Morgunblaðið - 23.01.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.01.1983, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1983 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1983 23 pltrgi Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakið. Idag eru tíu ár frá því að eldgosið í Heimaey hófst. Eldgos eru ekki ný af nálinni á Islandi, en aldrei fyrr hafði svo fjölmennt byggðarlag fléttast inn í ís- lenzka eldfjallasögu. Eyjaflotinn flutti 5.500 manns á einni nóttu til fastalandsins. Fjögur hundruð af tólf hundruð húsum í kaupstaðnum fóru undir hraun eða eyðilögð- ust með öðrum hætti í fimm mánaða gosi. At- vinnulíf Eyjanna, stærstu verstöðvar landsins, lamað- ist, en eitt fyrirtæki, Fiskimjölsverksmiðjan hf., hóf loðnuvinnslu meðan eldfjallið gaus enn í næsta nágrenni. Það segir sína sögu, sem og sú staðreynd, að Vestmanneyingar stunduðu áfram sjósókn frá öðrum verstöðvum meðan hraunflóðið hjó skörð í heimabyggð þeirra. Vestmanneyingar og hjálparlið úr landi héldu uppi björgunarstarfi í kaupstaðnum, sem engin orð ná að lýsa sem vert væri, og þar var gripið til nýjunga, m.a. til að hægja á hraunstraumnum, er heppnuðust að vissu marki. Landsmenn allir sem og vinveittar nágrannaþjóðir fylgdust gjörla með frétt- um af gosinu og varnar- viðbúnaðinum — og víða að bárust framlög og aðstoð, er sýndu velvild og hlýhug. Enginn, sem ekki upp- lifði þessa atburði í Vest- mannaeyjum, getur til fulls gert sér í hugarlund þau áhrif sem gosið hafði á við- komandi fjölskyldur og ein- staklinga, flýtisflutninga þúsunda á einni nóttu í ný heimkynni og þá lífs- reynslu sem í kjölfar fylgdi. Sagan af eldgosinu í Heymaey reis ekki hæst með gosmekkinum, sem steig til himins upp úr tveggja kílómetra gos- sprungunni, heldur í við- reisninni, er Vestmanney- ingar endurbyggðu kaup- staðinn, atvinnulífið og samfélag sitt. Hraunhita- veitan í Vestmannaeyjum, sem nýtir gosið, eða þá viðbót við Heimaey sem það gaf, sem orkugjafa, ber vott um hyggindi og hag- sýni þessarar viðreisnar. Eyjaskeggjar hafa jöfnum höndum lagt sig fram um að græða upp land, at- vinnulíf og það sérstæða samfélag, sem Vestmanna- eyjar eru, og náð undra- verðum árangri. Vestmannaeyjar eru í dag, eins og þær hafa löng- um verið, einn stærsti inn- leggjandi verðmæta í ís- lenzka þjóðarbúið. Að baki þeirrar staðreyndar býr mikil afrekssaga, frá gosi fram á líðandi stund, er ber vitni um einstæðan dugnað, framtak og framsýni. At- vinnulíf þar á að vísu í vök að verjast, eins og annars staðar í landinu, en orsök þess á ekki rætur í gos- sprungunni í Heimaey, heldur hjá mýraljósum pólitískrar stjórnsýslu á fastalandinu, en það er önnur saga. Gossaga Eyjanna er ekki fullsögð nema munað sé eftir því áfallinu, sem e.t.v. var stærst fyrir byggðina í Eyjum. Af 5.500 manns, sem fóru frá Vestmanna- eyjum gosnóttina fyrir tíu árum, sneru 1700 ekki af- tur. Til þessa liggur efalítið margþætt orsök, m.a. það tjón sem eldgosið olli á húsakosti kaupstaðarins. Þessi staðreynd var ávinn- ingur fyrir fjölmörg byggð- arlög, sem fengu