Morgunblaðið - 25.11.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982
27
GATT-fundurinn í Genf:
Alvarlega varað við
tollmúrum og höftum
Genf, 24. nóvember. AP.
RÁÐHERRAFUNDUR 88 ríkja, sem aöild eiga að Gatt, alþjóðatollabanda- ar frammi fyrir samkeppni frá
laginu, hófst í Genf í dag með ræðu forseta þess, sem skoraði á menn að vera löndum, sem umlukin væru toll-
vel á verði gagnvart einangrunarhyggju í alþjóðlegum viðskiptum. múrum og innflutningsleyfum.
Bylting bæld
niður í Ghana
London, 24. nóvember. AP.
HERMENN hliðhollir Jerry John Rawlings flugliðsforingja, valdamesta
manni Ghana, bældu niður byltingartilraun uppreisnarmanna úr hernum í
dag.
Utvarpið í Accra segir að uppreisnarmenn séu á flótta, að landamærunum
hafi verið lokað og útgöngubann hafí verið fyrirskipað. Accra-flugvelli hefur
einnig verið lokað.
Rawlings skoraði í útvarps-
ávarpi á yfirmenn að vera vel á
verði og flytja herlið aðeins sam-
kvæmt skipunum frá sér eða yfir-
manni hersins. Hann skoraði á
hermenn að halda kyrru fyrir í
ísrael:
E1 A1 lagt
niður
Jerúsalem, 24. nóvember. AP.
ísraelska ríkisstjórnin ákvað í
dag að leggja niður flugfélagið El
Al eftir að farið höfðu út um þúf-
ur samningaviðræður við
starfsmenn þess um launalækk-
anir og uppsagnir.
E1 A1 er að 97% í ríkiseigu og
hefur lengi verið litið á það
sem óskabarn þjóðarinnar og
fulltrúa hins frjálsa Gyðinga-
ríkis. í tilkynningu, sem for-
maður félagsins las eftir ríkis-
stjórnarfundinn, sagði, að
hluthafamir sæju „enga leið til
að bæta hag flugfélagsins
vegna stöðugra truflana á
starfsemi þess“.
stöðvum sínum og trúa ekki upp-
lognum sögum.
Hann skipaði jafnframt her-
mönnum þeim sem komust undan
að gefast upp og skoraði á alla
landsmenn að sinna daglegum
störfum sínum.
Seinna var útvarpað tilkynn-
ingu til yfirmanna úr hernum og
þar sagði að ef hersveitir yrðu
fluttar án skipana frá Rawlings
eða yfirmanni hersins yrðu gerðar
loftárásir á þær.
í tilkynningunni var skorað á
landsmenn að „standa saman og
láta ekki örfáa, óánægða stjórn-
leysingja og metnaðargjarna
menn sá fræjum ringulreiðar og
steypa landinu út í blóðsúthell-
ingar“.
Rawlings stjórnaði byltingu
lágtsettra foringja úr hernum 4.
júní 1979 og lét lífláta þjóðhöfð-
ingjann, Fred Akuffo hershöfð-
ingja, og tvo fyrrverandi þjóðhöfð-
ingja. Hann ríkti í 3'/2 mánuð og
afsalaði sér völdum þegar kosn-
ingar höfðu farið fram, en hrifsaði
aftur til sin völdin á gamlársdag í
fyrra og boðaði „heilagt stríð“
gegn spillingu.
Sunday Times sagði nýlega að
Ghana væri næstum því gjald-
þrota, landsmenn væru örmagna
og síðari stjórn Rawlings hefði
ekki beinlínis verið sigursæl.
Forseti Gatt, Kanadamaðurinn
Allan J. Maceachen, sagði frammi
fyrir rúmiega 800 fulltrúum, að
tilraunir sumra ríkja til að vernda
innlendan iðnað með tollmúrum
væru „smitandi og ynnu gegn en
ekki með endurreisn efnahagslífs-
ins“. Hann skoraði á ríkisstjórnir
að freistast ekki til einangrunar-
hyggju þótt efnahagsleg stöðnun
blasti við og mesta atvinnuleysi
frá stríðslokum.
