Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 1
76 SÍÐUR
12. tbl. 70. árg.
SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Thatcher:
Bætt samskipti
ef Shcharansky
yrði látinn laus
Uondon, 15. janúar. AP.
MARGARET Thatcher, forsætisrádherra Breta, segir í bréfi, sem hún hefur
skrifað eiginkonu sovéska andófsmannsins Anatoly Shcharansky, ad það
yrði til að bæta samskipti austurs og vesturs ef hin nýja forysta í Sovétríkjun-
um léti mann hennar lausan úr fangelsi.
Avital, eiginkona Shcharan-
skys, kom sl. fimmtudag til
London úr ferð til Bandaríkj-
anna og ýmissa höfuðborga í
Vestur-Evrópu þar sem hún tal-
aði máli manns síns við ráða-
menn. Anatoly Shcharansky er
Brasilía:
Furðuhlutur
af himni ofan
eðlisfræðingur að mennt og var
einn af stofnendum Helsinki-
nefndarinnar í Moskvu, sem
reyndi að fylgjast með því, að
sovésk stjórnvöld stæðu við
mannréttindaákvæði samnefnds
samnings. Fyrir það var hann
dæmdur í 13 ára fangelsi, sakað-
ur um andsovéskan áróður og
njósnir fyrir Bandaríkjamenn.
Hann hefur verið í hungurverk-
falli um langt skeið og er aðeins
neyddur matur ofan í hann
þriðja hvern dag. Avital segist
óttast, að maður sinn eigi stutt
eftir ólifað.
Macao, Brasilíu, 15. janúar. AP.
UNDARLEGUR málmsívalningur
féll í gær af himni ofan í brasilísku
hafnarborginni Macae og olli nokkr-
um skemmdum á íbúðarhúsi, sem
hann lenti á, að sögn lögreglunnar.
Sívalningurinn var rauðglóandi
þegar hann skaust í gegnum þakið
á íbúðarhúsi Mauro Freitas Soar-
es, sem átti fótum sínum fjör að
launa ásamt öðru heimilisfólki. Til
allrar hamingju varð enginn fyrir
meiðslum en nokkur eldur kom
upp í húsinu, sem þó tókst fljót-
lega að slökkva.
Að sögn lögreglunnar er hlutur-
inn um 60 sm langur og 10 sm í
þvermál. Tvö göt eru á honum og í
gegnum þau má sjá, að sívalning-
urinn er uppfullur af rauðum vír-
vafningum. Fólk í Macae skiptist
nú í tvo hópa í skoðun sinni á þess-
um furðuhlut. Annar hópurinn
segir, að hann sé úr sovéska gervi-
hnettinum, sem nú æðir stjórn-
laust til jarðar, en hinn segist full-
viss um, að hann sé úr fljúgandi
diski.
Líbanon:
Viðræður í undirbúningi
við PLO og Sýrlendinga
Beirut, 15. janúar. AP.
LÍBANSKA stjórnin skýrði í dag frá skipun þriggja undirnefnda til að ræða
væntanlegan brottflutning ísraelsks herliðs frá Líbanon og einnig, að hafinn
væri undirbúningur viðræðna við Sýrlendinga og PLO-samtökin um brott-
flutning þeirra manna.
Fyrirhugaður var fundur í dag
með viðræðunefndum þjóðanna,
ísraela og Líbana, en sl. fimmtu-
dag náðist samkomulag um
dagskrá næstu funda. Var það
mest fyrir milligöngu Philips G.
Habibs, sendimanns Bandaríkja-
stjórnar, sem Reagan sendi sér-
Tvö ár liðin frá því ekkja Maos var dæmd:
Líflátsdómi breytt
í lífstíðarfangelsi?
Peking, 15. janúar. AP.
EKKJA Mao Tse-Tungs, Jiang Qing, mun ekki verða tekin af lífi og að
öllum líkindum verður þeim dauðadómi sem hún á nú yfir höfði sér
breytt í lífstíðarfangelsi, segir í áreiðanlegum fregnum í dag.
Talið er líklegt að hún muni
verða látin eyða sínum síðustu
dögum innan veggja fangelsis,
en kínverska utanríkisráðu-
neytið hefur ekki samþykkt
þessa tilgátu og sagt að mál
ekkjunnar verði lagt fyrir
dómstóla og farið verði þar að
lögum í einu og öllu.
Sérstakur dómstóll dæmdi
ekkjuna, Jiang, til dauða þann
25. janúar árið 1981 og var þá
gefinn tveggja ára frestur til að
fullnægja dómnum. Frestur
þessi var gefinn til að henni
gæfist tækifæri til að iðrast
gerða sinna, en nánasti sam-
starfsmaður hennar, Zhang
Chunqiao, sem emnig var
dæmdur til dauða, mun nú vera
langt leiddur af krabbameini í
prísundinni.
Jiang hefur haldið fram sak-
leysi sínu allan tímann, en hún
var dæmd fyrir landráð, of-
sóknir og fyrir að hafa framið
gagnbyltingarglæpi á árunum
1966 til 1976.
Erlendir og innlendir frétta-
skýrendur í Kína hafa lýst því
áliti sínu að ólíklegt sé að ekkj-
an verði tekin af lífi, en hún er
nú 68 ára gömul.
staklega á vettvang til að höggva á
hnútinn. Kristnir menn í Líbanon
hafa lýst ánægju sinni með sam-
komulagið en vinstri sinnaðir
múhameðstrúarmenn hafa hins
vegar gagnrýnt það ásamt Sýr-
lendingum og segja, að Líbanons-
stjórn hafi gefið eftir fyrir kröfum
ísraela og Bandaríkjamanna.
Haft hefur verið eftir ferða-
málaráðherra ísraels, Avraham
Sharir, að ein af ástæðunum fyrir
innrásinni í Líbanon hafi verið að
koma í veg fyrir, að PLO-samtökin
færu opinberlega fram á griða-
sáttmála við ísraela eins og þau
hefðu verið farin að ýja að á bak
við tjöldin. Sharir sagði seinna, að
ranglega hefði verið eftir honum
haft, hann hefði átt við vopnahlé
við PLO, en þingmaður nokkur og
stuðningsmaður stjórnarinnar
hefur nú staðfest, að PLO hafi
beðið um griðasáttmála við ísra-
ela.
Það voru fréttamenn tveggja
ísraelskra blaða, sem höfðu áður-
nefnd ummæli eftir Sharir, sem
sagði einnig, að ísraelsstjórn hefði
hafnað málaleitan PLO og borið
því við, að ef PLO og Israelar
gerðu með sér griðasáttmála
myndi PLO bara fá frjálsari hend-
ur til hryðjuverka utan ísraels, í
Evrópu og víðar. ísraelar hafa
alltaf haldið því fram, að innrásin
í Líbanon hafi eingöngu verið gerð
til að binda enda á árásir palest-
ínskra skæruliða inn í ísrael.
Díana og Karl í Austurríki:
Fríið eyðilagt
af blaðamönnum
Lundúnum, 15. janúar. AP.
BUCKINGHAM-höll lét í gær þau bod út ganga ad nærvera meira en
fimmtíu blaðamanna og Ijósmyndara væri um það bil að eyðileggja skíðafrí
Karls Bretaprins og Díönu eiginkonu hans og svo virtist sem flest bresku
blaðanna hefðu tekið tillit til þessara umvandana í morgun.
Aðeins eitt þeirra níu dagblaða
sem gefin eru út í Lundúnum birti
í morgun mynd af prinsessunni á
skíðum eftir að talsmaður Buck-
ingham-hallar, Michael Shea, til-
kynnti að blaðamenn og ljósmynd-
arar hefðu gengið of langt að
þessu sinni.
Talsmaðurinn sagði að meira en
fimmtíu fréttamenn sætu fyrir
þeim hjónum í skíðabrekkunum og
þyrlur hlaðnar ljósmyndurum
sveimuðu án afláts yfir þeim
þannig að þau gætu engan veginn
um frjálst höfuð strokið í fríi sínu.
Olíuráðherrar sitja á fundi
Manama, Bahrain, 15. janúar. AP.
OLÍURÁÐHERRAR Saudi Arabíu
og fjögurra bandalagsríkja þeirra
komu til lokaðs fundar í gærkvöld til
að ræða sameiginlegt verð og fram-
tíðarþróun innan OPEC.
Fréttastofa Sameinuðu arab-
ísku furstadæmanna sagði að
fundurinn væri haldinn á heimili
olíuráðherra Saudi-Arabíu og
væri hann haldinn til að leggja
grundvöllinn undir formlegar við-
ræður ríkjanna sem myndu fara
fram um helgina.
Olíuráðherrarnir gáfu engar yf-
irlýsingar við komuna til Manama
og neituðu að svara öllum spurn-
ingum, en haft er eftir áreiðanleg-
um heimildum að umræðuefni
fundarins hafi verið verðákvörðun
og almennar markaðsumræður.