dugandi þegna, en Vestmannaeyja- kaupstað mikill missir. Eldgosið í Vestmanna- eyjum minnti okkur öll á þá viðvarandi staðreynd að við lifum í landi elds og ísa, harðbýlu landi á mörkum hins byggilega heims. Tækniþróun, þekking, menntun og gjörbreyttar þjóðlífsaðstæður gera okkur, sem þreyjum þorr- ann og góuna á líðandi stund, betur í stakk búin til að mæta kenjum náttúr- unnar og þeim aðstæðum sem hnattstaða landsins býður upp á. En þetta land á jafnframt ærinn auð, ef þjóðin kann að nýta hann réttilega, gróðurmoldina, fiskimiðin og orkuna í fall- vötnum og jarðvarma. Mestur er þó auðurinn í mannfólkinu sjálfu, fram- taki þess, -menntun og þekkingu. En það þarf engu síður að nýta þann auð rétt en auðlindir lands og lagar. Viðreisnin í Vestmanna- eyjum er mikil reynslu- saga, sem fjallar ekki sízt um þann mannauð, sem að framan getur. Vestmann- eyingar hafa í verkum sín- um skrifað þann hluta þjóðarsögunnar á sl. ára- tug, sem væntanlega þykir merkilegastur og lærdóms- ríkastur á ókominni tíð. Viðreisnin í V estmannaeyj um Bréf og kort í jólapóstinum mínum minntu ónotalega á fólk, sem er að gleymast umheimin- um, hímandi í flóttmannabúðum eða hrakið fram og aftur milli stríðandi herja. Bréfin þau komu frá Thailandi, þangað sem 570 þúsund manns flúðu eftir 1975 undan kommúnistastjórnunum í Laos, Kambodíu og Viet Nam, en aðeins 380 þúsund hafa fengið varanlegt hæli í þriðja landinu. Á árinu, sem nú var að kveðja, voru enn innan flóttamannabúða við landamæri Thailands og Kambodíu 190 þúsund vegalaus- ir flóttamenn og lítil von um lausn. Þó hefur enginn, sem komið hefur eftir 1981, fengið inni í flóttamannabúðunum eða er gjaldgengur til annars lands. Það fólk hrekst bara á landa- mærunum fram og aftur undan stríðandi herjum, og hörmungar þess fara vaxandi einmitt þessa dagana með aukinni sókn Víet- namhersins í Kambodíu á hend- ur PolPots-liðinu og þjóðfrels- isher Kambodíumanna. Eitt eru tölur um þúsundir af hröktu fólki og annað persónuleg frásögn af litlu barni í einka- bréfi. Eins og t.d. frásögnin af honum Vanna litla, sem kom til hennar Ruth Ache 8—9 mánaða gamalt strá upp á 5,9 kíló. Átta ára bróðir hans kom nær dag- lega með hann á mjöðminni, eða hangandi yfir öxlina, til að fá hjúkrun. Hjálparfólkið kallaði Vanna „litla öldunginn" af því andlitið var eintómir pokar og hrukkur. Eftir 7 mánuði, nú um jólaleytið, vó hann orðið 8 kg. „Og hrein unun að sjá hann veita móður sinni eðlileg viðbrögð og skríkja við Heurt bróður sínum," segir Ruth. En hvað býður svo litla Vanna? Og allra hinna? Sem betur fer er þarna enn gott fólk, sem gefur — ekki bara fé, svo mikilvægt sem það er, af sjálfu sér. Nú er ég ekki að tala um þá sem fara til hjálparstarfa fyrir hærri laun og meiri hlunn- indi en þeir geta fengið heima hjá sér, þótt þeirra hjálp komi vissulega að gagni, heldur fólk á borð við þessa ungu bresku stúlku, Ruth Ache, sem leggur einfaldlega fram hluta úr æfi sinni. Eins og öll hennar fjöl- skylda hefur raunar gert. Byrj- aði þegar móðir hennar sá 1966 á sjónvarpsskjánum svipaða mynd