Morgunblaðið - 09.01.1983, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.01.1983, Qupperneq 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983 Leikstjórinn Spielberg slappar af milli atríða. gull. Hann trúði því sjálfur, að honum gæti ekki mistekist. En að því kom að honum mistókst. Það var myndin „1941“, sem kostaði 30 milljónir dollara árið 1979 og það eru ekki nema örfáar vikur síðan tapið vannst upp. „Ég gat bara ekki hætt að gera þessar stóru, rándýru myndir. Ég lét allt mitt í „1941“, en það eyðilagði hana. Það var ekki fyrr en þá, að ég rakst óþyrmilega á hinn harða vegg fjármálanna." Spielberg lærði af reynslunni. Næsta skref hans var að vinna að mynd með vini sínum, George Lucas, sem kenndi Spielberg að gera áætlanir, ekki aðeins varð- andi fjármálin, heldur einnig varðandi skipulagningu kvik- myndunarinnar. Þeir höfðu 85 daga til að gera Ránið á týndu örkinni, en þurftu aðeins 73. „Ég skipulagði 80% myndarinnar fyrirfram, hitt voru ákvarðanir á staðnum." Hann bætir við: „Ránið er auðvitað poppkorn, en gott poppkorn.“ Spielberg er lítið fyrir að nota stórstjörnur í myndum sínum. Ef við skoðum nöfn ieikaranna, sjáum við, að aðeins einu sinni notaði hann stjörnu, Richard Dreyfuss, í Close Encounters, en Dreyfuss sló einmitt í gegn í Ókindinni. í Ráninu lék Harri- son Ford aðalhlutverkið, en er hann stórstjarna? Ef við lítum á nöfn aðalleikaranna í Polter- geist og Geimálfinum, sjáum við, að engin þekkt nöfn fyrirfinnast. „í þeim myndum, sem ég hef gert og geri, er það myndin sjálf sem er stjarnan," segir Spiel- berg. Litla myndin Þegar Spielberg lauk við Ránið á týndu örkinni, byrjaði hann á mynd sem hann hafði lengi lang- að til að gera. Fyrir nokkrum ár- um lýsti hann því yfir, að næst gerði hann „litla, ódýra mynd fyrir börn, með börn í aðalhlut- verkunum". „Ég hef beðið lengi eftir því að fjármálamennirnir í Hollywood bönnuðu mér að gera allar þess- ar 30 milljóna dollara myndir, svo ég gæti gert eina litla fyrir börn. (Geimálfurinn kostaði 10 milljónir dollara, módelin af ET sjálfum kostuðu 1V4 milljón doll- ara, en Spielberg bendir á að Marlon Brando fái þrisvar sinn- um meira fyrir hlutverk.) Elliott litli í Geimálfinum er ég sjálfur og systir hans, Gertie, er sam- bland af yngri systrum mínum þrem. Svefnherbergið er eins og mitt eigið í þá gömlu góðu daga. Ég skrifaði drög að sögunni kvöld eitt þegar ég var að gera „Ránið“ og ég byggði ET á litla náunganum, sem kom út úr móð- urskipinu í Close Encounters, svona rétt til að skemmta sjálf- um mér. Ég lét Melissu Mathison fá punktana mína og hún bætti við atriðum og skrifaði öll samtölin." Hann er grannur, meðalmaður á hæð, skartar alskeggi og klæðist ætíð sportfötum. Hann reykir hvorki tóbak né hass, drekkur lítið. Þaö er ekkert í fari hans sem minnir á Hollywood- glæsibraginn, ekki annað en öguð sjálfsstjórn og listinn yfir kvikmyndir hans, afrek sem seint verður leikið eftir. Hann er 35 ára og er eitt þekktasta nafnið í kvikmyndaheiminum í dag. — Já, þú hefur rétt fyrir þér, Spielberg var það heillin. Mikið hefur veriö skrifað um nýj- ustu mynd hans, Geimálfinn, svo þessi inn- gangur verður ekki lengri, en eftirfarandi grein er soðin upp úr ensku tímaritunum Photoplay og The Observer, svo og Time Magazine. Einstæður ferill Helstu kvikmyndir Spielbergs eru fimm og þær hafa allar mal- að gull, um það bil 1V4 milljarð dollara. „Ofurkraftur" er skil- fjreiningin á myndum hans: í Okindinni (410 milljónir dollara fengust í aðgangseyri) var til- finningin spenna; í Close En- counters (250 milljónir dollara) var tilfinningin undrun; i Ráninu á týndu örkinni (þegar 310 millj- ónir dollara og enn bætist við) er tilfinningin spenna og gleði; í Poltergeist (80 milljónir og sýn- ingar standa enn yfir) er tilfinn- ingin gæsahúð og i Geimálfinum (sem virðist ætla að slá allar hinar út) er tilfinningin ást. Spielberg sest í sófa í hreiðri sínu. „Ég átti þrjár yngri syst- ur,“ segir hann. „Ég var alltaf einn og yfirgefinn með hugsanir mínar. Ég ímyndaði mér allt það versta og það besta sem gæti gerst, bara til að flýja leiðindin. £g var horaður, bólugrafinn patti." Móðir hans, Leah, segir hann ekki hafa verið ástúðlegan dreng. Systir hans, Anna, segir, að Spielberg hafi neytt þær syst- urnar til að leika í 8 mm heima- tilbúnum kvikmyndum sínum. Viðtaiið er truflað, símarnir hringja og hurðum skellt. Hingað til hefur Spielberg setið rólegur eins og barn, en skyndi- lega rýkur hann á fætur og það er greinilegt að allir sitja og standa eins og hann vill. Hvað er eiginlega um að vera? spyr hann. Eftir nokkrar sekúndur er allt dottið í dúnalogn. Blm. bendir Spielberg á „Disney-einkenni" hans. „Hvað með það, þó ég liti myndir mínar ekki eins sterkum litum og Coppola og Scorsese?" svarar hann. „Coppola gerir myndir um vald og tryggð, Scorsese gerir myndir um reiði og truflaða geðsmuni. Ég geri myndir sem hitta fólk beint í hjartastað." . Eftir hinar miklu vinsældir myndanna Ókindarinnar og Close Encounters var eins og allt sem Spielberg snerti breyttist í kvikmynda- gerdarmaður dagsins Spielberg i þungum þönkum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.