðvegur fyrir þaráttu þeirra. Af
þeim sökum verður að fullnægja
réttlætinu, ekki sízt ef sökudólgar
hafa áberandi tengsl við þá sem
með völdin fara.
- COLIN SMITH
Bílstjórinn sem varö allt
í einu bullandi ríkur