þeirri, sem dóttirin nú hefur, þ.e. umhyggjusaman dreng með lít- inn bróður sinn dröslandi í flóttamannastraumnum í Viet Nam, búnir að týna foreldrun- um. Og prestskonan Marion Ache sagði: Ef við gætum þótt ekki væri nema bjargað einu barni! Og hún og maður hennar urðu svo upphafið að heilli hreyfingu fólks, sem búin er að bjarga þúsundum barna á þessu stríðshrakta svæði í gamla Indó- kína. í þeirra hópi sem lagt hafa óspart lið í flóttamannabúðum Kambodíu, er ein upprunnin frá íslandi, Erna Grant frá Akur- eyri, sem búið hefur fjöldamörg ár í Thailandi. Ef til vill verða þessar myndir, sem upp eru dregnar af þessum slóðum, meira lifandi í mínum huga, af því ég hefi verið þarna og séð hörmungarnar eigin aug- um. En undarlega er samt orðið hljótt um þetta bjargarlausa fólk í heimspressunni og umtali hérna megin á hnettinum. Sam- úðin eða hneykslunin — hvort sem fólk nú kaus sem hæst hafði fyrrum — hefur að mestu snúist yfir á aðrar og nýrri hörmungar, helst í Mið-Ameríku og Líbanon. Jafnvel samúðin fylgir straum- um tísku, þess herra sem sann- arlega lætur hlýða sér. Tískan sveiflast líka þarna sem annars staðar eftir nýjungum og er stjórnað markvisst og skipulega. Og alltaf er auðveldast að láta fylgjast með straumnum. Nú berast fréttir af harðari átökum við landamærin, þar sem vietnamska herliðið í Kambodíu nýtir þurrkatímann til að herja á skæruliða svokall- aðrar þjóðfrelsisfylkingar, er hefur skjól af frumskóginum í fjöllunum. Bætist því enn við hörmungar þessa fólks, sem hrekst í skjól í Thailandi, þegar harðnar. Undir leika stórveldin, Vanni með móður sinni. sem þarna berjast um áhrifin, Sovétríkin með Víetnömum og veita þeim vopn, og Kínverjar með Rauðu Khmerunum og kambodísku þjóðfrelsisfylking- unni með kröfu um að Víet- namher verði burtu úr landinu. Fólkið sjálft hrekst frá einni ógnuninni til annarrar undan fjöldamorðum landa sinna Rauðu Khmeranna og nú undan erlendum her Víetnama í landi þeirra. Víða á þessari plánetu okkar eru hungur og hörmungar. Af gefnu tilefni í jólabréfi, vek ég athygli á þeim sem eru að gleymast þarna. Við vorum minnt á það í jólamánuðinum af Hjálparstofnun kirkjunnar, að á hverri klukkustund deyja 4000 manns úr hungri víðs vegar um heiminn. Tilefni söfnunarher- ferðar Hjálparstofnunarinnar, sem er að ljúka nú í mánaðarlok, í þeim tilgangi að veita obbolitla aðstoð úr okkar velmegun. Safn- ast hafa 2,3 milljónir króna, sem verður framlag íslendinga. Og enn er tækifæri í viku til að bæta við. í jólahefti Kirkjurits- ins, sem helgað er þróunaraðstoð í þriðja heiminum, fjallar Mar- grét Jónsdóttir, fréttamaður hjá útvarpinu, einmitt um fréttir frá þriðja heiminum og fréttamat og finnst að bæta megi upplýs- ingastreymið, sem yrði eflaust til að eyða tortryggni, misskiln- ingi og vanmati. En í þessu riti er líka fjöldi fjölbreyttra greina er veita mjög gott yfirlit yfir hjálparstarf okkar Islendinga og þörfina á aðstoð. Það sem kannski ýtti seinni hlutanum af þessum gárum af stað, var líklega strætisvagna; ferð í ófærðinni um hátíðarnar. í einum vagninum, nr. 4, hafði Hjálparstofnunin límt upp plak- at sitt með áletruninni: „Veist þú að á hverri mínútu deyja 20 börn úr hungri. Getur þú hjálp- að. Landssöfnun á jólaföstu. Gíró 2000.