Morgunblaðið - 25.11.1982, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982
sem hlustandi er á...
SOMY HIGH-TECK 200 samstæðan er ekki bara stórglæsileg heldur
býöur hún líka upp á margt þaö nýjasta og besta frá SONY.
• Beindrifinn, hálfsjálfvirkur plötuspilari.
• 2x30 sínus vatta magnari meö tónjafnara og innstungu fyrir Digital Audio Disc.
•• 2ja mótora kassettutæki meö rafeindastýröum
snertitökkum, Dolby, lagaleitara o.s.frv.
• 3ja bylgju útvarpi FM steríó, MB, LB.
• 2-60 vatta hátalarar.
• Skápur á hjólum meö glerhurö og glerloki.
Ævintýralegt jólaverö,
aöeins 18.950.00 stgr.
Sendum gegn póstkröfu.
<ðUAPIS hf.
Brautarholt 2
Sími 27133
P.s. Nú slær fjölskyldan saman í veglegan jólaglaöning.
Reykjavik
LÁSIKOKKUR
tvipmyndir
úr lifi Gu&mundar Angantýssonar
Lási kokkur
kominn á bók
„Lási kokkur“ nefnist nýút-
komin bók frá Prentveri hf. eftir
Einar Loga Einarsson, sem hef-
ur að geyma „svipmyndir úr lífi
Guðmundar Angantýssonar"
eins og segir á kápusíðu.
Bókin er sett, hönnuð, og kápu-
prentuð í Prentveri, prentuð í
Skemmuprenti og bundin í Arn-
ar-Bergi. Bókin er samtals 123 síð-
ur að stærð, prýdd allmörgum
myndum.
í forlagskynningu á bókarkápu
segir svo um bókina: „Guðmundur
Angantýsson, í daglegu tali kall-
aður Lási kokkur, er orðinn 81 árs
gamall. Hann er einn þeirra
manna sem er orðinn þjóðsagna-
persóna í lifanda lífi, fyrir sinn
sérstaka lífsstil og hnyttin tilsvör,
sem oftar en ekki koma mönnum á
óvart og vekja jafnan kátínu þrátt
fyrir að oft býr nokkur alvara að
baki.
Hann tilheyrir þeirri kynslóð
sem var trú yfir litlu og hafði
nægjusemina og heiðarleikann að
leiðarljósi.
Lási er alltaf hress og kátur, á
sér enga óvini og vill að öllum líði
vel.“
Hvammstangi:
Skutu í spenni
svo þorpið
varð vatnslaust
TVEIR piltar, 17 og 18 ára gamlir,
viðurkenndu um helgina að hafa
skotið úr riffli í spenni, sem er í
spennistöð sem flytur rafmagn í
dælustöð vatnsveitunnar á Hvamms-
tanga, með þeim afleiðingum að
spennirinn brann yfir og varð þorpið
vatnslaust.
Piltarnir höfðu tekið riffil
traustataki og voru að æfa sig að
skjóta í mark í Hrafnsdal,
skammt fyrir ofan Hvammstanga.
Þeim fipaðist skotfimin og hafn-
aði skot úr rifflinum í spennistöð-
inni með fyrrgreindum afleiðing-
um.'
I
l
Frost og fönn eru engin fyrirstaða þegar ATLAS er annarsvegar. ATLAS snjóhjólbarðar: Minni bensíneyðsla, meiri ending og síðast en ekki síst, aukið öryggi fyrir þig, þína og þá sem á vegi ykkar verða. Á ATLAS eru þér allir vegir færir. Hjólbarðaviðgerð Jóns Ólafssonar við Ægissíðu sér um að selja og setja undir ATLAS snjódekk fyrir bæjarbúa. SAMBANDIÐ VÉLADEILD
HJÓLBARÐASALA Höfðabakka 9 <-83490-38900
GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM