Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983 Bátavélar BMW 30 hestöfl v/3000 RPM BMW 45 hestöfl v/3000 RPM BMW trilluvélarnar eru ferskvatnskældar. Koma á gúmmípúöum og meö 75 AMP alternator. Fullkomiö mælaborö og stjórntæki. Aflúrtak framan á vél. Nýtir kælivatn til upphitunar á bátunum. Kemur meö skrúfubúnaði og tileyrandi niöursetningarbúnaöi. Fjöldi véla nú þegar í íslenskum trillubátum. BMW gæöi og gott verö. Vélar&Tæki hf. TRYGGVAGATA 10 BOX 397 REYKJAVlK SlMAR: 21286 - 21460 Eigum 30HP vélar til afgreiðslu strax. Heilbrigð sál í hraustum líkama ættu aö vera einkunnarorö allra. Viö munum veita ykkur alla aöstoö sem þiö þurfiö til aö bæta líkamlegt ástand ENGIHJALLA 8 (KAUPGARÐSHÚSINU). SÍMI 46900 Viö bjóöum: Rólegar morgunaefingar. Skokk, þjálfun. Foreldrum meö börn. Leik- aöstööu fyrir börnin, meöan foreldrarnir æfa. Stutta hádegistíma meö megrunarfæöi. Endurþjálfun. Sértíma og þjónustu fyrir eldri en 60 ára. Frúartíma fyrir eldri en 40 ára. Helgartíma fyrir fjölskyldur. Jane Fonda-leikfimi. Skíðatrimm. Menntaskólatrimm. Einkatima í sal fyrir hópa (10 eöa fleiri). Aerobic dans (þolæfingar með popptónlist). Slökunaræfingatíma. Leikfimi á klukkutimafresti, áður en farið er í tæki. Ráögjöf um: Þjálfun. Mataræði. Heilsufar. Sértilboð: 3 mánuöir. 6 mánuöir. 1 ár. Opiö Mánudaga—föstudag kl. 8— Laugardaga kl. 10—6. Sunnudaga kl. 1—6. Afsláttarkort gilda frá kl. 8—4. 10. Snjóflóð ALMANNAVARNIR ríkisins hafa gefið út veggspjald með varúðarregl- um og leiðbeiningum til fólks sem snjóflóð og viðbrögð gegn þeim. Mynd 1. Flest hættuleg snjóflóð falla í hríðarveðri, þegar snjó skefur og snjókoma er meiri en 20 sm á sólarhring. Leggið ekki í fjallaferðir þegar spáð er stórhríð. Snjóflóðahætta helst venju- lega í 3 daga eftir að hrið slotar, en enn lengur sé kalt í veðri. Hætta er á ferðum, þegar brestir heyrast í snjóþekju, sprungur sjást, snjóboltar eða spýjur falla. Mynd 2. Hugið að styrk snjóþekjunn- ar. Þótt yfirborðið virðist traust geta veikburða lög leynst undir þvi. Hætta er á kófhlaupum, þegar skíðaslóð markar ekki í lausasnjó, sem nær upp á miðja kálfa, einkum ef undir er harðfenni. Hlýindi, sólbráð eða regn á snjó geta valdið snjóflóða- hættu. Varist svæði þar sem snjór er svo votur að hann skvettist undir skiðum. Fylgist vel með veðurspá og aðvörunum. Mynd 3. Forðist allar brekkur og gil með yfir 30° halla (brött- ustu skíðabrekkur). Mynd 4. Þverskerið aldrei brekkur eða gil þar sem snjór er djúpur, ef grunur er um snjóflóðahættu. Öruggustu gönguleiðirnar eru á hryggjum og áveðurs í hliðum. Þræðið svæði þar sem snjór er grynnstur og þið sjáið nibbur standa upp úr. Gangið eftir dalbotni frekar en í brekkukverkinni. Forðist að taka óþarfa beygjur ef bruna þarf á skíð- um niður varasama fjalls- hlíð. Mynd 5. Björgunar- aðferdir • Ef þú verður þess áskynja að maður lendi í snjóflóði, skaltu hefja leit strax. • Gættu fyrst að því hvort líkur séu á að annað flóð geti fallið á sama stað. • Teljir þú öryggi þínu borgið leitaðu þá fyrst vandlega í yfirborði flóðsins, því oft sést eitthvað upp úr snjónum sem gefur vísbendingu um hvar hinn grafni liggur. • Sjáist engin merki á yfirborðinu, byrjaðu þá að leita á stöðum þar sem snjósöfnun hefur orðið, t.d. við kletta, eða þar sem flóðið hefur beygt. • Notaðu það sem hendi er næst við leitina, t.d. skíði, skíða- staf (handfangið niður), prik e.þ.h. (5). • Ef fleiri eru saman skal a.m.k. einn fara samstundis af stað eftir hjálp, svo unnt verði að hefja skipulagða leit strax. • Sjálfsagt er að nota hunda við leitina, séu þeir til staðar. Viðbrögð við flóði • Ef þú lendir í snjóflóði, reyndu þá að losa þig við skíði, skíðastafi, bakpoka o.þ.h. • Reyndu eftir megni að standa upp úr flóðinu t.d. með því að taka sundtökin. • Berist þú stjórnlaust með flóðinu reyndu þá að halda höndunum fyrir andlitinu, með því móti minnkar þú lík- urnar á að vit þín fyllist af snjó. • Reyndu að hreyfa þig meðan flóðið er að stöðvast því annars er hætt við að þú sitjir alveg fastur þegar snjórinn sest. • Eyddu ekki orku í að hrópa fyrr en þú heyrir í leitarmönn- unum yfir þér, athugaðu að hljóð deyfist mjög í snjó. • Mundu vel að þú verður að halda rósemi þinni og stöðug trú á björgun eykur lífsmöguleika þína mikið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.