“ Og yfir tært andlitið á hungruðu barni, eins og honum Vanna litla, hefur svo einhver límt auglýsingu fyrir jólamynd- ina „Komdu að sjá ET í Laugar- ásbíói." Til að þurfa ekki að horfa framan í eymdina líklega. Það er auðveldara. En í heimi, sem dregst hratt saman og er orðinn svo lítill að við horfum í stofunni okkar á hungrað fólk hinu megin á hnettinum, er ógerlegt að skjóta sér bak við að maður viti ekki. Ekki börn eða unglingar í strætó heldur. „í heiminum er svo margt hungrað fólk, að guð getur ekki birst því nema í formi brauðs," sagði sá spaki Ghandí. Og jafn- virði eins og eins brauðs ættum við að geta séð af — þótt yið séum hér öll á vonarvöl á ís- landi, sem vart fer framhjá nokkrum manni og við þegjum ekki yfir. En svo ég grípi enn til dönsku ljóðabókarinnar á nátt- borðinu mínu og hirði þar vel við eigandi grúkku eftir hann Piet Hein: Hvad ragor det den som er sikker pá sit at restan af verden er ude af tritt. Reykjavíkurbréf Laugardagur 22. janúar Mor>funbladid/ÓI.K.M. Þráinn og Jónas Þráinn Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Framsóknarflokks- ins, lét nýlega af starfi hjá flokki sínum eftir 36 ára þjónustu. Af því tilefni átti Tíminn viðtal við hann. Þráinn lýsir þar meðal annars kynnum sínum af Jónasi Jónssyni frá Hriflu þegar hann var skóla- stjóri Samvinnuskólans og því að hann yfirgaf skólann „með nokkuð sviplegum hætti" og hóf störf fyrir Framsóknarflokkinn. Þráinn Valdimarsson segir: „Það hafði verið nokkur óvissa um það þarna í skólanum, hvort nemendum skyldi leyft að halda áfram að halda skemmtanir sínar þarna í skólanum. Jónas var hræddur um það að þangað kæmist inn „fólk utan af götunni," eins og hann orðaði það, sem mundi spilla heilbrigðri skemmtan nemenda en skólinn var þá í Sambandshúsinu við Sölvhólsgötuna, eins og ég minnt- ist á. Aldrei hafði það þó átt sér stað að slíkt gerðist og ef ein- hverjir gamlir nemendur komu á skemmtanir, þá var reglusemin eftir sem áður algjör, það var ekki einu sinni reykt á þessum sam- komum. Fannst okkur þetta held- ur hart, þar sem nemendafélagið var að safna fé, til þess að geta farið í skemmtiferð að prófum loknum. Höfðum við enda lofað að það skyldi ekki koma fyrir að skól- inn þyrfti að hafa neina vanvirðu af þessum samkomum og eftir- litsmenn nemenda voru jafnan viðstaddir. Þá var og annað ágreiningsefni og var það viðvíkjandi því að til orða hafði komið að vísa einum eða tveimur nemendum úr skólan- um, vegna þess að þeir þóttu sækja illa tíma. Út af þessu öllu var haldinn sér- stakur fundur. Ég hafði einsett mér að skipta mér ekkert af fé- lagsmálum í Samvinnuskólanum, — hafði fengið mig fullsaddan af félagsmálastarfi í þrjú ár á Laug- arvatni. En einhvern veginn fór það nú svo að formaður hætti ekki fyrr en ég gaf eftir og hét að hafa framsögu um þessi mál af hálfu nemenda. Jónas hélt svo aðra ræðu. Samdi ég