Morgunblaðið - 23.01.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.01.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1983 „Hafréttarmálin hafa þó alltaf verið einskon- ar „hobbý“ hjá mér í ráðuneytinu og það var verst hvað ég gat lítið stuðst við handbækur þegar ég samdi lögin og greinargerðina.“ okkar í þeim efnum. Með sáttmálanum eru landhelgislög okkar frá 1979 bjargföst." — Þú hefur haldið þig utan pólitískra deilna um þessi viðkvæmu mál. En ég hef séð vitnað til ræðu sem þú fluttir í útvarp fyrir Stúdentafélag Reykjavíkur 1. desember 1970 með þeim hætti, að þar hafir þú tekið afstöðu gegn sjónarmiðum þeirra, sem þá voru að hefja baráttu gegn útfærslunni í 50 mílur. Hvað viltu segja um það? „Eins og kom fram hér að ofan var haf- inn undirbúningur að því 1970 hjá Samein- uðu þjóðunum að kalla saman þriðju haf- réttarráðstefnuna. Ég gerði grein fyrir stöðu hafréttarmála í þessu útvarpserindi og tók mið af því, að þá var fiskveiðilög- saga okkar íslendinga 12 mílur í samræmi við þann mikla meirihlutavilja þjóðanna sem áður er getið, en í stað 10 ára umþótt- unartíma hafði 1961 verið samið við Breta um 3 ára umþóttunartíma og jafnframt voru grunnlínur færðar mjög út á nokkr- um stöðum. I þeim samningi voru einnig hin umdeildu ákvæði um að Bretar gætu ef þeir sættu sig ekki við þá ákvörðun okkar að færa út fyrir 12 mílur skotið málinu til Alþjóðadómstólsins. I ræðunni 1. desem- ber 1970 sagði ég: „Má óhikað fullyrða að núgildandi reglur íslenskar á þessu sviði ganga eins langt og nokkur möguleiki var fyrir, þegar þær voru settar og stendur enn við það.“ Það var alltaf ætlunin að fylla út í rammann sem settur var með land- grunnslögunum með hliðsjón af þróun al- þjóðalaga. Og þess vegna var okkur svo mikið kappsmál að hafa áhrif á þróun þjóðaréttar eins og hér hefur lýst. Þegar ég mælti þessi orð 1970 var það mitt mat, að alþjóðalög væru á þann veg sem ég lýsti en nýtt tímabil væri að hefjast. Vestur- Þjóðverjar og Bretar stefndu okkur fyrir Alþjóðadómstólinn vegna útfærslunnar í 50 mílur og staðfesti dómstóllinn skoðun mína á því, hver væru alþjóðalög á þessum tírna." — En um útfærslurnar að öðru leyti viltu segja eitthvað um þær? „Ég lít á málið allt sem samfellda bar- áttu fyrir því að brjóta af okkur hlekki sem öftruðu okkur að ráða sjálfir yfir dýrmætustu auðlind þjóðarinnar. Það lá alltaf fyrir, að þetta myndi ekki gerast átakalaust. Við reyndumst hafa rétt fyrir okkur og getum glaðir við unað.“ — Telur þú liklegt að nú muni ríki færa sig upp á skaftið og sölsa undir sig sifellt meiri réttindi til dæmis innan 200 mílnanna? „Það er búið að afgreiða sáttmálann. Nokkur ríki héldu því til streitu fram á síðasta dag, að landhelgin sjálf ætti að vera 200 mílur. Er 200 mílna landhelgi stjórnarskrárbundin í sumum Suður- Ameríkuríkjum svo að töluvert var í húfi fyrir þau. Þessi krafa var afgreidd með þeim hætti, að ríkin eiga að gefa skýringar sem miðast að því að túlka þeirra eigin löggjöf á þann veg að hún sé í samræmi við hafréttarsáttmálann, að öðrum kosti geta ríkin ekki staðfest hann. Fyrir okkur íslendinga