Sérstakur fulltrúi Reagans
Bandaríkjaforseta á fundinum,
William E. Brock, sendiherra,
sagði að meginverkefni fundarins
væri að lýsa yfir fullum stuðningi
við upphafleg stefnumál samtak-
anna hvað sem liði miklum efna-
hagslegum og pólitískum þrýst-
ingi. Hann hvatti einnig til um-
ræðu um niðurgreiðslur á land-
búnaðarvörum, sem eru mikill
ásteytingarsteinn í samskiptum
Bandaríkjamanna og Vestur-
Evrópumanna.
Varaforseti framkvæmdanefnd-
ar EBE, Wilhelm Haferkamp,
sagði, að Gatt hefði staðið sig
sæmilega í stykkinu þrátt fyrir
erfiðleikana og vildi ekki gera
mikið úr þeim frávikum, sem orðið
hefðu frá frjálsri verslun. Hann
sagði einnig, að ekki kæmi til
mála, að iðngreinar eins og skó- og
vefjariðnaður stæðu berskjaldað-
Rússneskt skip
í vari við Bodö
Bodö, 24. nóvember. AP.
SOVÉZKI ísbrjóturinn „Kapitan M.
lzmailov“ hefur verið í vari í eina
viku í Glomfjord sunnan við NATO-
stöðina í Bodö í Norður-Noregi.
Ian Smith
handtekinn
Harare, Zimbabwe, 24. nóvember. AP.
IAN Smith, fyrrum forsætisráð-
herra Rhódesiu, var á meðal 16
hvítra manna, sem handteknir
voru i dag á málverkasýningu og
yfirheyrðir í þrjár stundir á lög-
regiustöð í Harare.
Tólf lögreglubílar um-
kringdu skyndilega húsið þar
sem málverkasýningin fór
fram en auk Smiths og ann-
arra gesta var þar einnig versl-
unarfulltrúi Suður-Afríku-
stjórnar í Zimbabwe, Waldie
Koen. Hann ásamt Smith og 14
öðrum hvitum mönnum voru
fluttir á lögreglustöð í borginni
en sleppt eftir þrjár stundir.
„Þeir virtust helst halda að
þetta væri leynilegur stjórn-
málafundur," sagði einn þeirra
að því búnu.
í dag lægði eftir ofsaveður í
nokkra daga og ísbrjóturinn sigldi
á haf út án þess að skipstjórinn
væri beðinn um það.
Norskt varðskip hafði nánar
gætur á ísbrjótnum meðan hann
var í Glomfjord og talsmaður
lögreglunnar sagði að hann hefði
ekkert gert af sér.
„En þar sem veður er slæmt við
ströndina er ég hræddur um að
hann leiti vars á fleiri stöðum á
leið sinni suður eftir,“ bætti hann
við.
Isbrjóturinn er gerður fyrir
fljótasiglingar, er jafnframt
dráttarskip og þolir aðeins tveggja
metra ölduhæð.
ísbrjóturinn hefur verið á suð-
urleið síðan honum var tvívegis
vísað út af bannsvæðum skammt
frá Tromsö fyrr í þessum mánuði.
í annað skipti varð að senda tvo
vopnaða lögreglumenn um borð og
þá var lygn sjór.
Yfirmaður hersins í Norður-
Noregi, Ulf Berg hershöfðingi,
hefur þetta að segja um hugsan-
legar ástæður endurtekinna land-
helgisbrota ísbrjótsins:
„Tilgangurinn gæti annaðhvort
verið sá að ljósmynda svæðin á
ströndinni, eða að prófa við-
bragðsgetu herafla okkar.“
Sendu hann í heimsstyrjöld. Ægilegustu loftárás
Evrópustríðsins.
Komdu honum á aðra reikistjörnu.
Náðu honum til baka.
ímyndaðu þér árangurinn, eða: Lestu fyrstu íslensku útgáfuna
á þeim fræga Kurt Vonnegut:
Sláturhús 5.