fyrri partinn af þessari ræðu og á hann enn í fór- um mínum, en síðari hlutann flutti ég upp úr mér. Skal ég að vísu viðurkenna að í dag hefði ég ekki flutt þennan ræðustúf, en þó var ég ekki svo tannhvass að ég teldi mig geta átt von á því frá Jónasi, sem ég svo mátti reyna. Risu öldur all hátt á fundinum, en þó ekki hærra en svo að þegar fundi lauk fannst mér sem sættir væru komnar á, því Jónas sagði í lok sinnar ræðu að vafalaust hefð- um við báðir sagt hitt og annað sem betur hefði verið ósagt, en stæðum þó nær því að skilja hvorn annan en í upphafi, þetta fannst mér vera sáttaboð og flutti eitt- hvað hliðstæða tölu á eftir. En þegar ég kem í tíma daginn eftir, þá bregður svo við að nær allur kennslutíminn fór í það hjá honum að hann reyndi að ná sér niður á mér og segja eitt og annað sem mér þótti miður gott að hlusta á. Ég hafði vit á að þegja, en spyr um leið og hann lýkur kennslustundinni hvort ég megi segja við hann nokkur orð. „Alveg sjálfsagt, Þráinn," segir Jónas þá, afskaplega hlýlega og vingjarn- lega, tekur undir handlegginn á mér og leiðir mig út að glugganum við stigann. Þá sagði ég orð sem ég hefði ekki átt að segja, en skapið var nú ekki þjálla í þá daga: „Ér- indið við þig var nú nánast að spyrja hvort ég ætti að vænta framhalds á þessum fræðslutím- um um mig í kennslustundum?" Við þessi orð varð Jónas ákaflega reiður, hrinti mér niður stigann hvað þá annað, og kallaði á eftir mér að ég skyldi ekki láta sjá mig í skólanum framar. Það hafði hann að vísu sagt þrívegis á fund- inum kvöldið áður. Eftir þetta þóttist ég sjá að það mundi verða ómögulegt fyrir mig að vera í skólanum áfram. En Jón- as hafði líklega einhvernveginn fengið það inn í sig, sem ég fæ aldrei skilið, því ég var einlægur aðdáandi hans, að ég væri sendur inn í Samvinnuskólann af Ey- steini og Hermanni, til þess að gera uppistand. Um þetta leyti var skilið á milli flokksins og Jónasar. Hefur hann eflaust hugsað sem svo að með því móti ætti ég að vinna að því að hann yrði settur af sem skólastjóri. Ég þekkti hvorki Hermann né Eystein þá og einu stjórnmálamennirnir sem ég þekkti eitthvað og hafði óbilandi dálæti á og hef enn, voru Jónas og Bjarni skólastjóri á Laugarvatni, einlægur fylgismaður hans. Guðlaugur Rósinkrans var yfir- kennari um þetta leyti og hann bað mig eindregið að halda áfram í skólanum og hætta við þessa fyrirætlun. „Þú mátt alls ekki taka skólastjórann alvarlega," sagði Guðlaugur, „því hann getur gert svona í reiðikasti. Hann kann að sjá eftir þessu og verða þér þakklátur, ef hér gæti gróið um heilt." En það var komin í þetta stífni og vist minni í skólanum var lokið.