Morgunblaðið - 25.11.1982, Page 5
Fyrirlestrar
á vegum
Geðhjálpar
GEÐHJÁLP, félag geðsjúkra, að-
standenda þeirra og velunnara mun
í vetur gangast fyrir fyrirlestrum um
geðheilbrigðismál og skyld efni.
Fyrirlestrarnir verða haldnir á geð-
deild Landspítalans, í kennslustofu
á 3. hæð. Þeir verða allir á fimmtu-
dögum og hefjast kl. 20. Fyrirlestr-
arnir eru bæði fyrir félagsmenn svo
og alla aðra, sem áhuga kynnu að
hafa. Aðgangur er ókeypis. Fyrir-
spurnir og umræður verða eftir fyrir-
lestrana.
Fyrsti fyrirlesturinn verður í
kvöld og mun þá Ellen Júlíusdótt-
ir, félagsráðgjafi, kynna starfsemi
fjölskyldudeildar Félagsmála-
stofnunar.
Fleetwood opnar
á ný á mánudag
HAFFARI SH selur í Fleetwood nk.
mánudag og er það fyrsta sala ís-
lenzks skips þar eftir um það bil árs
lokun á sölumörkuðum.
Bretar hafa með opinberum
styrkjum byggt upp fiskiðjuver og
veitt fiskkaupendum í Fleetwood
fjárhagsaðstoð til að gera staðn-
um kleift að hefja fiskverkun á ný
og opna fiskmarkaði. Nýverið var
hér á ferð sendinefnd frá Fleet-
wood sem átti viðræður við út-
gerðarmenn og stjórnvöld hér-
lendis.
*
Erlingur Oskars-
son skipaður
bæjarfógeti
I Siglufirði
FORSETI íslands hefur skipað Erl-
ing Óskarsson fulltrúa, til að vera
bæjarfógeti í Siglufirði, frá 1. des-
ember 1982 að telja.
Umsækjendur um embættið auk
Erlings voru: Guðmundur K. Sig-
urjónsson, fulltrúi á ísafirði og
Þorbjörn Árnason, fulltrúi á
Sauðárkróki.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982 5
Hörður Eiríksson, Eggert Nordahl og Gísli Sigurðsson og fleiri vinna við
endursmið flugvélar. ~ bjósm. J6n s.
Fyrsti flugvélstjórinn segir frá
„Leikur að orðum“
Fyrsta ljóðabók Árna Grétars Finnssonar
í KVÖLD flmmtudaginn 25. nóv. kl.
20.30 verður almennur félagsfundur
í íslenska flugsögufélaginu í Krist-
alsal Hótel Loftleiða. Gestur fundar-
ins verður Sigurður Ingólfsson,
fyrsti skráði flugvélstjóri. Sigurður
er starfsmaður Flugleiða og hefur
verið það síðan 1944. Mun hann
skýra frá starfsferli sínum og ýms-
um öðrum atvikum á æviskeiði sínu
tengdu flugi.
Þess má einnig geta að félagið
hefur staðið fyrir endursmíði á
fyrstu íslensku smíðuðu og hönn-
uðu flugvélinni, sem þeir Gunnar
Jónasson og Björn Olsen smíðuðu
upphaflega. Gísli Sigurðsson hef-
ur haft yfirumsjón með smíðinni,
en margar hendur hafa komið þar
nærri þar á meðal Gunnar Jónas-
son sem hefur séð um vandasam-
ari málmsmíðar ásamt öðru. Er
áætlað að smíðinni ljúki á næsta
ári.
Allir sem áhuga hafa á flugi og
flugsögu eru velkomnir á fundinn.
ÁRNI Grétar Finnsson hæstaréttar-
lögmaður hefur sent frá sér fyrstu
Ijóðabók sína, sem hann nefnir
„Leikur að orðum“. í bókinni eru
rúmlega 60 Ijóð, hún er 111 blaðsið-
ur, gefln út af bókaútgáfunni
Rauðskinnu.
Formála að bókinni skrifar Jón
Kr. Gunnarsson. Hann segir m.a.:
„Ljóðagerð og skáldskapur hafa
ætíð verið í hávegum höfð á ís-
landi. Þrátt fyrir fátækt og harða
lífsbaráttu fyrr á öldum, og þrátt
fyrir annríki nú til dags hafa ís-
Upplestur
í Nýja
kökuhúsinu
í KVÖLD verður fjölbreytt bóka-
kynningardagskrá i Nýja kökuhús-
inu við Austurvöll. Jón Óttar
Ragnarsson les úr nýútkominni bók
sinni „Strengjabrúður“. Strengja-
brúður er fyrsta skáldsaga höfundar
en áður hefur komið út bókin „Nær-
ing og heilsa“ eftir Jón Óttar.