er um að gera að gæta þess vel sem við höfum. — Hvað um Reykjaneshrygginn og Rock- all-svæðið? Þú komst hingað nú til að ræða þau mál í utanríkismálanefnd Alþingis. „Ég gaf nefndinni skýrslu um þessi mál 11. janúar síðastliðinn. Málið er tiltölulega einfalt varðandi Reykjaneshrygginn. Sam- kvæmt hafréttarsáttmlanum á strandríki fullveldisrétt yfir landgrunninu innan 200 sjómílna efnahagslögunnar og einnig utan þeirra marka allt að útjaðri landgrunns- brekkunnar. Samkvæmt 76. grein sáttmál- ans eigum við hafbotnsréttindi á Reykja- neshrygg allt að 350 sjómílum eftir honum endilöngum og í hlíðum hans eftir nánar tilteknum reglum. Við tökum sjálfir ákvörðun um mörkin á landgrunninu utan 200 mílna í samráði við sérstaka landa- mæranefnd. Hér er um það að ræða að draga mörk milli landgrunns strandríkis og alþjóðahafsbotnssvæðisins. Öðru máli gegnir um Rockall-svæðið því að fleiri en við gera tilkall til þess. Sam- kvæmt 83. grein sáttmálans um afmörkun Hans G. Andersen með greinargerðina um landhelgismálið sem prentuð var og dreift sem trúnaðar- máli í ársbyrjun 1948. Hún hefur aldrei verið birt með öðrum hætti. Morgunblaðið/KÖE. landgrunns milli ríkja ber að leita samn- inga um yfirráðin þar. Könnunarviðræður hafa þegar byrjað við Breta, Færeyinga og íra. Þetta mál er flókið og erfitt. Svæðið er lítt kannað en rökin í málflutningi okkar byggjast á jarðfræðilegum og jarðeðlis- fræðilegum atriðum. Við þær aðstæður er meðal annars tekið mið af jarðefnum í setlögum á hafsbotni. Tel ég rétt að við sækjum þetta mál og setjum fram óskir um sameiginleg yfirráð á svæðinu í svip- uðum anda og samið var við Norðmenn vegna Jan Mayen. En þetta mál er á við- kvæmu stigi og ekki skynsamlegt að rekja það nánar.“ — Að lokum Hans. Hvaða atvik sækir oftast á hugann þegar þú hugsar um þessa baráttu? „Mér er minnisstæðastur atburður sem gerðist eftir atkvæðagreiðsluna í 6. nefnd 1949 þar sem Bretar urðu undir. Að henni lokinni gengu fundarmenn fram í anddyri ráðstefnuhússins. Þá kom kunningi minn með Sir Gerald Fitzmaurice til mín, ætlaði að kynna okkur en spurði fyrst hvort við þekktumst. Þá sagði Sir Gerald aðeins: „We have just crossed swords.“ Og það má til sanns vegar færa að þá hafi íslendingar og Bretar fyrst brugðið bröndum." Bj-Bj. Staöur: UNDIRRITUÐ(AÐUR) ÓSKAR EFTIR EFTIRTÖLDU: Nafn: Heimili: Póstnr.: □ Playboy almanak 1983, stœrð 68 x 99 cm. Verð 98 kr. □ Mótorhjóla almanak 1983. stærð 68x99 cm. Verö 98 kr. VER8 AM PÖS7K ROfUXOSTNABAR ____stk. upphengilistar-hvítir68cm. Verð 18 kr. ____stk. upphengilistar- svartir 68 cm. Verð 18 kr. Þeir sem ekki vilja klippa úr blaðinu geta sent pöntun með því að skrifa hana á blaö. Aðeins fáanleg á þennan hátt Sendist til: PÓSTVERSLUNIN SF. Box 146 - 220 Hafnarfirði PLAYBOY almanakíð 1983 MÓTORHJ ÓLA almanakið 1983 RAFVIÐGERÐIR HF. Sími 83901 Endumýjun og breytingar á eldri raflögnum. NÝLAGNIR Heimilistækjaviðgerðir. Alltefni til raflagna. Herradeild skyrtur, undirföt, sokkar, peysur Allt seit fyrir ótrúlega lágt verð. Egill Jacobsen Austurstræti 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.