“ Albert og Jónas I bókinni Albert sem út kom fyrir hátíðirnar lýsir Albert Guð- mundsson kynnum sínum af Jón- asi Jónssyni frá Hriflu og segir, að hann hafi boðið sér að koma í inn- tökupróf í Samvinnuskólann. Hafi Jónas tekið sig í nokkra einkatíma og ráðlagt sér að fara í aukatíma og svo í prófið. Segist Albert hafa farið að hans ráðum og staðist inntökuprófið í Samvinnuskólann. Þar var Albert að eigin sögn „gerður að nokkurs konar forystu- sauð í félagslífi". Þá segir Albert: „Kynnin við Jónas frá Hriflu og Samvinnuskólann gerðu það að verkum, að mér varð hlýtt til sam- vinnuhreyfingarinnar. Sú hreyf- ing og Samvinnuskólinn eru ekki eitt og hið sama og Framsóknar- flokkurinn. Það eru vissulega tengsl á milli, en ég varð aldri var við neinn pólitískan þrýsting í skólanum. Þar voru margir efni- legir menn utan af landi, en flestir sem í skólanum sátu, voru þar af sömu ástæðu og ég. Þeir voru að missa af þeim möguleika að læra. Þetta var yfirleitt fólk um tvítugt og komið yfir „eðlilegan" skólaald- ur. Við Jónas urðum svo góðir vinir. Hann heimsótti mig til út- landa...“ Og enn segir Albert Guð- mundsson: „Ætli það megi ekki taka svo til orða, að félagsstörf mín hafi gert mig að félagshyggjumanni. En pólitíska lífsskoðun valdi ég ekki fyrr en ég kom út úr heimi íþrótt- anna. Þá var ég orðinn þrjátíu og þriggja ára gamall og það var víst nánast tilviljun hvar ég lenti í flokki, ef þannig er litið á málið. Ég hafði ekki hugsað mér að fara út í stjórnmál. Þó hafði verið talað við mig, bæði frá Framsókn- arflokknum og Alþýðuflokknum. En ég hafnaði allri stjórnmála- þátttöku. Svo æxluðust mál þann- ig, að þeir nýju félagar sem ég eignaðist eftir að ég kom til lands- ins kringum 1955, voru margir í Sjálfstæðisflokknum. Upphafið var þannig, að nokkrir menn úr Framsóknarflokknum vildu tala við mig um framboð fyrir flokkinn. Ég man nú ekki hverjir þetta voru, nema að Ey- steinn Jónsson var þarna. Þeir ræddu við mig um þátttöku í stjórnmálum og um framboð hér í Reykjavík. Ég hlustaði á þá, en sagðist ekki hafa hugsað mér stjórnmálaafskipti. Ég sagði hins vegar vini mínum, Jónasi, frá þessu. Jónas sagði að það væri ekki við hæfi, að ég færi í framboð fyrir Framsóknarflokkinn: „Úr því að þú valdir það að lífsstarfi að gerast heildsali," sagði Jónas, „þá er það ekki við hæfi, að þú gangir í Framsóknarflokkinn." Svo sat hann nokkra stund hugsi, leit á mig og sagði: Ég tek af þér loforð um, að þú farir aldrei í framboð fyrir Framsóknarflokk- inn.“ Hin beiðnin um framboð var ekki eins dramatísk. Það voru nokkrir kunningjar mínir úr Al- þýðuflokknum, sem komu að máli við mig og spurðu, hvort ég hefði áhuga á að fara í framboð fyrir þann flokk. Ég sagði bara nei. Þessi neikvæðu svör til þessara flokka stöfuðu ekki af andstöðu minni við þá. Ég hafði einfaldlega ekki hugsað mér að fara í pólitík. Ég hugsaði ekki um stjórnmál á meðan ég var íþróttamaður. Ég hugsaði ekki heldur um stjórnmál fyrst eftir að ég kom heim, eftir náms- og íþróttaferil." Aftar í bókinni segir svo Albert Guðmundsson enn: „Ég þekkti Jónas Jónsson mjög vel. Hann var afskaplega frjór. Hann var bæði hugsjónamaður og athafnamaður, fróður um margt. Ég var svo heppinn að kynnast honum vel, en ég held að hann hafi ekki haft nein áhrif á mig; ég gekk ekki heldur í Framsóknarflokkinn. Kannski hafði Jónas helst áhrif á mig sem hinn góði kennari sem hann var.