Einnig les Heimir Þorleifsson
úr bókinni „Ómagar og utangarðs-
fólk“ eftir Gísla. Ágúst Gunn-
iaugsson, og Einar Laxness les úr
bók hins þjóðkunna rithöfundar
og prests, Gunnars Benediktsson-
ar, um sr. Odd V. Gíslason frá
Rósuhúsi í Grjótaþorpi, en bókin
ber nafnið „Oddur frá Rósuhúsi".
Nýja kökuhúsið opnar kl. átta
en lesturinn hefst kl. hálf níu.
lendingar öllum stundum gefið sér
tóm til að tjá sig í ljóðum og
skáldskap.
Þó lífshættirí landinu hafi gjör-
breyst og hraði dagiega lífsins
aukist, þá hefur ljóðlistin haldið
velli. Enn eru í landinu karlar og
konur, sem gleðjast yfir góðu ljóði
og gefa sér tíma í dagsins önn til
að yrkja ljóð og vísur. Breyttar
lífsvenjur og breyttur smekkur og
fjöldi nýrra möguleika til tómst-
undaiðkana hefur ekki lagt ljóð-
listina að velli.
Útkoma þessarar bókar stað-
festir að enn eru til menn, sem
yrkja ljóð, „leika sér að orðum",
þrátt fyrir annríki á mörgum svið-
um.“
Fullveldisfagnaður
Stúdentafélagsins
STÚDENTAFÉLAG Reykjavíkur er einn elzti félagsskapur hér á landi. Það
var stofnað 14. nóvember 1871 og varð því nýlega 111 ára. Stúdentafélagið
hefur, sem kunnugt er, beitt sér fyrir margvíslegum málum og haldið uppi
ýmiss konar starfsemi, segir í fréttatilkynningu frá félaginu.
Árni Grétar Finnsson
Þar segir ennfremur:
Eitt viðfangsefnið hefur verið
fullveldisfagnaður, en hann hefur
um langt skeið verið haldinn ná-
lægt mánaðamótum nóvem-
ber-desember. — Svo verður einn-
ig nú í ár. Stúdentafélagið heldur
fullveldisfagnað í Átthagasal Hót-
el Sögu, föstudag 3. desember.
Hefst hann með borðhaldi kl.
19.30, en veizlustjóri verður Guðni
Guðmundsson rektor. Aðalræðu
flytur dr. Gylfi Þ. Gíslason fyrrv.
ráðherra. Jóhanna Linnet syngur
nokkur lög við undirleik Sigurðar
Rúnars Jónssonar. Þá stjórnar
Jónas Elíasson prófessor fjölda-
söng. Því næst leikur hljómsveit
fyrir dansi fram eftir nóttu.
Stjórn félagsins hvetur stúd-
enta til þess að fjölmenna og
panta miða sem fyrst. Miðar eru
seldir i anddyri Átthagasalar
1.—2. desember kl. 17—19.
Þakkarávarp
Hjartanlegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem sýndu
mér hlýhug og vinsemd á 85 ára afmæli mínu hinn 16.
nóv. sL Beztu þakkir einnig til þeirra, sem sýndu Slysa-
vamafélagi íslands örlæti af því tilefni.
Guðrún Valdimarsdóttir
fyrrv. Ijósmóöir.
FISCHER hafa sklði við hæfi
hvers og eins. Göngusklði og svig-
sklði handa byrjendum og kunn-
áttufðlki, börnum unglingum og
fullorönum.
TYROLIA TOTAL DIOGONAL
sklðabindingar eru einkaleyfis-
vernduð nýjung sem veitir
sklðafólki meira öryggi en áður
hefur þekkst.
REINALTER og AIR BALANCE er sklðafatn-
aður sem stenst ströngustu kröfur um útllt
og gæði
DACHSTEIN sklðaskórnir austur-
rlsku eru þekktlr um vlða veröld
fyrir öryggi, þægindi, smekklega
hönnun og frábæra einangrun
gegn kulda
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT8
AORIR ÚTSÖLUSTAOIR:
Pipulagningar
þjónustan
Akranesi
Versl. BJarg
(Fatnaóur)
Akranesi
Kaupfélag Borgfiróinga
Borgarnesi
Kaupfélag Borgflróinga
ólafsvlk
Versl. Húsió
Stykklshólmi
Sporthlaðan
isafirði
Verslun Elnart
Guófinssonar Hf
Bolungarvlk
Kaupfélag Húnvetnlnga
Blönduósi
Kaupfélag Skagfirólnga
Sauóárkróki
Kaupfélag Eyfiróinga
Ólafsfirði
Verslunln Yllr
Dalvlk
------------------J *1
Jón Halldórsson
Dalvlk
Vióar Garóarsson
Akureyri
Kaupfélag Eyfiróinga
Akureyri
\
Bókaverslun Þórarins
Stefanssonar
Húsavik
Stelngrímur Sæmundsson
Vopnaflrði
Verslunln Skógar
Egilsstöóum
Ingþór Sveinsson
Neskaupsstaó
Verslunín Mosfell
Hellu