“ Áminning Gunnlaugur Jóns Óskars og öryggið Fyrir skömmu vakti Jón Óskar, skáld, máls á því í Lesbók Morg- unblaðsins, að við þyrftum að gæta okkar á þeim útlenskuhreimi sem gerist æ áleitnari hjá út- varps- og sjónvarpsmönnum, en megineinkenni þessa framandi hreims er það, að talað er uppá við, eins og Jón Óskar orðar það. Þessi áminning hans er svo sannarlega tímabær og oftar en einu sinni hefur því verið hreyft hér í Morgunblaðinu, meðal ann- ars í forystugreinum, að nauðsyn- legt sé að hlúa að framburði ís- lenskunnar ekki síður en stafsetn- ingu og málfræðireglum. Þegar Jón Óskar rökstyður aðfinnslur sínar vegna útlenskuhljóms í fjöl- miðlum segir hann meðal annars: „Vil ég þar sérstaklega tiltaka þá sem senda útvarpinu þýðingar úr erlendum blöðum gegnum síma. Ég veit ekki hvernig menn- irnir eru valdir, en ég hlýt að spyrja: hvar er hitt fólkið sem kann að tala móðurmálið sitt? Af hverju flytur það okkur ekki frétt- irnar, ef við þurfum að fá þær með dósahljóði gegnum síma eða þó það væri á segulbandi? Heyra má þó á sumum þessum frétta- mönnum, að þeir geta talað ís- lensku." Hér er fast kveðið að orði en með hógværum hætti. Menning- arlegar kröfur sem menn gera til ríkisútvarpsins eru svo sannar- lega miklar. Frumskylda þessarar stofnunar er sú að allra dómi, von- andi, að hún hafi ekki slævandi áhrif á málkennd manna og afbaki hugmyndir þeirra um það, hvernig móðurmálið skuli fram borið. Ætli núlifandi kynslóð að láta af varðstöðu um þennan mikilvæga þátt er svo sannarlega fokið í flest skjól. í fróðlegu samtali hér í blaðinu fyrir viku kynntust lesendur við- horfum Gunnlaugs Péturssonar, fyrrum borgarritara, sem hefur lagt málefnum þjóðarinnar lið sem embættismaður bæði utan lands og innan. Hann var meðal annars fastafulltrúi íslands hjá Atlantshafsbandalaginu, þegar þetta merka friðarbandalag var að slíta barnsskónum. Nú þegar hann lítur til baka er honum efst í huga, að starfsmenn íslensku utanríkis- þjónustunnar eigi ekki síður að fylgjast með hernaðarlegu sam- starfi innan NATO en hinu póli- tíska. Gunnlaugur sagði einnig: „Við höfum eignast víðfeðma efnahagslögsögu, sem við verðum vandlega að gæta. Við eigum sjálf að annast öryggisgæslu landsins, einsog frekast er kostur. Vitan- lega verða þeir íslendingar, sem fást við þessi störf, að starfa undir lögboðnum aga ... Nú er kominn upp umræða hér heima um þessi mál. Ég held að þjóðinni liði betur að vinna þessi öryggisstörf sjálf. Við erum hvort eð er sjálf ábyrg fyrir öryggi okkar." Undir orð þessa reynslumikla manns skal tekið, en um leið á það minnt, að með því varnarsam- starfi sem við nú eigum við Bandaríkin er okkur tryggð su besta vernd sem fáanleg er. Við hljótum að meta aukna aðild að eigin vörnum með hliðsjón af því, en innan ramma samstarfsins í Atlantshafsbandalaginu ætti svo sannarlega að vera unnt að auka hlut okkar sjálfra í öryggisgæsl- unni — ekki síst á hafi úti með eðlilegri samvinnu Landhelgis- gæslunnar við flota annarra NATO-ríkja. Að þessu máli þarf að huga samhliða því sem áhersla er lögð á eigið mat okkar sjálfra á öryggishagsmununum. V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.